Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Blaðsíða 32
F R
Hafir þú ábendingu eða vitne'skju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
FOSTUDAGUR 9. MARS 1990.
Davíð Oddsson:
Urslit
það sem
skiptir máli
„Þetta eru mjög athyglisverðar töl-
ur en staðreyndin er sú að við fáum
alltaf hærri útkomu í skoðanakönn-
unum en í kosningum, en ég vildi
gjarnan fá svona úrslit í þeim. En
þetta er mjög sérstök útkoma. Ég
man eftir því að í janúar 1986 vorum
við með einhverjar svona tölur, um
að yfir 70 prósent, í skoðanakönnun-
um en enduðum svo í 52 prósentum
í kosningum um vorið. Það segir sína
sögu um hvað við komum alltaf betur
_ út úr skoðanakönnunum. Vissulega
* er ég ánægður með þessa niðurstöðu
en ég bíð eftir því að taliö verði upp
úr kössunum, tölur í könnunum
segja ekki alla hiuti,“ sagði Davíð
Oddsson, borgarstjóri og leiðtogi
sjálfstæðismanna í borgarstjórnar-
kosningunum. -S.dór
Ingibjörg Sólrún:
Megum vel
við una
Grundarkjör
kaupir KRON
í Eddufelli
Jens Ólafsson, eigandi Grundar-
kjörs-versíananna, er að kaupa
verslun KRON í Eddufelli. Til stend-
ur að skrifa undir í dag. Grundarkjör
í Eddufelli veröur sjötta Grundar-
kjörs-verslunin.
„Samningar eru á lokastigi og ég
tel fátt koma í veg fyrir að skrifað
verðir undir í dag,“ sagði Jens í
morgun.
-JGH
LOKI
Sjaldan launar álfurinn
fiskeldið - eða þannig!
Tap fiskeldisins
flutt yfir á
skattborgarana
segir Olafur Ragnar Grímsson flármálaráðherra
„Sjálfstæðisflokkurinn og Guð-
mundur G. Þórarinsson eru meö
þessu að rífa upp öll öryggismörk
og stórauka ríkisforsjána og búa til
opinn ábyrgðartékka gagnvart
flskeldinu. Með því flytja þeir yflr
á ríkissjóð og skattborgarana hluta
af tapi fiskeldisins,'1 sagði Ólafur
Ragnar Grímsson en mikil átök
eiga sér nú stað um frumvarp hans
um heimild til ríkisábyrgðar gagn-
vart fiskeldisfyrirtækjum.
Guðmundur G. Þórarinsson hef-
ur ásamt stjórnarandstæðingum í
gárhags- og viðskiptanefhd neðri
deildar Alþingis skilað frá sér
meirihlutasamþykkt sem hækkar
rikisábyrgð til fiskeldis. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur Guð-
mundur aflað sér stuðnings innan
Framsóknarflokksins þannig að
nýr meirihluti sé jafnvel fyrir
hendi á Alþingi um þetta mál.
Menn eins og Stefán Valgeirsson,
Ólafur Þ. Þórðarson og Aiexander
Stefánsson munu styðja Guðmund
og jafnvel fleiri.
,,Ég mun berjast hart gegn þess-
um breytingartillögum því að þær
eru í algerri andstöðu við nútíma-
viðhorf í rikisrekstri og bara af-
sprengi gamla íslenska pilsfalda-
kapítalismamis þar sem forstjórar
fyrirtækja, sem gengur illa, flytja
tapið yfir á skattborgarana. Við
munum taka slag um þetta á þingi
því að ég ætla ekki að auka rikis-
ábyrgðina með þessum hætti,“
sagði Ólafur Ragnar sem játaði að
hann hefði jafnvel ihugað að draga
frumvarpið til baka.
Guömundur G. og hans stuðn-
ingsmenn vilja hækka heimild til
ríkisábyrgðar upp í 50% í stað
37,5% eins og gert er ráð fyrir í
frumvarpi fjármálaráðherra. Er
talið að þama geti orðið um að
ræða ríkisábyrgð upp á hátt í tvo
milljarða til fiskeldisfyrirtækja.
-SMJ
„Eg tel að við megum vel viö una
miðað við útkomu hinna minnihluta-
flokkanna,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir í samtali við DV um nið-
urstöður skoðanakönnunarinnar.
„Ég er hins vegar óánægð með fylgi
D-listans því að ég tel að stefnu hans
beri ekki að verðlauna. Ég' bendi á
að skoöanakannanir sein þessar eru
ekki marktækar þótt þær sýni auð-
vitað ákveðna tilhneigingu. Reynsl-
an hefur sýnt að D-listinn fær meira
fylgi í könnunum en kosningum,"
sagði Ingibjörg Sólrún.
„Ég hefði engu að síður kosið að
sjá Kvennalistann auka við sig en
*viö verðum að vona að kosninga-
baráttan skili okkur einhverju." -Pá
Veðrið á morgun:
Bjart fyrir
norðan
Á morgun verður suðaustanátt
á landinu. Gengur á með éljum
eða snjókomu á Suður- og Suð-
austurlandi, en bjartviðri annars
staðar. Frost verður tölúvert á
landinu, 3-8 stig við ströndina,
en allt að 12 stig inn til landsins.
Sigrún Magnúsdóttir:
Herðir bara
okkar fólk
„Þetta er vissulega ekki góð niður-
staða fyrir okkur en ég er hvergi
smeyk því að fyrir síðustu borgar-
stjórnarkosningar var Framsóknar-
flokknum spáð 1,4% í skoðanakönn-
um en við náðum að rétta okkar hlut
og koma að manni,“ sagði Sigrún
Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins og frambjóðandi
hans við kosningarnar nú í vor.
„Þessi niðurstaða herðir bara okk-
ar fólk í að berjast og ég finn jákvæð-
ari strauma nú en ég fann við síð-
ustu kosningar. Ég er sannfærð um
að þegar hður nær kosningum og
athyglin beinist að fleirum en Davíð
Oddssyni breytist þetta,“ sagði Sigr-
-GK
Bjami P. Magnússon:
Líst ekki
á þetta
„Mér líst ekki vel á þessar niður-
stöður. Nýleg könnun sýndi þó enn
verri útkomu fyrir Alþýðuflokkinn.
Ég er viss um að fylgi okkar tosast
upp fram að kosningum og við fáum
að minnsta kosti sama fylgi og í síð-
ustu kosningum.
En auðvitað er það mikið áhyggju-
efni hve fylgi Sjálfstæðisflokksins er
mikið. Hann hefur engan veginn
unnið til þess.“ -JGH
Kristín Á. Ólafsdóttir:
Persónulegar
vinsældir
borgarstjóra
Minni þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-GRÓ, gerði þriðju tilraun til þess að fijúga til Grænlands í morgun. Á undan-
förnum dögum hefur þyrlan þurft að snúa við vegna veðurs - síðast í gær. Þyrlan lagði af stað klukkan níu í
morgun en hún hefur verið leigð tii Godtháb á vesturströnd Grænlands. Áætlað var að fljúga fyrst til Kulusuk og
síðan suður með austurströndinni og fyrir jökulinn. Flugstjóri í ferðinni er Benóný Ásgrímsson en með honum
fer Halldór Hreinsson, eigandi Þyrluflugs hf., sem leigir þyrluna af Landhelgisgæslunni en endurleigir hana til aðila
í Grænlandi. í bakgrunni má sjá Ágúst Eyjólfsson flugvirkja. -ÓTT/DV-mynd GVA
„Þegar maður þekkir ágreininginn
í borgarstjórn þá segir þessi niður-
staða manni að fólk hljóti að hafa
alltof fá tækifæri til að fylgjast með
því sem raunverulega gerist í borgar-
stjórn. Það er eitthvað annað en
borgarpólitíkin og það sem gerist í
borgarstjórn sem þarna kemur í ljós.
Það eru fyrst og fremst vinsældir
borgarstjórans sem persónu,“ sagði
Kristín Á. Ólafsdóttir, borgarfulltrúi
Alþýðubandalagsins, við DV.
„Ef Reykvíkingar væru á áheyr-
endapöllunum og þannig vitni að
málflutningi og afstöðu sjálfstæðis-
manna í ýmsum málum er ég viss
um að stór hópur sæi ekki málsvara
sína þar á ferð. Það má kenna fjöl-
miðlum um lítinn áhuga á borgar-
málefnum en í kosningabaráttu
verður ljósinu beint að ágreinings-
málunum og þá breytast þessar tölur
að sjálfsögðu." -hlh
NYJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
Uti að aka
í 40 ár
BILALEIGA
v/Flugvallarveg
91-61-44-00
I
I