Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 9. MARS 1990. Fréttir Skoðanakönnun DV um borgarstj ómarkosningarnar Sjálfstæðisflokkur með um 70 prósent atkvæða Samkvæmt skoðanakönnun, sem DV gerði í gær- og fyrrakvöld, er Sjálf- stæðisflokkurinn með um 70 prósent atkvæða fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar í Reykjavík. Reynslan hef- ur sýnt að dregur úr fylgi Sjálfstæðis- flokksins þegar nær dregur borgar- stjórnarkosningum. En samkvæmt skoðanakönnun DV gæti Sjálfstæðis- flokkurinn fengið 12 borgarfulltrúa, Alþýðuflokkurinn einn, Alþýðu- bandalagið einn og Kvennalistinn einn, en Framsókn engan. Úrtakið í skoðanakönnuninni var 600 manns, allt kjósendur í Reykja- vík. Jafnt var skipt milli kynja. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar DV bendir allt til þess aö Davíð Oddsson fái að renna fyrir fyrsta laxinn í Elliðaánum í vor. DV-mynd S Spurt var fyrst: Hvaða lista mundir þú kjósa ef borgarstjórnarkosningar færu fram nú? Til að athuga stöðuna betur voru hinir óákveðnu síðan spurðir: Milh hvaða hsta stendur val þitt helst? í könnuninni var til dæm- is gefið hálft stig á hvom ef menn nefndu ákveðna tvo lista. Hér eru og í meðfylgjandi töflum birtar niður- stöður bæði með hinni hefðbundnu aðferð og með nýju aöferðinni. Nýja aðferðin breytir ekki því hversu marga borgarfulltrúa hver listi gæti fengið. Af öllu úrtakinu fengi Alþýðu- flokkurinn 4,2 prósent með hinni hefðbundnu aðferð. Framsókn fengi 2,7 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn hlyti 47,8 prósent úrtaksins alls. Al- þýðubandalagið fengi 4,5 prósent. Borgaraflokkurinn hlyti 0,3 prósent. Kvennalistinn fengi 5,2 prósent. 4 prósent úrtaksins vildu ekki svara spurningunni, og 31,3 prósent voru óákveðnir. Þetta þýðir að af þeim sem tóku afstööu fengi Alþýðuflokkurinn 6,4 prósent. Framsókn fengi 4,1 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn hlyíd heil 74 prósent. Alþýðubandalagið fengi 7 prósent. Borgaraflokkurinn 0,5 pró- sent og Kvenalistinn 8 prósent. Frekari samanburður Ef við tökum seinni spuminguna einnig vænkast heldur hlutfall minnihlutaflokkanna en ekki svo að þeir fengju fleiri borgarafulltrúa en fyrr. Sjá töflu. Samkvæmt þeirri aðferð fengi Al- þýðuflokkurinn 5,3 prósent af úrtak- inu. Framsókn fengi 3,9 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn hlyti 49,3 pró- sen't úrtaksins. Alþýðubandalagið hlyti 5,3 prósent úrtaksins. Borgara- flokkurinn fengi 0,3 prósent. Kvennalistinn fengi 6,3 prósent. 4 prósent svara ekki, og óákveðnir yröu 25,5 prósent. Þetta þýðir að af þeim sem taka afstöðu fengi Alþýðuflokkurinn 7,6 prósent. Framsókn fengi 5,6 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn hefði 70 pró- sent. Alþýðubandalagið hlyti 7,6 pró- sent. Borgaraflokkurinn fengi 0,5 prósent. Kvennalistinn fengi 8,9 pró- sent. Vel að merkja er ekki unnt að segja fyrir um að atkvæðin, sem fólk er í vafa með, mundu skiptast þannig milli flokka. Líklegt er aö straumur- inn verði helst til einhvers ákveðin flokks. Til samanburðar við framan- greindar tölur skulum við skoða úr- sht síðustu borgarstjórnarkosninga. Þá fékk Alþýðuflokkurinn 10 prósent atkvæða, Framsókn 7 prósgnt, Sjálf- stæðisflokkurinn 52,7 prósent, Al- þýðubandalagið 20,3 prósent og Kvennalistinn 8,1 prósent. -HH Ummæli fól ks í könnuninni „Það er ekkert að vefjast f yrir það, sagöi karl. „Eg held mig viö “ Daviö hn hðnn hafi P'ert mav'par sagði karl. „Ég treysti mér ekk aö segja um hvaö ég myndí kj i til vitleysur eins og ostakúluna á ósa. Öskjuhlíö," sagði kona. „Ég veit Ég vil sjá hvaða menn verða í fr boði áður en ég geri upp tr am- það ekki en eitt er þó vist að það linn verður ekki Davíð,“ sagði kven- hug,“ sagði kvenmaður. „Auöv itað maður. „Ætli ég kjósi ekki Al- kýs ég Sjálfstæðisflokkinn, Ég vil þýðubandalagiö af gömlum vana,“ Davíð áfram,“ sagöi kona. „Ég að kjósa Kvennalistann,“ sí karlmaður. „Ég veit ekki hvat etla sagöi karlmaður. „Ég kýs ekki lista igði heldur fólk og vil því sjá hvað í ég boöi er áöur en ég ákveð mig,“ Kem tii meo ao Kjosa en pao ver örugglega ekki D-listinnsí kona. „Aö sjálfsögðu ætla ég kjósa Davíð; ætla ekki allir að g igöi þó hann sé hálfdruslulegur um að hárið,“ sagði kona. era -gse Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar: (Innansvigaeru niðurstöðursíðustu borgarstjórnarkosninga) Af úrtaki Af þeim sem tóku afstöðu Sæti í borgar- stjórn Alþýðuflokkur 4,2% 6,4% (10,0%) 1(1) Framsóknarflokkur 2,7% 4,1% (7,0%) 0(1) Sjálfstæðisflokkur 47,8% 74,0% (52,7%) 12(9) Alþýðubandalag 4,5% 7,0% (20,3%) 1 0) Borgaraflokkur 0,3% 0,5% (-) 0(-) Kvennalisti 5,2% 8,0% (8,1%) 1 0) Svaraekki 4,0% Óákveðnir 31,3% Með breyttum hætti urðu niðurstöður könnunarinnar þessar: Af þeim sem tóku afstöðu Sæti í borgar- stjórn Af úrtaki tóku afstöðu Alþýðuflokkur 5,3% 7,6% (10,0%) 1 d) Framsóknarflokkur 3,9% 5,6% (7,0%) 0(1) Sjálfstæðisflokkur 49,3% 70,0% (52,7%) 12(9) Alþýðuþandalag 5,3% 7,6% (20,3%) 1 (3) Borgaraflokkur 0,3% 0,5% (-) 0(-) Kvennalisti 6,3% 8,9% (8,1%) 1 (1) Svara ekki 4,0% Óákveðnir 25,5% Strand Höfrungs H.: Yfirheyrslur hófust í morgun Yfirheyrslur vegna strands neta- bátsins Höfrungs n., sem strandaði með tíu manna áhöfn skammt vestan við Grindavík í gærmorgun, hófust klukkan hálfníu í morgun. Skýrslutaka fer fram hjá rann- sóknadeild lögreglunnar í Grinda- vík. Sjópróf hefjast síðan eftir há- degi. Höfrungur H. var kominn í slipp í Njarðvík í gærkvöldi. Kom þá í ljós að skemmdir eru heldur meiri á bátnum en álitið var í fyrstu. -ÓTT Trillusjómaður fórst norðaustur af Sandgerði 58 ára Kópavogsbúi fórst þegar smábátur hans, Svala Lind KÓ, sökk um 5 mííur norðaustur af Sandgerði um sexleytið í gær. Sjó- maður á Þrándi KE 67 heyrði neyð- arkall í talstöð og náöi tah af mann- inum. Bað hann manninn um að senda upp neyðarblys til aö Þránd- ur gæti staðsett bátinn. Þegar Þrándur kom aö bátnum stóö ein- ungis stýrishús upp úr sjónum. Glaður GK var þá líka kominn á vettvang. Maðurinn var þá með litlu lífsmarki og var honum náð um borð í Þránd. Lífgunartilraunir voru gerðar á manninum með blástursaðferö og hjartahnoöi. Maðurinn var látinn þegar læknir tók á móti honum í Sandgerði. Or- sakir slyssins eru ókunnar. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.