Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1989, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.1989, Side 14
14 Spumingin FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1989. Hefurðu keypt útsölukjötið? Sigurlina Björnsdóttir: Nei, ekki enn- þá. Sólveig Adaœs: Nei, en ég er að fara að kaupa einn poka af kjötinu. Lóa Ingólfsdóttir: Nei, ég hef aldrei keypt kjöt á útsöluverði. Ég myndi þó gera það ef ég hefði efni á því. Sigrún Jakobsdóttir: Nei. Ég hef ekki keypt það enn en býst samt fastlega við þvi. Þóra Ingólfsdóttir: Nei, og ég hef ekki hug á því að kaupa útsölukjötið. Ottó ólafsson: Nei, en ég hugsa aö ég eigi eftir að kaupa kjötið. Lesendur Eltingaleikur lögreglu við bifhjólamenn: Hin hliðin á málinu Bifhjólasamtök lýöveldisins héldu árlegt mót sitt I Húnaveri Bifhjólamaður kom: Vegna greinar, sem birtist á bak- síðu DV 3. júlí, þar sem segir að lög- reglubíll hafi lent í árekstri þegar verið var að veita bifhjólamönnum eftirfor, langar okkur í Bifhjólasam- tökum lýðveldisins að greina frá okkar hlið á málinu. Við héldum landsmót í Húnaveri um helgina og vorum á leiðinni í bæinn er lögreglan tók upp á því að elta okkur. Elti sami bíllinn okkur allan Langadalinn, væntanlega með það í huga að sitja fyrir okkur ein- hvers staðar á leiðinni. Skal það sér- staklega tekiö fram að það er mark- mið okkar að aka ávallt á löglegum hraða. Við fengum það á tilfmning- una að lögregluþjónninn, eldri mað- ur, hefði ímugust á mótorhjólum og leðurklæddu fólki en eins og allir vita er leðrið til vemdar. Við áðum á Blönduósi og komst þá lögreglan fram fyrir okkur. Beið bíll- inn eftir okkur rétt fyrir utan bæinn og þegar lögreglan sá hópinn koma fór hún aftur af stað og hélt okkur fyrir aftan sig. Hleypti hún öllum bifreiðiun fram úr, en ekki okkur. Var ekkert veriö að stöðva bifreiðar sem komu á móti og óku á 100 eða 110 km hraða á klst. Við fengum alveg nóg í Hrútafirð- inum. Gaf fremsta hjólið merki um að það ætlaði að taka fram úr lögregl- unni en þá vom bláu ljósin sett á og hjólið stöðvað. Komust þá allir fram úr nema sá eini sem stöðvaður hafði veriö. Þegar hópurinn var svo kom- inn í hvarf ók lögreglan aftur af staö á vítaveröum hraöa. Var greinilegt að það átti að ná hópnum aftur. Lögreglubíllinn náði svo aftasta bílnum í hópnum, jeppa, á blindhæð og ætlaði sér fram úr. Kom þá bíll á móti og lenti lögreglubíllinn, sem var Volvo, á framhomi jeppans er hann var að reyna að komast á milli. Mun- aöi hársbreidd að stórslys yrði. Bifhjólamenn era mjög gramir vegna fréttaflutningsins því reynt er að koma sökina á þá. Má geta þess að af 300 manna hópi vora aðeins tveir teknir á ofsahraða, annar á 130 km/klst og hinn á 194 km/klst. Er þaö mjög leiðinlegt að skemmdu eplun- um skuli takast að eyðileggja fyrir öllum hinum. Maðurinn sem aldrei sofnaði yfir dagblaðinu Gunnar Sverrisson skrifar: Það er stundum eitt og annað í þjóðfélagsmenningunni sem gleður augu eða eyru fólks, nema hvort tveggja sé, annaðhvort úr heimi les- inna eða leikinna listaverka. Og sem betur fer býður samfélagið stundum upp á þætti sem skara fram úr, þætti sem treysta menningarböndin og hvetja okkur til aö lifa lífinu lifandi, gera suma betri en þeir voru fyrir og fá margan til að minnast jákvæð- ari hliða tilverunar. Téð skrif urðu til þegar ég af ein- hverri rælni fór að hlusta á litla barnatímann að morgni 1. þessa mánaðar. Þá las Sigurlaug M. Jónas- dóttir listilega vel skrifaöa bama- sögu, að mér fannst, eftir sænskan rithöfund, Jean Lee Latham, en téða sögu hefur Þorsteinn Jónsson rithöf- undur frá Hamri þýtt. Ber sagan nafnið Maðurinn sem aldrei sofnaði yflr dagblaðinu. Mér fannst nafnið leyna dálítið efni sögunnar sem kom á óvart og sigraöi eyrað. Mér fannst ekki nóg með að hún væri vel skrifuð heldur líka sér- lega rytmísk að innihaldi. Leikhljóð á réttum stöðum áttu að tákna tíst litla fuglsins í búrinu, nyálm kattar- ins og gelt hundsins, svo og hrotur hins sofandi á viðkomandi heimili. Auðheyrilega listilega undirbúinn lestur sem mér fannst það vel saminn að enda þótt ég stundi það nú ekki að hlusta á bamasögur verð ég að segja að andinn hlýtur að hafa verið vel yfir höfundi téðrar sögu er hann samdi hana. Mér fannst ekki spilla fyrir að hún var flutt af tilfinningu fyrir listaverkinu. Það er aUtaf ánægjulegt til þess að vita þegar vel skrifað verk, hveiju nafni sem það nú annars nefnist, tekst svo vel í flutningi að það skilur dálitið auðnuljós í minningunni og einhvem þægilegan neista eftir í sál- inni sem gerir margan að betri þegn- um en áður. Væri ánægjulegt ef umrædd saga væri endurtekin við hentugt tæk- ifæri. Það kæmi mér ekki á óvart þótt fleiri tækju í sama streng og óskuðu efitir aö fá að hlýða aftur á þetta listaverk. spurn- { Glaðvakandi dagblaðslesandi Gigja og Guðrún vilja sjá meira með U2. Meira með U2 Gígja og Guðrún skrifa: Við hvefjum aðdáendur hljóm- sveitarinnar U2 til aö hamra á því að sýnt verði meira efni með þeim á sjónvarpsstöðvunum, og að leikið verði meira með þeim á „candy floss“ stöðvunum, Bylgjunni og Stjöm- unni. Einnig viljum við lýsa ánægju okk- ar með hina nýju útvarpsstöð EFF EMM 95,7 og mælum við með að fólk veiti henni meiri athygli. Fatlaðir vilja ferðast líka Ferðamaður skrifar: Nú er sá tími er ferðalög standa yflr. En einn er galli á gjöf Njarðar, fótluðum er ekki reiknað með. Okkur langar þó líka til að feröast. í Eldgjá er lítið hægt að athafna sig, kindagata inn að Ofærufossi og engin leið til að aka hjólastóli. Væri ekki hægt að laga þetta? Að Dettifossi er illfært vegna slæms vegar. Maður verður að láta sér nægja að heyra í honum. Ófært er í Hljóðakletta. Hvers eigum við að gjalda? Það er víða sem ekki er gert ráð fyrir okkur en við búum nú líka hér. ísland getur ekki talist besta land í heimi ef viö hugsum ekki líka um fatlaða sem langar til að skoða landið sitt. í Eldgjá er illfært hjólastólum. Að borða lóuna Fuglavinur skrifar: um okkur. Ég held að þessi maður Eg á ekki orð yfir undrun mina hafi aldrei heyrt lóuna syngja dirr- - að fara að borða lóuna! Hún sem indíið. Og hafi hann ekkert skyn- er sá fúgl sem flestir fagna á vorin samlegra að segia ætti hann ekki og boðar okkur sumarið, aö minnast á þetta meir því hann Nei, viö látum það ekki spytjast fær engar þakkir fýrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.