Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1990, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1990.
15
Reykjavíkurborg
og báknið burt
Lesandi góður. Fyrir nokkrum
árum fóru ungir sjálfstæðismenn
hamfórum í fjölmiðlurn undir slag-
orðinu „báknið burt“. í fararbroddi
voru menn eins og Davíð Oddsson,
núverandi borgarstjóri, og fleiri
þekktir sjáifstæðismenn. Flestir
hafa þeir nú fengið sér þægileg
störf á vegum ríkisins, Reykjavík-
urborgar eða á öðrum póbtískt
vernduðum vinnustöðum Sjálf-
stæðisílokksins.
En Davíð leikur sér með báknið,
báknið sem átti að fara burt. Öllu
líklegra er nú að Davíð hverfi burt
einhvern tímann á næsta kjörtíma-
bili en báknið hans. Hver á þá að
taka við Reykjavíkurbákninu?
f janúar 1988 var gefin út bók sem
heitir Stjórnkerfi Reykjavíkur-
borgar. Undirtitill bókarinnar er:
Nefndir, ráð, stjórnir og meðlimir
þeirra. Bókin er alls 29 blaðsíður
að stærð. í bókinni er fjallað um
nálega 400 tilnefningar einstakl-
inga og embættismanna í alls 77
nefndir, ráð og stjómir á vegum
Reykjavíkurborgar. Er þar fjallað
um helstu og fínustu hluta Reykja-
víkurbáknsins. Útgefandi er
Reykjavíkurborg. Höfundur er
Davíö Oddsson, borgarstjóri af
guðs náð.
Reykjavíkurbáknið
í efnisyfirliti á fyrstu tveimur síð-
um bókarinnar, sem ekki eru núm-
eraöar, getur að líta eftirfarandi
upptalningu: Borgarstjórn, Borg-
arráð, Samvinnunefnd um afrétt-
armál í landnámi Ingólfs, Al-
mannavarnanefnd Reykjavíkur,
Atvinnumálanefnd, Atvinnumála-
nefnd höfuðborgarsvæðisins,
Barnaverndarnefnd, Bláíjalla-
nefnd, Byggingarnefnd Borgarleik-
húss, Byggingamefnd heilsu-
gæslustöðva, Byggingarnefnd aldr-
KjaHaiinn
Brynjólfur Jónsson
hagfræðingur
stundaráð, Jafnréttisnefnd, Stjórn
kirkjubyggingarsjóðs Reykjavíkur,
Skólanefnd Kvennaskólans, Stjórn
Landakotsspítala, Stjórn Lands-
virkjunar, Launamálanefnd, Leik-
húsráð Leikfélags Reykjavíkur,
Framkvæmdastjórn Listahátíðar,
Stjórn bstamannaíbúðar í París?!,
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna
Reykjavíkurborgar, Löggildingar-
nefnd pípulagningameistara, Sam-
starfsnefnd um löggæslumálefni í
Reykjavík, Menningarmálanefnd,
Ráð um starfsemi Norræna húss-
ins, Prófanefnd á námskeiðum
brunavarða, Ráðgjafarnefnd Rann-
sóknarstofnunar byggingariðnað-
arins, Stjóm Reykjanessfólkvangs,
Samstarfsnefnd Reykjavíkurpró-
fastsdæmis, Samstarfsnefnd borg-
arfulltrúa og alþingismanna Reyk-
„Réttast væri að kalla Davíð Oddsson
báknstjóra en ekki borgarstjóra.“
aðra, Byggingarnefnd Reykjavík-
ur, Byggingarþjónustan, Stjórn
dagvistar barna, Stjórn til að end-
urskoða borgarreikninga, Ferða-
málanefnd Reykjavíkur, Ferða-
þjónusta fatlaöra, Félagsmálaráð
Reykjavíkurborgar, Fiskimanna-
sjóður Kjalarnesþings, Framtals-
nefnd, Fræðsluráð, Stjórn Gjald-
heimtunnar í Reykjavík, Hafnar-
stjórn, Hásselby stjórn, Heilbrigð-
ismálaráð Reykjavíkurlæknishér-
aðs, Hebbrigðisráð Reykjavíkur-
borgar, Húsaleigunefnd, Stjórn
Hússtjómarskólans í Reykjavík,
Skólanefnd Iðnskólans í Reykjavík,
Stjóm Innkaupastofnunar Reykja-
víkurborgar, íþrótta- og tóm-
víkinga, Stjórn og verkefnavals-
nefnd Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, Sjúkrasamlagsstjórn, Stjórn
sjúkrastofnana, Stjóm sjúkra-
stöðvar SÁÁ, Skipulagsnefnd,
Skólamálaráð - Fræðsluráð, Stjórn
Skóla ísaks Jónssonar, Stjórn
Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavík-
urborgar, Sóttvarnarnefnd, Stjórn
Sparisjóðs Reykjavíkur og ná-
grennis, Stjóm Sparisjóðs vél-
stjóra, Starfskjaranefnd, Stjórnir
starfsmenntunarsjóða, Stjórn
Strætisvagna Reykjavíkur, Endur-
skoðun styrktarsjóðs sjómanna- og
verkamannafélaga i Reykjavík,
Stjórn Sumargjafar, Svæðisstjórn
um málefni fatlaöra, Skólanefnd
MENNINGÁR-, ÍÞRÓTTÁ- OG TÖMSTUNDÁMÁL
SKIPULAGS- OG UMHVERFISMÁL
TÆKNI- OG REKSTRARMÁL VEITUSTOFNANIR
ÝMSAR UPPLÝSINGAR - SÍMASKRÁ
í bókinni Stjórnkerfi Reykjavikurborgar er fjallað um helstu og finustu
hluta Reykjavíkurbáknsins, segir greinarhöfundur meðal annars.
Söngskólans, Umferðarnefnd
Reykjavíkur, Umferðarráð, Um-
hverfismálaráð Reykjavíkur,
Stjórn Veiðifélags Elbðavatns,
Stjórn veitustofnana Reykjavíkur,
Stjórn Vélamiðstöðvar, Stjórn
verkamannabústaða, Viðræðu-
nefnd borgarráðs og slökkvibðsins,
- og að lokum Stjóm Vinnuskóla
Reykjavíkur.
Já, það er nóg að gera við að úða
út póbtískum bitbngum hjá bákn-
stjóra Reykjavíkur. Réttast væri að
kalla Davíð Oddsson báknstjóra en
ekki borgarstjóra.
Skopleg mál og
mistök samtímans
Lesandi góöur. Á árinu 1986 gaf
Magnús Óskarsson borgarlögmað-
ur og landskunnur húmoristi út
bók sem heitir Alíslensk fyndni.
Þar tók Magnús af sinni alkunnu
snilld á ýmsum skoplegum málum
og mistökum samtímans.
Magnús Óskarsson ætti kannski
að líta sér nær næst þegar hann
gefur út bók um Alíslenska fyndni,
skopleg mál og mistök samtímans?
Brynjólfur Jónsson
í klakaböndum kalda stríðsins
Sá póbtíski skrípaleikur, sem
sviðsettur var hér á landi í kjölfar
atburðanna í Austur-Evrópu og
fluttur var í fjölmiðlum dag eftir
dag og viku eftir viku, var svo fá-
ránlegur að ætla mætti að geð-
heilsa höfundanna væri í alvarleg-
um nauðum stödd.
Alhr þeir menn, sem stóðu að
þessum darraðardansi, áttu það
sameiginlegt að ráðast að Alþýðu-
bandalaginu með ófrægingarher-
ferð og krefjast þess að það gerði
upp fortíð sína og forvera sinna
með hbðsjón af því sem gerst hefði
í Austur-Evrópu. En hámarki náðu
þessar lágkúrulegu árásir um það
leyti sem forseti Tékkóslóvakíu var
hér á ferð. Ýmsir mikbr andans
menn, svo sem dósentar, stjórn-
málafræðingar og síðast en ekki
síst blessaður borgarstjórinn sem
meðal annars haföi komist svo að
orði í ræðu: „Maöur horfði stein-
hissa á allt þetta fólk snúast í kring-
um Havel og í rauninni vorkenndi
maður honum að vita ekki í hvaða
félagsskap hann var kominn. Og
maður fann, þegar maður ræddi
við nána samstarfsmenn forsetans,
að þeir ætluðu ekki að trúa eigin
eyrum þegar þeir heyrðu að af 11
ráðherrum í ríkisstjórninni þá
væru að minnsta kosti þrír sem
væru beinir arfar kommúnism-
ans.“
Já, því segi ég það, borgarstjórinn
okkar er maöur sem hefur hjartað
á réttum stað - og veit sínu viti...
KjaUarinn
Aðalheiður Jónsdóttir
verslunarmaöur
Enda vinsæll... Skyldi hann ann-
ars ekki hafa sagt þessum undrandi
mönnum að allt benti tíl þess að
nú ætlaði íslenska þjóöin að átta
sig á því að þetta væri ekki nógu
gott og kjósa því hægra einræði og
einn foringja - og þeir ættu að
þekkja hvernig það lýsti sér... Og
sjálfur kynni hann á kerfið.
Hvers vegna að leita langt
yfir skammt?
Ekki nema það þó, ég var næstum
því búin að gleyma garmskinninu
honum Katb. - Staksteinar Mogg-
ans voru þó svo elskulegir að fræða
lesendur sína um hvað Garri
Tímans hafði til málanna að leggja.
Svo ég ætla að láta fljóta hér með
smásýnishorn og gefa Garra orðið.
Hann segir: „Þá var áberandi hvað
sigurvegarar sósíabsmans gerðu
sér mikinn mat úr því að troða
Havel forseta um tær í Þjóðleik-
húsinu. Þeir voru ekki á því að sitja
heima og sleikja sár sín, heldur
stóðu þeir keikir og brosandi fram-
an í manni, sem hafði verið í fang-
elsi hjá flokksbræðrum þeirra
nokkrum mánuðum áður.“
Það er athygbsvert að þeir menn,
sem mest hafa talað nú um íslensk-
an kommúnisma, sem btið hefur
heyrst nefndur á síðari tímum, tala
ekki mikið um friðsamlegar horfur
í heiminum, heldur þörfma fyrir
erlendan her á íslandi og NATO-
aðbd. - Allur þessi taugatitringur
stendur greinbega í sambandi við
hrun valdakerfisins í Austur-Evr-
ópu. - Óttast þeir kannski að missa
tökin á áróðri sínum og að herinn
verði látinn fara?... Varla reyna
þeir lengur að fá fólk til að trúa á
árásarhættu úr austri... Samt sitja
þeir pikkfastir í klakkaböndum
kalda stríðsins.
Rússagrýlan hafði reynst nota-
drjúg í áratugi. Þar töldu þeir sig
hafa fundið kölska sjálfan og héldu
sér í hann dauðahaldi. Byggðu
reyndar mjög á því póbtískan áróð-
ur svo að það er kannski von að
þeim verði þungt fyrir brjósti þegar
þeir finna hann ekki lengur og allt
virðist stefna í friðarátt. - Enda er
greinilegt að þeir vita ekki sitt rjúk-
andi ráð og finnst að þeir veröi að
hafa eitthvað skuggalegt eða grugg-
ugt til að halda sér í, svo sem þý-
lyndi og þjónkun við erlendar
stefnur og vald og þess beri aö leita
í fortíð Alþýðubandalagsins og for-
' vera þess... En vilja ekki átta sig á
að þeir eru að leita langt yfir
skammt... Því að hæg eru heima-
tökin. Og víst getur sjálfsgagnrýni
og endurmat jafnvel bjargað þeim
sem á glapstigum hafa lent.
Og þótt flokkar þeirra hafi í nærri
hálfa öld varöað veginn með blekk-
ingum og flækjum er þó enn von
um björgun ef vel tekst tb. - Og
umfram allt þarfnast þjóðin þess
að þeir sem ráða málum hennar
vilbst ekki af vegi.
Blekkingar í bak og fyrir
Undarlegt er hvaö þessir menn
hafa miklar vangaveltur um
hvernig Kommúnistaflokkur ís-
lands hafi starfað á sínum tíma.
Mér skilst nú að sagan gefi stofn-
endum hans sérstaklega góðan
vitnisburð fyrir óeigingjarnt starf
í þágu almenns launafólks í
landinu og að hafa staðið vörð um
menningararf og sjálfstæði þjóðar-
innar. En þetta þótti Alþýðuflokki
og dönskum sósíaldemókrötum,
sem voru þeirra leiðarljós, ekki góð
póbtík og reyndu því að útboka þá
frá valdastöðum í verkalýösfélög-
um. - Og tókst þannig að skapa
sundrungu í verkalýðsbaráttunni
og ómælanlegt tjón á vinstri væng
stjórnmálanna með ósönnum
áburði og rógi sem enn er í fullum
gangi.
Ef þeir krataþingmenn, sem verst
létu um það leyti sem forseti
Tékkóslóvakíu var staddur hér,
þekkja ekki sögu eigin flokks sýnist
tímabært fyrir þá að kynna sér
hana... Taka upp heiðarlegan mál-
flutning, ef þeir geta, og hætta að
byggja hann á fólskum forsend-
um... Það er alvarlegt mál að gera
línurit af lyginni og segja að það
sé sannleikurinn.
Aðalheiður Jónsdóttir
„Undarlegt er hvað þessir menn hafa
miklar vangaveltur um hvernig
Kommúnistaflokkur íslands hafi starf-
að á sínum tíma.“