Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1990. Útlönd Amnesty Intemational: Hundruð tekin af lífi eftir blóðbaðið í Peking Einn kinversku andófsmannanna sem handtekinn var í júní í fyrra. Simamynd Reuter Mannréttíndasamtökin Amnesty International sökuöu í gær kínversk yflrvöld um aö hafa tekið hundruð manna af lífi á laun í Peking í kjölfar mótmælanna þar í fyrra. Kröföust samtökin þess að yflrvöld í Peking geröu grein fyrir örlögum tugþús- unda sem sagðar eru hafa verið handteknar. Mannréttíndasamtökin segjast hafa undir höndum nöfn sex hundr- uð og fimmtíu fanga. Fullyrða sam- tökin að tugir þúsunda hafi verið handteknir eftir blóðbaðið á Torgi hins himneska friðar í júníbyrjun í fyrra. Amnesty Intemational hefur skrif- að Li Peng, forsætisráðherra Kína, og beðið hann um skýringu. í síðustu viku kváðust kínversk yfirvöld hafa leyst úr haldi tvö hundmð og ellefu manns. Þau hafa aldrei greint frá því opinberlega hversu margir voru handteknir í herferðinni gegn lýðræðissinnum sem fylgdi í kjölfar blóðbaðsins í júní í fyrra. Samtökin Amnesty International segjast hafa þaö eftir embættísmönn- um í Peking að um sé aö ræða innan- ríkismálefni og að aðeins sex þúsund hafi verið handteknir. Reuter Umhverfismálaráðstefnan í Bergen: Árangurslaus næturfundur Umhverfismálaráðherrar þrjátíu og fiögurra þjóða, sem sitja ráðstefnu í Bergen í Noregi, urðu í nótt að ljúka fundi sínum án þess að hafa tekist að koma sér saman um sameiginlega yfirlýsingu. Ráðherrarnir settust aft- ur að fundarborði í morgun en ráð- stefnunni lýkur í dag. Seint í gærkvöldi fóru viðræður embættísmanna út um þúfur. Ágreiningsefnið var aukin aðstoð við mengunarvarnir í þróunarlöndum. Kanada, Svíþjóð, Evrópubandalagið og fleiri lönd neituðu að verða við ósk Bandaríkjanna um að þetta atriði yrði ekki of bindandi. A sérfundi Bandaríkjanna, Kanada og Evrópu- bandalagsins tókst ekki heldur að ná samkomulagi um aðgerðir til að sporna við mengun af völdum koltví- sýrings. Þar sem viðræður embættísmann- anna sigldu í strand urðu ráðherr- arnir að taka við. Fundur þeirra hófst á miðnættí að norskum tíma og hafði hver þeirra einn sérfræðing sér við hliö. Fundi ráðherranna lauk síðan klukkan tvö i nótt án þess að árangur hefði náðst. í gærkvöldi söfnuðust hundruð mótmælenda saman í Bergen. Um- kringdu þeir langferðabifreið sem kom með ráðherrana á hótel þeirra og eftir að ráðherrunum hafði tekist að ryðja sér braut gegnum mann- fiöldann reyndu herskáustu mótmæ- lendurnir aö rífa niður girðingar lögreglunnar umhverfis hótehð tíl að komast að innganginum. Eftir klukkustund hafði lögreglunni tekist að dreifa mannfiöldanum. NTB Bandarísk nefnd um Lockerbie-slysið: Gagnrýnir öryggiseftiriit Bandarísk nefnd, sem rannsakað hefur flugslysiö yfir Lockerbie í Skotlandi árið 1988, leggur tíl að Bandaríkjamenn beití hervaldi í bar- áttunni við hryðjuverkamenn. Þá gagnrýnir nefndin einnig flugmála- stofnunina í Bandaríkjunum fyrir lélegt öryggiseftirlit. Tvö hundruð og sjötíu létust þegar sprengja grandaði flugvél bandaríska flugfélagsins Pan Am yfir Lockerbie síðla árs 1982. Skýrsla nefndarinnar er mjög harðorð í garð flugfélagsins sem og bandarískra yfirvalda og segir að hægt heföi verið að afstýra slysinu í Lockerbie. Pan Am flugfélagið er harðlega gagnrýnt fyrir að hlaða far- angri, sem ekki tilheyrði farþegum, í vélina. Þá segir í skýrslunni að bandarísk yfirvöld eigi að ganga harðar fram í baráttunni gegn hryðjuverkum, þar á meðal að nota hervald, viðhafa harðari aðgerðir gegn þjóðum sem hylma yfir meö hryðjuverkamönnum og endurskoða flugöryggiseftirlit sitt. Starfsmenn bandarísku flugmála- stofnunarinnar viðurkenna að mis- tök hafi átt sér stað varðandi flug Pan Am þennan desemberdag. En fulltrú- ar Pan Am gagnrýndu skýrsluna og segja of snemmt að gagnrýna örygg- iskerfi áður en rannsókn málsins hafi veriö lokið. Reuter Bandarísk nefnd, sem rannsakað hefur flugslysið yfir Lockerbie í Skotlandi árið 1988, gagnrýnir harðlega öryggiseftirlit i Bandarikjunum og segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir slysið. Myndin var tekin á slysstað, í desember 1988. Simamynd Reuter Nauðungaruppboð á eftirtöldum eignum fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57, föstudaginn 18. maí ’90 kl. 11.00. Bakkatún 28, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðn- þróunarsjóður. Krókatún 26A, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðn- þróunarsjóðm’. Reynigrund 20, þingl. eigandi Guð- laugur Þórðarson, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 18. maí ’90 kl. 15.00. Uppboðsbeiðendm- em Lögmanns- stofan Kirkjubraut 11, Vátryggingafé- lag íslands hf. og Landsbanki Islands. Bakkatún 28A, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðn- Bæjarfógetinn á Akranesi þróunarsjóður. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta, á eftirtöldum eignum Æðaroddi 22, hesthús, þingl. eigandi Jakob Benediktsson, fer fram á eign- inni sjálfri föstudaginn 18. maí ’90 kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur em Einar Gautur Steingrímsson hdl. og Ævar Guðmundsson hdl. Krókatún 22, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðn- þróunarsjóður. Bakkatún 30, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðn- þróunarsjóður. Bæjarfógetiim á Akranesi Bakkatún 32, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðendur eru Iðnþróunarsjóður, Gjaldskil sf. og Ásgeir Thoroddsen hdl. Furugmnd 29, þingl. eigandi Daníel Daníelsson, fer fram á eigninni sjálfri, föstudaginn 18. maí ’90 kl. 14.00. Upp- boðsbeiðendur eru Akraneskaupstað- ur og Innheimtumaður ríkissjóðs. Bæjarfógetinn á .Akranesi Nauðungaruppboð annað og siðara, á eftirtöldum eignum fer fram í dómsal embættisins, Suðurgötu 57, föstudaginn 18. maí ’90 kl. 11.00. Krókatún 24, þingl. eigandi Þorgeu' og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðn- þróunarsjóður. Háteigur 3, efri hæð, þingl. eigandi Jóhann Öm Matthíasson, fer fram á eigninni sjálfri, fóstudaginn 18. maí ’90 kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur eru Tryggingastofhun ríkisins, Akranes- kaupstaður, Landsbanki íslands, Ut- vegsbanki íslands, Veðdeild Lands- banka íslands, Guðjón Ármann Jóns- son hdl., Ólafúi’ Sigurgeirsson hdl. og Lögmannsstofan Kirkjubraut 11. Krókatún 24A, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðn- þróunarsjóður. Bakkatún 26, 26A, 26B, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðnþróunarsjóður. Krókatún 26, þingl. eigandi Þorgeir og Ellert hf. Uppboðsbeiðandi er Iðn- þróunarsjóður. 11 / Bifhjólamenn \ hafa enga heimild til að aka hraðar en aðrir! Bifreiðasala íslands Bíldshöfða 8 S. 675200 gjHl Toyota Dyna ’85, 5 g., rauð, ek. 136.000, v. 1.150.000. Mazda 626 1600 ’87, 5 g., 4 d., hvít- ur, v. 580.000. Lancer GLX st. 1500 ’86, 5 g., 5 d., hvitur, ek. 64,000, v. 580.000. Fiat Uno 45.s ’87, 5 g., 5 d., hvitur, ek. 30.000, v. 370.000. Fiat Uno 45.s ’84, ek. 50.000, v. 220.000. Audi 80 1800 ’88, 5 g., 4 d., rauður, ek. 42.000, v. 1.380.000, vökvast., topplúga, ABS bremsur. Honda Prelude 1800 ’85, sjálfs., 2ja d., rauður, topplúga, v. 670.000. Vegna mikillar sölu vantar bíla á skrá og á staðinn, gott inni- og útisvæði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.