Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 9. MARS 1990.
Andlát
Ingeborg Kristjánsson, Úthlíö 7,
Reykjavík, lést á,öldrunardeild Hafn-
arbúða miðvikudaginn 7. mars.
Sæmundur Ágústsson, Túngötu 8,
Reyöarfirði, lést á gjörgæsludeild
Landspítalans þriðjudaginn 7. mars.
Vera Líf Jónsdóttir lést á heimili
sínu, Sæbólsbraut 6, aðfaranótt 6.
mars.
Helga Bogey Finnbogadóttir, lést í
Gautaborg aðfaranótt 8. mars.
Jarðarfarir
Helga Jóna Jónsdóttir, Faxastíg 4,
Vestmannaeyjum, sem andaðist á
sjúkrahúsinu 5. mars, verður jarð-
sungin frá Landakirkju laugardag-
inn 10. mars kl. 14.
Tapaðfimdið
Gullúr tapaðist
Fíngert kvenmannsgullúr tapaðist í gær-
morgun á leið frá Skólavörðustíg að Póst-
hússtræti. Finnandi vinsamlegast hringi
í síma 41344.
Tilkyrmingar
Tombóla
Nýlega hélt hann Ásgeir Ásmundsson
tombólu til styrktar hjálparsjóði Rauða
kross íslands og safnaði hann 750 krón-
um.
Skákþingi Kópavogs lokið
Skákþingi Kópavogs er nýlokið. Sigur-
vegari varð Haraldur Baldursson með sjö
vinninga af sjö mögulegum. Hann hlýtur
þvi sæmdarheitið skákmeistari Kópa-
vogs 1990. Annar var Kjartan Guðmunds-
son með funm og hálfan vinning og þriðji
Einar Kr. Einarsson með fimm vinninga.
Hraðskákmót Kópavogs verður haldið
sunnudaginn 11. mars. Keppnin hefst kl.
14 og teflt verður í Hjallaskóla við Álf-
hólsveg.
Sinfóníuhljómsveit Æskunnar
Sem stendur heldur Sinfóníuhljómsveit
Æskunnar hljómsveitarnámskeið í
Hagaskóla. Þar koma saman um 80 tón-
listamemendur víðs vegar af landinu og
æfa saman í fullskipaðri sinfóníuhljóm-
sveit næstu 10 dagana. Á námskeiðinu
er verið að æfa Pláneturnar eftir G. Holst
og Gosbrunna Rómar eftir Respighi. Paul
Zukofsky er aðalstjórnandi hljómsveitar-
innar nú sem endranær. Námskeiðinu
lýkur með tónleikum í Háskólabíói laug-
ardaginn 17. mars kl. 14. Forsala að-
göngumiða er í Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar.
Happdrætti
Almanakshappdrætti Lands-
samtakanna Þroskahjálpar
Vinningurinn í janúar kom á miða nr.
6726 og vinningurinn í febrúar á nr. 2830.
Lionsklúbburinn Freyr færir
Borgarspítalanum gjöf
Nýlega afhenti Lionsklúböurinn Freyr
talmeinafræðingi Borgarspítalans IBM
ps 2 tölvu með búnaði til talþjálfunar.
Þeir sem einkum hafa gagn af tölvubún-
aöinum eru sjuklingar meö alls konar
málskerðingu, sérstaklega eftir heila-
blóðfall, heilaæxli og slys, og svo og fólk
með ýmis heyrnarvandamál. Búnaður-
inn hefur nú þegar verið tekinn í notkun
og sannað notagildi sitt. Tölvan er stað-
sett á Grensásdeild spítalans.
Stefán Smári Friögeirsson vígir lyftuna. DV-mynd Kristján
Sundhöll Selfoss:
Bætt aðstaða
hreyfihamlaðra
Kristján Einkrsson, DV, Selfosá:
Nýlega gáfu íþróttafélag fatlaðra,
Styrktarfélag aldraðra og Þroska-
hjálp á Suðurlandi Sundhöllinni
búnað til að auðvelda hreytihömluðu
fólki að komast í sund. Um er að
ræða stól á lyftu sem gengur frá
bakka sundlaugarinnar og niður í
vatnið.
Selfossbær bauðst til að vera með
í kostnaöi tækjanna en var það af-
þakkað vegna þess að félögin greiddu
allan kostnað sjálf. Hins vegar sá
bærinn um allar breytingar sem gera
varð til að auðvelda aðkomu að lyft-
unni. Fleiri breytingar eru fyrir-
hugaöar utandyra.
Kostnaður á búnaðinum var kr.
405.000. Sigmundur Stefánsson, for-
stöðumaður íþróttamannvirkja,
veitti gjöfinni viðtöku fyrir hönd
sundlaugarinnar.
AEmæli____________________
Amheiður Guðjónsdóttir
Arnheiður Guðjónsdóttir, Heima-
túni 4, Fellahreppi, er sjötíu og fimm
áraídag.
Arnheiður er fædd í Heiðarseli á
Jökuldalsheiði og þar ólst hún upp.
Menntun fékk hún frá barnaskóla-
námi sem fór fram á sveitaheimilinu
í farkennsluformi á árunum
1925-29. Síðan nam hún við Al-
þýðuskólann á Eiðum veturinn
1935-36, og þar næst lá leiðin á Hús-
mæðraskólann á ísafirði 1938. Ævi-
starf Arnheiðar hefur í mestu verið
fólgið í húsmóður- og landbúnaðar-
störfum á Jökuldal. Hún hóf búskap ■
ásamt unnusta sínum, og síðar eig-
inmanni, á Seyðisíirði 1945. Vorið
1946 fluttust þau að Skuggabúð í
Jökuldalshreppi þar sem þau
bjuggu til ársins 1963. Á Jökuldal
bjó Arnheiður ásamt flölskyldu
sinni til ársins 1971, á Gilsá 1963-67
og síöast á Mælivöllum 1967-71, þá
var vegna heilsubrests húsbóndans
ákveðið að bregða búi og flytjast á
mölina til Seyðisfjarðar þar sem
hann lést. Eftir það starfaði Arn-
heiður við fiskvinnu í frystihúsi til
ársins 1985. Vorið 1986 flytst hún til
dóttur sinnar að Heimatúni 4,.
Fellabæ, og dvelur hún þar nú.
Amheiður giftist 1950 Jóni Hall-
grímssyni, 12.6.1917, d. 19.7.1971.
Foreldrar hans voru Hallgrímur
Benjamínson, b. í Grímsstaðaseli í
Fljótsdal í Noröur-Múlasýslu, og
Hólmfríður Magnúsdóttir.
Börn Arnheiðar og Jóns eru:
Erla, f. 26.7.1945, gift Hreggviði
M. Jónssyni, og eiga þau fjögur
börn.
Hallgrímur Hólm, f. 15.6.1950,
kvæntur Bryndísi Magnúsdóttur,
og eiga þau þrjár dætur.
Guðrún Heiðdís, f. 6.5.1956, gift
Oddsteini Pálssyni, og eiga þau tvo
drengi.
Systkini Arnheiðar: Sigrún, f. 24.5.
1907, ekkja Óskars Finnssonar, og
eignuðust þau átta börn; Einar, f.
24.5.1907, ókvæntur og barnlaus;
Sólveig, f. 15.2.1912, ekkja Sigurðar
Sigurðssonar, og eignuðust þau þrjú
böm; Elís, f. 31.5.1918, lést ungur
af slysfórum; ogHallveig, f. 11.5.
1923, gift Stefáni Guömundssyni, og
eiga þau fimm börn.
Foreldrar Arnheiðar voru Guðjón,
b. í Heiðarseli á Jökuldalsheiði,
Gíslason og Guðrún Benediktsdótt-
ir.
Guðjón var sonur Gísla, b. á Haf-
ursá, Jónssonar, b. á Brekku í
Fljótsdal, Jónssonar frá Mývatni,
Jónssonar.
Móðir Jóns á Brekku var Guðlaug
Styrbjörnsdóttir, vinnumanns í
Mjóafirði, Styrbjörnssonar. Móðir
Gísla var Margrét Hjálmarsdóttir,
prests á Hallormsstað, Guðmunds-
sonar, og Guðrúnar Gísladóttur að
Laugardalshólum, Þórðarsonar.
Móðir Guöjóns var Sigríður Árna-
dóttir, b. í Ekkjufellsseli, Þóröarson-
ar, b. á Finnsstöðum, Gíslasonar.
Móöir Árna var Eygerður Jóns-
dóttir pamfíls. Móðir Sigríðar var
Guöbjörg Sigmundsdóttir, b. í Geit-
Arnheiður Guðjónsdóttir.
dal, Sigurðssonar, og Guðbjargar
Guðmundsdóttur í Mjóanesi,
Sturlusonar.
Guðrún, móðir Arnheiðar, var
dóttir Benedikts, veitingamanns í
Vopnafirði, Sigurössonar, b. í Kaup-
angi, Oddssonar, hreppstjóra á Hóli
í Kinn, Benediktssonar.
Móðir Benedikts veitingamanns
var Guðrún Vigfúsdóttir, b. á Öx-
ará, Þorkelssonar, og Guðrúnar
Aradóttur frá Skútustöðum.
Móðir Guðrúnar Benediktsdóttur
var Sólveig Þórðardóttir, b. á Sæv-
arenda í Loðmundarfirði, Jónsson-
ar.
Móðir Sólveigar var María dóttir
Guttorms, b. á Árnastöðum í Loð-
mundarfirði, Skúlasonar, ogSig-
þrúðar Ólafsdóttur frá Húsavík.
Fjölmiðlar dv
Það er næsta ví st...
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Strandgötu 52, Eskifirði,
föstudaginn 16. mars 1990, kl. 10.00.
Búland 16, Ðjúpavogi, þingl. eig.
Byggingarfélag verkamanna, Djúpa-
vogi en talin eign Ágústar Guðjóns-
sonar. Uppboðsbeiðendur eru: Oddur
Ólason hdl Landsbanki íslands,_Bún-
aðarbanki íslands, Ásgeir Þór Áma-
son hdl., Valgarður Sigurðssön hdl.,
og Ævar Guðmundsson hdl.
Heiðarvegur 15, Reyðarfirði, þingl.
eig. Markús Guðbrandsson. Uppboðs-
beiðendur eru: Brunabótafélag ís-
lands, Búnaðarbanki íslands, inn-
heimta ríkissjóðs, Landsbanki íslands,
Verslunarlánasjóður og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Hlíðargata 43, Fáskrúðsfirði, þingl.
eig. Ingólfur Elíesersson. Uppboðs-
beiðendur eru: Magnús M. Norðdahl
hdl., Veðdeild Landsbanka íslands og
Ævar Guðmundsson hdl.
Sólbakki 3, Breiðdalsvík, þingl. eig.
Ingibjörg Hauksdóttir. Uppboðsbeið-
andi er Tryggingastofhun ríkisins.
Sýslumaður Suður-Múlasýsk
Bæjarfógetinn á Eskifirði.
Þaö er næsta víst að Bjami Fel.
verður mættur ákveðinn til leiks í
útsendinguna frá leik íslendinga og
Frakka klukkan átta á laugardags-
morgun. Vonandi verður fagmaður-
inn Jóhann Ingi Gunnarsson með
honum í lýsingunni því hvorki
Bjarni né aðrir íþróttafréttamenn
sjónvarpsins hafa nægilegt vit á
handbolta til að útskýra leikinn um
leið og þeir lýsa honum.
Þessi leikur verður gott morgun-
sjónvarp. Hann mínnir á að það er
löngu tímabært að við íslendingar
búum viö morgunsjónvarp hvern
einastadag.
Það er ákaflega imdarlegt að
hvorki Ríkiskassinn né Stöð2 skuli
hafa riöið á vaöið og hafið útsend-
ingar á frétta-og fróðleiksmolum frá
klukkan sjö til níu á morgnana.
Fróðlegt verður að sjá hvort aukin
sarokeppni á sjónvarpsmarkaðnum
í haust, með komu Sýnar, ýti mönn-
um útáþennan tíma.
í Bretlandi er ákaflega góð reynsia
afmorgunsjónvarpi. FlestirBretar
byrja á því að kveikja á sjónvarpinu
á morgnana, likt og viö íslendingar
kveikjum á útvarpstækjunum. Viö
hlustum á morgunútvarp - þeir
horfa og hlusta á morgunsjónvarp.
Bretinn sest ekki í náttfötunum,
órakaður og svangur, íyrir framan
kassann. Hann er á fullu í morgun-
verkunum, hellir upp á kaffi og
boröar morgunverðinn. í leiðinni
hlustar hann á tækiö. Spennandi
mál fær haim til að horfa. í raun-
inní ætti að kalla þetta fyrirbæri
morgunsjón-útvarp. Á sama hátt og
auðvelt er aö fá viömælendur í
morgunútvarp yrði lítiö mál að fá
þá í morgunsjónvarp. Það er næsta
víst... að lítill viöbótarkostnaður
fylgdi morgunsj ónvarpi. Auglýs-
ingarnar yrðu hins vegar margar.
Jón G. Hauksson