Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1990, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1990.
13
Hvað um verðbólguna?
Margrét Sigurðar skrifar:
Ég get ekki orða bundist vegna
þess ákafa sem stjórnarliðið leggur á
að kynna fyrir almenningi hvað
verðbólgan hafl minnkað. Það er tal-
að um „batnandi þjóðarhag“ og um
að boða til sérstaks fundar með for-
sætisráðhera og fleirum í hans flokki
á Hótel Sögu. - Ekki skal það gagn-
rýnt að rætt sé um þjóðarhag en var-
ast veröur að glæða með fólki ein-
hverjar gyllivonir um að hér sé allt
á uppleið því verði það gert fer hér
óðar allt í bál og brand vegna kröfu-
gerðahópanna sem þá skríða úr
fylgsnum sínum.
En hvað um verðbólguna, er hún á
niðurleið, og hve mikil er hún í dag?
Þessu virðast þeir ekki geta svarað
sem til þess hafa lært að mæla vísi-
tölur og vaxtatöflur miðað við til-
teknar forsendur í þjóðfélaginu. Ég
sé aldrei neitt koma klárt og kvitt frá
þessum aðilum. - Því er ekki hægt
að gefa út verðbólgutöflu og birta í
blöðum, líkt og gengistöfluna. Gengið
getur breyst frá einum degi til ann-
ars og það gerir verðbólgan líka.
Ekkert ætti að vera auðveldara en
birta svona upplýsingar.
Ég treysti því að nú verði ekki far-
ið að gefa út sérstakar bjartsýnisspár
sem svo eru ekki marktækar þegar
til kastanna kemur. Fundur um
bættan þjóðarhag má ekki verða til
þess að hér rísi ný alda kröfugerða,
verðhækkana og launaskriðs. Það
yrði til að kollvarpa trú okkar allra
á að hér verði yfirleitt við nokkuð
ráðið.
íKnaðafjS
FÆST VÍÐA í BYGGINGAVÖRUVERSLUNUM
LATTU EKKI OF MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
ilæs™
DRÆTTI
PANAX GINSENG EXTRAXTUM
(rautt ginseng) flytjum við milli-
liðalaust beint frá Kina.
Kinverjar hafa sótt orku og lifs-
þrótt til GINSENG rótarinnar
mörgum öldum fyrr en íslend-
ingasögurnar voru skráðar. Þús-
undir bóka hafa verið skrifaðar
um rótina og eiginleika hennar -
bæði af leikum og laerðum. Lof
manna og hrós um GINGSENG
rótina i gegnum aldirnar er liklega
meira en um nokkra aðra lækn-
ingajurt. Þegar þú velur þér
GINGSENG þá veldu þér það
besta -
ÞAÐ BORGAR SIG.
SMÁSALA - HEILDSALA
NÁTTÚRULÆKIMIIMGABÚÐIN
Laugavegi 25
Sími: 10263 Fax: 621901
S:ÍS|®í
HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA KR. 18.000.000
DREGIÐ VERÐUR FOSTUDAGINN 6. APRIL 1990,
Lyngási 1, Garðabæ,
Sími: 65-18-22, Telefax: 65-18-57
0 HITACHI
RAFMAGNSVERKFÆRI
Heiísusapa er þykkfljotandi.
sérlega mild íyrir viðkvæma
og þurra húð.
Heilsusapa er framleídd úr
nátturulegum hráefnum og
inniheldur hvorki ilm né
litarefni. Hun hentar til þvotta a
öllum viðkvæmum stöðum
likamans og er tilvalin til að
þvo ungbórnum.
Heilsusapa hefur pH gildi 5.5.