Dagblaðið Vísir - DV - 06.06.1989, Side 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1989.
Andlát
Svava Arnórsdóttir, Kleppsvegi 134,
lést í Landspítalanum laugardaginn
3. júní.
Jóna Kristjánsdóttir lést á heimili
sínu, Ásum í Stafholtstungum,
Mýrasýslu, laugardaginn 3. júní.
Þorlákur R. Haldorsen hstmálari lést
þann 4. þ.m. í Borgarspítalanum.
Þormóður Jónasson húsgagnasmið-
ur, Grettisgötu 43, lést í Landakots-
spítala laugardaginn 3. júní.
Jónína Guðfinna Kristjánsdóttir frá
Seyðisfirði, Hhðarvegi 11, Kópavogi,
lést í Landspítalanum fimmtudaginn
1. júní.
Ingibjörg Sumarliðadóttir frá Vals-
hamri, Svalbarði 12, Hafnarfirði,
andaðist í St. Jósefsspítala að morgni
3. júní.
Jarðarfarir
Jarðarfór Sigurðar Kristjánssonar
loftskeytamanns fer fram frá kapell-
unni í Fossvogi miðvikudaginn 7.
júní kl. 15.
Þorsteinn Gunnarsson kennari verð-
ur jarðsunginn frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 7. júní kl. 13.30.
Ástrún Þórðardóttir, Dvalarheimh-
inu Hlíf, ísafirði, verður jarðsungin
frá ísafjarðarkapellu miðvikudaginn
7. júní kl. 14.
Hermann Jóhannessonlést 28. maí.
Hann fæddist að Sauðhúsum í Lax-
árdal, Dalasýslu, þann 19. júní 1912,
sonur hjónanna Jófríðar Guðbrands-
dóttur og Jóhannesar Benediktsson-
ar. Hermann stundaði lengi múrara-
störf. Eftirlifaridi eiginkona hans er
Guðbjörg Guðbrandsdóttir. Þau
hjónin eignuöust tvo syni. Útfor Her-
manns verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 13.30.
Tilkynningar
Eiðaskóla slitið
Alþýðuskólanum á Eiðum var slitið laug-
ardaginn 13. maí sl. Nemendur í skólan-
um í vetur voru 122, þar af 44 í 9. bekk.
Skólinn var fullskipaður og mörgum
varð að neita um skólavist á sl. hausti.
Verkfall BHMR kom ekki svo mjög við
skólastarf á Eiðum því einungis tveir
kennarar eru í því félagi. Við skólasht
maettu fulltrúar nemenda sem útskrifuð-
ust fýrir fimmtíu árum eða vorið 1939 og
færðu þeir skólanum veglega bókagjöf.
Skólaárið 1938-39 voru nemendur í öðr-
um bekk 24 en nú eru 19 þeirra á lífi.
Skólastjóri á Eiðum nú er Kristinn Kristj-
ánsson. Á Eiðum eru tveir bekkir fram-
haldsdeilda en skólinn starfar eftir anna-
kerfi. Á myndinni eru fúlltrúar 50 ára
nemenda.
Fyrirlestur á vegum
Vísindaáðs og
Rannsóknaráðs ríkisins
í dag, 6. júní mun dr. Richard S. Williams
flytja fyrirlestur á vegum Vísindaráðs og
Rannsóknaráðs ríkisins. Fyrirlesturinn,
sem nefnist U.S. Govemment Planning
for Research on Global Change, verður
haldinn í stofu 101 í Odda, Hugvisinda-
húsi Háskóla íslands og hefst kl. 17.15. í
fyrirlestrinum mun dr. Williams fjalla
um þær umhverfisbreytingar sem nú
eiga sér stað á yfirborði jarðar, hvemig
Bandarikjamenn ætla að bregðast við
þeim og á hvaða hátt það kemur íslandi
og íslendingum við. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku og er öllum opinn.
Stofnfundur Fræðslusamtaka
um ísland og
Evrópubandalagið
verður haldinn miðvikudaginn 7. júni kl.
20.30 á Hótel Loftleiðum, Ráðstefnusal. Á
fimdinum verður gengið frá starfsreglum
fyrir samtökin og kosið ráð sem mun
fara með málefni þeirra. Flutt verða
fimm stutt erindi varðandi Evrópu-
bandalagið og kynntar hugmyndir um
vinnuhópa. Allt áhugafólk um þessi mál
er velkomið á stofnfundinn þar sem það
getur skráð sig inn i samtökin.
Kvöldganga um
Vogavík og Stapa
Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands
stendur fyrir göngu í kvöld, þriðjudag,
um Vogavík og Stapa. Farið verður í
gönguna kl. 21 úr Vogavík, rétt sunnan
við Vogalax og gengin gamla þjóðleiðin
um Reiðskarð upp á Stapann og síðan
niður Brekkuskarð. Lífríki Vogavikur-
fjöru verður skoðað og einnig merkilegar
rústir af grasbýlum og verstöð frá síðustu
öld. Komið verður til baka um kl. 23.
Næsta kvöldganga verður í Miðnes-
hreppi á fimmtudagskvöld kl. 21 frá
Grunnskólanum.
Flóamarkaður
verður í sal Hjálpræðishersins, Kirkju-
stræti 2, í dag og á morgun kl. 10-17.
Mikið úrval af góðum fatnaði.
Ljósmyndakeppni Mazda
Mazda motor Corporation tilkynnti ný-
lega að fjölskylduljósmyndakeppni Maz-
da verði haldin 6. árið í röð. í hvert skipt-
isem keppnin hefur verið haldin hafa
borist á fimmta þúsund myndir til henn-
ar en árið 1984 bárust hlutfallslega flestar
myndir frá íslandi og vann einn íslend-
ingur til verðlauna að upphæð 3.000
Bandarikjadalir eða jafnvirði ca. 170.000
króna á gengi í dag. Var vinningsmyndin
síðan notuð í almanak Mazda fyrir árið
1985. Keppnin verður með svipuðu sniði
og áður, öllum er heimil þátttaka og ekki
er nauðsynlegt að viðkomandi eigi eða
kaupi Mazda-bíl. Það eina sem þátttak-
endur þurfa að gera er að senda mynd
af fjölskyldunni eða kunningjum, tekna
á 35 mm litskyggnu, þar sem þau eiga
góða stund saman með Mazda hvar sem
er eða hvenær sem er. Eina skilyrðið er
að innsend mynd endurspegli „ánægju
og skemmtun með Mazda" (á ensku:
Having fun with Mazda cars and truck“.
Nánari þátttökureglur fást hjá Mazda-
umboðinu Bílaborg hf., Smiðshöfða 23.
Enn er til mikils að vinna, þvi að veitt
verða 15 fyrstu verðlaun, hver að upphæð
3.000 Bandaríkjadalir, og 45 önnur verð-
laun, hver að upphæð 500 Bandaríkjadal-
ir. Frestur til að senda inn myndir til
keppninnar rennur út 30. júni nk. og vill
Bílaborg hf. hvetja sem flesta íslendinga
til þátttöku.
Menning
Hafsteinn Austmann.
Jóhannes Jóhannesson.
Gömul sannindi
og nýr skilningur
Hverjum þykir sinn fugl fagur,
segir máltækið. Þetta á að sjálf-
sögðu einnig við um þær uppgöt-
vanir sem menn gera í nafni mynd-
listarinnar. Sérhver frumkvöðull
eða umbótasinni í listinni telur sig
vera með betri, fegurri og skilvirk-
ari listaverk í höndunum en starfs-
bræður hans.
í framhaldi af því hafa menn
komið sér upp nokkurs konar hst-
rænni framþróunarkenningu sem
gengur út á það að hver ný hreyfmg
í hstinni bæti einhverju markveröu
við hstasöguna, nýrri rýmisskynj-
un, nýrri hugmyndafræði, nýrri
efnismeðferð eða einhverju öðru.
Þetta er sosum gott og blessað,
nema hvað kenningin virðist hafa
sérstaka fyrningarklásúlu inni-
byggða þar sem eldri hstin er talin
missa megnið af áhrifamætti sín-
um við tilkomu nýrra viðhorfa.
Vissulega hefur borið á slíkum
bábiljum í skrifum hstfræðinga en
þær eru enn útbreiddari meðal
hstamanna sjálfra.
Hver kannast ekki við gorgeir
ungra hstamanna sem þykjast hafa
betrumbætt eldri hst eða hálfvon-
leysislegt yfirlæti eldri kynslóðar
sem tekið hefúr að sér að standa
vörð um margra áratuga gamlan
Stóra-sannleika og bannfæra öll
frávik frá honum?
Sannleikurinn er sá aö engin
stefna í hstum verður til í tóma-
rúmi. Ný viðhorf verða aðeins til
við nýjan skilning á „gömlum
sannindum“. Hið gamla lifir áfram
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
í hinu nýja, eins og foreldrar í böm-
um sínum.
Sem þýðir auðvitað að „gömlu
sannindin" geta ekki fyrnst, standi
þau undir nafni.
Afskiptir listamenn?
Á nýlegu rápi mínu um Museum
of Modern Art í New York með
nokkmm íslenskum hstamönnum
af yngri’kynslóð var það einmitt
Matisse gamh sem mest áhrif hafði
á viðstadda.
Hins vegar er auðvelt að shta út
„gömlum sannindum" með sífelld-
um endurtekningum.
Undanfarið hafa nokkrir íslensk-
ir hstamenn af eldri kynslóð kvart-
að nyög yfir því hve afskiptir þeir
séu orðnir í íslensku myndhstarlífi
og kenna um ofdýrkun á hinu
„nýja“ á kostnað „gamaha sann-
inda“.
Nú veit ég ekki til þess að nokkur
hstamaður af eldri kynslóð hafi
misst spón úr aski sínum fyrir það
eitt að tilheyra eldri kynslóð og
mála öðruvísi en ungviðið.
Á hinn hóginn hef ég orðið var
við að ýmsir starfsbræður mínir
em orðnir þreyttir á þeim hsta-
mönnum af þessari sömu kynslóð
sem löngu virðast hafa gefist upp á
að skilja „gömul sannindi“ nýjum
skilningi en eru þess í stað að ganga
af þeim dauðum með marklitlum
endurtekningum eða mynsturgerð.
Tæknilegt hagræði
Ég get th dæmis ekki séð að Haf-
steinn Austmann, sem nú sýnir í
Nýhöfn við Hafnarstræti, hafi bætt
neinu sem máh skiptir viö þá hst-
sýn sem hann hahaði sér að fyrir
röskum þrjátíu ámm. Þær breyt-
ingar sem orðið hafa á myndum
hans á þeim tíma virðast fyrst og
fremst hafa stjómast af tæknilegu
hagræði, ekki brýnni tjáningar-
þörf.
Jóhannes Jóhannesson, sem ný-
lega sýndi í Gállerí Borg, hefur að
vísu gert ýmsar breytingar á því
samræmda og htríka Parísarmál-
verki sem hann tók undir með hér
á árum áður en þær breytingar
hafa allajafna ekki miðast að því
að auka á tilfinningaleg eða hug-
myndaleg blæbrigði verkanna
heldur skreytighdi þeirra.
í eldri verkum hans var að fmna
ávæning af kosmískri hugsun sem
birtist meðal annars í togstreitu
frumforma. Nú eru þessi form á
myndfletinum upp á punt.
Að skaðlausu mættu því nokkrir
þessara meintu píslarvotta í hsta-
mannastétt hta í eigin barm áður
en þeir búa sér th samsæriskenn-
ingar eins og þær sem viðraðar
hafa verið í fjölmiðlum, og þá aðal-
lega Morgunblaðinu, á undanföm-
um vikum.
-ai.
Brídge
Frá Bridgefélagi
Tálknafjarðar
Dagana 12/5-15/5 komu félagar úr
Bridgefélaginu Muninn Sandgerði í
heimsókn th Tálknafjarðar og föstu-
dagskvöldið 12/5 var sphaður tví-
menningur.
l.Sumarhði Lárusson -
Bjöm Dúason, Sandg............311.
2. Haukur Ámason -
Þórður Reimarsson, Tálknaf..... 306
3. Karl Einarsson -
Karl G. Karlsson, Sandg........289
4. Bjöm Sveinsson -
Ólöf Ólafsd., Tálknaf..........278
5. Guðlaug Friðriksd. -
Kristín Magnúsd., Tálknaf......260
og laugardaginn 13/5 var spiiuð bæja-
keppni í sveitakeppni og sigmðu
Sandgerðirigar á fjórum boröum og
Tálknfirðingar á einu. Sandgerði 93,
Tálknafjöröur 55. Keppnisstjóri var
Steinberg Ríkharðsson
Alslemma ’89
Fyrsta Alslemmu-mótið af átta var
sphað í Gerðubergi í Breiðholti um
síðustu helgi. 60 manns tóku þátt í
mótinu en töluvert var um forfoll á
síðustu stundu. Sphað var eftir Mitc-
heh-fyrirkomulagi, tvö sph mhh
para, alls 28 sph í umferð, samtals
84 sph.
Sigurvegarar mótsins urðu Anton
R. Gunnarsson og Friðjón Þórhalls-
son úr Reykjavík með 1358 stig eða
62,18% skor, sem er geysigóð út-
koma. í öðra sæti urðu Hermann
Lárasson og Jakob Kristinsson,
Reykjavík, með 1310 stig eða 59,98%
skor og í þriðja sæti Júlíus Siguijóns-
son og Siguröur Vhhjálmsson,
Reykjavík, með 1270 stig eða 58,15%
skor.
Röð paranna varð þessi:
1 Friöjón Þórhallsson Anton R. Gunnarss. 1358
2 Hermann Lárusson Jakob Kristinsson 1310
3 Siguröur Vilhjálmsson Júlíus Sigurjónsson 1270
4 Ragnar Bjömsson Sævin Bjamason 1209
5-6 Jón Ingi Bjömsson ísakÖm Sigurössonll85
5-6 Jón Baldursson Sverrir Ármannss. 1185
7 Magnús Ólafsson Páll Valdimarsson 1178
8 Magnús Sverrisson Guölaugur Sveinss. 1177
9 Guölaugur R. Jó-Öm Amþórsson 1176
hannss.
10 Þröstur Ingimarsson Ragnar Jónsson 1165
11 Matthías Þorvaldsson HrannarErlingssonll50
12 Jón Á. Guömundsson Guöjón Stefánsson 1117
13 Jón Stefánsson Stefán Ragnarsson 1111
14 Áraína Guölaugsdóttir Bragi Erlendsson 1106
15 Jacqui McGreal Anna Þóra Jónsd. * 1089
16 Sverrir Kristinsson Sigfús Öm Áraason 1086
17 Baldvin Valdimarsson Ólafur H. Ólafsson 1065
18 Guöni Sigurbjamason Ómar Jónsson 1064
19 Murat Serdar Bemódus Kristinss. 1062
20 Bragi Hauksson Sigtr. Siguröss. 1051
21 Baldur Bjartmars Jón Andrésson 1024
22 Guöbrandur Jóhannss. Gunnar Páll Hall-1018
dórss.
23 Hertha Þorsteinsdóttir Elín Jóhannesdóttirl006
24 Jón Hersir Elíasson Sigurpáll Ingi-998
bergss.
25 Steingrímur Pétursson Sveinn Eiríksson 971
26 Valdimar Grímsson Gísli Óskarsson 967
í}7 Kristín Guöbjömsd. Bjöm Amórsson 939
28 Láms Hermannsson Óskar Karlsson 927
29 Alfreö Kristjánsson Hreinn Bjömsson 908
30 Ólína Kjartansdóttir Dúa Ólafsdóttir 888
1. verölaun í mótinu voru 50 þús.
kr., 2. verðlaun kr. 30 þús. og 3. verð-
laun kr. 20 þús. Keppt er um heildar-
verðlaun í öllum mótunum átta fyrir
besta samanlagða árangur í 4 mótum
af 8. Auk þess eru veitt sérstök verð-
laun fyrir efstu skor í lotu.
Næsta Alslemmu-mótið er á
kirkjubæjarklaustri dagana 10.-11.
júní og hefst spilamennska kl. 13 á
laugardeginum. Spilað er um siifur-
stig í öllum mótunum.
Skráning í Kirkjubæjarklausturs-
mótið er hafin hjá Forskoti sf., í s
91-623326.
Mótaröðin í sumar verður þessi:
2. mót: Kirlgubæjarklaustri 10.-11. júní.
3. mót: Hrafnagil v/Akureyri 24.-25. júní.
4. mót: Reykholt 1 Borgarfiröi 8.-9. júlí.
5. mót: ísafjöröur 22.-23. júlí.
6. mót: Húnavallaskóli v/Blönduós
12.-13. ágúst.
7. mót: Hallormsstaöur 26.-27. ágúst.
8. mót: Kópavogur 16.-17. september.