Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1989, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1989, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989. Uflönd „Samsteypusyóm eina leiðin“ Lelðtogl Nýja demókrataflokks- ins I Grikklandi, Konstantin Mitso- takis, spáði í gær öngþveiti í Grikk- iandi ef ekki yrði mynduð sam- steypustjóm nú aö loknum kosn- ingum. Nýja demókrataflokkinn vantaði þrjú þingsæti upp á að hann næði meirihluta á þingi og hefur flokkurinn fengið stjómar- myndunarumboð i þijá daga. Ef Mitsotakis tekst ekki að mynda samsteypustjóm fær Andreas Papandreou þrjá daga til að reyna að mynda stjórn ög ef honum mistekst em kommúnistar. næstir í röðinni. Papandreou hefur útilokaö sam- vinnu við Nýja demókrataflokkinn en Mitsotakis hefúr sagst vilja hitta Papandreou. Konstantin Mitsotakis, teiðtogi Nýjð demókrataflokksins í Grikk- landi. Simamynd Reuter Útflutningsbann á Picasso Sænski flármálamaðurinn FYedrik Roos á nú á hættu að fá ekki allar þær miHjónir sem hann hafði vonast eftir fyrir Picassomyndina „Brúð- kaup Pierrettes". Mólverkið fer á uppboð í lok nóvember og fer það fram samtímis í Tokýo og París. Búist er við að það fari á í kringum fjóra tíl fimm milljaröa íslenskra króna, sem er metverö fyrir verk eftir Picasso. Franski menningarmálaráðherrann, Jack Lang, hefur hins vegar lýst því yfir að þaö sé ekkí líklegt að hann leyfi að málverkiö verði flutt frá Frakklandi. Það gæti hins vegar leitt til þess að verkið félli í veröi því varla er búist viö aö kaupendur sýni áhuga ef málverkið verður að vera kyrrt í Frakkland. Lang skýrði afstöðu sína með því að royndin tilheyrði menningararfi Frakka og þess vegna ætti hún að vera um kyrrt í Frakklandi. Fimmtán ára fangelsi Þrjú hundruð dómarar og aðrir starfsmenn dómskerfisins í Kólumbíu gengu um gðtur Bogota I gær og kröföust betra öryggis. Oómararnír hafa verlð i verkfalll slðan 1. nóvember er starfsféiag! þelrra var myrtur. Sfmamynd Reuter Kólumbískur flkniefnasali var í gær dæmdur í fimmtán ára fangelsi í Bandaríkjunum. Er það í fyrsta skipti sem fíkniefnasali, sem framseldur hefur verið frá Kólumbíu, hlýtur fangelsisdóm í Bandaríkjunum frá því að herferðin gegn flkniefnabarónunum hófst í ágúst síðastliðnum. Fimm aðrir meintir fíkniefhasalar hafa verið framseldir til Bandaríkj- anna á undanförnum mánuðum. Fflanefhasalar hafa svarað herferð yflrvalda með fjölda sprengjutilræða og morða. Sérstaklega hafa þeir beint árásum sínum gegn dómurum og blaðamönnum. Austur-þýskaland: Stjórnmála- ráðið víkur Stjórnmálaráð austur-þýska kommúnistaflokksins tilkynnti í morgun að það segði af sér til að axla ábyrgð á þvi ástandi sem ríkir í landinu að því er kom fram í frétt- um ADN, hinnar opinberu frétta- stofu. Kemur afsögn þessi í kjölfar afsagnar ríkisstjórnarinnar sem lét undan þrýstingi almennings í landinu í gær og sagöi af sér. í fréttum ADN kom fram að Egon Krenz, hinn nýi leiðtogi kommún- ista, hafi farið fram á við miðstjórn flokksins, sem nú fundar, að hún samþykkti afsögn aflra átján meö- lima stjörnmálaráðsins. Var það gert mótatkvæðalaust skömmu eftir aö fundurinn hófst í morgun. Ekki kom fram hvenær nýtt stjómmálaráð verður kosið. Afsagnir ríkisstjómarinnar sem og stjómmálaráðsins eru einsdæmi í sögu Þýska alþýðulýðveldisins. Tals- maður stjórnvalda, sem tilkynnti um ákvörðun ríkisstjórnarinnar, hvatti landsmenn til að sýna stillingu og þolinmæöi. Þrjú þúsund A-Þjóðverj- ar fóru í fjöldagöngu í Austur-Berlín og kröfðust frjálsra kosninga. Þá söfnuöust um fimmtíu þúsund sam- an í borginni Wismar tfl aö krefjast fjölflokkakerfis, frjálsra kosninga og að endi yrði bundinn á alræði komm- únista. Stjórnarerindrekar voru búnir að spá stórfelldum mannabreytingum á þriggja daga fundi miðstjórnarinnar sem og endurskoðun á stefnu flokks- ins. Andófsmenn og jafnvel ráðherr- ar og bandalagsflokkar kommúnista höfðu hvatt til þess að stjórnmála- ráðiö segði af sér til að veita Egon Krenz tækifæri til að hrinda í fram- kvæmd pólitískum og efnahagsleg- um umbótum. Þrír fráfarandi ráð- herrar stjórnarinnar - forsætisráð- herrann, öryggismálaráðherrann og varnarmálaráðherrann - áttu sæti í stjórnmálaráðinu. Talsmaður stjórnarinnar sagði að ríkisstjórnin myndi sitja þar til þing- heimur hefði kosiö nýja. Samkvæmt fréttum ADN, hinnar opinberu fréttastofu, má búast við að þing- menn komi saman til fundar fyrir vikulok. Helmut Kohl, kanslari V-Þýska- lands, bauð í morgun austur-þýskum ráðamönnum víðtæka efnahagslega aðstoö ef þeir leyfðu frjálsar kosning- ar og sjálfstæöa stjórnmálaflokka. Ummæli kanslarans komu aöeins nokkrum klukkustundum eftir aö austur-þýska stjórnin sagði af sér. Þá ítrekaði Kohl einnig hvatningu sína um að austur-þýskir kommún- istaleiðtogar vikju af valdastóli. Reuter Um þrjú þúsund austur-þýskir andófsmenn komu saman til mótmælafundar fyrir framan höfuðstöðvar ríkisstjórnar- innar í gær. Simamynd Reuter Kttty Dukakis á sjúkrahús Fréttir herma aö Kitty Dukakis, eiginkona Michael Dukakis, íör- setaframbjóðanda demókrata frá því í fyrra, liafi verið flutt á sjúkra- hús á mánudagskvöld. Kitty, sem játað hefur aö hafa veriö ánetjuð megrunarpillum og áfengi í tugi ára, var látin gangast undir ýmsar rannsóknir. Talsmaður Dukakis sagði að Kitty heföi verið hálflasin að und- anfómu. Innlögnin á sjúkrahúsiö hefði ekki verið vegrta áfengis- eða lyfjaneyslu. Kitty fór í fjögurra vikna afvötn- Kttty Dukakis. un fyrr á þessu ári. . • Simamynd Reuter „Oscar Wilde dö ekkl úr sýfilis" „Oscar Wilde dó vegna sýkingar í eyra sem olli heilabólgu en ekki úr sýfliis," sagði taugasérfræðingurinn Macdonald Critchley, sem er ráð- gjafi við National Hospital í London, í gær. Kvaðst hann byggja þessa ályktun sína á dánarvottorði Wildes. Hann sagöi að sér hefði tekist að komast aö þvi hvaöa læknir það var sem undirritaði dánarvottoröið í París. „Læknirinn var sérfræðingur sem hefði átt að vera fær um að þekkja lokastig sýfiiis ef hann hefði séð það,“ sagði Critchley. Reyndar stóð á dánarvottoröinu, sem alltaf hefur verið í geymslu í einka- skjalasafhi í New Jersey, að Wilde heföí dáið úr heilabólgu og hefur sú sjúkdómsgreining verið kunn í mörg ár. En vegna þess aö Wilde var hommi hala ævisöguritarar gert ráö fyrir að hann hafi þjáöst af sýfilis og að það hafi verið sá sjúkdómur sem dró hann til dauða 46 ára gamlan. Gífurlegur kosninga- áhugi í Namibíu Namibíumenn þyrptust á kjörstaði í gær, fyrsta dag þingkosninganna sem eru frjálsar. í afskekktum hér- uðum í norðurhluta landsins var áhugi manna fyrir kosningunum svo miklll að þeir mættu á kjörstaði mörgum klukkustundum áður en opnað var. Áttu starfsmenn fullt í fangi með að koma í veg fyrir að fólk ryddist inn. Eftirlitsmönnum á veg- um Sameinuðu þjóðanna þótti stór- kostlegt að sjá svip þessa fólks sem nú var að kjósa í fyrsta sinn. Yfirleitt fór allt vel fram en hörmu- legur atburður átti sér þó stað í Ovambo í norðurhluta landsins þar sem ungbam var slegið úr faðmi móður og tróðst það til bana undir fótum kjósenda. Ekki langt frá biðu tveir níu ára drengir bana og tveggja ára telpa þegar handsprengja sem þau höfðu fundið sprakk. Hermenn gerðu óvirkar tvær aðrar sprengjur. Embættismenn sögðu að sprengjum- ar hefðu verið leifar frá stríöi Suður- Afríkumanna og skæruliða Swapo. Búist er við að Swaposamtökin þegar úrslit verða gerð kunn í næstu verði lýst sigurvegarar kosninganna viku. Reuter Kjósendur i biðröð við kjörstað fyrir utan Windhoek i Namibíu i gær. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.