Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1989, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1989, Side 27
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1989. 35 DV Eggert Jónsson Eggert Jónsson læknir varöi 22. september 1988 doktorsritgerð í bæklunarlækningum við Lundar- háskóla. Ritgerðin ber heitið „Sur- gery of the rheumatoid shoulder“ og flallar um nýjar aðferðir við skurðaðgerðir á axlarliðum sjúkl- inga með liðagigt (rheumatoid art- hritis). Meginaðferðin er sú aö end- umýja liðkúluna með yfirborði úr stáli. í einstaka tilfellum er liðurinn festqr og notar sjúklingurinn þá hreyfingu herðablaðsins. Eggert er fæddur 30. júlí 1950 á Húsavík og lauk læknisfræðiprófi frá HÍ1977. Hann var heilsugæslulæknir á Húsavík 1978-1980 og læknir á hand- læknisdeild Landspítalans 1980- 1981. Eggert nam bæklunarskurð- lækningar við Kamsjukhuset í Skövde í Svíþjóð 1981-1985 og fékk sérfræðiréttindi í bæklunarskurð- lækningum 1985. Hann var við læknisstörf og rannsóknir á Há- skólasjúkrahúsinu í Lundi 1985- 1988 og hefur verið læknir á bækl- unardeild Landspítalans frá 1988. Eggert kvæntist 17. apríl 1976 Petr- ínu Halldórsdóttur, f. 1. júni 1954. Foreldrar Petrínu em Halldór Vig- fússon, vélvirki í Rvík, og kona hans, Þórunn Magnúsdóttir. Börn Eggerts og Petrínu em Guðrún, f. 13. janúar 1976, og Halldór, f. 9. júní 1980. Bræður Eggerts em Jakob, f. 9. júní 1953, tannlæknir á Patreks- firði, kvæntm- Marin Jónsdóttur, og Aðalgeir, f. 9. febrúar 1956, húsa- smíðameistari á Patreksfirði, kvæntur Drífu Leifsdóttur. Foreldrar Eggerts em Jón Ár- mann Jónsson, vélstjóri og skrif- stofumaður í Heklu hf., og kona hans, Eva Siguijónsdóttir. Jón er sonur Jóns Aöalgeirs^ vélstjóra á Húsavík, Jónssonar Armanns, steinsmiðs á Húsavík, Árnasonar, b. á Fljótsbakka, bróður Tryggva, fóður Ólafs, huglæknis á Akureyri. Annar bróðir Árna var Sören, lang- afi Stefáns Sörenssonar háskólarit- ara. Ami var sonur Áma, b. í Hóls- gerði, bróður Jóns, langafa Níelsar, afa Stefáns Friðbjarnarsonar blaða- manns. Ami var sonur Indriða, b. í Heiðarbót, Ámasonar, b. í Hjalthús- um, Indriðasonar, b. á Sigríðarstöð- um, Jónssonar, b. á Draflastöðum, Sigurðssonar, langafa Eiríks, lang- afa Víglundar, afa Kristínar Hall- dórsdóttur alþingismanns. Móöir Jóns Ármanns var Helga Jensdóttir Buchs, b. á Ingjaldsstöðum, Niku- lássonar Buchs, b. á Bakka á Tjör- nesi, ættfoður Buchsættarinnar, langafa Steinþórs, föður Steingríms forsætisráðherra. Eva er dóttir Sigurjóns verslunar- manns Jónassonar, útvb. í Flatey, Jónssonar, b. á Finnastöðum á Látraströnd, bróðir Péturs, foður Ásgeirs, útgerðarmanns á Siglu- firði, fóður Bryndísar, konu Sigurð- ar Sigurðssonar landlæknis, ömmu Sigurðar Björnssonar, varafor- manns Sjálfsbjargar í Rvk. Jón var sonur Péturs, b. í Fagrabæ, Fló- ventssonar, b. á Heiði á Langanesi, Péturssonar, b. á Heiði, Þorsteins- sonar, b. á Heiði, Ingimimdarsonar, bíldhöggvara og skálds í Sveinunga- vík, Jónssonar, galdramanns á Hellu á Árskógsströnd, Guðmunds- sonar. Móðir Evu var Jakobína, systir Marsilínu, móður Stefáns Jónssonar, rithöfundar og fyrrv. al- þingismanns. Jakobína var dóttir Páls, b. á Brettingsstöðum, bróður Vfihjálms, afa Thors Vilhjálmsson- ar rithöfundar. Annar bróðir Páls var Hallgrímur, langafi Herdísar, móður Hallmars Sigurðssonar leik- hússtjóra. Systir Páls var Valgerö- ur, amma Valtýs Péturssonar list- málara. Páll var sonur Guðmundar, b. á Brettingsstöðum, Jónatansson- ar. Móðir Guðmundar var Karítas Pálsdóttir timburmanns Sigurðs- sonar, bróður Valgeröar, móður Þuríðar, ættmóður Reykjahlíðar- Fólkífréttum Eggert Jónsson. ættarinnar. Móðir Jakobínu var Sigurbjörg ísaksdóttir, b. á Auð- bjargarstöðum í Kelduhverfi, Sig- urðssonar, b. í Brekkukoti, Guö- brandssonar, b. í Sultum, Pálssonar, bróður Þórarins, afa Ólafar, langömmu Bjama Benediktssonar forsætisráðherra og Guðmundar Benediktssonar ráðuneytisstjóra. Systir Guðbrands var Ingunn, lang- amma Sveins, ættfoður Hallbjarn- arstaöaættarinnar, afa Kristjáns Fjallaskálds og langafa Jóns Sveinn- sonar, Nonna. Afmæli 90 ára Guörún Einarsdótt ir, Bræðratungu 15, Kópavogl. 85 ára Ragnhciður Einarsdóttir, Njálsgötu 47, Reykjavík. 80 ára Sigurður Magnússon, Austurvegi 34, Seyöisfiröi. Hinrik Þóröarson, Útverkum, Skeiöahreppi, Ámes- sýslu. Sigurbjörg Kristín Elíasdóttir, Háaleitisbraut 37, Reykjavik. 75 ára Fjóla Eliasdóttir, Syðra-Seli t, Hrunamannahreppi, Amessýslu. Fjóla Sigurðardóttir, Bólstaöarhlíö 48, Reykjavík. Matthiidur Þórdardóttir, Kambsvegi 4, Reykjavík. Grimur Bjarnason, Brekkugötu 19, Ólafsfirði. 60 ára Margrét Þórðurdóttir, Austurbergi 2. Reykjavik. Hörður Jóhannason, Víðimýri 6 Akureyri. Þoriákur R. Haldorsen, Urðarstig 3, Reykjavík. Þorkcll Grúnsson, Hraunbae 90, Reykjavík. 50 ára Hólmfríður Júlia Pálmadóttir. Hjallalundi 11C, Akureyri. Sigurður Antonsson, Þemunesi 1, Garðabœ. EgiU Ingvar Ragnarsson, Kálfsstöðum, Hólahreppi, Skagafiarðarsýslu. Sigriður Guömundsdóttir, Réttarholtsvegi 81, Reykíavlk. Ingibjörg Sigurðardóttir, Dalbrekku 4, Kópavogi. Þorbjörg Hilbcrtadóttir, Stóragerði 3, Reykjavík. Hún verður að heiman. Einar Guðnaaon, Marargötu 6, Reykjavík. Han* Pauli Djurhuus, Hafnargötu 73, Keflavík. 40 ára Sigurvin Ármannsson, Logafold 125, Reykjavik. Rúnar Sigurhjörnsson, Kjarrhólma 18, Kópavogi. Guðmundur Þorateinsson, Ringvgj b, 1285-8920 Qaqortoq, GrænlandL Lena M. Hrcinsdóttir, Hólabraut 2, Hafiiarfiröi. Torfi Kriatinn Kristinsaon, Einibergi 23. Hafitarfiröi. Jón A. Jóhannason, Borgarvegi 25, Njarðvík. Tómas Agnar Tómasson Tómas Agnar Tómasson iðnrek- andi, Markarflöt 30, Garðabæ, er fimmtugur í dag. Tómas Agnar er fæddur í Rvík og ólst þar upp. Hann hóf iönnám í ölgerð en h vaif frá því námi og var í verslunar- og tungu- málanámi í Bretlandi og Þýskalandi 1955-1958. Tómas hefur unnið hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni hf. frá 1958 utan stuttra hléa er hann var fulltrúi kaupfélagsstjóra Kaup- félags Gnmdfirðinga, 1962-1963, og fyrsti framkvæmdastjóri SÁÁ um sex mánaða skeið 1978. Hann varð annar aðaleigandi Ölgerðarinnar Egfis Skallagrímssonar hf. 1974, ásamt bróður sínum, Jóhannesi, og í stjóm þess fyrirtækis frá 1975. Hann var mikill jassáhugamaður á yngri árum, var í stjóm Jassklúbbs Reykjavíkur nr. 21958-1960, þar af formaður og framkvæmdastjóri 1959-1960 og sá um jassþátt Ríkisút- varpsins 1959-1960 ásamt Guð- björgu Jónsdóttur. Tómas var JC- maður og var í stjóm JC-Reykjavík 1969. Hann hefur verið áhugamaður um áfengismál á seinni árum, var í Freeporthópnum sem olli byltingu í meðferö áfengissjúklinga um miðj- an áttunda áratuginn, einn af stofn- endum Freeportklúbbsins og var í fyrstu stjóm hans 1976, formaður 1978-1979, meðstjómarmaöur 1982- 1983. Tómas var í aðalstjóm SÁÁ 1982-1988, framkvæmdastjóm 1985-1988 og varaformaður 1986- 1988. Tómas kvæntist 5. ágúst 1966 Þórunni Ámadóttur, f. 11. júní 1941, ljósmóður. Foreldrar Þórunnar vom Árni Guðmundsson, læknir á Akureyri og síðar í Rvík, og kona hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir. Böm Tómasar og Þórunnar era Agnes Vala, f. 1967, Árni Haukur, f. 1968, Helga Brynja, f. 1972, Herdís Rún, f. 1979 og Óskar Bergmann, f. 1982. Sonur Tómasar er Tómas Heimir, f. 1961. Dóttir Þórunnar er Ingibjörg Ema, f. 1962, gift Helga Ólafssyni og eiga þau eina dóttur, Þórunni. Systkini Tómasar era Guðrún Vala, f. 23. júní 1937, d. 30. júní 1937, ogJóhannes Heimir, f. 1945, forstjóri, kvæntur Rósu Sveinsdóttur og eiga þau tvö böm. Systkini, samfeðra, vora Valgerður, f. 22. janúar 1913, d. 11. mars 1936, gift Bjama Benediktssyni, forsætis- ráðherra, Margrét, f. 4. september 1915, d. 30. desember 1915, og Tóm- as, f. 22. janúar 1917, d. 31. maí 1930. Foreldrar Tómasar vora Tómas Tómasson, ölgeröarmaður í Rvík, og kona hans, Agnes Bryndal. Tóm- as var sonur Tómasar, b. í Mið- húsum í Hvolhreppi í Rangárvalla- sýslu, bróður Jóns, langafa Harðar Sigurgestssonar, forstjóra Eim- skips. Tómas var sonur Jóns, b. á Ormsvelli, bróður Þorvarðar, afa Jóns, afa Jóns Gíslasonar fræöi- manns og langafa Kristins Frið- finnssonar dómkirkjuprests og Jóns Vals Jenssonar, forstöðumanns Ættfræðiþjónustunnar. Jón var sonur Erlends, b. í Þúfu, Jónssonar, b. í Klofa, Oddssonar, b. í Ketfis- húsahaga, Guðmundssonar, b. í Vatnsdal, Jónssonar, b. á Þorleifs- stöðum, Oddssonar, b. í Næfurholti, Jónssonar, prests í Fellsmúla, Jóns- sonar. Móðir Erlends var Halldóra Halldórsdóttir, b. á Rauðnefsstöð- um, Bjamasonar, b. á Víkingslæk, Halldórssonar, ættfoður Víkings- lækjarættarinnar. Móðir Tómasar Tómassonar var Sigurlaug Sigurð- ardóttir, b. í Móakoti í Garði, Jóns- sonar og konu hans, Guðrúnar jóns- dóttur, b. í Syðri-Gróf í Flóa, Magn- ússonar, föður Áma, langafa Sig- urðar Einarssonar, prests og skálds í Holti undir Eyjafiöllum. Agnes var dóttir Jóns, verslunar- manns á ísafirði, Hafliðasonar hreppstjóra á Hópi í Grindavík, Jónssonar, b. á Hópi, Hafliðasonar, b. í Kirkjuvogi í Höfnum, Sigurös- sonar, b. í Bjálmholti í Holtum, Þórðarsonar, föður Þórðar, langafa Magnúsar Dalhoffs gullsmiðs. Móð- Tómas Agnar Tómasson. ir Agnesar var Guðrún Bryndal Jó- hannesdóttir, kaupmanns og fiskút- flytjenda, síðast á Isafirði, Péturs- sonar. Hjónin verða á Ítalíu, á Hotel Bemini Bristol, Piazza Barberini 23, Roma. Einar Sveinn Jóhannesson Einar Sveinn Jóhannesson, fyrrv skipsfióri, Faxastíg 45, Vestmanna- eyjum, er sjötíu og fimm ára í dag. Einar Sveinn er fæddur á Seyðis- firði og ólst þar upp. Hann byijaði ungur tfi sjós en fluttist tfi Vest- mannaeyja 1935. Einar lauk stýri- mannaprófi ffá Stýrimannaskólan- um í Vestmannaeyjum 1941 og var skipsfióri á fiskibátum í Vest- mannaeyjum 1941-1955. Hann var skipsfióri á Skaftfellingnum sem var í flutningum milli Vestmanna- eyja og Reykjavíkur og síðan Vonar- sfiömunni sem sá um mjólkurflutn- inga mfili Þorlákshafnar og Vest- mannaeyja 1955-1959. Einar vann við ýmis störf í Vestmannaeyjum 1959-1961 og var skipsfióri á lóðs- bátnum í Vestmannaeyjum 1961- 1986. Hann var í sfióm Björgunarfé- lags Vestmannaeyja um þrjátíu ára skeið og í sfióm Ekknasjóðs Vest- mannaeyja. Einar hlaut riddara- kross fálkaorðunnar 17. júní 1985 fyrir störf í þágu björgunarmála. Einar kvæntist 4. október 1937, Sig- ríði Ágústsdóttur, f. 5. júní 1912. Foreldrar Sigríðar vora Ágúst Sig- urhansson frá Stóra-Mörk undir Eyjafiöllum, sjómaður í Vest- mannaeyjum og Guðný Eyjólfsdótt- ir frá Miðskála undir Eyjáfiöllum. Böm Einars og Sigríðar era Ágústa, f. 10. febrúar 1937, fulltrúi á félags- málaskrifstofu Kópavogs, gift Ólafi Valdimar Oddssyni verktaka, böm þeirra era Einar Sveinn, verksmið- jusfióri ístess á Akureyri, Sigríður, starístúlka á bamaheimfii í Kópa- vogi, Bergsveinn Jens, síarfsmaður Víffifells í Rvík, og Óskar, húsa- smiður í Rvík, Dóróthea, f. 10. febrú- ar 1940, gift Magnúsi Sigurðssyni, múrarameistara í Mosfellsbæ, böm þeirra era Kristín, húsmóðir á Siglufirði, Sigurður, sölumaður í Mosfellsbæ, og Einar Sveinn nemi, Elín Bryndís, f. 1. aprfi 1942, sjúkra- liði í Rvík, böm hennar era Róbert, háskólanemi, Þorbjörg, nemi í fiöl- miðlafræði í Bandaríkjunum, og Sigríður Laufey, nemi í MR, Þor- björg Guðný, f. 12. apríl 1950, verka- kona í Vestmannaeyjum, sonur hennar er Einar Öm nemi, og Sveinn, f. 14. maí 1958, vélstjóri í Vestmannaeyjum, kvæntur Þor- leifu Lúthersdóttur, böm þeirra era Sigurður, Helga og Elín Dóróthea. Systkini Einars Sveins eru Harald- ur, f. 22, október 1903, er látinn, vél- sfióri í Rvík, Sigrún, f. 1905, er látin, Dóróthea, f. 24. mars 1906, d. 1982, húsmóðir í Rvík, Sigríður, f. 27. ágúst 1907, húsmóðir í Rvík, Klara, f. 1908, er látin, Sveinn, f. 1911, lést ungur, Inga, f. 28. desember 1912, símakona í Rvík, Guðlaug, f. 1916, er látin, saumakona í Rvík, Ólafur, f. 1917, fórst 18. febrúar 1958, skip- sfióri á Heijólfi, stúlka, f. 1920, Þor- gerður, f. 1922, er látin, og Guð- mundur, f. 27. janúar 1925, d. 13. desember 1981, læknir í Rvik. Systir samfeðra, Ágústa, er látin, húsmóð- ir á Brennu í Eyrarbakka. Foreidrar Einars vora Jóhannes Sveinsson frá Stórabæ í Grímsnesi, úrsmiður á Seyðisfirði, og kona hans Elín Sveinsdóttir. Elín var Einar Sveinn Jóhannesson. dóttir Sveins, b. á Rauðarfelli undir Eyjafiöllum, Amoddssonar, og konu hans Dórótheu Högnadóttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.