Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1989, Blaðsíða 26
34
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989.
Tippaðátólf_________
Sprengiveisla
í tippinu
Ekki gekk rófan, enginn náöi tólf
réttum á laugardaginn var. Þvi bíöa
1.919.946 krónur í 1. vinningi, af-
rakstur sprengipotts og sölu síðustu
viku. 12 raðir fundust með ellefu
rétta og fær hver röð 68.560 krónur.
Alls seldust 449.817 raðir, 1. vinning-
ur var 1.919.946 krónur og 2. vinning-
ur 822.730 krónur.
Úrslit voru ekki mjög óvænt, en
snúin. Flest allir tipparar settu
heimasigur á leik Blackbum og Leic-
ester, en úrslitin urðu jafntefli. Einn-
ig flöskuðu margir á leik Newcastle
og Aston Villa, en þann leik vann
Aston Villa.
Hóparnir ROZ og BIS eru efstir sem
fyrr. Þeir vom báðir meö 10 rétta um
síðustu helgi, eru með samtals 104
stig. JUMBÓ hópurinn er með 103
stig, FÁLKAR og FYLKISVEN eru
með 102 stig en DAGSKOKK og GE-
TOG 101 stig. BIGGI og SOS em með
100 stig. Aðrir eru með minna og eiga
vart möguleika á því að verða vor-
meistarar íslenskra getrauna árið
1989. FYLKISVEN og TVB16 em einu
af efstu hópunum sem náðu 11 rétt-
um um síðustu helgi. Tvær umferöir
eru eftir í vorleik getrauna, en 13.
maí hefst svo sumarkeppnin.
Fram seldi mest um síðustu helgi.
Frammarar fengu 11,66% uppfærðra
raða, Fylkir fékk 10,50%, K.R. fékk
6,01%, Valur fékk 3,75% og Víkingur
fékk 3,31% uppfærðra raða.
íslendingar sjá
einir aðalleikinn
Á laugardaginn verður keppt í und-
anúrslitum ensku bikarkeppninnar.
Everton og Norwich spila á Villa
Park í Birmingham, en Nottingham
Forest og Liverpool á Hillsborough í
Shefiield. íslenska sjónvarpið ætlar
að sýna leik Nottingham Forest og
Liverpool beint og hefst lýsing
klukkan 13.55 á laugardaginn. Sem
fyrr er það dugnaður Bjama Fel. og
félaga hans á íþróttadeild Sjónvarps-
ins, sem veldur því að við íslendingar
fáum einir Norðurlandabúa að sjá
þennan stórleik. Bjarni Fel. hefur
reynst íslenskum knattspyrnuá-
hugamönnum vel undanfama vetur
við að útvega efni frá knattspyrnu-
viðburðum.
Neville Southall, elnn besti mark-
vörður á Bretlandseyjum, verður í
sviðsljósinu á laugardaginn er Ever-
ton spilar við Norwich í ensku bikar-
keppninni.
Getraunaspá
fjölmiðlanna
>
Q
n E o
S i- K
o> '5>
« -
£ 2 £
CO O c
-O
:0
>* ’Z? ~
m cc </> </>
LEIKVIKA NR.: 15
Everton Norwich 1 1 1 1 2 2 1 1 2
Nott.Forest Liverpool 1 2 2 2 X 2 1 2 2
Arsenal Newcastle 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Luton Coventry 1 1 X X 2 1 2 X X
Manch.Utd.... Derby 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Q.P.R Middlesbro 1 1 X 2 1 1 1 X X
Wimbledon.... Tottenham X X X 2 1 2 2 2 X
Blackburn Manch.City X 2 1 2 2 2 X 1 2
Bournemouth Stoke 1 1 1 1 X 2 1 X 2
Bradford Ipswich X 2 2 X X 2 X 2 X
Leicester Chelsea 2 1 X 2 2 2 X 2 X
Swindon Watford X 2 2 X X X 1 1 1
Hve margir réttir eftir 14 leikvikur: 66 76 56 63 56 70 65 58 62
^■TIPPAÐ
AT0LF
Umsjón: Eiríkur Jónsson
Enska 1. deildin
L HEIMALEIKIR U J T Mörk U ÚTILEIKIR J T Mörk S
32 8 5 2 25 -8 Liverpool 10 4 3 30-16 63
32 8 5 2 26 -15 Arsenal 10 4 3 35 -17 63
32 7 6 4 20 -18 Norwich 9 2 4 23-17 56
31 5 7 3 19-13 Nott.Forest 8 5 3 27 -21 51
33 10 2 5 26 -15 Millwall 4 7 5 18 -23 51
33 9 3 5 26 -18 Coventry 4 7 5 15-16 49
33 7 5 5 29 -23 Tottenham 5 6 5 22-20 47
31 9 3 4 24 -15 Wimbledon 4 4 7 18-23 46
31 7 3 7 20 -17 Derby 6 4 4 13-12 46
30 8 5 1 23-8 Manch.Utd 3 7 6 15-16 45
32 8 6 2 29 -17 Everton 3 5 8 14 -23 44
32 6 4 5 18-14 Q.P.R 4 6 7 17-19 40
33 7 4 5 22 -18 Aston Villa 2 6 9 17 -30 37
33 6 7 4 25 -25 Middlesbro 3 3 10 15 -29 37
33 5 5 6 18-21 Sheff.Wed 4 5 8 13 -25 37
32 3 7 6 20 -24 Charlton 4 5 7 17 -24 33
31 5 5 6 23 -25 Southampton 2 7 6 22 -34 33
32 5 5 5 21 -17 Luton 2 4 11 10 -30 30
32 3 4 9 17 -25 Newcastle 4 4 8 13-28 29
30 1 6 9 14 -28 West Ham 4 2 8 10 -22 23
Enska 2. deildin
HEIMALEIKIR ÚTILEIKIR
L U J T Mörk U J T Mörk S
39 11 6 2 42 -22 Chelsea 13 5 2 42 -20 83
40 12 6 2 43 -22 Manch.City 10 4 6 24 -18 76
40 12 5 3 38 -16 W.B.A 4 11 5 20 -20 64
38 11 6 2 34 -16 Crystal Pal 7 4 8 24 -28 64
39 13 3 3 39 -20 Blackburn 5 7 8 22 -32 64
38 12 4 3 34 -16 Watford 6 5 8 23 -27 63
38 10 6 3 33 -19 Barnsley 5 6 8 20-31 57
40 10 5 5 32 -20 Leeds 4 9 7 19-24 56
39 12 1 6 27 -15 Bournemouth 5 4 11 17 -34 56
37 9 7 2 27 -13 Swindon 5 6 8 25 -33 55
39 10 3 7 34 -22 Ipswich 6 3 10 24 -36 54
38 9 8 2 28 -17 Stoke 4 5 10 22 -41 52
39 10 6 3 29 -13 Portsmouth 3 6 11 20 -35 51
40 10 6 4 35 -25 Oxford 3 5 12 19 -30 50
39 10 7 3 35 -20 Sunderland 3 4 12 15 -33 50
39 10 5 5 26 -16 Leicester 2 9 8 20-35 50
39 11 4 5 35 -20 Brighton 3 3 13 19 -37 49
40 7 9 4 24 -18 Bradford 4 6 10 20-32 48
38 10 r4 5 31-16 Plymouth 3 5 11 16 -38 48
39 9 7 4 43 -28 Oldham 1 8 10 21 -36 45
39 7 8 5 30 -20 Hull 4 3 12 18 -38 44
39 3 8 8 17 -25 Shrewsbury 4 6 10 16-33 35
38 3 4 12 16-31 Birmingham 2 6 11 9-34 25
38 2 8 9 22 -36 Walsall 1 6 12 11 -29 23
íslenskir leikir
á seðilinn 20. maí
Helgina 20.-21. maí næstkomandi
veröur brotið blað í sögu íslenskra
getrauna. Þá hetjast sumargetraunir,
en hingað til hefur fyrirtækið lagt
niður starfsemi að sumarlagi. Nú
verður hið nýja sölukerfi nýtt til hins
ýtrasta og er búið að raða niður leikj-
um á getraunaseðilinn þar til 29. júlí.
Fyrstu helgina, 20.-21. maí, verða á
seðlinum úrslitaleikir ensku bikar-
keppninnar og skosku bikarkeppn-
innar, leikir úr 1. deildinni íslensku
og þýsku Bundesligunni. 26.-27. maí
verða eingöngu leikir úr 1., 2. og 3.
deild íslensku knattspymunnar.
Sölukössum verður lokað kl. 19.55 á
fóstudagskvöld, því nokkrir leikj-
anna verða leiknir það kvöld. Aðrar
helgar verða leikir úr íslensku deild-
unum og Bundesligunniá seðhnum.
Ekki var árangur keppenda í fyrir-
tækjakeppninni jafnglæsilegur um
síöustu helgi og helgina þar á undan
er átta keppendur fengu 11 rétta og
fjölmargir 10 rétta. Nú voru fimm
keppendur með 9 rétta, 26 keppendur
með 8 rétta, 20 keppendur með 7
rétta, 10 keppendur meö 6 rétta, 2
keppendur með 5 rétta og einn kepp-
andi skilaði ekki inn röðum,
Búið er að draga í 32 liða úrsUt.
EftirtaUn fyrirtæki keppa saman:
Akraborgin - Fittingsbúðin, Guten-
berg - Lyfjaverslun Ríkisins,
Strandasíld - Stálsmiðjan, Verk-
fræöideild R.Rvk. - Bakkafiskur,
R.L.R. - Vélsm.Akureyrar, Sendi-
bílastöðin hf. - Bætir hf., Ósk KE
10 - Prisma, DV - Teresa ÍR.,
MjólkurbúFlóamanna - Plastprent,
Lyf hf. - Endursk. Sveinn og Hauk-
ur, PubUc Works - Trésmiðjan Ösp,
Endursk. BEA - Prentsmiðjan
Oddi, Fiskhöllin - íslenskur gæöa-
fiskur, Teiknistofa R. Rvk. -
SKÝRR, Auglýsingastofa Magnúsar
Ólafssonar - Kaupfélag V. Hún.,
Sendibílar hf. - VeitingahöUin.
1 Everton - Norwich 1
Þessi leikur verður leikiim á Villa Park í Birmingham þar
sern um er að ræða leik í undanúrsUtum ensku bikarkeppn-
innar. Ef jafnt er eftir 90 mínútur er framlengt og gilda úr-
slit efdr framlenginguna. Everton hefur verið að ná sér á
strík undanfarið en Norwich er á niðurleið, eins og ég spáði
fyxir þremur vikum. Leikmenn Everton búa yfir meiri
reynslu í stórleikjum. Það skiptir sköpum í slflcum leikjum.
2 Nott For. - Liverpool 1
Þessi stórUð kepptu í undanúrsUtum í fyrra og þá vann Li-
verpool, 2-1. Nú er það spumingin hvort Skírisskógarpiltun-
um takist að fylgja sigrinum í Littlewoods bikarkeppninni
eftir með sigri á Liverpool og hefiia fyrir tapið í fyrra. Liðin
spila á HiDsborough í Shef&eld, á hlutlausum veUi, eins og
jafitan er gert í undanúrsUtum. Liverpool hefur ekki tapað
leik í háa herrans tíð og er auðvitað mjög sigurstranglegt.
En ég tel að NottinghamUðinu taldst að komast á Wembley
með sigri á Liverpool.
3 Arsenal - Newcastle 1
Á meðan Liverpool er upptekið í ensku bikarkeppninni
safnar Arsenal stigum í deildaxkeppninxú. Newcastle er í
næstneðsta sæti 1. deildar og er ákaflega illa statt. Liðinu
gengur illa að skora mörk og vömin er veik. Axsenal verð-
ur að vinna þennan leik þvi Liverpool er á miklu skriði og
sækir á toppsætið.
4 Luton - Covenfcry 1
Luton er í mikilU fallhættu. Liðið er í þriðja neðsta sæti og
hefur ekki unnið í átta síðustu deildarleikjum sínum. Liði,
sem tapar í úrsUtum í bikarkeppni, gengur oft illa í næstu
leikjum en fyrir leikmenn Luton er ekki um annað að ræða
en að taka sig saman í andlitinu og berjast til þrautar. Co-
ventry hefúr verið að reyta stig á heimavelU sínum en er
án sigurs á útivelU í fimm síðustu leikjum sínum.
5 Manch. Utd - Derby 1
Manchester United er með einn besta árangur Uða á heima-
velU þvi liðið hefur einungis tapað þar einum leik, fyrir
Norwich 26. október síðastUðinn. Af sjö síðustu heimaleikjum
hefur Uðið unnið sex en gert eitt jafiitefli. Derby tapar næst-
um jafeioft og það vinnur. Þar á bæ er engin regla á árangr-
inum. Liðið er rétt fyrir ofan miðja deild. Sóknin er frekar
slök en vömin þétt.
6 Q.P.R. - Middlesbro 1
OJ’.R. hefur staðiö sig geysilega vel undanfarið. Liðið var
komið fuUneðarlega fyrir tæpum tveimur mánuðum en hef-
ur ekki tapaö nema einum af síðustu niu leikjum sinum.
Middlesbro er neðarlega, í fallhættu. EUefu síðustu deildar-
leikimir eru án sigurs, einungis sex jafntefli. Lið, sem er á
slíku róli, er ekki Uklegt til sigurs.
I Wixnbledon - Tottenham X
Það er stutt fyiir leikmenn Tottenham að fara milU borgar-
hluta í London til Wimbledon. Tottenham hefur náð góðum
árangri undanfarið. Liðið hefur unnið sex af átta síðustu leikj-
um sínum, geit eitt jafntefli og tapað einum leik. Wimbledon
hefur ekki tapað neinum af síðustu tíu heimaleikjum sínum,
reyndar unnið átta þeirra. Þama verður því mikil barátta
og hasar.
8 Blackbum - Manch. City X
Blackbum er án taps í síðustu sex leikjum sinum enda er
Uðið við topp 2. deildar. Manchester City er ennþá í næ-
stefsta sæti, virðist jafeivel ætla að haldast þar til vors. Hinir
ungu leikmenn ManchesterUðsins hafa staðið sig vel í vet-
ur, unnið 22 leiki, gert 10 jafeitefli en tapað 8 leikjum.
9 Boumemouth - Stoke 1
Enn eiga þessi Uð möguleika á aö komast upp í 1. deild.
Möguleikar Boumemouth hafa þó minnkað undanfarið því
Uðið hefur einungis unnið einn af sjö síöustu leikjum sínum
en tapað fimm. Stoke gengur illa á útivelU, hefur þó unnið
fjóra leiki alls. Stoke hefur ekki unnið neinn af sex síðustu
leikjum sínum þannig að það verður gaman aö sjá hvemig
málín þróast I þessum leik á suðurströnd Englands.
10 Bradford - Ipswich X
Með nokkram mikilvægum sigram undanfamar vikur hefur
Ðradford þokast af mesta hættusvæðinu í 2. deild. Liðið er
ekki í bráðri faUhættu sem stendur, enda nokkur lið sem
era enn verr mönnuð. Ipswich er við toppinn, á möguleika
á aö veröa í einu af efetu sex sætunum í 2. deild, sem getur
feert Uðinu sæti í 1. deild. Leikir Uðsins era sveiflukenndir.
Liðið hefur tapað fiórum af fimm síðustu leikjum sínura þann-
ig að jafntefli era sanngjöm úrsUt.
II Leicester - Chelsea 2
Chelsea er með langbesta lið 2. deildar og er langefet. Lið-
ið hefur ekki tapað neinum af 26 síðustu deildarleikjum sín-
um og unnið átta þá síðustu. Leicester er neðarlega en leik-
menn Uðsins hafa þó spriklað ágætlega á heimavelU þar sem
liðið hefur unnið 10 leiki, gert fimm ja&itefli en tapað fjórum
leikjum. Chelsea ætti að gleypa Leicester í þessum leik.
12 Swindon - Watford X
Swindon er sterkt á heimaveUi, á þvi er enginn vafi. Liðið
hefur unnið þar 11 leiki, gert 4 jafritefli en tapaö þremur
leikjum. Watford er vissulega meðal efetu Uða en er ekkert
of sannfærandi um þessar mundir. Vissulega hefur Uðið náð
átta af mögulegum 12 síðustu stigum en töpin era allmörg,
sérstaklega á útivelU. Nú verður hart barist og Lou UtU
Macari, framkvæmdastjóri Swindon, verður ánægður með
eitt stig.