Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1989, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 8. NÓVEMBER 1989.
Laurence Olivier arfleiddi
John Gielgud að sjald-
gæfri Hamletútgáfu
Samkvæmt vilja hins dáða leikara
Laurence Olivier skyldi erfðaskrá
hans ekki opnuð fyrr en fjórum mán-
uðum eftir dauða hans. Það hefur
nú verið gert og erfa eiginkona hans
Joan Plowright og börn þeirra fjögur
langmest af veraldlegum eignum
hans sem metnar eru á 120 milljónir
króna.
Þó lét gamh maðurinn eftir sér að
arfleiða vini og kunningja að ýmsu
smávægilegu sem honum þótt best
geymt hjá þeim. Meðal annars arf-
leiddi hann aðalkeppinaut sinn um
hylh leikhúsgesta fyrr á árum, Sir
John Gielgud, að sjaldgæfri og verð-
mætri útgáfu af Hamlet eftir Sha-
kespeare.
Gielgud og Olivier urðu aldrei
meira en kunningjar. Samkeppni
þeirra á mihi kom í veg fyrir náinn
vinskap. Gielgud sagði þegar hann
frétti um arfmn: „Ég er hrærður yfir
því að Larry skyldi muna eftir mér
í erfðaskránni og láta mig njóta hluta
fjársjóðar síns.“
Gielgud var ekki eini leikarinn sem
Laurence Olivier mundi eftir göml-
um vinum og keppinautum þegar
hann gerði erfðaskrá sína.
fékk muni í sinn hlut úr dánarbúi
Ohviers. Bæði Sir John Mhls og
Dame Peggy Ashcroft fengu í sinn
hlut klassísk verðmæti úr dánarbúi
leikarans.
Eiður Guðna-
son fimmtugur
Eiður Guönason alþingismaður
varð fimmtugur í gær. Hann hélt
veislu í Fóstbræðraheimilinu í gær-
dag og dreif að mikið fjölmenni ætt-
menna, vina og samstarfsmanna.
Eiður hefur verið alþingismaöur
Vesturlands frá 1978 og formaður
þingflokks Alýðuflokksins frá 1983.
Hann hefur haft með höndum fjölda-
mörg trúnaðarstörf á vegum alþingis
aht frá því hann tók sæti þar. Áður
en Eiður varð alþingismaður var
hann kunnur fréttamaður á Sjón-
varpinu og einn þeirra er hófu þar
störf þegar það var sett á laggimar.
Eiöur Guðnason og eiginkona hans, Eygló Helga Har-
aldsdóttir, taka hér við hamingjuóskum frá Svavari
Gestssyni menntamálaráðherra.
Skálað til heiðurs afmælisbarninu, talið frá vinstri: Guð-
mundur H. Garðarsson alþingismaður, Július Sólnes
hagstofuráðherra og Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðar- og samgönguráðherra.
Jón Baldvin Hannibalsson, utanrík-
isráðherra og formaður Alþýðu-
flokksins, óskar þingflokksformanni
Alþýðuflokksins, Eiði Guðnasyni, til
hamingju með afmælið.
Guðrún Agnarsdóttir alþingismaður
smellir hér kossi á kinn afmælis-
barnsins.
DV-myndir GVA
Afmælissýning Islenskrar grafíkur
í tilefni tuttugu ára afmælis félags-
ins íslenskrar grafíkur var efnt til
•sýningar á verkum tuttugu og sjö
félagsmanna í Norræna húsinu sem
var opnuð á laugardaginn. Er þar
margt forvitnilegra verka eftir óhka
listamenn. Samsýning af þessu tagi
hefur verið haldin annað til þriðja
hvert ár á vegum félagsins, auk þess
sem félagið hefur staðið fyrir kynn-
ingum á erlendri grafík.
Þessi ungi listunnandi sem finnst öruggara að vera með snuðið uppi í sér
heitir Sandri Freyr Gylfason.
Meðal þeirra tuttugu og sjö listamanna sem sýna á afmælissýningu Is-
lenskrar grafíkur er Ingunn Eydal sem hér er við verk sín.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði
Robert Mitchum
sem leikur aðalhlutverkið í
Stríðsvindum 1 og 2, hershöfð-
ingjann Pug, á nokkuð ólíkari
feril í hernum en persónan sem
hann leikur. Sá er fyrirmynd
ahra hermanna, sannkölluð hetja
sem farin er að reskjast. Mitchum
var ekkert áfíáður að taka þátt í
heimsstyrjöldinni síðari og þaö
var ekki fyrr en árið 1945 að hann
lét skrá sig í herinn og það gerði
hann svo sannarlega ekki vilj-
andi. Hann hafði í fylliríi lent í
slagsmálum við lögregluþjón.
Mitchum sló lögguna niður og
var handtekinn. Hann fékk að
velja á mihi þess að dúsa 180 daga
í fangelsi eða að ganga í herinn
og hann valdi síðari kostinn.
LaToya Jackson
sem er í mikhh ónáð hjá fíöl-
skyldu sinni hlýtur að naga sig í
handarbökin þessa dagana fyrir
að hafa ekki þegið milljón dohara
gjöf frá Michael bróður sínum.
Astæðan fyrir þessari gjafmildi
var sú að með því vhdi Michael
koma í veg fyrir að LaToya gæfi
út endurminningar sínar í bókar-
formi. Hún afþakkaði peningana
og hélt áfram að skrifa. Nú er
komið á daginn að bókin þykir
svo illa skrifuð að útgáfufyrir-
tækið í New York, sem ætlaði að
gefa bókina út, hefur hætt við
útgáfuna þrátt fyrir að hafa greitt
LaToya höfundarlaun.
Candice Bergen
sem leikur hinn vinsæla sjón-
varpsfréttamann Murphy Brown
í sjónvarpsþáttunum Murphy,
sem sýndir eru á Stöð 2, fékk
nýlega Emmy-verðlaunin fyrir
bestan leik í gamanhlutverki í
sjónvarpsþáttum. Það hefur nú
verið látiö uppi að í lok þáttarað-
arinnar, sem nú er verið að gera,
verður hún látin thkynna í síð-
asta þætti að hún sé ófrísk. Hver
faöirinn er fá sjónvarpsáhorfend-
ur ekki að vita fyrr en eftir hálft
ár. Það verður ekki upplýst fyrr
en næsta þáttaröð fer af stað.