Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1990, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1990. 25 ____________________Vísnaþáttur Svo var röddin draugadimm Páll Vídalín Jónsson, 1667-1721, var prestssonur úr Víðidalstungu, lærður í Skálholti og Kaupmanna- hafnarskóla. Skálholtsrektor og síðar sýslumaður í Dalasýslu og varalögmaður. Hann starfaði og með Arna Magnússyni við að kanna hagi landsins. Hann andað- ist í tjaldi sínu á Þingvöllum, ein- hver mesti virðingamaður landsins á sinni tíð. Hann var eitt af virt- ustu skáldum sinnar tíðar. Hér koma nokkrar tækifærisvísur hans: Næsta skyggir nú í ál og norðan yfir. Hræðslan styggir hvergi Pál, því herrann lifir. Mun vísan ort á ferðum hans o; Árna Magnússonar á yfirreið un landið. Þá voru allar stóraár óbrú aðar og hættulegar yfirferðai. Margt þótti þeim félögum að- finnsluvert hjá almenningi og emb- ættismönnum. Sýslumaður ónefndur fékk þessa einkunn: Kúgaðu fé af kotungi, svo kveini undan þér almúgi. Þú hefnir þess í héraði, sem hallaðist á alþingi. Um tvo höfðingja orti hann: Arngrímur geymir illan mann, enginn trú’ég það rengi. Þeir eru vinir Þórður og hann, en það verður ekki lengi. Ferðauggur Hrópa skal ég herrann á, hans þverr aldrei kraftur. Hvað mun dagurinn heita sá, að hingað kem ég aftur. Sá sem fyrir veröld var verndi oss frá grandi. Sígur Vigur í saltan mar, senn er komið að landi. Af mér dregur, ellin þó æskuna týnda sýnir. Vísnaþáttur Fyrri hef ég farið á sjá, förunautar mínir. Fyrir þreyttum ferðasegg folskvast ljósin brúna. Ráði guð fyrir oddi og egg, ekki rata ég núna. Draugar Dimmt þér þótti dals við á, dró af gaman að hálfu að mér sóttu þrjótar þá þrír af Satans álfu. Um Hagann draugar svipa sér svo sem eldibrandar. Þykir gaman að þessu mér, það eru danskir fjandar. Svo var röddin draugadimm, sem dunur í íjallaskarði. Nú hef ég heyrt þá hljóða fimm í Hólakirkjugarði. Mannlýsingar Þetta er mikið þrælalið, þyrpist hópum saman. hvað gekk til þess himnasmið að hafa þá svona í framan? EUistaka Athuga þú hvað ellin sé, ungdóms týndum fjöðrum. Falls er von af fornu tré, fara mun þér sem öðrum. Kveðja Nú er ég orðinn frí og frjáls, fyrir mér dvelur engi. Leggi þér Kristur hönd urc háls, hann sé vin þinn lengi. Aldarháttur Listir fækka, letin eykst, land er fátækt, rúið, agann vantar, illskan leikst, er við háska búið. Þó vín sé gott er annað betra: Ekki smakkast vörum vín, vísitasían aldrei dvín. Hugurinn flýgur heim til þín, hjartans allra kærastan mín. Ekki var alltaf eindrægni með Páli og konu hans. Fræg er þessi vísa: Þótt þú lofir fögru fljóð, fer það sem er vani: Sættin verður á svenskra móð, sem þeir gera við Dani. Um reynslu sína af fortölum: Vilji einhver segja þeim satt, svara þeir á annan veg: Faðir minn sæli, sé honum glatt, sá hafði það eins og ég. Um prest Ef að ég skal ansa þér eftir spuming þinni: Lítið var en lokið er latínunni minni. Veröldin söm við sig. Mikið er veröldin völt og flá, var hef ég þessa orðiö. Hún mér vildi hrekja frá og hrinda mér undir borðið. Síðasta visa Páls Best er að láta brekum af og bera vel raunir harðar. Nú er ei nema hálfsótt haf heim til sælujarðar. Jón úr Vör StoraTeatern Göteborgsöker • Balettchef • fran í juli Í99Í Vi fáster stor vikt vid de konstnárliga erfarenheterna och förmágan, eftersom detta ár grunden för sávál konstartens som balettens och varje enskild dansares utveckling. Som balettchcf blir du áven ansvarig för balettens administration, ekonomi och personal. Ár Du intresserad och vill veta mer, sá ár Du válkommen att kontakta Sven Olof Eliasson, konstnárlig chef, eller Personalavdelningen, pá telefon 031-174745. Ansökan med meritfórteckning vill viJa senast den 13 maj 1990 till Göteborgs Musikteater AB, Personalavdelningen, Box 53116, S-400 15 Göteborg. Göteborgs Musikteater Urvalið og gœðin hafa aldrei verið meiri m Camp'letfjfsiand °g wírtS-detí>’ CAMP-LET '90 TJALDVA6NARNIR ERU KOMNIR! Það er næsta fullvíst að Camp-let hefur fallið íslendingum best allra tjaldvagna, enda er frágangur þeirra rómaður og telja eigendur þeirra þá best fallna fyrir íslenskar aðstæður. í ár kynnum við nýja Royal tjaldvagninn sem er örugglega glæsilegastur allra tjaldvagna! Kynntu þér kosti keppinautanna og þá sérðu að það er ekki um aðra kosti að ræða en Camp-let. sa rrtest seldi í EvróPu! . Gisli jó'nsson & Có. Sundaborg ll Sími 91-686644

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.