Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1989, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1989, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989. 13 Lesendur Fatakaup dýrmætra kontórista: Einkennisföt á alþingismenn Þórarinn hringdi: í sambancji við lántöku forseta Alþingis fyrir fatakaupum og hvað það getur verið mikill kostnaður að fæða sig og klæða ef upphefð þingmanna stígur óvænt, legg ég til að á Alþingi verði allir jafnt til fara með því að þingmönnum og starfsliði verði skaffaður einkenn- isfatnaður eða svokallað „úni- form“, líkt og gerist hjá starfsfólki í ýmsum þjónustugreinum. Þóttalþingismenn hafi verið skil- greindir, einmitt af forseta Alþing- is, langt fyrir ofan venjulega kontó- rista í mannvirðingu, þá er ekkert sem mælir á móti því að þingliðið fái sitt „úniform“. Þetta má sam- ræma þannig að karlmenn fái svo sem tvenn jakkaföt á ári, einn frakka, skyrtur, bindi og tvenna skó - og konurnar samsvarandi dragtir (jakka og pils) eða buxna- dragt svo og kápu og eitthvað af skýluklútum og sokkabuxum, t.d. álíka og flugfreyjur fá nú. Ef þetta væri reglan þyrfti t.d. forseti sameinaðs þing, hvort sem hann væri karl- eða kvenkyns, ekki að hafa áhyggjur af klæðnaði í boðsferðum til útlanda, hann færi einfaldlega í sínu „úniformi", að vísu nýhreinsuðu og pressuðu og væri vel auðkenndur með viðeig- andi borðum í íslensku fánalitun- um og/eða þeim orðum sem við- komandi hefur fengið frá æðsta forseta. Hver vill að óbreyttur þingmað- ur, sem stendur allt í einu frammi fyrir því að komast til æðstu met- orða í þinginu, þurfi að láta það bitna á heimilisbókhaldinu? Eng- inn óbrjálaður íslendingur trúi ég, og mæli þá fyrir munn þeirra and- lega heilu. - Eða er ég kannski far- inn að mæla fyrir hönd þeirra brjá- luöu - til að aðstoða þá hina sömu? í samræmi við tign sína! Árni Árnason hringdi: „í samráði við fjármálastjóra Al- þingis og með tilliti til þeirra anna, sem ég var í, þá varð þetta að ráði - að ég fengi svona fyrirfram- greiðslu launa," segir forseti Sam- einaðs þings, Guðrún Helgadóttir. Mér finnst eins og hér sé látið í veðri vaka að fjármálastjóri Al- þingis hafi, jafnvel að fyrra bragði, boðið forseta Alþingis fyrirfram- greiðslu launa - eða a.m.k. talið þaö sjálfsagt að styðja forsetann í því að koma sér upp sæmilegu „gard- erob“ fyrir PóUandsferð hans. Ég reikna þó með að þetta sé ekki staðreyndin. Heldur hafi forseti Sameinaðs þings verið að bera sig upp undan auraleysi við hinar nýju aðstæður og leitað eftir láni hjá skrifstofu Alþingis. Auðvitað geta þeir menn, er gegna störfum í skrif- stofu Alþingis, ekki neitað eða stað- ið sérstaklega í vegi fyrir sjálfum forseta Sameinaðs þings,ef hann vill endilega notfæra sér aðstöðu sína. Hvernig gæti gjaldkeri eins fyrir- tækis neitaö forstjóra um úttekt á sömu upphæð og hér er um að ræða ef hann færi fram á slíkt? Varla þarf forstjóri fyrirtækis að ráðgast sérstaklega við gjaldkera um svona nokkuö. - Það þurfti for- seti Sameinaðs þings áreiðanlega ekki heldur. Því er hjákátlegt að lesa um það að nú þurfi að búa þannig um hnút- ana í launamálum þingmanna og ráðherra að þeir geti borið sig sæmilega og klæðst ,,í samræmi við tign sína“ bæði hér heima og í út- löndum. Og aö laun forseta Sam- einaðs þings þurfi að verða hin sömu og ráðherranna. - Ekki sé nokkurt vit í því að þurfa að „pukr- ast“ með fríðindi og alls konar aukasporslur á æöstu stöðum. En dettur engum í huga að af- nema fríðindi og aukasporslur, jafnframt því að hækka ekki laun þe.ssara aðila? Þaö væri vitinu meira. Að hækka laun til forseta Sameinaðs alþingis t.d. myndi á engán hátt gagnast honum (hver sem hann er). Að tala um betri aðbúnað (væntanlega til að geta klæðst betur) í sömu andrá og „tign“ embættismanna er hrein niðurlæging gagnvart viðkomandi. Sá alþingismaður, sem ekki á utan á sig flíkurnar vegna láglauna (þau eru nú nýhækkuð), hvað þá forseti Sameinaðs þings (sem hefur þó hærri laun), honum er ekki við bjargandi í fjármálum og ætti því alls ekki að sitja á þingi yfirleitt. Gott viðtal við séra Karl Svanhildur skrifar: Mig langar til að hrósa útvarps- þætti sem var á Aðalstöðinni mið- vikudagskvöldiö 25. okt. sl. - Þar var rætt við séra Karl Sigurbjörnsson, prest í Hallgrímskirkju. Sjaldan eða aldrei hefur útvarps- þáttur haft eins mikil áhrif á mig. Spyrjandinn, sem var kona, haíði greinilega undirbúið þáttinn af ná- kvæmni og telst það þvi miður til undantekninga. - Henni tókst að ná fram mjög góðum svörum hjá séra Karh. Þar voru atriði, sem ég hefi C velt fyrir mér, og tel ég mig, eftir þennan þátt, hafa fengið nokkur svör við þeim. Svona þættir gera mann aö betri manneskju. Vonandi verður hann endurtekinn fljótlega - og þá auglýst- ur fyrirfram. Meira af svo góðu, takk! AUKABLAÐ Matur og kökur Miðvikudaginn 29. nóvember mun aukablað um mat og kökur fylgja DV. Efnið tengist jólum og jólahaldi hérlendis og erlendis. Birtar verða ráðleggingar og uppskriftir varðandi jóla- matinn og jólabaksturinn, bæði frumlegar og hefð- bundnar. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, hafi vinsamlegast samband við auglýsinga- deild DV hið fyrsta í síma 27022. Skilaffestur auglýsinga er til fimmtudagsins 23. nóvember. AUQLÝSIMQADEILD Sími 27022 Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á fasteigninn Mánabraut 17, þingl. eigandi Halldór Ingi Ólafsson, fer fram á eigninni sjálfri föstud. 10. nóv. '89 kl. 11.00. Uppboðs- beiðendur eru Garðar Garðarsson hrl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Hróbjartur Jónatansson hdl., Vátryggingafélag íslands hf. og Andri Árnason hdl. Bæjarfógetinn á Akranesi Jasmin við Barónsstíg VERSLUNIN HÆTTIR Allar vörur með 30% afslætti af gömlu, góðu verði. Jasmin sími 11625 LÁTTU EKKI OF MIKINN HRADA A VALDA ÞÉR SKAÐA! Ný húsgögn úr verslun, sem hætti, verða seld á hálfvirði. Mikíð af góðum hlutum en takmarkað magn. Leðursófasett með reyrgrind og borði Leðurhægindastóll með skemli Bast, 2ja sæta sófar Reyrsófasett, 3 + 1 + 1 Borðstofuborð með glerplötu úr reyr Mikiðaf speglum Hljómtækjaskápar Videoskápar Stofuborð með gleri Tauhægindastólar Hillur, myndir, stólar og margt margt fleira. VERSLUNIN SEM VANTAÐI Skipholtí 50b, simi 626062. Flokkur Krists var stofnaður sem undanfari guðsríkis-1 ins hér á okkar útvalda landi - íslandi. Nú skal unnið að framboðum i öllum kjördæmum tímanlega fyrir næstu alþingis- kosn. - Þeir sem finna eiga að stjórna. Framhaldsstofnfundur aug- lýstur kl. 14. e.h. laug- ardaginn 11. nóv. að Hringbraut 121, 4. hæð. Þátttaka til- kynnist í síma 62-34-09 kl. 10-12 f.h. 9/11. Guðs- ríkið er þegar hið innra með okkur. Sérprentun: Þjónnínn - Flokkar Krísts nýtttkomín Loftur Jónsson BÍLASALAN Smiðjuvegi 4, Kópvogi, Sími 77202. MERCEDES BENZ 230 E árg. 1987 til sölu, sjálfskiptur, m/overdrive, rafdr. rúður, rafdr. sóllúga, rafdr. útispeglar, 4 höfuðpúðar, hleðslujafn- ari, ABS bremsukerfi, centrallæsingar, álfelgur, skyggðar rúður, hljómflutningstæki. Einn sá glæsilegasti á landinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.