Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 9. MARS 1990.
Útlönd
Daniel Ortega, fráfarandi forseti
Nicaragua.
Simamynd Reulor
Daniel Ortega, fráfarandi forseti
Nicaragua, hét því í gær að láta af
völdum án nokkurra skilyrða.
Tiáði hann þúsundum stuðnings-
manna sinna í Managua í gær að
hann myndi fara frá þann 25. apríl
næstkomandi jafnvel þó að kontra-
skærulíðar heíðu ekki lagt niður
vopn þá.
Aður hafði Ortega lýst því yfir
að afvopnun kontraskæruliðanna,
sem njóta stuðnings Bandaríkja-
stjórnar, væri skilyröi fyrir frið-
samlegum valdaskiptum.
Ortega bætti því hins vegar við
að ef kontrar hefðu ekki lagt niður
vopn 25. apríl myndi hver sem
vettlingi gæti valdið búa sig vopn-
um til að brjóta kontrana á bak
aftur. Fráfarandi forsetinn notaði
einníg tækifærið í gær til að hvetja
kontra til að leysa upp her sinn.
Violeta Charaorro, nýkjörinn for-
seti Nicaragua, hefur hvatt kontra-
skæruliðana til að leggja niður
vopn en talsmaður þeirra segir þá
ekki snúa heim aftur frá Honduras
fyrr en her sandínista heföi verið
leystur upp.
Reuter
Júgóslavía:
Fimmti hver maður atvinnulaus
Að minnsta kosti eitt hundrað tutt-
ugu og tvö fyrirtæki í Júgóslavíu
hafa verið lýst gjaldþrota síðan efna-
hagsumbætur að vestrænni fyrir-
mynd voru kynntar í landinu í byrj-
un ársins. Þetta kom fram í nýlegri
skýrslu ríkisendurskoðunar þar í
landi. Flest voru gjaldþrotin í lýð-
veldinu Serbíu, eða alls 52. Ekki er
ljóst hvort fyrirtækin hafa þegar
hætt starfsemi og sagt upp starfsfólki
eða hvort enn er þar unnið.
Þá kom einnig fram í skýrslu stofn-
unarinnar að í janúar á þessu ári
hafi 2.760 fyrirtæki „ekki getað staðið
við greiðslubyrðar sínar“ að ein-
hverju leyti. Ljóst þykir að þessi fyr-
irtæki stefna í gjaldþrot.
Fimmti hver vinnufær maður
gengur nú atvinnulaus í Júgóslavíu.
Það þýðir að 1,2 milljónir manna eru
þar án atvinnu. Ríkisendurskoðun
spáir vaxandi atvinnuleysi og er í
skýrslu stofnunarinnar talað um að
verðið sem júgóslavneska þjóðin
komi til með að borga fyrir minni
verðbólgu, aukna framleiðslugetu og
sextán milljarða dollara erlenda
skuld sé einmitt aukið atvinnuleysi.
Ante Markovic, forsætisráðherra
Júgóslavíu, kveðst reiðubúinn til að
takast á við verkfóll launþega í
landinu. Ráðherrann, sem innleiddi
harðar aðhaldsaðgerðir og breytta
stefnu í efnhagsmálum um síðustu
áramót, hefur heitið því að óróleiki
á vinnumarkaðnum muni ekki setja
umbótaherferð ríkisstjórnarinnar út
af laginu. Gjaldþrotin á þessu ári
hafa aukið enn á hættuna á óróa
meðal launþega í landinu.
Stjórnvöld hafa sett á laggirnar eitt
hundrað og fimmtíu milljón dollara
atvinnuleysissjóð sem hefur skrif-
stofur í öllum átta lýðveldum og hér-
uðum landsins. Sjóðnum er ætlað að
bregðast við þeim aukaverkunum
sem aðhaldsaðgerðir yfirvalda
kunna að hafa í för með sér.
Efnahagsaðgerðirnar fela m.a. í sér
að ríkið tekur ekki að sér að bjarga
opinberum fyrirtækjum sem stefna í
gjaldþrot. Þá hefur stjórnin með
breytingum sínum í efnahagsmálum
skapað grundvöll fyrir samkeppni í
næstum öllum innflutningsgreinum
Júgóslavíu.
Reuter
DV
Enn vekur Kohl
gremju Pólverja
Hans-Dietrich Genscher, utanrikisráðherra Vestur-Þýskalands, og Helmut
Kohl kanslari á þingi í gær. Stjórnarandstaðan gerði harða hríð að kanslar-
anum og afstöðu hans til landamæradeilna Póllands og Vestur-Þýska-
lands. Jafnaðarmenn sögðu afstöðu hars ógna sameiningu þýsku ríkjanna.
Simamynd Reuter
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, vakti öðru sinni gremju
meðal ráðamanna í Póllandi og ann-
arra erlendra ráðamanna í gær og
ítrekaði kröfu sína um að Pólverjar
afsöluðu sér öllum kröfum um stríðs-
skaðabætur á hendur sameinuðu
Þýskalandi. Þá lagði kanslarinn
áherslu á að Þýskaland yrði aðili að
Nato, Atlantshafsbandalaginu, að
sameiningu lokinni.
Komu þessi ummæli kanslarans í
kjölfar samþykktar vestur-þýska
þingsins um viðurkenningu á landa-
mærum Póllands og fullvissu um að
Pólverjar þyrftu aldrei að óttast að
Þjóðverjar gerðu kröfur um breyt-
ingar á landamærum ríkjanna. í
samþykkt þingsins var' lagt að þing-
um beggja þýsku ríkjanna að gefa
út samhliða ályktanir eftir kosning-
arnar í Austur-Þýskalandi síðar í
mánuöinum þar sem pólska þjóðin
er fullvissuð rétt hennar til að búa
við óbreytt og örugg landamæri. Þá
voru Pólveijar fullvissaðir um að
Þjóveijar myndu ekki gera kröfu um
landamærabreytingar.
Pólverjar óánægðir
En pólski forsetinn, Jaruzelski,
sagði að fullvissa vestur-þýska þings-
ins væri ekki nægjanleg og alls ekki
nógu afdráttarlaus. Benti forsetinn á
að í yfirlýsingu þingsins væri ekki
tekið fram hvaða landamæri væru
til umíjöllunar og ekki væri minnst
á samninga Póllands við bæði þýsku
ríkin. Þá sagði pólski forsetinn að í
yfirlýsingunni væri ætíð vikið að
lagalegri stöðu Þýskalands á grund-
velli landamæra Þriðja ríkis Hitlers.
Vekur gremju Pólverja
Vestur-þýski kanslarinn reitti Pól-
veija til reiði í gær, öðru sinni á
skömmum tíma, með ítrekun á þeirri
kröfu sinni að ráðamenn í Póllandi
afsali sér öllum skaðabótaköfum
vegna síðari heimsstyrjaldarinnar á
hendur sameiginlegu Þýskalandi í
staðinn fyrir fullvissu um að landa-
mæri ríkjanna séu varanleg.
Kohl vill að Pólveijar staðfesti
ályktun frá 1953 þar sem fallið var
frá öllum kröfum um stríðsskaða-
bætur. Jaruzelski vísaði þessari ít-
rekun Kohls aftur á móti strax á bug
í gær. Genscher, vestur-þýski utan-
ríkisráðherrann, sagði að öll mál, þar
á meöal landamæradeilan, yrðu leyst
á fundi Bandamanna og þýsku ríkj-
ann sem fer fram í næstu viku.
Kohl reitti Pólverja, sem og banda-
menn sína, til reiði í síðustu viku
þegar hann krafðist yfirlýsingar frá
Pólverjum varðandi stríðsskaðabæt-
ur í staðinn fyrir yfirlýsingu Vestur-
Þýskalands um landamæradeiluna.
Eftir að harðar deilur upphófust í
samsteypustjórn Vestur-Þýskalands
og hætta á stjórnarslitum virtist yfir-
vofandi lét Kohl undan, viðurkenndi
að sér hefðu orðið á mistök og lagði
fram málamiðlunartillögu. Enu gær
hélt kanslarinn fast við fyrri kröfu
sína. Hann sagði að staðreyndin væri
sú að bótakröfur um stríðsskaðabæt-
ur hefðu komið til tals í Póllandi sem
og víðar og að taka þyrfti á þessu
máli.
„Sameinað Þýskaland
aðili að Nato“
Síðla dags í gær hitti Kohl að máli
embættismenn í aðildarríkjum Nato
og lýsti því yfir að sameinað Þýska-
land yrði aðili að bandalaginu. Sovét-
forseti, sem hefur krafist þess að
Þýskaland verði hlutlaust að samein-
ingu lokinni, sagði á þriðjudag að
Moskvustjórnin myndi ekki sætta sig
við að Austur-Þýskaland, sem nú er
aðili að Varsjárbandalaginu, yrði
aðili að Nato að sameiningu lokinni.
Næsta víst er að hernaðarleg staða
Þýskalands verði erfiðasta mál til-
vonandi viðræðna Bandaríkjanna,
Sovétríkjanna, Frakklands, Bret-
lands auk þýsku ríkjanna sem hefj-
ast í næstu viku. Þær umræður snú-
ast um öryggismál varðandi samein-
inguna.
Reuter
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram i skrifstofu embættisins,
Aðalstræti 92, Patreksfirði,
á neðangreindum tíma:
Miðtún 4, 2a, Tálknafirði, þingl. eign
Sigmundar Hávarðarsonar, fer frám
eftir kröfu Byggingasjóðs ríkisins
miðvikud. 14. mars 1990 kl. 14.00.
Túngata 15, Tálknafirði, þingl. eign
Lúðvígs Th. Helgasonar, fer fram eftir
kröfú Byggingasjóðs ríkisins og Ólafs
Birgis Arnasonar hdl. miðvikud. 14.
mars 1990 kl. 14.30.
Túngata 33,_ Tálknaf., þingl. eign
Gunnbjöms Ólafssonar, fer fram eftir
kröfú Landsbanka íslands, Guðjóns
Ármanns Jónssonar hdl., Ammundar
Backman hrl, Grétars Haraldssonar
hrl., Byggingasjóðs ríkisins, Lög-
heimtunnar h/f og Iðnaðarbanka Is-
lands miðvikud. 14. mars 1990 kl. 15.00.
Hjallar 9, Patreksfirði, þingl. eign þb.
Rafns Hafliðasonar, fer fram eftir
kröfu Byggingasjóðs ríkisins, Lífejps-
sjóðs Vestfirðinga og skiptastjóra
þrotabúsins, Sveins Sveinssonar hdl.,
miðvikud. 14. mars 1990 kl. 15.30.
Hafnarbraut 6, neðri hæð, Bíldudal,
þmgl. eign Sigurbjöms Halldórssonar,
fer fram eftir kröfu Landsbanka Is-
lands miðvikud. 14. mars 1990 kl. 16.00.
Skipið Búrfell BA-223, þingl. eign Jó-
hanns Halldórssonar, fer fram eftir
kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl., Fjár-
heimtunnar h/f og Innheimtu ríkisjóðs
miðvikud. 14. mars 1990 kl, 16.30.
Bjarkarlundur í landi Berufjarðar,
Reykhólahreppi, þingl. eign Gests h/f,
fer fram eftir kröfú Innheimtu ríkis-
sjóðs miðvikud. 14. mars 1990 kl. 17.30.
Bmnnar 14, Patreksfirði, þingl. eign
Erlu Hafliðadóttur, fer fram eftir
kröfú Hróbjarts Jónatanssonar hdl.
fimmtud. 15. mars 1990 kl. 13.00.
Urðargata 2, Patreksfirði, þingl. eign
Erlu Hafliðadóttur, fer fram kröfu
Hróbjarts Jónatanssonar hdl. og Inn-
heimtu ríkissjóðs fimmtud. 15. mars
1990 kl. 13.30.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram á skrifstofu embættisins,
Aðalstræti 92, Patreksfirði:
Móatún 16, Tálknafi, þingl. eign Jóns
Þorgilssonar, fer fr am eftir kröfu Am-
mundar Backman hrl. og Bygginga-
sjóðs ríkisins miðvikud. 14. mars 1990
kl. 17.00.
Miðtún 2, 2b, Tálknaf., þingl. eign
Ólafs Gunnbjömssonar, fer ffarn eftir
kröfú Ingimundar Einarssonar hdl.
miðvikud. 14. mars 1990 kl. 18.00.
Miðtún 4, lc, Tálknafi, þingl. eign
Kristjáns Karls Gunnarssonar, fer
fram eftir kröfu Tryggva Guðmunds-
sonar hdl., Byggingasjóðs ríkisins og
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga miðvikud.
14. mars 1990 kl. 18.30.
Túngata 29, Tálknafi, þingl. eign Sig-
mundar Hávarðarsonar, fer fram eftir
kröfii Lögheimtunnar h/f og Bygg-
ingasjóðs ríkisins fimmtud. 15. mars
1990 kl. 9.00.
Dalbraut 24, Bíldudal, þingl. eign
Þóris Ágústssonar, fer fr am eftir kröfú
Jóns Eiríkssonar hdl., Lífeyrissjóðs
Vestfirðinga, Byggingasjóðs ríkisins
og Innheimtu ríkissjóðs fimmtud. 15.
mars 1990 kl. 9.30.
Dalbraut 34, Bíldudal, þingl. eign
Magnúsar Björgvinssonar, fer fram
eftir kröfú Lögheimtunnar h/fi Bygg-
ingasjóðs ríkisins og Lífeyrissjóðs
Vestfirðinga fimmtud. 15. mars 1990
kl. 10.00.
Dalbraut 40, Bíldudal, þingl. eign
Óskars Bjömssonar, fer ffarn eftir
kröfú Jóhanns H. Níeksonar hrl., Inn-
heimtustofunnar s/f og Byggingasjóðs
ríkisins fimmtud. 15. mars 1990 kl.
10.30.
Grænibakki 3, Bíldudal, þingl. eign
Andrésar Garðarssonar, fer fram eftir
kröfú Hallgríms B. Geirssonar hrl.,
Jóns Eiríkssonar hdl., Innheimtustof-
unnar s/f, Byggingasjóðs ríkisins og
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga fimmtud.
15. mars 1990 kl. 11.00.
Hafnarbraut 2, Bíldudal, þingl. eign
Edinborgar h/fi fer ffam eftir kröfu
þrotabús Kaupfél. V.-Barð., Gísla
Baldurs Garðarssonar hdl. og Inn-
heimtu ríkissjóðs fimmtud. 15. mars
1990 kl. 11.30.____________________
Báturinn Rósa BA-30, þingl. eign Við-
ars Stefánssonar, fer fram efitir kröfú
Gunnars Sólnes hrl. og Fiskveiðasjóðs
Islands fimmtud. 15. mars. 1990 kl.
14.00._____________________________
Túngata 35, Tálknafi, þingl. eign Við-
ars Stefánssonar og Svandísar Leós-
dóttur, fer fram efitir kröfú Sveins
Skúlasonar hdl., Ammundar Back-
man hrl., Guðmundar Jónssonar hrl.,
Bmnabótafélags Islands, Landsbanka
íslands, Byggðastofnunar, Bygginga-
sjóðs ríkisins og Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga fimmtud. 15. mars 1990 kl.
14.30.___________
Báturinn Vigdís Helga BA-401, þingl.
eign Gests Gunnbjömssonar, öunn-
bjöms Ólafesonar og Ólafs Gunn-
bjömssonar, fer fram eftir kröfú Fjár-
heimtunnar h/f, Jóns Eiríkssonar hdl.,
Landsbanka Islands, Eyrasparisjóðs,
Guðmundar Markússonar hdl. og
Siglingamálastofnunar ríkisins
fimmtud. 15. mars 1990 kl. 15.00.
Laufás, Tálknaf., þingl. eign Jóhönnu
Helgu Guðmundsdóttur, fer fram eftir
kröfu Byggngasjóðs ríkisins og
Landsbanka íslands fimmtud. 15. mars
1990 kl. 15.30.______________________
Aðalstræti 15, Patreksfirði, þingl. eign
Helga R. Auðunssonar, fer fram efitir
kröfu Lífejrissjóðs Vestfirðinga og
Byggingasjóðs ríkisins fimmtud. 15.
mars 1990 kl. 16.00.
Túngata 15, efri hæð, Patreksfirði,
þingl. eign Aðalsteins Haraldssonar,
fer fram eftir kröfu Verslunarbanka
íslands, Lífeyrissjóðs Vestfirðinga,
Ólafe óarðarssonar hdl., Innheimtu-
stofúnnar s/fi Patrekshrepps, Bygg-
ingasjóðs ríkisins og Innheimtu ríkis-
sjóðs fimmtud. 15. mars 1990 kl. 16.30.
Stekkar 19, Patreksfirði, þingl. eign
Öivinds Solbakk, fer fram eftir kröfu
Landsbanka íslands, Gunnars Sæ-
mundssonar hrl., Benedikts Ólafeson-
ar hdl., Ólafs Sigurgeirssonar hdl.,
Eyrasparisjóðs og Innheimtu ríkis-
sjóðs fimmtud. 15. mars 1990 kl. 17.00.
. Sýslumaður Barðastiandaisýslu