Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Blaðsíða 9
FÖSÍL'MÖUK $ JmMs'1990.
DV
9
Útlönd
íbúar sovéska lýðveldisins Litháen:
Ætla að taka
skref ið til fulls
Stjórn Sajudis-hreyfingarinnar,
samtaka þjóðernissinna í sovéska
lýðveldinu Iitháen, hefur samþykkt
mótatkvæðalaust að staðfesta sjálf-
stæðisyfirlýsingu lýðveldisins frá
árinu 1918 en í kjölfar hennar hélt
lýðveldið stöðu sjálfstæðs ríkis í tutt-
ugu og tvö ár. Stjórnmálaleiðtogar
samtakanna láta viðvaranir
Moskvustjórnarinnar sem vind um
eyru þjóta og segjast munu lýsa yfir
sjálfstæði um helgina.
„Frá og með þeim tíma munu Lit-
háar hta á sig sem sjálfstæða þjóð,“
sagði Rita Dapkus, talsmaður Saju-
dis. Það verður sérstakur neyðar-
fundur þings Litháens sem mun gefa
út sjálfstæðisyfirlýsinguna um helg-
ina, tveimur dögum áður en þing
Sovétríkjanna kemur saman til fund-
ar í Moskvu á mánudag. Boðað var
til fundar litháiska þingsins með
skömmum fyrirvara en sumir félag-
ar í Sajudis óttast aö á fundi löggjaf-
arþingsins á mánudag kunni að
verða samþykktar stjórnarskrár-
breytingar sem myndu binda enda á
tilraunir Litháa til að fá sjálfstæði. Á
nýlegum fundi Gorbatsjovs Sovét-
forseta og Brazauskas, leiðtoga Lit-
háa, gerði forsetinn Litháum ljóst að
hann samþykkti í grundvallaratrið-
um aðskilnað Litháens frá ríkjasam-
bandinu en að það kynni að reynast
lýðveldinu fjárhagslega erfitt.
Reuter
Gorbatsjov Sovétforseti hefur gert Litháum Ijóst að hann samþykki i grund-
vallaratriðum aðskilnað lýðveldisins frá ríkjasambandinu en að það kunni
að reynast því fjárhagslega erfitt. Símamynd Reuter
A-þýskir njósnarar í þjónustu KGB?
Yfirmaður gagnnjósnanets Vest-
ur-Þjóðveija, Christian Lochte, er
samifærður um að fyrrum yfirmaður
leyniþjónustunnar í Austur-Þýska-
landi, Markus Wolf, sé í Moskvu tíi
að bjóða kollegum sínum þar í sov-
ésku leyniþjónustunni, KGB, þjón-
ustu sinna manna. Markus Wolf er
nú sagður vera að skrifa bók í Sovét-
ríkjunum.
Lochte sagði í útvarpsviðtah aö
hann teldi ekki að það væri skrifta-
þrá sem hefði legið að baki Moskvu-
för Wolfs. „Hann er auðvitað að
bjóða sovésku leyniþjónustunni sína
menn sem starfað hafa í Vestur-
Þýskalandi,“ sagði Lochte í útvarps-
viðtali.
Samkvæmt honurn hggur á að fá
njósnarana í þjónustu Sovétmanna
fyrir kosningarnar ,í Austur-Þýska-
landi 18. mars. Búið er að leysa upp
austur-þýsku leyniþjónustuna en sú
deild hennar sem séð hefur um
njósnir erlendis er enn starfandi, að
sögn Lochtes. Hann telur að enn
starfi um fimm þúsund austur-þýskir
njósnarar í Vestur-Þýskalandi og að
þeir beini fyrst og fremst spjótum
sínum að hátækni.
Samkvæmt Lochte hafa Austur-
Þjóðverjar hingað til séð um sextíu
prósent njósna Varsjárbandalags-
ríkjanna í Vestur-Þýskalandi en
breyting mun verða á því hlutfalh
eftir þingkosningamir í Austur-
Þýskalandi og sameiningu þýsku
ríkjanna.
Ritzau
Heimalöndin:
Mótmælendur varaðir við
Suður-afrísk yfirvöld hafa varr.ð við og segjast munu bregðast harka-
mótmælendur í heimalöndunum tíu lega við stjómleysi. Þessi tilkynning
Miklar óeirðir hafa verið í heimalandiriu Bophuthatswana og hafa mótmæl-
endur meðal annars kveikt i bifreiðum. Símamynd Reuter
kom í kjölfar annarrar þar sem sagði
að suður-afrískar öryggissveitir
væru reiðubúnar til að koma til að-
stoðar yfirvöldum í þeim þremur
heimalöndum þar sem óeirðir fara
vaxandi.
Suður-afrískir hermenn eru við
landamæri Bophuthatswana, reiðu-
búnir að aðstoða Lucas Mangope for-
seta sem ekki vih verða við kröfum
íbúanna um innlimun heimalands-
ins í Suður-Afríku. Hermenn hafa
einnig tekið sér stöðu við tvö önnur
heimalönd, Gazankulu og Venda, þar
sem óeirðir hafa blossað upp að und-
anfórnu. í gærmorgun var tilkynnt
að hermenn hefðu verið sendir inn í
Bophuthatswana en sú tilkynning
var dregin til baka seinna um daginn.
Óeirðimar í þessum þremur
heimalöndum fylgdu í kjölfar vel
heppnaðrar byltingar í Ciskei heima-
landinu á sunnudaginn. Leiðtogi
uppreisnarmanna þar hefur heitið
því að berjast fyrir innhmun Ciskei
í Suður-Afríku.
Símamynd Reuter
Bandaríkin, sem hafa heitið því að fjarlægja öll efnavopn sem þau
geyma í Vestur-Evrópu, fullvissuðu vestur-þýsk stjórnvöld í gær um að
flutningur um eitt hundrað þúsund taugagashylkja þvert yfir landið hefði
ekki í fór með sé neina hættu. En margir sijórnarandstæðingar og friðar-
hópar eru ekki ánægðir með fullvissu Bandarikjanna og óttast slys á
hinu átta hundruð ldlómetra ferðalagi hylkjanna. Lestin, sem mun flytja
hylkin, þarf að aka sem leið liggur í gegnum nokkur af þéttbýlustu svæö-
um Vestur-Þýskaiands, frá Rheinland-Pfalz til stranda Norðursjávar.
Stoltenberg, vestur-þýski varnarmáiaráðherrann, skýrði frá því á mið-
: vikudag að allar birgðir efnavopna, sem Bandaríkin geyma í Vestur-
Þýskalandi, yrðu á brott fyrir árslok, fiuttar með bifreiðum og járn-
brautarlestum.
Ákvörðun um vopnabirgðir frestað
Norska stjórnin hefur slegið á frest ákvörðunartöku um auknar vopna-
birgðir Bandaríkjahers í Noregi. Erfiðlega gekk að ná pólitískri samstööu
í málinu í kjölfar þess sem gerst hefur í Austur-Evrópu. Stjórnin mun
nú láta gera nákvæma úttekt á ástandi öryggismála áður en hreyft verð-
ur við málinu á ný. Gro Harlem Brundtland, leiðtogi Verkamannaflokks-
ins og utanríkismálanefndar þingsins, er ánægð og segir stjórnina hafa
farið að sínum ráðum.
Sovéski umbótasinniim Boris
Jeltsin hefur lýst því yfir að iiann
ásæiist ekki starf Gorbatsjovs Sov-
étforseta. „Ég er ekki að sælgasi
eftir forsctastólnum,“ sagði hann á
ftmdi með blaðamönnum i Vestur-
Þýskalandí nýverið. „Hann (Gor-
batsjov) ætti ekki að hafa neinar
áhyggjur af því.“
Þessi yfirlýsing stangast á víð það
sem Jeltsin lét eftir sér liafa í Lon-
don í síðustu viku þegar hann sagð-
ist vel geta hugsað sér að bjóða sig
fram gcgn Gorbatsjov væru kring-
umstæöurnar hagstæöar. Jeltsin,
sem var kjörinn á þing í lýðveldinu
Rússlandi um siðustu helgi með
áttatíu prósentum atkvæða, hefur
verið einn harðasti gagnrýnandi
Gorbatsjov. í Vestur-Þýskalandi, Boris Jeltsín, róttæki umbótaslnn-
þar sem hann er aö kynna sjálfs- inn * Sovétríkjunum, hefur lýst þvt
ævisögu sína, gerði hann enn á ný Wir að hann ágirnist ekki stari
harða hríð aö Gorbatsjov og per- Mikhails S. Gorbatsjovs, forseta
estrojku, cöa umbótaherfcrð hans. Sovétrikjanna. Simamynd Reuter
Gcðlæknir, sem meöal amiars hafði til meðfcrðar brcnnuvarg á geö-
sjúkrahúsinu sem hann starfaði á í tvö ár, var sjálfur brennuvargur.
'Hann haföi þegar hlotið dóm þegar hann sótti um vinnu á geösjúkrahúsi
á norðvesturhluta Sjálands. Stjórn sjúkrahússins frétti þó ekki af því
fyrr en læknirinn var handtekinn síðastliðið sumai' sakaður um að hafa
reynt að kveikja í starfsmannabústað við sjúkrahúsið þar sem hann bjó.
Læknir hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því í ágúst síðastliðnum en
kom fyrir rétt í þessari viku. Hingað til hefur hann alltaf sloppið með
dóma þar sem kveðið var á um aö hann færi í meðferð en í þetta skipti
á hann yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi.
Harkaleg mótmæli gegn nefskattinum
nefskattinum 1 gær. Símamynd Reuter
Ekkert lát virðist vera á mótmælum almennings í Bretlandi vegna fy rir-
hugaðs nefskatts. í gær voru að minnsta kosti þrjátíu og átta handteknir
eftir að róstur brutustu út á fjöldafundi í London. Um tvö þúsund manns
höfðu safnast saman í borginni til að mótmæla skattinum. Víöa annars
staöar í Bretlandi efndu andstæðingar skattsins tii ijöklafunda.'
Tugir manna hafa verið teknir i vörslu lögreglu síðustu vikur i mótmæl-
um gegn þessum skatti sem leggst á átján ára og eldri án tillits til tekna.
NTB, Ritwui og Reuter
Reuter