Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1989, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989.
5
dv Viðtalið
Handa-
vinna og
heimspeki
..... ... „....Æ
Nafn: Hólmfríður Svavarsdóttir
Aldur: 36 ára
Staða: Forseti Alliance Francaise
„Tilgangur Alliance Francaise er
að kymia franska tungu og menn-
ingu í þeim löndum þar sera fé-;
lagiö starfar," segir Hólmfríður
Svavarsdóttir sem nýlega var
kosin forseti félagsins til eins árs.
Að sögn Hólmfríðar eru um 600
manns í félaginu og starfið blóm-
legt. Félagið hefur staðið fyrir
kvikmyndaviku, leiksýningum,
söngskemmtunum og rekur eigið
bókasafn. Alliance Francaise á
íslandi var stofnað 1911 og segir
Hólmfríður að margir hafi lagt
hönd á plóg en þó beri starf Thoru
Friðriksson, sem var forseti á 4.
áratugnum, einna hæst. _
„Það er mikill áhugi á íslandi í
Frakklandi og sífellt fieiri firan-
skir ferðamenn- sækja hingað.
Þeir eru yfirleitt duglegir að
bjarga sér og vflja gjarnan lenda
í' óvæntum ævintýrum. Snjó-
koma á hálendinu um mitt sumar
gerir feröina bara enn meira
spennandi,“ segir Hóhnfriöur en
hún hefur nokkra reynslu af
frönskum ferðalöngum á íslandi
því hún rak gistiþjónustu á heim-
ili sinu um skeið.
Platón og Aristóteles
Hólmfríður las frönsku við Há-
skóla íslands, hóf síðar nám í
Belgíu og lauk þar MA-prófi í
heimspeki.
„Frönsk menning og tunga eru
ekki eingöngu bundin viö Frakk*
land heldur öll þau svæði þar sem
franska er töluð, Belgía er dærai
um frönskumælandi land að
hluta og þar gætir franskra áhrifa
mikið enda liggja löndin hvort aö
öðna.“
Ásamt heiraspekináminu las
Hólmfríður fomgrísku til að geta
betur gluggað í frumtextann.
„Það hjálpar að geta lesið Aris-
tóteles, Platón og aðra helstu
heimspekinga Fom-Grikkja á því
máli sem þeir skrifuðu.*1
Hólmfríður var um skeið
stundakennari í heimspeki við
MH og HÍ en starfar nú sem bóka-
vörður á Háskólabókasafhinu.
Skáidsögur og prjónablöð
„Ég les aiít sem ég kemst yfir,
skáldsögur og fræðibækur, þýdd-
ar og óþýddar. Ég hef mjög gaman
af allri handavinnu, hekla,
sauma og prjóna og er í skemmti-
legum og fjölmemium sauma-
klúbbi.“
í vetur hefur Hólmfríður starf-
að með samhentum og skemmti-
legum hópi Frakka við útgáfu lít-
ils fréttarits. Þetta er 16-18 síöna
blað og er sérstakt að því leyti að
efniö er bæöi á íslensku og
frönsku.
Hólmfríöur er giftlngimar Ingi-
marssyni, fréttamanni hjá Sjón-
varpinu, og eiga þau þrjú böm.
Elstur er Ingimar, 15 ára, næst
er Brynhildur, 5 ára, og yngstur
er Róbert, 3 ára.
„Heimiliö og bömin eru líka eitt
af mínum helstu áhugamálum
enda í mörg hom að líta.“ -JJ
Fréttir
Taprekstur fiskvinnslunnar og hækkun fiskverðs:
Kallar á um 9 pró-
sent gengislækkun
- Engar frekari millifærslur, segir Halldór Asgrímsson
„Það er ljóst að á móti kostnaðar-
hækkunum hér innanlands verða að
koma auknar tekjur. Þær munu því
kalla á einhverjar gengisbreyting-
ar,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjáv-
arútvegsráöherra aðspurður um
meö hvaða hætti stjómvöld hygðust
taka á taprekstri fiskvinnslunnar.
Halldór sagði að ekki kæmi til
greina að mæta auknum taprekstri
með frekari millifærslum. Stefnan
væri að hverfa frá þeim.
Miðað við óbreytt verð á erlendum
mörkuðum, óbreytt vægi mfili ein-
stakra gjaldmiðla og litlar breytingar
hér innanlands þarf fiskvinnslan að
fá um 9,6 prósent hækkun á tekjum
sínum tfi áramóta. Það kafiar á um
8,8 prósent gengissig.
í byrjun maí var fiskvinnslan rekin
með um 2 prósent tapi.
Fyrir helgi var ákveðið að hækka
fiskverð um 4,2 prósent nú og um 3
prósent 1. október. Þar sem hráefnis-
kostnaður er um helmingur af út-
gjöldum fiskvinnslunar þarf hún um
2,1 prósent meiri tekjur nú og 1,5
prósent í haust til að mæta þessum
hækkunum.
Þessu til viðbótar er gert ráð fyrir
að dregið verði úr 5 prósent verð-
bótum á freðfisk í áfóngum fram að
áramótum en þá er ráðgert að þeim
verði hætt. Verðbæturnar voru
lækkaðar um 1 prósent um síðustu
mánaðamót og er sú lækkun inni í
mati Þjóðhagsstofnunar frá síðasta
mánuði.
Vegna hækkunar fiskverðs til við-
bótar við hallann samkvæmt mati
Þjóðhagsstofnunar þarf fiskvinnslan
um 4,1 prósent hærri tekjur í dag. í
haust þarf síðan um 1,5 prósent
hækkun á afurðum vegna fiskverðs-
hækkunar. Til þess að mæta afnámi
4 prósent veröuppbóta á sjávarafurð-
ir þarf fiskvinnslan síðan jafnmikla
hækkun á tekjum sínum. Samtals er
þetta 9,6 prósent hækkun.
„Við erum að vonast eftir að ein-
hverjar verðhækkanir verði á mörk-
uðum okkar. Það er hins vegar ekki
séð að það verði alveg á næstu mán-
uðum,“ sagði Halldór Ásgrímsson.
- Eruð þið ekki eins bjartsýnir um
verðhækkanir og þið voruð fyrr á
árinu?
„Nei,“ sagði Halldór.
Ljóst er að fiskvinnslan þarf um
4,1 prósent hækkun á tekjum sínum
nú. Ef það á að gerast með gengis-
breytingu, eins og Halldór Ásgríms-
son segir, þarf um 3,9 prósent lækk-
un á gengi krónunar. Ef verð á er-
lendum mörkuðum hækkar ekki fyr-
ir haustið þarf síðan um 4,7 prósent
til viðbótar vegna fiskverðshækkun-
ar og afnáms verðuppbótanna. Sam-
anlagt er þetta um 8,8 prósent lækk-
un á gengi krónunnar.
-gse
Andri Már Ingólfsson, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Veraldar, dreg-
ur úr innsendum lukkuseðlum númer 1. Þau Páll Þorsteinsson og Valdís
Gunnarsdóttir fylgjast með. DV-mynd RS
Dregiö úr Lukkupotti Veraldar, DV og Bylgjunnar:
Fyrsti vinningur-
inn er genginn út
í gær var í fyrsta sinn dregið úr
Lukkupotti ferðaskrifstofunnar Ver-
aldar, DV og Bylgjunnar og reyndist
fyrsti vinningshafinn vera kona í
Reykjavík. Hún heitir Margrét Guð-
mundsdóttir, tfi heimfiis að Fram-
nesvegi 62 í Reykjavík.
Margrét getur vitjað vinnings síns
hjá aðstandendum lukkupottsins.
Síðar í þessarri viku verður dregið
aftm- úr lukkupottinum, í þetta sinn
úrlukkuseðlinúmer2. -HV
Fíkniefnalöggæsla á landsbyggðinni:
Tek ekki undir að
gæslan sé engin
- segir Reynir Kjartansson hjá fíkniefnadeildinni
„Ég get ekki tekið undir að fíkni-
efnalöggæsla á landsbyggðinni sé
nær engin. Lögreglan og tollverðir
eiga að sinna þessum málum. Það er
svo aftur spurning hvaö þeir ráða
við mikið,“ sagði Reynir Kjartansson
hjá fíkniefnadefid lögreglunnar í
Reykjavík þegar hann var spuröur
áhts á þeirri hörðu gagnrýni sem
komið hefur fram um slaka fikni-
efnalöggæslu á landsbyggðinni.
Reynir segir að lögreglumenn frá
fikniefnadeildinni fari oft út á land.
Hann sagði að ýmist væri óskað eftir
að þeir kæmu og eins er farið ef grun-
ur er um að verið sé að reyna að
smygla fíkniefnum eða grunur um
að þau séu í umferð. Þá sagði Reynir
að lögreglumenn víða af landinu
hefðu komið tfi Reykjavíkur á nám-
skeið hjá fíkniefnadeildinni.
Fíkniefnadeildin hefur einn leitar-
hund í sinni þjónustu. Sá er orðinn
nokkuð gamall og farinn að slappast.
„Það væri æskilegt fyrir okkur að
hafa allavega einn hund til viðbótar.
Eins væri gott ef þeir væru víðar um
landið. Með fleiri hundum fengjust
forvarnir. Það er líklegt að þeir sem
ætla að smygla fíkniefnum yrðu
hræddir ef þéir ættu von á að hundur
yrði með þegar leitað er,“ sagði
Reynir Kjartansson.
-sme
Norðurlandaráðsþing verður í Háskólabíói:
Borgarleikhúsið
vill 16 milljónir
- fyrir sex daga afnot af byggingunni
Ákveðið hefur verið að þrítugasta
og áttunda þing Norðurlandaráðs,
sem halda á í Reykjavík í byrjun
næsta árs, verði haldið í Háskólabíói.
íslandsdefid Norðurlandaráös leit-
aði verðhugmynda hjá forráðamönn-
um þeirra bygginga í Reykjavík sem
geta hýst þingið og var slíkur munur
á svörum að ekki þótti taka að leita
formlegra tfiboða. Háskólabíó bauð
afnot af sínu húsnæði fyrir fimm
mifijónir króna en aðstandendur
Borgarleikhússins fóru fram á sext-
án og hálfa mifijón króna.
" , ,Það var ætlunin að leita formlegra
tilboða ef lítill munur yrði á verð-
hugmyndum manna,“ sagði Snjólaug
Ólafsdóttir, skrifstofustjóri íslands-
defidar Norðurlandaráðs, í _ viðtali
við DV í morgun. „Munurinn var
•hins vegar svo mikill að ekki þótti
rétt að láta þessa aðila leggja kostnað
í gerð fullkominna tfiboða."
Snjólaug taldi ekki rétt að tjá sig
um upphæðir í þessu sambandi en
staðfesti að munur heföi verið mikill.
HV
Gengishækkun ísl. kr. gagnvart s.fr. gerir okkur kleift
að útvega METTLER vogir á ótrúlega hagstæðu
verði. METTLER PJ vog, sem tekur 15 kg, nákvæmni
1 g, kostar um 70 þús. og 6 kg vog fáið þið fyrir um
37 þús. (verð án söluskatts). Þrettán stærðir af PJ
vogum eru á boðstólum og vögirnar eru svo til við-
haldsfríar. PJ vogirnar hafa sama styrkleika og sýna
sömu nákvæmni og hinar vinsælu PM vogir.
METTLER vogir eru í úrvalsflokki svissneskrar hönn-
unar.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
KRISTINSSON HF.y
Langagerði 7,108 Reykjavík. Simi 30486.