Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1989, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1989, Síða 5
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989. 5 Veturinn var harður á Patreksfirði - sem og viðar á landinu. Nú er vor í lofti og Patreksfirðingar kunna að meta þaö sem aðrir landsmenn. DV var á Patreksfirði fyrir fáum dögum og hitti þá meðal annars þessar tvær hress- ar konur, Helgu Bjarnadóttur og Björgu Bjarnadóttur, á gönguskíðunum. Þær sögðust hafa notað skíðin mikiö í vetur - bæði til gagns og gamans. DV-myndir GVA Jón Steinar fær engar upplýsingar um áfengiskaupin: Málsókn byggð á brauðfótum? „Ég hef fengið nokkur svarbréf en í þéim hafa ekki verið umbeðnar upplýsingar. Ég hef ekki enn fengið bréf, hvorki frá fjármálaráðuneyti né Afengisversluninni en það er ekki útilokað að þeir aðilar ætli að upp- lýsa þetta. Ég mun í málinu skora á stefnanda að afla þessara upplýs- inga. Ég mun leggja fram öll þessi bréfaskipti og mun síðan skora á stefnanda að upplýsa þetta. Ég byggi meðal annars á því að ef það verður ekki gert er ekki hægt að halda því fram að minn skjólstæðingur hafi brotið þessar reglur þegar neitað er að upplýsa um efni þeirra. Þetta er nú þannig að þessar reglur hafa aldr- ei verið formlega settar eða birtar eða neitt þannig. Viö getum ekki vit- að hvemig þær eru nema að skoða framkvæmdina - það er eina aðferð- in sem er tiltæk til þess aö kanna efni þessara reglna. Mér sýnist að málsóknin standi á nokkrum brauð- fótum ef menn ætla ekki að upplýsa þetta,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstaréttarlögmaður. Jón Steinar er lögmaður Magnúsar Thoroddsen, fyrrverandi forseta Hæstaréttar, í máli ríkisvaldsins gegn Magnúsi. Jón Steinar skilar greinargerð vegna málsins í borgar- dómi í dag. „Mínar óskir um þessar upplýsing- ar liggja fyrir og þær verða ítrekað- ar. Askorun verður beint til stefn- anda, dómsmálaráðherra fyrir hönd ríkisvaldsins, að upplýsa þetta. Ég hef því miður ekki vald til að fara í þessar stofnanir og ná þessum upp- lýsingum út með afli. Ef upplýsingar fást ekki þá hefur það væntanlega einhver áhrif á dómsniðurstöðuna í málinu,“ sagði Jón Steinar Gunn- laugsson. -sme Borgarráð vill ekki þingið í Hótel Borg „Þaö var algjör eining í borgarráði um tillögu borgarstjóra varðandi Hótel Borg,“ sagði Magnús L. Sveins- son, forseti borgarstjórnar, í samtali við DV. Borgarráð lýsti áhyggjum sínum yfir yfirtöku Alþingis á Hótel Borg og því að hótelrekstur yrði lagð- ur niður í miðbæ Reykjavíkur. Einn- ig segir í tiUögunni að Reykjavíkur- borg óski eftir samningarviöræðum við Alþingi um aðrar lausnir á hús- næðisvanda þess. „í umræðunum var rætt um aðra möguleika á lausn húsnæðisvanda Alþingis. Bent var á að skrifstofu- húsnæði borgarinnar í Pósthús- stræti losnaði þegar raðhús borgar- innar verður tilbúið. í annan stað er fyrir hendi byggingarréttur á húsi Miðbæjarmarkaðarins en það hús nær ekki í dag þeirri hæð sem sam- þykki er fyrir," sagði Magnús. Magnús sagði ennfremur að það yrði mikill skaði fyrir Reykvíkinga og landsmenn alla ef Hótel Borg gegndi ekki lengur því hlutverki sem því failega húsi væri ætlað. Hann sagðist einnig sannfærður um að margir alþingismenn væru hlynnt- ari öðrum lausnum á húsnæðisvand- anum. -JJ Fréttir Bóndi á Ströndum ver varplandið: Skaut fimm refi á fimm dögum - skaut þrjá refanna á sama deginum „Það er ill nauösyn hjá mér að vera að skjóta þessi dýr. Refimir hafa ekki séð varpið í friði og því hef ég þurft að grípa til byssunnar. Skaut ég fimm refi á fimm dögum, þar af þrjá á einum degi,“ sagði Sigurður Marinósson, bóndi á Kollafjarðamesi á Ströndum, í samtali við DV. „Ég setti hrosshaus upp í skarð í hliðinni um 600 metra ofan við bæinn. Þangað sést vel úr eldhús- glugganum hjá mér og auðvelt að sjá ef einhver dýr eru á ferðinni. Fyrsta daginn, 3. apríl, skaut ég eina tófu við veginn sem liggur á milli bæjarins og skarðsins. Var hún í felum við vegkantinn þegar skólabílnum var ekið fram hjá en stökk síðan út í móana. Síðan liðu tveir dagar án þess að nokkuð gerðist. Á þriðja degi skaut ég síðan þrjá refi. Þá hafði ég farið upp í skarðið. Varð ég var við ein- hverja hreyfingu við urðarhól sem þarna er. Fór ég í sveig til að kom- ast hinum megin að hólnum og skaut þar tvo refi á færi. Á leiðinni að hólnum hitti ég tófu, frekar ræf- ilslega, og náði henni fljótt. Á fimmta degi náði ég síðan þeirri síðustu þar sem hún var á vappi við skarðið." Sigurður segist ekkert hafa sko- tið síðan þetta gerðist og mætti varla vera að því þar sem hann væri að undirbúa grásleppuveiðar. Hafi öll dýrin, utan eitt, verið falleg og vel á sig komin. Eitt dýranna var sérstakt aö því leyti að það hafði hvítar skellur milli fótanna. Hin voru öll mórauð. Sigurður seg- ist ekki hafa skotið mikið af ref en í fyrra skaut hann eitt dýr í varp- inu. -hlh AUGLÝSING Það var sannkölluð markaðsstemming í Kolaportinu á laugardaginn og talið a.m.k. 13.000 manns hafi mætt á svæðið. Góð byrjun í Kolaportinu -13.000 gestir á fyrsta degi Markaðstorgsins í Kolaportinu Það var mikið Qör í Kolaportinu sl. laugardag, en þá hóf göngu sína fyrsti almenningsmarkaður hérlendis, þar sem allir geta komið og selt nánast hvað sem er. Markaðstorgið verður haldið í Kolaportinu hvern laugardag frá kl. 10-16, en það er Helga Mogensen veitingakona sem stendur fyrir því í samvinnu við Miðbæjarsamtökin. „Við erum mjög ánægð með þessa byijun," sagði Helga Mogensen við lok markaðarins á laugardag- inn. „Lionsmenn sem voru hér við innganginn að selja Rauðu fjöðr- ina sögðu mér um tvöleitið að þeir teldu gestina vera orðna um 10.000. Síðan hefur straumurinn aukist enn og við teljum því heiid- arfjölda gesta vera um 13.000 eftir daginn. Þetta bendir til þess að hugmyndin eigi góðan hljóm- grunn hjá fólki og að slíkt mark- aðstorg geti orðið fastur punktur í borgarlífinu.“ Seljendur fóru að streyma að upp úr klukkan átta á laugardags- morgun og þegar markaðstorgið opnaði, var efri hæð Kolaportsins full af hinum margvíslegustu sölu- básum. Nokkuð var af kaup- mönnum og heildsölum að selja vörulagera, en megin uppistaðan voru þó einstaklingar með gamla og nýja muni. Nokkrar fjölskyldur höfðu greinilega lagað til í komp- unum og var góð stemming í kringum þá bása. Svo góð var salan á gömlum, notuðum mun- um, að sumir seljendur voru að kveðja um hádegisbilið, búnir að selja allt saman. 8000 kókosbollur seldar Seljendur voru flestir ánægðir með söluna og sumir hálf ringlað- ir eftir daginn. Einn hafði selt 8000 kókosbollur og ekki haft tíma til að fá sér bita allan dag- inn. „Ég hafði ekki alltof mikla trú á þessu fyrirfram en þetta er búið að vera alveg ótrúlegt," hafði þessi söluaðili að segja um mark- aðstorgið. Tvær stúlkur seldu blöðrur fylltar helium á vægu verði og kepptust við að þjóna endalausri biðröð barna. Þær höfðu ekki bijóst í sér að taka pásu en voru óneitanlega fegnar þegar uppselt var um þijú- leitið. Ennþá betra næst „Við fengum margar góðar tillög- ur frá kaupendum og söluaðilum sem við ætlum að nýta okkur í framtíðinni til að gera Kolaportið ennþá skemmtilegra," segir Helga Mogensen. „Flestir söluaðiliar hafa nú þegar pantað pláss næsta laugardag og mjög margir nýir aðilar látið skrá sig. Við leggjum nú megin áherslu á að fá sem flesta einstaklinga til að selja gamla dótið úr kompunni eða húsmuni sem fólk er að end- urnýja. Slíkir söluaðilar gera Kolaportið frábrugðið öllum öðr- um útsölumörkuðum sem sífellt er verið að halda. Ég skora nú á fjölskyldur og saumaklúbba að gera skurk í þessu og vera með á laugardag- inn. Því meira úrval því betra og reynslan hefur nú sýnt að Kola- portið er rétti vettvangurinn til að koma hlutum í peninga" sagði Helga að lokum. Nú geta allir verið með í Kolaportinu getur hver sem er selt hvað sem er svo lengi sem það er innan ramma laga og vel- sæmis. Nýir söluaðilar geta leitað upplýsinga eða tryggt sér pláss í síma 621170 eða á kvöldin í síma 687063. Básinn kostar 2500 krón- ur fyrir einstaklinga og 3500 krónur fyrir fyrirtæki. Hægt er að leigja söluborð eða fataslár á 500 krónur. Sérstakt komputilboð Til að efla þátttöku fjölskyldna og saumaklúbba með notaða muni hefur verið ákveðið að bjóða aðil- um, sem selja eingöngu notaða muni, sérstakan afslátt af þátt- töku næsta laugardag, og mun þá básinn aðeins kosta 1500 krón- ur. Þátttöku þarf þó að tilkynna fyrirfram í ofangreindum síma- númerum eða á skrifstofu Mið- bæjarsamtakanna á Laugavegi 66.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.