Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1990, Síða 47
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1990.
59
Afmæli
Sigurður Ásgeirsson
Siguröur Ásgeirsson, bóndi að
Reykjum í Lundarreykjadal, er átt-
ræðurídag.
Sigurður fæddist að Reykjum í
Lundarreykjadal, ólst þar upp og
hefur átt þar heima alla tíð. Hann
hefur verið bóndi að Reykjum frá
1943, lengst af í sambýli við Björn
bróður sinn. Sigurður starfaði að
gróðurhúsarækt á Reykjum á árun-
um 1939-64
Sigurður hefur sinnt ýmsum trún-
aðarstörfum í sinni sveit. Hann sat
í hreppsnefnd 1946-70, í skattanefnd
1957-62, var gjaldkeri Sjúkrasam-
lagsins 1947-72 og var bókavörður
Bókasafns Ungmennafélagsins Dag-
renningar 1957-83. Hann þýddi smá-
sögur, einkum í Fálkann og Dvöl,
og skrifaði Sagnaþætti í Kaupfélags-
ritið sem er útgefið í Borgarnesi.
Sigurður kvæntist 15.6.1938 Val-
gerði Magnúsdóttur, f. 8.11.1912,
húsfreyju og kennara, dóttur Magn-
úsar Stefánssonar, b. að Dölum í
Fáskrúðsfirði, og konu hans, Bjarg-
ar Steinsdóttur húsfreyju.
Sigurður og Valgerður eiga fimm
börn. Þau eru Ásgeir Sigurðsson, f.
6.4.1937, kerfisfræðingur og starfs-
maður Orkustofnunar í Reykjavík;
Björg Sigurðardóttir, f. 6.6.1939,
húsfreyja og kennari á Selfossi, gift
Sveini J. Sveinssyni, fulltrúa á
sýsluskrifstofunni á Selfossi, og eiga
þau fimm börn; Freysteinn Sigurðs-
son, f. 4.6.1941, jarðfræðingur og
deildarstjóri hjá OrkustofnUn,
kvæntur Ingibjörgu S. Sveinsdóttur
lyijafræðingi og eiga þau þrjú börn;
Ingi Sigurðsson, f. 13.9.1946, Ph.D.
og dósent í sagnfræði við HÍ, búsett-
ur í Reykjavík, og Magnús Sigurðs-
son, f. 2.9.1957, stundakennari í
þýsku við HÍ og hjá Germaníu.
Sigurður átti fjóra bræður. Bræð-
ur Sigurðar: Magnús Ásgeirsson, f.
9.11.1901, d. 30.7.1955, skáld, bóka-
vörður og einn snjallasti þýðandi á
íslenska tungu, var kvæntur Önnu
Ólafsdóttur og síðar Önnu Guð-
mundsdóttur og átti Magnús fjögur
börn; Leifur Ásgeirsson, f. 25.5.1903,
dr. phil og prófessor við HÍ, kvæntur
Hrefnu Kolbeinsdóttur og eiga þau
tvö börn; Bjöm Ásgeirsson, f. 8.1.
1906, d. 6.2.1980, bóndi á Reykjum,
og Ingimundur Ásgeirsson, f. 13.4.
1912, d. 11.9.1985, bóndi og fræði-
maður á Hæh í Flókadal, kvæntur
Ingibjörgu A. Guðmundsdóttur og
eignuðust þau flögur börn.
Foreldrar Sigurðar voru Ásgeir
Sigurðsson, f. 24.9.1867, d. 4.8.1934,
bóndi á Reykjum, og kona hans,
Ingunn Daníelsdóttir, f. 9.5.1872, d.
8.6.1943, húsfreyja og kennari.
Föðurbróðir Sigurðar var Jón,
smiður í Vindhæli, faðir Ástu, gest-
gjafa á Ránargötunni, móður Björns
Kristinssonar prófessors og Jóns
byggingaverkfræðings. Föðursystir
Sigurðar var Sigurbjörg, móðir Pét-
urs Ottesens, alþingismanns í Ytra-
Hólmi. Önnur föðursystir Sigurðar
var Oddný, móðir Jóns Helgasonar,
skálds og prófessors.
Ásgeir á Reykjum var sonur Sig-
urðar, b. í Efstabæ í Skorradal, Vig-
fússonar, b. í Svanga í Skorradal,
Guðmundssonar, b. á Krossi á Akra-
nesi, Gíslasonar, prófasts í Odda,
Snorrasonar, prófasts á Helgafelli,
Jónssonar, sýslumanns á Sólheim-
um i Sæmundarhlíð, bróður Árna
handritasafnara Magnússonar.
Móðir Ásgeirs á Reykjum var
Hildur, systir Halldóru, ömmu
Sveinbjarnar Beinteinssonar,
skálds og alsheijargoða á Draghálsi.
Bróðir Hildar var Símon, móðurafi
Jóhannesar Zoega hitaveitustjóra.
Hildur var dóttir Jóns, b. í Efstabæ,
Símonarsonar, ættföður Efstabæj-
arættarinnar.
Móðir Jóns var Margrét Þorvalds-
dóttir, systir Jóns í Deildartungu,
ættföður Deildartunguættarinnar.
Móðir Hildar var Herdís Jónsdóttir,
b. á Þorvaldsstöðum, Auðunssonar.
Sigurður Ásgeirsson.
Móðurbróðir Sigurðar var Daníel,
b. í Þórukoti í Víðidal, faðir Björns,
skálds og skólastjóra á Sauðár-
króki, föður Ólafs Víðis kennara.
Ingunn var dóttir Daníels, b. á Kolu-
gili, ættföður Kolugilsættarinnar
Daníelssonar, b. á Galtamesi, Gísla-
sonar. Móðir Daníels á Kolugili var
Guðrún Loftsdóttir.
Móðir Ingunnar var Ingibjörg
Gunnlaugsdóttir, hreppstjóra á
Efra-Núpi í Miðfirði, Gunnlaugs-
sonar.
Menning
Ég fer í fríið...
Leikritið um Shirley Valentine (sem heitir Sigrún
Ástrós komin í íslenskan búning) hefur verið sýnt
víða við miklar vinsældir að undanfömu. Samnefnd
kvikmynd hefur líka hlotið velgengni, en í henni leik-
ur Pauline Collins aðalhlutverkið, sú hin sama, sem
lék það á sviði í London.
Það er þó ólíku saman að jafna, kvikmyndinni, þar
sem margir koma við sögu, og upphaflega sviðsverk-
inu, því að þar stendur aðalpersónan ein allan tímann
og túlkar í eintali hugsanir og tilfinningar, já, heilan
æviferil 42 ára konu sem er heimavinnandi húsmóöir
í stórborg.
Sigrún Ástrós býr að vísQ ekki lengur í Liverpool,
heldur bjástrar hún með potta sína og pönnur í reyk-
vísku eldhúsi. Börnin eru farin að heiman og ekki er
mikið íjör í kallinum hennar, honum Jóa, sem er orð-
inn frekar leiðinlegur með árunum.
En þá býðst henni tækifæri til að fara í tveggja vikna
frí til Grikklands og eftir miklar vangaveltur ákveður
hún að slá til.
Þessi ákvörðun á eftir að breyta lífi hennar svo um
munar.
Eintal Sigrúnar Ástrósar speglar á kíminn og mann-
legan hátt það hvernig nútímaaðstæður valda því að
fólk einangrast gjörsamlega þó að í stórborg sé.
Sigrún er eðlisgreind og fjörug en alla ævi er verið
að aga hana og segja henni að halda sig á mottunni.
í æsku eru það kennararnir en svo tekur fjölskyldan
við, fyrst maðurinn hennar og svo börnin þegar þau
þykjast hafa vit til.
Á endanum lifir Sigrún í tilfinningalegri frystikistu
og enginn tekur eftir því hvort hún kemur eða fer, það
er að segja á meðan allt er í röð og reglu í húsinu og
kallinn hennar fær matinn á réttum tíma.
Þrándur Thoroddsen þýðir verkið á Upurt talmál og
staðfærir textann. í upphaflegu gerðinni er leikritið
mjög bundið stéttskiptu bresku þjóðfélagi og umhverfi
og þess vegna nauðsynlegt að heimfæra margt upp á
ísleriskar aðstæður. Þetta tekst í flestum tilfellum
mæta vel og vekur oft kátínu.
Það var ekki annað að heyra en Sigrún Ástrós næði
til áhorfenda í Borgarleikhúsinu á frumsýningunni í
Leiklist
Auður Eydal
gærkvöldi. Margrét Helga Jóhannsdóttir leikur hlut-
verk hennar og fer með eintal þessarar ijallhressu
konu sem hlýtur að færa þjáningarsystrum sínum
nýja von. Þær eru áreiðanlega til í Reykjavík alveg
eins og i Liverpool.
Hanna María Karlsdóttir er leikstjóri og leggur skyn-
samlegar áherslur.
Margrét Helga hefur prýðilegt útlit í hlutverkið og
þó að hún hafi ekki alveg verið búin að ná fullu öryggi
í meðferð textans var tilfmningin þarna og tengslin
við áhorfendurna. Sigrún Ástrós er engin glanspía og
Margrét túlkar aldur hennar og gamansama uppgjöf
prýðilega og sannfærandi. Hamskiptin takast með
ágætum og frásagnarefni verksins skilar sér.
Það er ekkert áhlaupaverk fyrir einn leikara aö halda
uppi heils kvölds sýningu, leika heilt leikrit aleinn.
Margrét Helga hefur ekki mikinn stuðning af leikmun-
um, búningum eða leikmynd, sem allt er með ein-
faldasta móti, kannski full einfalt. Leikskrá var ekki
fyrir hendi í gær og á blaði með upplýsingum um verk-
ið er ekki getið um höfund leikmyndar, sem ég hygg
þó að muni vera Steinþór Sigurðsson. Ekki er heldur
getið um hver hannaði lýsingu en vel var að henni
staðið.
Þetta er fyrsta erlenda leikritið sem tekið er til sýn-
inga í Borgarleikhúsinu, létt og skemmtilegt verk, sem
flytur miðaldra fólki athyglisverðan boðskap! Þeir sem
í vetur hafa beðið eftir leiksýningu í léttari kantinum
fá hér eitthvað við sitt hæfi.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir á Litla sviði Borgarleikhússins:
SIGRÚN ÁSTROS
Höfundur: Willy Russell.
Þýðing: Þrándur Thoroddsen.
Leikmynd: Steinþór Sigurðsson.
Leikstjórn: Hanna Maria Karlsdóttir.
Til hamingju með
afmælið 29. apríl
95 ára 60 ára
Ragnhildur Guðmundsdóttir, Lilja Anna K. Schopka,
Heiðmörk 65B, Hveragerði. Asparfelli 12, Reykjavík. Karla Jónsdóttir,
90ára Líney Sigurjónsdóttir, Rauðalæk 10, Reykjavík.
Gunnar Sigursveinsson, Hraunbæ 126, Reykjavík.
Krossi, Ljósavatnshreppi. 50 ára
85ára Héðinn Baldvinsson, Brúarási 10, Reykjavík.
Jón Erlendsson,
Öndólfsstöðum, Reykdælahreppi. Haukanesi 9, Garðabæ.
75 ára 40 ára Guðmundur Björnsson, Aðalstræti 55, Patreksfirði.
Ingolfur G«Goifdal ? Hæðargarði 56, Reykjavík. Guðmundur Björnsson, Arnartanga 41, Mosfellsbæ.
Guðrún Sigurjónsdóttir,
70ára Ástúni 10, Kópavogi. Ása Valdimarsdóttir,
J óhannes Ólafsson, Esjubraut 31, Aki-anesi.
Æsa G. Guðmundsdóttir, Llólgt POlHÍlUSSOUy Túnhvammi 14, Hafnarflrði. *
Heimaltaga8, Selfossi. Jónína Jóhannesdóttir, Melavegi 14, Hvammstanga.
Konráð Guðmundsson.
Konráð Guð-
mundsson
Konráð Guðmundsson, hótelstjóri
Hótel Sögu, Stigahlíð 55, Reykjavík,
ersextugurídag.
Kona Konráðs er Edda Lövdal, f.
14.8.1929.
ForeldrarKonráðs voru Guð-
mundur Einarsson, framkvæmda-
stjóri í Merkigerði á Stokkseyri, og
kona hans, Þorbjörg Ásgeirsdóttir.
Konráð tekur á móti gestum í Ár-
sal Hótel Sögu í dag, laugardaginn
28.4., milli klukkan 15:30 og 18:00.
/ Bifhjólamenn \
hafa enga heimild
til að aka hraðar
en aðrir!