Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1990, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1990, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1990. 13 Uppáhaldsmatur Asta R. Jóhannesdóttir Ljúffengur sjávar- réttakabarett - hjá útvarpsmanninum Ástu R. Jóhannesdóttur „Ég verð að segja að mér finnst fiskur besti matur sem ég smakka. Helst vil ég hafa hann einfaldan og láta bragðið njóta sín sem best. Þegar meira stendur til bý ég til finni sjávarrétti og ég ætla einmitt að gefa ykkur uppskrift af einum slíkum," sagði hinn gamalkunni útvarpsmaður Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir er DV fór þess á leit við hana að hún gæfi lesendum uppskrift af eftirlætismat. Asta R. er aftur farin að starfa við dagskrárgerö hjá rás tvö eftir nærri þriggja ára hlé frá útvarpi. „Það var hringt í mig og mér boöið aö vera með Jóhönnu Harðardótt- ur í þætti. frá ellefu til tvö. Ég var alveg tilbúin að fara í dagskrárgerö aftur enda búin að taka mér gott fri þó ég hafi veriö með nokkra staka þætti. Útvarpsvinna er bakt- ería eins og margt annað og þó maður verði þreyttur eftir ákveð- inn tíma langar mann alltaf aftur. Mér þykir líka ágætt að hvíla sjáifa mig og áheyrendur," sagöi Ásta. Hún sagðist ennfremur hafa mjög gaman af þættinum því margt bæri á góma í honum og þá sérstaklega í sambandi við þarfaþingið hennar Jóhönnu. „Við fáum mikið af bréf- um og fólk hringir í okkur af öllu landinu með hin raargvíslegustu málefni," segir Ásta. Hún segist alltaf lesa uppskriftir en sjaldnast fara eftir þeim. „Mér þykir mjög gaman að lesa upp- skriftir af hinu og þessu og nota þær síðan seinna eftir minni og bæti við eftir eigin smekk. Þessa uppskrift sem ég gef ykkur hef ég þróaö sjálf og þykir hún mjög góö. Ég er líka óhrædd aö nota hin margvíslegustu jurtakrydd. Oft þegar ég er erlendis kaupi ég kryddtegundir sem ég hef ekki séð áður,“ segir Ásta sem hefur starfað hjá Ferðamiðstöðinni undanfaríð ár, m.a. sem fararstjóri. Síðastiiðið haust fór hún með hundrað manna hóp til Suður-Ameríku, Perú, Bras- ílíu, Venesúela og fleíri staða. Auk þess fór hún með eldri borgara tii Benidorm. Ásta segir að þegar hún komi heim úr slíkum langferðum langi hana alltaf í góðan fiskrétt og þá verði sjávarréttakabarettinn oft fyrir valinu og það er einmitt hann sem við fáum uppskrift af. Hver og einn verður þó aö mæla út magn eftir smekk. Sjávarréttakabarett Rauö og græn paprika Nýir sveppir Laukur (má sleppa) Tvö hvítlauksrif Skötuselur Humar Rækjur Hörpuskelfiskur eða aðrar fisktegundir Rjómi og krydd, t.d. salt og pipar Aðferðin „Ég byrja á því að sneiða paprik- urnar, sveppina og laukinn smátt og léttsteiki á pönnu. Pressuð hvít- lauksrifin eru sett út i Grænmetið er aðeins látið bíða á meðan skötu- selurinn er steiktur í smjöri en áður er hann skorinn í smáa bita og velt upp úr hveiti og sem krydd- að hefur verið meö salti og pipar. i lokin er humrinum, sem tekinn hefur verið úr skelinni, rækjunum og hörpuskelfiskinum skellt út í ásamt grænmetinu og rjóma hellt yfir. Suðan er látin koma upp og rétturinn síðan borinn á borð. Með- læti gæti veriö nýtt brauð, salat eða soðnar kartöflur. Til hátíðarbrigða er upplagt að drekka hvítvín eða bjór meö. Þennan rétt má lika nota í brauðkollur eða bútterdeigsbotn. Þessi réttur er kannski dýr enda splæsir maður honum ekki nema eitthvað standi til,“ sagði Ásta R. Jóhannesdóttir. -ELA Nauðungaruppboð Eftir kröfu Bifreiðageymslunnar hf. fer fram opinbert uppboð á athafna- svæði Bifreiðageymslunnar hf. við Vatnagarða (fyrir ofan Miklagarð) laugar- daginn 5. maí 1990 og hefst það kl. 15.30. Seldar verða væntanlega eftirtaldar bifreiðir: GL-869, Ö-11491, R-15848, R-43612, R-54708 Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir ekki teknar gildar nema með samþykki uppboðshaldara eða gjald- kera. Uppboðshaldarinn í Reykjavík SAMVINNU TRYGGINGAR Aðalfundii* Samviimutryggmga g.t. og Líftrygginga- félagsins Andvöku verða lialdnir í Árnnila 3, Reykjavík, föstudagimi 18. maínk. oghefjastkl. 13:30. Dagskrá: Venjuleg aðalfmidarstörf. Stjórnir félaganna. GOLFSKOR TILBOÐSVERÐ Aðeins Póstsendum .,1M- ÚTIUFÍ Stærðir 36-45 Glæsibæ - sími 82922 hknkmmtmokeppm r l samk væmisdönsum haldin í iþróttamiðstöðinni Ásgardi, Garðabœ, laugar- daginn 28. apríl og sunnudaginn 29. apríl. Setningarat- höfn kl. 14.00 laugardaginn 28. apríl. Miðasala frá kl. 9.00 á laugardag. Aðgangseyrir kr. 500 fyrir fullorðna eða kr. 750 fyrir háða dagana og kr. 300 fyrir börn eða kr. 400 fyrir báóa dagana. 0- Spennandi keppni og góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Dansráð Islands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.