Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1989, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.11.1989, Page 13
13 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1989. dv Lesendur Hneyksli í olíukaupum Hörður Jónsson skrifar: í sl. viku var undirritaður olíu- samningur milli íslands og Sovét- ríkjanna að upphæð sem er hátt á fjórða milljarð króna. Þetta hefði nú ekki verið í frásögur færandi, nema af því að í þessum milliríkja- samningi er einmitt kveðið á um að þetta sé gagnkvæmur milliríkja- samningur, þ.e. að við kaupum vörur af Sovétmönnum og þeir kaupi vissar vörutegundir af okk- ur, þ.á m. saltsíld - og þetta hefur gengið eftir um árabil. Ég get ekki.samþykkt að þessi undirskrift af okkar hendi um olíu- kaupin sé framkvæmd til þess eins að leika dýrlinginn og segja þetta gert til „að standa við samningana fyrir okkar leyti“. - Svona rök- semdafærsla er hreint út í hött og lýsir einfaldlega litlu viðskiptaviti okkar fulltrúa. Það getur ekki staðist (nema hér sé um hreinan hálfvitahátt að ræða) að við skrifum undir kaup á olíum fyrir hátt á íjórða milljarð, án þess að einhvers staðar hafi komið þrýstingur og hann tals- verður. - Eg hef grun um að olíufé- lögin hafi verið hér að verki og vilj- að fá þennan samning í höfn fyrir sitt leyti. - Ekkert hefur a.m.k. heyrst frá þessum innflutningsað- ilum um að þeir séu óánægðir með undirskriftina. - Það hefur hins verið gagnrýnt ótæpilega af útgerð- armönnum og fleirum sem eiga mikið undir sölu á sOd á þessu hausti. Er hugsanlegt að olíusamningur, sem bundinn er til 12 mánaða, sé auðveldari í meðferð fyrir öU olíu- félögin sameiginlega heldur en ef þau þyrftu að reyna hvert fyrir sig að ná sem hagkvæmustu kjörum á olíum og bensíni eftir því sem kaupin gerast á eyrinni í Rotterd- am? - Nú er ekki svo vel að olían frá Sovétríkjunum sé ódýrari en á hinum almenna markaði, verðiö er ákveðið við hvem skipsfarm sem sendur er hingað og þá miðað við Rotterdamverð. Það er hins vegar ósköp einfóld aðferð að vera húinn að gera samn- ing um ákveðið magn af olíu og bensíni fyrir árið og þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur meir. - Og það sem verra er, að hafa tryggt að öU oUufélögin verði að selja þessar vörur á sama verði frá dælu hér á landi. - Engin samkeppni! - Það er ekki að undra þótt ohufélög- in þykist ekki geta boðið viðskipta- vinum sínum upp á viðtekna við- skiptahætti með því að taka gOd greiöslukort. Mér finnast þessar fréttir um undirskrift okkar um oUuviðskipti við Sovétríkin vera eitt hneysklið enn í utanríkisviðskiptum okkar og var þó ekki á bætandi. Það á, að ég hygg, eftir að koma í ljós hver eða hverjir lögðu svona mikið ofurkapp á að ganga frá þessum viðskiptum um oUuna. Upplagseftirlit, til hvers? Á auglýsandi að fara eftir upplagstölum eða hyggjuviti? Friðrik Friðriksson hringdi: Formaður Sambands ísl. auglýs- ingastofa hefur látið það áUt í ljós að nú sé kominn tími tU að „krefjast þess að allir fjölmiðlar eigi aöOd að upplagseftirUti fiölmiðla.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta áUt kem- ur upp hjá Sambandi auglýsingastofa og Verslunaráðinu. En hvað hangir á spýhmni? Ég hef aldrei getað séð það. Mér er nær að halda að einhveijar aðilar, sem gefa út „vonlaus" tíma- rit, jafnvel dagblöð, séu að pressa á að fá þetta upplagseftirUt. Ég get ekki trúað því að auglýsendur séu að krefiaíeinn eða annan um þetta. Ég hef sjálfur þá skynsemi tO að bera að geta dæmt hvar ég vil auglýsa. Ég fylgist með æðaslætti þjóðlífsins í verslun og viðskiptum og ég heyri og sé sjálfur hvaða fiölmiðlar það eru sem fólkið sækir í. Það eru þeir stærstu. Hverjir eru þeir stærstu? Af prent- miðlum eru það Morgimblaðiö og DV. Þá koma sjónvarpsstöðvarnar báðar. Og loks tímaritin, sem beriast um vinsældirnar-Ég held að menn auglýsi þar eftir „efn-i“ og ástæðum. Enginn auglýsir í tímariti sem ekkert hefur að flytja og því er spurt: Hvaða efni ætUð þið að birta? - um leið og boðið er laust auglýsingapláss eða maður sækist eftir birtingu auglýs- ingar. - Flóknara er þetta nú ekki. Það er því alveg ljóst að hvað sem upplagseftirUti Uður getur auglýs- andinn aldrei áttað sig fullkomlega á hvort hann á að trúa nákvæmlega einhverium upplagstölum t.d. tíma- rita. Eitt þeirra getur selst grimmt þennan mánuðinn vegna einnar sérstakrar greinar og dottið svo nið- ur í næsta skipti. Þá fiölmiðla sem bera höfuð og herðar yfir aðra þekkja auglýsendur hins vegar og því nota þeir þá umfram aðra. Upplagseftiriit er því óþarft og ekki hægt að ætlast tO að útgefendur fari að greiða fyrir vitneskju sem þeir sjálfir hafa. AUKABLAÐ Matur og kökur Miðvikudaginn 29. nóvember mun aukablað um mat og kökur fylgja DV. Efnið tengist jólum og jólahaldi hérlendis og erlendis. Birtar verða ráðleggingar og uppskriftir varðandi jóla- matinn og jólabaksturinn, bæði frumlegar og hefð- bundnar. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, hafi vinsamlegast samband við auglýsinga- deild DV hið fyrsta í síma 27022. Skilafrestur auglýsinga er til fimmtudagsins 23. nóvember. AUQLÝSiriQADEILD Sími 27022 Jasmin við Barónsstíg VERSLUNIN HÆTTIR Allar vörur með 30% afslætti af gömlu, góðu verði. Jasmin sími 11625 úr \ AUtá einum stað 0 Komdu með bílinn á staðinn og þeir á verkstæðinu sjá um að setja nýtt pústkerfi undir. P P p u V.HVWSUIMU oja uiii ou acija nyu (juaii'.eill uuuir. 0 j PÚSTKERFIÐ FÆRÐU HJÁ OKKUR 0 Verkstæðið er opið alla virka daga frá kl. 8.00-18.00 P nema föstudaga frá kl. 8.00-16.00. 0 ^ Ath. Verslunin er opin laugardaga kl. 10-13. BðavörubúÓin Skeifunra2 82944 Pústróraverkstæði 83466 Keflavík-Njarðvík Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Reykjanessvæði leit- ar eftir hentugu húsnæði fyrir sambýli í Keflavík eða Njarðvík. Um er að ræða raðhús og/eða einbýlishús á einni hæð með 5-6 rúmgóðum herbergjum. Tilboð óskast send eignadeild fjármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 1. desember 1989. Fjármálaráðuneytið, 21. nóvember 1989 MYNDALEIKUR BYLGJUNNAR OG DV PICTIONARY TEIKNISPILIÐ Z' I Rétt svar 21/11: Spaghettí FINNDU ORÐIÐ EÐAORÐIN SEM MYND1NÁVIÐ. HRINGDU Á BYLGJUNA í SÍMA611111 í DAG MILLI KL.4 0G5. SÁ FYRSTI SEM HEFUR RÉTTSVAR FÆR í VERÐLAUN TEIKNISPILIÐ VINSÆLA, PICTIONARY. '

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.