Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1990, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1990.
Fréttir
Tillaga verður lögð fram í þessari viku:
Vilja reka Asgeir,
Óla Þ. og Aðalheiði
- úr Borgaraflokknum vegna aðildar að Nýjum vettvangi
Óli Þ. Guðbjartsson, dómsmálaraðherra og varaformaður Borgaraflokks-
ins, og Guttormur Einarsson, ritari flokksins, undirbúa sig fyrir aðalstjórnar-
fundinn. Á fundinum kom til verulegra átaka. Fjöldi embættismanna flokks-
ins hefur yfirgefið flokkinn eða gerir það næstu daga. DV-mynd BG
Reykjavíkurdeild Borgaraflokks-
ins verður með fund í þessari viku.
Samkvæmt heimildum DV innan
raða flokksins er gert ráð fyrir að
lögð veröi fram tillaga á fundinum
um að Ásgeir Hannes Eiríksson al-
þingismaöur, Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir alþingismaður og Oli Þ.
Guðbjartsson dómsmálaráðherra
verði rekin úr Borgaraflokkn-
um.
Ástæða tillögunnar er ákvörðun
Ásgeirs Hannesar að gefa kost á sér
í prófkjör meö Nýjum vettvangi og
fleirum fyrir borgarstjómarkosning-
arnar og stuðningur Óla og Aðai-
heiðar við framboð Ásgeirs.
Tillagan verður borin upp af ein-
hverjum þeirra sem ætla að taka
þátt í prófkjöri Borgaraflokksins fyr-
ir borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík.
Þaö urðu mikil átök á aðalstjómar-
fundi Borgaraflokksins sem haldinn
var í Reykjavík á 'laugardag. Þrír
framkvæmdastjórnarmenn á
Reykjanesi sögðu af sér öllum emb-
ættum fyrir flokkinn. Fjórði stjórn-
armaðurinn sagði af sér fyrir fund-
inn. Fimmti stjómarmaðurinn hefur
ekki sagt af sér. Það er því aðeins
einn stjórnarmaður af fimm eftir í
kjördæmi formannsins, Júliusar Sól-
nes umhverfisráðherra.
„Ég skil ekkert í Júlíusi að segja
ekki af sér,“ sagöi einn fundar-
manna.
Ekkert við þig að tala
„Ég hef ekkert við þig að tala. Ég
hef ekki áhuga á að tala við menn
sem skrifa annan eins óþverra eins
og þú skrifaöir í DV á laugardag,"
sagði Júlíus Sólnes, formaöur Borg-
araflokksins.
í DV á laugardag var meðal annars
sagt frá því að nokkrir embættis-
menn myndu segja af sér störfum
fyrir flokkinn og jafnvel yfirgefa
hann. Nú hafa fjórir af fimm stjórn-
armönnum í kjördæmi formannsins
sagt af sér. Þá hafa stjómarmenn á
Vestfjöröum ákveðið að senda Júlí-
usi Sólnes flokksskírteini sín í pósti.
Þá sagði fulltrúi Vesturlands á fund-
inum sig úr flokknum.
Á aðalstjórnarfundinum á laugar-
dag afhenti Hörður Helgason Júlíusi
lykla að skrifstofu flokksins í Hafn-
arfirði. Hörður var formaður kjör-
dæmisráösins.
Höfum sagt skilið við þessa
vitleysu
„Við höfum sagt skilið við Borgara-
flokkinn, þessa vitleysu, að fullu og
öllu. Stjórnin er einhuga um þetta
og við munum senda flokksskírtein-
in suður. Við höfum skömm á þessu
og hvemig komið er fyrir flokknum.
Skeytið sem Gunnar Sverrisson
sendi breytir engu. Hann er ekki
aðalmaður í stjórn kjördæmisráðs-
ins,“ sagði Gunnar Þ. Sigurðsson en
hann var formaður kjördæmisráðs
Borgaraflokksins á Vestfjörðum þar
til á laugardag.
Á fund landstjórnar kom skeyti frá
Gunnari Sverrissyni á Hólmavík.
Þar sagði að ekki væri slík óeining
innan flokksins á Vestfjörðum eins
og Gunnar Sigurösson heföi haldið
fram.
„ Júlíus hefði átt að kynna sér betur
hverjir eru í stjórn. Hann hefur ekki
talað við mig síðan í júlí í fyrra. Þeg-
ar hann var með fundinn á ísafirði
talaði hann hvorki viö mig eða aðra
flokksmenn á Vestflörðum heldur
kom meö einhveija gæðinga úr
Reykjavík. Mér finnst þeir gangi
kaupum og sölum þessir fuglar og
það á eftir að koma betur í ljós. En
ég hef ekki trú á að nokkur stjórn-
málaflokkur vilji nota þessa menn.“
„Það fyrsta sem brást var það að
Ingi Björn Albertsson, sá hæfi mað-
ur, yrði gerður að formanni. Það
kostaði þaö að tveir hæfustu menn-
irnir, Ingi Björn og Hreggviður Jóns-
son, yfirgáfu flokkinn og eftir sitjum
við uppi með þennan þingflokk."
- Þið sem hafið yfirgefiö flokkinn,
farið þiö yfir til Inga Björns og Hregg-
viðs?
„Við munum alla vega ekki sitja
eftir aðgerðalaus. Við gengum í
flokkinn af fullum heilindum á sín-
um tíma og það má Júlíus Sólnes
vita að veröum ekki aðgerðalaus,“
sagði Gunnar Þ. Sigurðsson á Þing-
eyri.
Deilurnar að baki
í fréttatilkynningu, sem aðalstjórn
Borgaraflokksins sendi frá sér, segir
að fundurinn hafi samþykkt ályktun
einróma. Þess ber aö geta að nokkrir
fundarmanna höfðu sagt af sér og
yfirgefið fundinn þegar ályktunin
var samþykkt einróma.
í ályktuninni segir meðal annars:
„Aðalstjórn Borgaraflokksins harm-
ar þær deilur sem rigu upp innan
flokksins en þær eru nú góðu heilli
að baki. Aðalstjórn Borgaraflokksins
beinir því til flokksmanna að snúa
sér af alefli að alhliða uppbyggingu
flokksstarfsins í öllum kjördæmum
landsins. Ástandið í þjóðmálum er
með þeim hætti að meiri og vaxandi
þörf er fyrir stjórnmálaafl sem Borg-
araflokkinn."
Asgeir með nýtt félag
Ásgeir Hannes Eiríksson hefur
stofnað nýtt félag: Reykjavíkurfélag-
ið - samtök um betri borg. Það félag
mun taka þátt í prófkjöri með Al-
þýðuflokki, Nýjum vettvangi og fleir-
um fyrir borgarstjórnarkosningarn-
ar.
Framkvæmdastjóri Borgara-
flokksins, Bjöm Ernst Gíslason, fékk
að vita það fyrir skömmu að formaö-
ur flokksins, Júlíus Sólnes, hefði af-
rekað það að Bj örn Ernst ætti að taka
sæti í hagráði. Flokksmenn uröu
ánægðir með þessar fréttir. En Júlíus
varö að taka þessi orö sín til baka
skömmu síðar. Ástæðan var sú að
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra sagði nei. Og þar við sat.
-sme
í dag mælir Dagfari___________________
Samviska Ásgeirs Hannesar
Maður er nefndur Ásgeir Hannes
Eiríksson og rak lengi pylsuvagn í
Austurstræti. Hann var málkunn-
ugur Albert Guðmundssyni og
gerði honum þann greiöa að leggja
nafn sitt við Borgaraflokkinn þegar
Albert var að leita að fólki á listann
sinn. Ásgeir Hannes hefur sagt frá
því í blaðaviðtölum að hann hafi
lengi gengið með þingmanninn í
maganum og lét því tilleiðast þegar
Albert bauð honum sæti.
Nú er Albert löngu farinn og alla
leið til Parísar og Borgaraflokkur-
inn er klofinn í herðar niður og
fylgi hans mælist í brotabroti af
einu prósenti. En Ásgeir Hannes
er kominn á þing og Borgaraflokk-
urinn er kominn í ríkisstjórn og
bjargaði raunar lífi stjórnarinnar
með stjómarþátttöku sinni. Nú
þykir ýmsum það að vísu skrítið
að ríkisstjórnin lafir í krafti stjórn-
málaflokks sem enginn vill styðja
og nýtur atkvæða þingmanna sem
enginn vill hlusta á. Ásgeir Hannes
hefur sjálfur sagt frá því að þingsal-
urinn tæmist jafnskjótt og hann
kveður sér hljóðs. En svona em
stjómmálin og stjómmálamenn-
irnir. Þeir eru alltaf tilbúnir að
rétta þjóðinni hjálparhönd þótt
þjóðin og þingiö vilji ekki þiggja
aðstoðina.
En hvað um það, Ásgeir Hannes
hélt borgarafund um pólitíska
framtíð sína á Hótel Borg á föstu-
daginn og tilkynnti þar að hann
hefði stofnað nýtt félag Borgara til
að standa aö framboði Nýs vett-
vangs. Gengur þar Ásgeir Hannes
í spor fyrri samherja sinna úr
Borgaraflokknum sem ýmist hafa
sagt sig úr lögum við flokkinn ell-
egar stofnaö nýja flokka. Ingi Björn
Albertsson og Hreggviöur Jónsson
stofnuðu Frjálslynda hægri flokk-
inn, Borgaraflokkurinn í Reykja-
neskjördæmi hefur lýst vanþókn-
un sinni á ráðherrum flokksins,
miðstjóm flokksins hefur lýst van-
trausti á þingflokk Borgaraflokks-
ins og allir muna að Albert Guö-
mundsson flutti út til Parísar til að
lýsa frati á Borgaraflokkinn. Mað-
ur spyr sjálfan sig hvort nokkur
sé eftir í þessum Borgaraflokki til
að taka við skömmunum og upp-
sagnarbréfunum og ekki skánar
það þegar Ásgeir Hannes stofnar
nýtt félag því aö hann treystir ekki
Borgaraflokknum til að hafa erindi
sem erfiöi j borgarstjómarkosning-
unum í vor.
Mú má kannske segja það aö einu
gildi hvað Borgaraflokkurinn geri
eða segi vegna þess að það er ekk-
ert fólk lengur í flokknum og þaðan
af síöur einhver sem kýs þennan
flokk. En Ásgeir Hannes er orðinn
mikilsmetinn þingmaður og tekur
sjálfan sig alvarlega og boöar fundi
á kaffihúsum til aö gera það upp
við samvisku sína hvaða flokk
hann á að styðja í næstu kosning-
um. Það em ekki nærri allir sem
hafa slíka samvisku og það em
heldur ekki margir pólitíkusar sem
hafa jafngildar ástæöur til að ganga
úr sínum eigin flokki. Röksemdir
Ásgeirs eru nefnilega þær að Borg-
araflokkurinn muni eflast við að
bjóða ekki fram og hann vill leyfa
Borgaraflokknum að taka þátt í
sigrinnum í vor með Nýjum vett-
vangi frekar en að koma upp um
sitt eigið fylgisleysi.
Ef Borgaraflokkurinn ætlar aö
skamma Ásgeir fyrir að ganga
þannig á svig við flokkinn er
ástæða til að Borgaraflokkurinn
hugsi sig tvisvar um vegna þess að
samviska Ásgeirs Hannesar býður
honum að sinna framtíð flokksins
sem kaus hann á þing og þaö gerir
hann best með því að ráða flokkn-
um frá því að bjóða fram.
Hann er í rauninni að gera Borg-
araflokknum stórgreiöa og Dagfari
er farinn að halda aö það sé leik-
brella í gangi hjá Borgaraflokknum
sem er fólgin í því að nógu márgir
segi sig úr flokknum til aö flokkur-
inn haldi lífi! Ásgeir Hannes má
eiga það að hann var góður sölu-
maður í pylsunum og hvers vegna
ætti hann ekki líka að vera góður
sölumaður í pólitíkinni? Það er
auðvitað ekkert vit í því að koma
upp um fylgisleysi Borgaraflokks-
ins fyrr en nauðsyn krefur og með
því að ganga til liðs við aðra flokka
og dreifa þingmönnum í flesta
flokka og helst til annarra landa
þá áttar sig enginn á því hvar fylgi
Borgaraflokksins er niður komiö,
hvað þá að það sé ekki tiL
Reykvíkingar geta verið þakklát-
ir Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni fyrir
að kynna samvisku sína á kaffihús-
um.
Dagfari