Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1990, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1990.
Skólafólk!
Við seljum búninga fyrir dimissjón.
Fróbœrf úrval, goíf verð.
Pantið tímanlega. /
Utlönd
Mandela undir
þrýstingi
Við blökkumannaleiðtoganum
Nelson Mandela blasir nú eitt erf-
iðasta verkefniö sem hann hefur
þurft að takast á við síðan hann var
látinn laus úr fangelsi.
í dag heimsækir Mandela Natal-
hérað til að reyna að binda enda á
stríðiö þar milli andstæðra hópa
blökkumanna. Og Mandela þarf
einnig að reyna að undirbúa á ný
jarðveginn fyrir samningaviðræöur
sámtaka sinna, Afríska þjóðarráðs-
ins, við suður-afrísk yfirvöld. Sam-
tökin frestuðu undirbúningsviðræð-
um, sem hefjast áttu 11. apríl, þar
sem suður-afrísk lögreglan skaut á
svarta mótmælendur á mánudegi
fyrir viku með þeim afleiðingum að
sautján manns biðu bana.
Mandela sagði á fundi í gærkvöldi
aö Afríska þjóðarráðið væri reiðu-
búið til viöræðna ef yfirvöld stöðv-
uðu ofbeldi lögreglunnar. Einnig
kvaðst Mandela myndu fara á fund
de Klerk forseta til aö ræða málið.
Á fóstudaginn tilkynnti Mandela
að sameiginlegri friðargöngu með
Buthelezi, leiðtoga Inkathahreyfing-
arinnar, hefði verið frestað. Hreyfing
Buthelezi berst gegn Sameinuðu lýð-
ræðisfylkingunni sem nýtur stuðn-
ings Afríska þjóðarráðsins. Að sögn
Mandela var friðargöngunni, sem
fara átti fram í þessari viku, frestaö
þar sem óttast var að mikið blóðbað
kynni að hljótast af vegna sívaxandi
spennu í Natalhéraði. Hlíðarnar
umhverfis borgina Pietermaritzburg
hafa orðið að vígvelli hundraða
vopnaðra blökkumanna. Fjörutíu og
átta manns hafa látið lífið í bardög-
unum frá því bardagar hófust á
þriðjudaginn. Meðal fómarlam-
banna eru konur og börn sem lent
hafa í skothríðinni.
Suður-afrísk yfirvöld segja að Af-
ríska þjóðarráðið beri að hluta til
ábyrgð á oíbeldinu sem dreifst hefur
til annarra svæða. Segja yfirvöld að
samtökin hafi frestað viðræðum þar
sem þau ráði ekki viö ástandið.
Sérfræðingar telja að Mandela geti
misst stuðning róttækra ungra
blökkumanna ef hann flýtir sér að
samningaborði við núverandi að-
stæður en jafnframt er hætta á aö
umheimurinn missi þolinmæðina ef
Mandela hafnar boði forsetans um
viðræöur um nýja stjórnarskrá þar
sem kveðið væri á um aukin réttindi
blökkumanna.
Reuter
íbúar í Natalhéraði flýja bardagasvæði. Símamynd Reuter
Trúir þú því núna að nýr
STORNO farsími
hosti aðeins
ðllilrjei vsk ?
1. apríl er liðinn og þótt verðið sé ótrúlega lágt er það
staðreynd að nýr STORNO 440 farsími í bíl kostar aðeins
83.788 kr. staðgreitt m. vsk. og STORNO 440 bíla- og
burðatæki aðeins 99.748 kr. staðgreitt m. vsk.
Símarnir eru tilbúnir til ísetningar og innifalið í verðinu
er móðurstöð, talfæri, bílloftnet, kaplar, hljóðnemi
og hátalari fyrir handfrjálsa notkun. Ekki nóg með það,
við bjóðum líka greiðsluskilmála.
STORNO farsímarnir eru v.-þýsk gæðavara og búa yfir fullkomnustu eiginleikum farsíma og með STORNO 440 getur þú
notað þjónustu tölvubanka og boðkerfisins.
Gríptu tækifærið því við eigum takmarkaðar birgðir af þessum vönduðu og
ótrúlega ódýru farsímum. Komdu í söludeildir Pósts og síma og staðfestu pöntun
strax í dag.
PÓSTUR OG SÍMI
Viö spörunt þér sporin
SÓLUDEILDIR
Verð miðaðvið staðgreiðslu og gengi 30.3.1990.
i
I
V
§