Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1989, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989.
9
Utlönd
Sigur Samstöðu
var ótvíræður
G.Á. Pétursson hf.
IláMuwéla
markaðurínn
Nútíðinni Faxafeni 14,
sími 68 55 80
Samstaða vann stórsigur í kosningunum í Póllandi samkvæmt óopinberum
niðurstöðum. Kommúnistaflokkurinn játaði í gær ósigur. Símamynd Reuter
Leiðtogar pólska kommúnista-
flokksins viðurkenndu í gær að
frambjóðendur Samstöðu, hinna
óháðu verkalýðssamtaka, hefðu
unnið yfirgnæfandi sigur í fyrri
hluta fyrstju þingkosninganna sem
frambjóðendur stjórnarandstöðunn-
ar fá að taka þátt í í Póllandi.
Talsmaöur flokksins, Jan Bisztyga,
sagði í gær að óopinberar tölur bentu
til ótvíræðs sigurs Samstöðu í kosn-
ingunum sem fram fóru á sunnudag.
Hann sagði einnig að flokkurinn
myndi ekki íhuga aðra kosti en þá
er niðurstööur þessara kosninga
bentu til, það er að flokkurinn mun
hlíta þeim.
Talsmenn Samstöðu kváðu alla
frambjóðendur sína til neðri deildar
hafa sigrað en þeir buðu fram til 161
af 460 sætum. Þá segjast þeir einnig
hafa unnið sigur í kosningunum um
flest sæti efri deildar en þar buðu
þeir fram til 100 sæta. Tilhögun þess-
ara kosninga kemur til vegna hring-
borðsumræðnanna svokölluðu en
samkvæmt niðurstöðum þeirra var
Samstaða lögleidd og fékk að bjóða
fram til þingkosninga.
Niðurstöður kosninganna sýndu
mikinn ósigur frambjóðenda komm-
únistaflokksins til 100 sæta efri deild-
ar en það voru einu sætin sem þeir
kepptu um við frambjóðendur
stjórnarandstöðunnar. Samstaða
bauð fram til 35 prósent sæta í neðri
deild en kommúnistum og banda-
lagsflokkum þeirra voru tryggð 65
prósent sæta.
Jaruzelski, hershöfóingi í Póllandi,
í kosningunum á sunnudag.
Símamynd Reuter
Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, sem hér sést i þingkosningunum á sunnudag, sagði niðurstöðurnar kalla á
umbætur. Simamynd Reuter
Svo virðist sem margir frambjóð-
enda kommúnista og bandalags-
flokka þeirra sem kepptu innbyrðis
um 65 prósent sæta í neðri deild hafi
ekki náð 10 prósent atkvæða í kosn-
ingunum. í þeim tilfellum þar sem
enginn nær 50 prósent atkvæða mun
verða kosið milli tveggja atkvæða-
mestu frambjóðendanna aftur þann
18. júní nk.
Talsmenn Samstöðu sögðu að nið-
urstöður kosninganna sýndu afleið-
ingar fjögurra áratuga stjórnar
kommúnista. Sagði Janusz Onys-
zkiewicz, einn talsmannanna, að
þjóðin hefði á þennan hátt verið að
bregðast við fortíðinni og þeim vanda
er Pólland á við að stríða í dag. Lech
Walesa, leiðtogi Samstöðu, hvatti
fólk til að sýna stillingu. „Kosning-
amar mega ekki kljúfa okkur. Niður-
stöðurnar kalla á umbætur."
Opinberar niðurstöður hafa enn
ekki verið birtar. Búast má við að
það verði á morgun.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna kvaðst fagna niður-
stöðunum sem sögulegu skrefi í lýð-
ræðisátt. Reuter
AMERISKA
GARDSLÁTTUVÉLIN
NÝ SENDING
Frábær vinnuhestur í
heimilissláttinn! 3,5 hestafla
Briggs & Stratton mótor.
20 tommu hnífur.
Ótrúlega gott verð vegna
hagstæðra samninga við
verksmiðjuna!
Aðeins kr. 14.900,-
ÓDÝRASTA VÉLIN Á MARKAÐINUM
r
H f Ttmarltfyriralla •jl
ttHirml
Heildarupphæð vinninga
4.310.810,-.
Enginn var með 5 rétta, sem voru
kr. 1.984.477,-.
Bónusvinninginn fengu 5 og fær
hver kr. 69.016,-.
Fyrir 4 tölur réttar fær hver 6.265,-
og fyrir 3 réttar töiur fær hver um
sig 381,-.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir
útdrátt í Sjónvarpinu.
Upplýsingasímsvari 681511.