Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.1990, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 2. APRÍL 1990.
Fréttir
Verkfallið í álverinu:
Hræðileg yfirmönnun
í nokkrum störfum
- segir Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins
„Þetta er fast. Þaö gefur augaleið
aö þaö stefnir í veruleg vandræöi
verði ekki afstöðubreyting. Þaö er
hræðileg yfirmönnun í nokkrum
störfum í Álverinu. Þaö hefur ekk-
ert veriö hægt aö gera i því ööru-
vísi en verkalýðsfélögin grípi til
gagnaðgerða. Þaö er stór hópur
manna sem hefur ekkert aö gera.
Þetta er gamalt mál. Það er vilji til
aö flytja tuttugu og tvo menn til án
þess aö komi til uppsagna. Álveriö
sker sig úr öörum fyrirtækjum
hvaö þetta varðar,“ sagði Þórarinn
Viöar Þórarinsson framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins.
Samningafundi deiluaðila lauk
hjá ríkissáttasemjara um klukkan
tvö í nótt án þess að nokkur árang-
ur yrði. Ríkissáttasemjari boöar
deiluaðila á fund í dag, ef ástæöa
þykir til.
„Því miður stefnir allt í að það
slökkni á öllu. Þeir neita öllu, jafn-
vel aö ræöa hagræðingarmál sem
þeir vildu þó sjálfir að rætt yrði
um. Mín tilfmning er sú aö þaö sé
verulega þungt framundan," sagöi
Sigurður T. Sigurösson, formaöur
Verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði.
Þórarinn Viðar segir að það þurfi
ekki að hafa langt mál um hagræð-
ingarmál og að sjálfsögðu vilji
vinnuveitendur ræða þau.
Deilan snýst fyrst og fremst um
eingreiðslur, sem greiddar voru í
fyrra, um 45 þúsund krónur á
hvern starfsmann. Greiðslurnar
komu tii vegna hagnaðar álversins.
Þórarinn Viðar segir að þeir séu
tilbúnir til að ræða ámóta greiðslur
sem fundnar yrðu út með öðrum
hætti.
Ef samningar takast ekki á næstu
tíu dögum kemur til þess að skaut-
in kólni. Það hefur ekki gerst fyrr
þótt oft hafi verið hart deilt um
kjaramál í Álverinu.
-sme
Höfnin í Bolungarvík hefur verið lokuð af völdum hafiss síðan á laugardagskvöld en hér sést þegar hafís var að
byrja að reka inn í höfnina á laugardaginn. DV-mynd SÆ
Haíls 1 ísafjarðardjúpi:
Hætta á að Isa-
fjarðarhöfn lokist
Hafís þrengir nú mjög að Vestfirð-
ingum og er ástandið orðið æði
slæmt í ísafjarðardjúpi. Höfnin í Bol-
ungarvík er lokuð vegna hafíss og
hefur verið það síðan á laugardags-
kvöld. Síðan hefur enginn bátur farið
inn eða út.
Enn er renna opin inn í ísafjarðar-
höfn en í Prestabugt, utan við eyr-
ina, er mikill ís. Þarf aö fara með
mikilli varúð inn í höfnina. Þá hafa
stórir jakar borist upp í íjöruna.
Samkvæmt upplýsingum sem feng-
ust hjá hafnarverði í morgun þá þarf
lítið til að rennan lokist en spáð er
hægviöri þarna í dag þannig aö hún
ætti aö geta haldist opin. Menn eru
þó tilbúnir til að strengja fyrir höfn-
ina ef vindáttin breytist. Línubátar
komust þó til veiða í gærkvöldi og
rækjubátar fóru út í morgun en þeir
veiða innar í Djúpinu.
-SMJ
Sjóbirtingsveiðin hafin:
Varmá gjöful fyrsta daginn
- viða ekki hægt að koma niður færi vegna ísa á ánum
„Við vorum heppnir og fengum
neðarlega í Varmá 23 fiska, þeir
stærstu voru 3 pund,“ sagði Hauk-
ur Haraldsson, deilarstjóri í Trygg-
ingastofnuninni, en hann opnaði
Varmá í gærmorgun ásamt fleir-
um. „Það var gaman að þessu og
fiskamir voru flestir feitir,“ sagði
Haukur ennfremur.
„Við vorum ofar í Varmá og feng-
um ekki neitt, urðum ekki varir
við fisk. Mink sáum við aftur á
móti og þeir hafa líklega étið eitt-
hvað af silungi," sagði Rósar Egg-
ertsson tannlæknir.
„Við Suðurnesjamenn sátum
bara heima því hvorki var hægt aö
opna Geirlandsá né Vatnamótin,"
sagöi Þórhallur Guðjónsson, for-
maður Stangaveiöifélags Keflavík-
ur, og bætti við „það verður líklega
nokkur tími þangað til hægt verður
að opna fyrir veiöi fyrir austan,
nógur er ísinn og snjórinn.“
„Það komu íjórir fiskar í Rangán-
um af svæði þrjú og hann var 6
pund sá stærsti en sá minnsti var
2 pund,“ sagði okkar maður á ár-
bakkanum í gærkvöldi. „Þetta var
allt í lagi og veöurfarið var þokka-
legt.“
-G.Bender
íslandsmeistaramótiö í vaxtarrækt:
Hart barist um titlana
Spennan var óbærileg á Hótel ís-
landi í gærkvöldi meðan dómarar á
íslandsmeistaramótinu í vaxtarrækt
sátu sveittir við aö velja íslands-
meistarann í opna karlaflokknum á
vaxtarræktarmótinu og keppendur
hömuðust við að hnykla vöövana
hver í kapp við annan. Keppnin var
mjög jöfn og spennandi en að lokum
var það Guðmundur Bragason sem
bar sigur úr býtum eftir harða
keppni við ívar Hauksson, sem lenti
í öðru sæti, og Hrein Vilhjálmsson
sem varð þriðji.
Það var svo unnusta Guðmundar,
Inga S. Steingrímsdóttir, sem sigraði
í opna kvennaflokknum en Inga var
áberandi best í kvennaflpkknum og
öruggari með sigurinn. í öðru sæti
kvennaflokksins varö Auður Hjalta-
dóttir en Þórdís Anna Pétursdóttir
varð í þriðja sæti. Nánar verður sagt
frá mótinu síðar.
-JAK
Krabbameinsátak:
35 milljónir hafa safnast
Um 35 milljónir söfnuðust í söfnun
Krabbameinsfélagsins um helgina.
Gengu á annað þúsund sjálfboðaliðar
í hús um allt land og söfnuöu fé und-
ir kjörorðunum „Þjóðarátak gegn
krabbameini 1990 - til sigurs!“.
Þar sem engir voru heima voru
Loðnuvertíð
skildir eftir gíróseðlar og söfnun
meðal fyrirtækja, stéttarfélaga og
fleiri aðila stendur enn yfir. Nefndar
tölur eru því bráðabirgðatölur en
lokauppgjör liggur ekki fyrir fyrr en
í apríllok.
> -hlh
senn að ljúka:
Verðmætið um 4,5 milljarðar
Verðmæti þeirra loðnuafurða sem
komnar eru á land er um 4,5 milljarð-
ar króna, að því er Jón Ólafsson hjá
Félagi íslenskra fiskimjölsframleið-
enda tjáði DV. Hann sagði að verð-
mæti loðnumjölsins væri 3,3 millj-
aröar og lýsisins rúmur milljarður
króna. Enn eru óveiddar um 100 þús-
und lestir af heildarkvóta okkar ís-
lendinga. Bæði er að alls óvíst er að
það takist að veiða þetta magn úr
þessu og auk þess er loðnan orðin
mjög horuð og verðmæti hennar því
frekar lítið.
Jón Ólafsson sagði að um áramótin
hefði verð á loðnumjöli verið um 8
dollarar fyrir próteineininguna.
Fljótlega eftir að loðnuveiðamar hóf-
ust eftir áramótin og sýnt var að þær
ætluðu að ganga vel lækkaði verðið.
Hann sagði að nú væri það 6,70 til
6,80 dollarar fyrir próteineininguna.
Mjög lítið var selt fyrirfram af mjöli
meðan verðið var í 8 dollurum vegna
þess að menn voru hræddir eftir hina
afspymulélegu haustvertíð.
Verð á lýsi hefur veriö stöðugra og
er þetta 240 til 250 dollarar tonnið.
Alls hafa veriö framleiddar um 60
þúsund lestir af lýsi og 110 þúsund
lestir af mjöli á vertíðinni.
Þrátt fyrir mikið magn af loðnu
eftir áramótin hefur útkoman á þess-
ari loðnuvertíð ekki verið góð.
Ástæðan er að sjálfsögðu sú hve
haustvertíðin var léleg. Á haustver-
tið er loðnan feitust og gefur því
mestar afurðir. Strax eftir áramótin
fer fitumagnið að minnka umtals-
vert.
Verð á loðnu hefur verið frjálst á
vertíðinni. Jón sagði að verksmiðj-
urnar hefðu greitt þetta 3.200 og upp
í 4 þúsund krónur fyrir tonniö af
loðnu til útgerðar og sjómanna á
vertíðinni. -S.dór
Ekiö á mannlausa bíla:
Stal bfl og stórskemmdi annan
Rauðum Mitsubishi Sapporo, R-
25512, var stoliö frá Bergstaðastræti
snemma á laugardagsmorgun og hef-
ur hann ekki fundist ennþá. Skömmu
síðar var kyrrstæður og mannlaus
Ibizabíll við Digranesveg stór-
skemmdur og er talið líklegt að
stolna bílnum hafi verið ekið á hann.
Talið er að Mitsubishibíllinn sé
töluvert skemmdur á hægri fram-
enda. Ibizabíllinn kastaðist til um tvo
metra þar sem hann stóö og er önnur
hlið hans stórskemmd. Lögreglan í
Kópavogi biður fólk sem telur sig
hafa séð stolna bílinn hafa samband
í síma 41200.
Hvítur Fiat Uno var einnig
skemmdur aðfaranótt laugardagsins
þar sem hann var á bílastæði við
Laugalæk 11. Af verksummerkjum
að dæma er líklegt talið að rauður
tékkneskur bíll hafi ekið á hann.
Máliö er í höndum lögreglunnar í
Reykjavík. -ÓTT