Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1989, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989.
Pústkerfi
úr RYÐFRfU GÆÐASTÁLI.
i bifreiðar og vinnuvélar
5 ára ábyrgð
á efni og vinnu.
Bjóðum
kynningarverð
m/isetningu
tii 15. apríl
Heimsþekkt
gæðavara
Upplýsingar og pantanir 652877 og 652777
íslenskt framtak hf. Hljóðdeyfikerfi hf.
Stapahrauni 3 - Hafnarfirðí
HÁRGREIÐSLU- EÐA
HÁRSKERASVEINN ÓSKAST
nemi á síðasta ári kemur til greina.
Hársnyrtistofan
Fígaró,
Laugarnesvegi 52,
sími 35204, kvöldsími 73798.
<n>
FJÁRFESTINGARFÉIAGIÐ
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Fjárfestingarfélags Islands hf. árið 1989
verður haldinn að Hótel Holiday Inn miðvikudaginn
19. apríl nk. kl. 16.00.
Dagskrá
1. Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
Tillögurnar hafa verið sendar hluthöfum bréflega til
lesningar.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á fundinum,
skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Reikningar félagsins ásamt endanlegum tillögum
liggja frammi á skrifstofunni viku fyrir aöalfund.
Aðgöngumiða ber að vitja á skrifstofu félagsins í
Hafnarstræti 7, 4. hæð, Reykjavík, þrjá síðustu daga
fyrir aðalfund og á fundardegi.
Stjórn Fjárfestingarfélags íslands hf.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Eftirtaidar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu-
stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
á Djúpavogi.
2. Staða hjúkrunarforstjóra og hálf staða hjúkrunar-
fræðings við Heilsugæslustöðina í Ólafsvík.
3. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
á Hólmavík.
4. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
á Þórshöfn.
5. Staða hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöðina
í Neskaupstað.
6. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
á Egilsstöðum.
7. Staða hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöðina
í Þorlákshöfn, til styttri tíma, frá 15. 05. til 30. 11.
1989.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðv-
arnar á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
9. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
á Hvammstanga frá 1. júní 1989 til tveggja ára.
10. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina
á Patreksfirði.
11. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
í Keflavík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
11. apríl 1989.
Utlönd
Moon Ik-hwan, t.v., biðst fyrir um borð í flugvélinni sem flutti hann aftur til Suður-Kóreu eftir ferð hans til Norður-
Kóreu þar sem hann hitti meðal annars Kim ll-sung. Við hlið Moons situr ferðafélagi Moons og stuðningsmaður,
Yoo Won-ho, sem er kaupsýslumaður. Simamynd Reuter
Moon handtekinn
Lögreglan í Suður-Kóreu fór um
borð í farþegaflugvél að flugvellinum
í Seoul í gær og handtók predikarann
Moon Ik-hwan, sem var að koma úr
ólöglegu ferðalagi til Noröur-Kóreu.
Farþegi, sem var samferða Moon
um borö í flugvél Northwest flugfé-
lagsins frá Tokýo, sagði að fjörutíu
menn í jakkafötum hefðu ruðst inn
í flugvéíina og vaðið yfir farþega er
þeir gengu að predikaranum, sem er
sjötíu og eins árs.
Farþeginn, sem er bandarískur
hermaður í Suður-Kóreu, sagði að
Moon og ferðafélagi hans hefðu verið
leiddir út úr vélinni. Vitni sögðust
ekki hafa orðið vör við að ofbeldi
hefði verið beitt.
Predikarinn, sem hitti Kim Il-sung,
leiðtoga Norður-Kóreu, á ferð sinni
til Noröur-Kóreu, á yflr höfði sér
ákærur fyrir þrenns konar brot á
öryggislögum í heimalandi sínu.
Vægasta refsing fyrir þessi brot er
fimm ára fangelsi. Þyngsta refsing
er dauðadómur.
Ríkisútvarpið í Seoul skýrði frá þvi
að Moon, sem er meðal þekktustu og
virtustu andófsmanna í Suður-
Kóreu, yrði aíhentur leyniþjónustu
landsins til yfirheyrslu.
Kona Moons, elsti sonur hans og
níutíu og fimm ára gömul móðir hans
biðu eftir honum á flugvellinum en
þau fengu ekki að sjá hann. Þúsund-
ir lögreglumanna, bæði í einkennis-
klæðnaði og í borgaralegum fötum,
voru á staðnum til að koma í veg
fyrir að aðdáendur predikarans gætu
boðið hann velkominn heim.
Áður en Moon kom til Seoul höfðu
saksóknarar ríkisins gefið út ákæru-
skjal á hendur honum.
I því er talað um að heimsókn
Moons hafi „þjónað hagsmunum
norður-kóresku strengjabrúðu-
stjórnarinnar, sem vinnur gegn rík-
inu“. Hann er einnig sakaður um að
hafa hrósað Kim Il-sung og að hafa
lýst suður-kóresku ríkisstjóminni
sem „einræðisherstjórn".
Moon Ik-hwan, sem starfaði sem
túlkur fyrir bandarísku leyniþjón-
ustuna í Kóreustríðinu 1950-53og tók
síðar doktorspróf í guðfræði frá Prin-
ceton háskóla í Bandaríkjunum, hef-
ur lengi verið mikili talsmaður sam-
einingar Kóreuríkjanna tveggja og
andstæðingur veru bandarískra her-
sveita í Suður-Kóreu.
Moon hefur oft veriö dæmdur í
fangelsi fyrir skoðanir sínar og mót-
mæh en ávalit verið náðaður eftir
skamman tíma.
Reuter
Vinur Papandreous
í steininn
George Louvaris, góðvinur Papandreous, forsætisráðherra Grikklands, var
úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær. Símamynd Reuter
Náinn vinur Andreasar Pap-
andreous, forsætisráöherra Grikk-
lands, var úrskurðaður í gæsluvarð-
hald í gær í tengslum við banka-
hneykslið sem hefur orðið ríkis-
stjóm sósíalista dýrt spaug.
Eftir yfirheyrslur í einn dag tjáði
George Skarlatos dómari frétta-
mönnum að hann hefði úrskurðað
George Louvaris kaupsýslumann í
gæsluvarðhald í rammgerðasta fang-
elsi Aþenu, Korydallos fangelsinu, til
að tryggja það að hann yfirgæfi ekki
Grikidand.
Louvaris, sem oft borðaði með Pap-
andreou og fór í frí meö honum, varð
þar með sjöundi maðurinn til að fara
undir lás og slá vegna þessa máls.
í byxjun febrúar var hann sakaður
um að hafa tekið við stolnum pening-
um í sambandi við hneykshð í kring-
um Krítarbanka. Hann hafði gengið
laus fyrir yfirheyrsluna í gær.
Louvaris hefur neitað öllum ásök-
unum og segir að hneykslið hafi ver-
ið sett af stað til að sverta sig, Pap-
andreou og Sósíaiistaflokkinn, sem
stendur frammi fyrir þingkosning-
um þann 18. júní næstkomandi.
Meðal þeirra sem eru í gæsluvarð-
haidi vegna þessa máls eru yfirmenn
Pósts og síma og yfirmaður atvinnu-
tryggingasjóðs þeirra Grikkja.
Bankamaðurinn George Koskotas,
sem átti og stjómaöi Krítarbanka þar
til á síðasta ári, hefur skýrt frá því
að ríkisstjómin hafi samþykkt áæti-
un um að svíkja hundmð milljóna
út úr ríkisfyrirtækjum.
Koskotas er nú í bandarísku fang-
elsi þar sem hann bíður úrskuröar
dómara um það hvort hann verður
framseldur tU Grikklands. Hann hef-
ur sagt að peningamir sem voru
sviknir út úr ríkisfyrirtækjum hafi
verið látnir fara gegnum banka sinn
og renna í vasa ráöherra í ríkisstjóm
Papandreous. Reuter