Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 36
52 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1990. Jarðarfarir Liney Helgadóttir, Hrafnagilsstræti 38, Akureyri, sem lést 7. maí, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 17. maí kl. 13.30. Oddný Margrét Halldórsdóttir, Erlu- hrauni 4, Hafnarfirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 8. maí sí, verður jarðsungin frá Víðistaða- kirkju fostudaginn 18. maí kl. 13.30. Útfor Helga Eiríkssonar, bónda, Fossi á Síðu, fer fram frá Prest- bakkakirkju fóstudaginn 18. maí kl. 14. Siguijón Þórðarson, Æsufelli 6, Reykjavík, sem lést þann 9. maí sl., verður jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 17. maí kl. 13.30. Sigríður Ása Gísladóttir, Breiðagerði 6, sem lést fimmtudaginn 10. maí, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík, fóstudaginn 18. maí kl. 15. Klara Margrét Arnarsdóttir, Grjóta- seh 10, sem andaðist 10. maí sl., verð- ur jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 17. maí kl. 13.30. Petrea Ingimarsdóttir Hoffmann, Ei- ríksgötu 31, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 8. maí sl., verður jarð- sungin frá Dómkirkjunni á morgun, fimmtudaginn 17. mai kl. 13.30. Magnús Björnsson símamaður lést 9. maí. Hann fæddist 24. júní 1914 á Þorbergsstöðum. Magnús lauk prófi sem búfræðingur frá Bændaskólan- úm á Hvanneyri. Hann starfaði lengst af við skeytasendingu hjá Rit- símanum í Reykjavík. Eftirlifandi eiginkona hans er Inger Ester Niku- lásdóttir. Þau hjónin eignuðust sex börn. Útför Magnúsar verður gerð frá Neskirkju í dag kl. 15. Tónleikar Síðustu áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar Síðustu áskriftartónleikar Sinfóníu- iiljómsveitar íslands á þessu vori verða í Háskólabíói nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30. Á efnisskrá verða eingöngu verk eftir Beethoven: Forleikur úr Leonara nr. 3, aríur úr Fídelio og að lokum sinfón- ía nr. 9. Einsöngvarar verða Ingrid Hau- bolt, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Garðar Cortes og Guðjón Óskarsson auk söng- sveitarinnar Fílharmóníu. Kórstjóri er Úlrik Ólafsson en hljómsveitarstjóri Petri Sakari. Sinfóníuhljómsveitin hefur flutt alla sína starfsemi í Háskólabíó og fer miðasala þar iram frá kl. 13-17 dag- lega. Tapað fimdið Seðlaveski tapaðist Svart seðlaveski með lyklum, visakorti og peningum tapaðist i gær, líklegast á jLækjartorgi. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 84707. Fimdir Sálarrannsóknarfélag íslands Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 17. maí kl. 20.30 að Soga- vegi 69. Fundarefni: 1. venjuleg aðalfund- arstörf, 2. Guðmundur Einarsson flytur erindi. Kvenfélag Kópavogs heldur gestafund fimmtudaginn 17. maí kl. 20.30 í Félagsheimilinu. Skemmtiat- riði, happdrætti og veitingar. Konur í Kópavogi velkomnar. ITC deildin Gerður Fundir ITC deildarinnar Gerðar verður haldinn í dag, 16. maí, kl. 19.30 í Viðey. Stef fundarins er: Alltaf má fá annað skip og annað fóruneyti. Á dagskrá er m.a. kynning á hjúkrunarstörfum og innsetn- ing nýrrar stjómar. Upplýsingar veita Bjamey í s. 641298 og Dagmar s. 45934. Foreldrafélag misþroska barna heldurfund Nú er 3. starfsári Foreldrafélags mis- þroska barna að ljúka. Síðasti fundur vetrarins verður haldinn í dag, 16. maí, kl. 20.30 í Æfingadeild Kennaraháskólans á mótum Bólstaðarhlíðar og Háteigsveg- ar. Fundarefni verður: Réttindi barna til aðstoðar í skólakerfmu og hjá Trygginga- stofnun. Arthur Morthens verður gestur ásamt Þór Þórarinssyni frá-Svæðisstjórn Reykjaness. Foreldrar og aðrir em hvatt- ir til að koma, ræða málin og kynna sér þaö sem er að gerast. Neytendafélag Borgarfjarðar efnir til fundar í Félagsbæ, húsi Verka- lýðsfélags Borgamess, í kvöld, 16. maí, kl. 20.30. Á fundinum verður þallað um eftirfarandi efni: Opin svæði - einkagarö- ar, samspil manns og náttúm. Landslags- arkitektamir Kolbrún Þóra Oddsdóttir og Ragnar Frank Kristjánsson flytja er- indi og útskýra teikningar. Sædís Guð- laugsdóttir garðyrkjufræðingur fjallar um vorverk í görðum. Fundurinn er öll- um opinn. Neytendafélag Borgarfjarðar hefur á undanfórnum ámm efnt til margra fræðslufunda og hafa þeir verið vel sóttir. Tilkyimingar Sögusnældur - ævintýri ffyrir börn Hörpuútgáfan hefur gefið út í nýrri út- gáfu átta ævintýrasnældur. Hér er um að ræða gullkorn úr barnabókmenntum: Þekktustu ævintýri H. C. Andersen, æv- intýri úr þjóðsögum Jóns Árnasonar, ævintýri eftir Zacharías Topehus og fleiri gömul og góð ævintýri. Barnasögur á snældum njóta stöðugt vaxandi vinsælda og em kærkomin hvíld frá sjónvarpinu. Sögumaður ævintýranna er Ileiðdís Norðúörð sem er löngu kunn fyrir vand- aðan flutning á bamaefni í bamatímum ríkisútvarpsins. Snældumar em unnar í Hljóðrita í Hafnarfiröi. Kápugerö og teikningar em eftir Brian Pilkington. Litgreint og prentað í Prentsmiðjunni Odda hf. Auk framantalinna sögusnælda hefur Hörpuútgáfan á boöstólum snæld- ur með sögum og ævintýrum eftir Heiö- dísi Norðfjörð, sögur fyrir svefninn og jólasögur, alls sextán sögusnældur. Ferðafélag íslands Miðvikudagur 16. maí kl. 20. Sólarganga við Slunkariki og Lónakot. Mætum vel í fyrstu kvöldgöngu vorsins. Verð 500 kr., frítt f. börn m. fullorðnum. Brottfor frá Umferðarmiðstöðinni, aust- anmegin. Allir velkomnir. Munið þriðja áfanga í afmælisgöngunni kl. 10.30 og 13 sunnudaginn 20. mai. Jakkafatadagar í herra- fataverslun Birgis Dagana 16.-20. maí hyggst Herrafata- verslun Birgis standa fyrir svokölluðum , jakkafatadögum" í versluninni að Fáka- feni 11. Á jakkafatadögunum verður bryddað upp á mörgum nýjungum sem koma ættu áhugafólki um karlmanna- tísku skemmtilega á óvart. Meðal annars verður kynnt sumartískan frá ýmsum tískumerkjufti. Boðið verður upp á sér- pantanaþjónustu á jakkafótum. Að auki veitir Herrafataverslun Birgis 15% af- slátt af öllum jakkafotum í búðinni með- an á jakkafatadögunum stendur. Há- punktur daganna verður á Hótel íslandi að kvöldi 19. maí þar sem Icelandic Mod- els sýna það helsta í herrafatatískunni. Herrafataverslun Birgis áformar að standa fyrir ýmsum öðrum „fatadögum" í framtíðinni, þar sem boðnar veröa vör- ur, verð og þjónusta sem ekki eru á boð- stólum dagsdaglega. Hjartans þakkir til allra er sjndu mér vinarhug með heimsókn- um, höfðinglegum gjöfum og skeytum á 8j ára afrnœli mínu þann 12. maísíðastliðinn. GuÖ blessijkkur öll Alexander Guðjónsson Kvikmyndir___________________________ Laugarásbíó - Pabbi *** Þrjár kynslóðir þumbara Hér er karldýr tegundarinnar homo sapiens tekið fyrir og rann- sakað á dálítið sérstakan hátt. Karlmenn eru lokaðir og bældir tilfinningalega og verða fyrir vikið iöulega afskiptir þegar hin mýkri gæði lífsins eru annars vegar. Eina leiðin fyrir þá til að breyta þessu er að koma út úr skelinni, eða jakkafötunum, og leyfa sér að skæla þegar það á við og hlæja eins og fávitar, eða yfirleitt gera það sem rödd hjartans segir þeim hverju sinni. Jack Tremont er kvaddur heim þegar móðir hans er lögð inn á sjúkrahús vegna hjartaáfalls. Hann kemst að því að í langri fjarveru hans hefur faðir hans hrörnað og elst mikið og er orðinn hálfgert skar sem viljasterk móðirin stjóm- ar eins og leikbrúðu í smæstu atrið- um. Hann nær að lífga föður sinn talsvert við og kemur hans eigin sonur nokkuð þar við sögu en sá er hændari að afa sínum en föður. Atburðarásin í myndinni er nokkuð margþætt og koma margar skrautlegar persónur við sögu. Leikstjórinn Goldberg sem einnig skrifaði handritið eftir sögu Will- iam Wharton hefur hér unnið mjög frambærilegt verk. Þrátt fyrir upp- runa sinn er myndin furðu lítið væmin og tekst oft að sýna erfið og viðkvæm samskipti í raunsæju Jack Lemmon er bráðskemmtileg- ur og dregur upp sannfærandi mynd af gamla manninum. ljósi og draga upp skýra mynd af fjölskyldu sem er aðeins samstæð á yfirborðinu en líður fyrir skort á nánum samskiptum. Þetta er auð- vitað aðeins hægt með góðum lei- kurum. Ted Danson sem er í miklu dá- læti vestra um þessar mundir leik- ur Jack og ferst það nokkuð vel úr hendi. Þó ber hann það með sér að hlutverk af þessu tagi eru ekki beinlínis sniðin fyrir hann. í nokkrum atriðum ræður hann ekki við verkefniö. Jack gamli Lemmon er eins og fiskur í vatni í sínu hlut- verki. Hann leikur af miklu öryggi og dregur upp bráðskemmtilega og sannfærandi mynd af manninum sem á hverjum morgni í 40 ár mætti í vinnuna sem hann hataði og telur sig því eiga rétt á gleði á sínum síðustu dögum. Ethan Hawke leikur Billy sonar- son. Stráksi er flinkur leikari þó ungur sé og minnast áhorfendur eflaust glæsilegrar frammistöðu hans í Dead Poets Society. Hawke sýnir þarna að hann er leikari sem vert er að gefa gaum í framtíð- inni. Hér er á ferðinni mynd sem eflaust höföar ekki sérstaklega til þess unga og áhyggjulausa fólks sem einu nafni nefnast bíógestir og hefur trúlega ekki eirð í sér til að sitja undir þessari „tilflnninga- vellu“. Hinir sem hafa gaman af góðum leik og dálítið alvarlegri kvikmyndagerð geta alveg séð af einni kvöldstund í félagsskap Tremont fjölskyldunnar. Dad - amerisk - Laugarásbíó. Aöal- hlutverk: Ted Danson, Jack Lemmon, Olympia Dukakis og Ethan Hawke. Páll Ásgeirsson Merming Norrænir útvarpsdjassdagar: 8 Norræna stórsveitin í Borgarleikhúsinu Sá sem þetta ritar var svo óheppinn að missa af fyrri hluta tónleika á sunnudagskvöldið vegna auglýsingar er kynnti að þeir hæfust kl. 22.00 í stað 21.00. Því er lítið hægt að segja frá upphafi tónleikanna. Ég heyri þó, akkúrat núna þegar þetta er ritað, lokatónana í verki Stefáns S. Stefánssonar, „Vindhviður“, af seg- ulbandi. Heyra má rokk- og latinsveiflu og ekki fer milli mála að Stefáni lætur vel að skrifa fyrir stór- sveit, eins og hann sýndi og sannaði, er hann var feng- inn til að skrifa fyrir stórsveit danska útvarpsins í hittifyrra, en það verk hlaut mjög góðar viðtökur ytra. Einleikarar hjá Stefáni núna voru hinir frábæru Finnar Markku Johanson á flygilhorn og trommarinn Jartsa Karonen. Stjórnandi var Jukka Linkola „For- spil til en dansk folkesang" eftir Ole Koch Hansen var næst á dagskrá. Ljúf melódía með þjóðlegum blæ og rokkaður sólókafli. En það er vont mál að fjalla um tónleika eftir segulbandsupptöku og best að hætta slíku strax. Við náðum að heyra þrjá kafla af fimm úr hinni ágætu „Jazz Ballroom“ svítu Gugge Hedreniusar sem hann stjórnaði sjálfur og dansaði gjarnan um sviðið Djass Ingvi Þór Kormáksson samkvæmt mottói sínu, að hollt sé að dansa og fólk skuli láta sálina í sér dansa hafi fæturnir ekki pláss. Eftir hlé tók svo Jukka Linkola aftur við sem stjórn- andi sveitarinnar, er hún flutti verk hans „Malaria", „Syrena“, „The Game is Over“, „Ice“ (frekar en ,,Eyes“?), fallegt og dulúðugt verk, og að síðustu „Fri- ends“, þar sem skandínavísku trommararnir þrír léku m.a. listir sínar. Jukka er svaka fínn útsetjari og þetta var hátíðlegur endir á Norrænu útvarpsdjassdögunum í Reykjavík. Hljómsveitin í smóking, hljómaði vel og einleikarar stóöu sig með prýði eins og við var að búast. Þá er víst ekki annað eftir en að þakka fyrir sig. Sem ég geri hér með og eflaust fyrir hönd íjölmargra ánægðra gesta sem sóttu þessa ágætu músíkhátíð. Fjölmiðlar DV Að láta kvömina mala Það var ánægjulegt að setjast í sófann í gærkvöld, halla sér aftur og hlusta á útvarpsleikrít, eitt af þessum gömlu góðu. Leikritiö hét Þegar tunglið ris og er eftir ein- hverja lafði Gregory. Þetta var upptaka írá 1963 og þar var að heyra gamalkunnar leikara- raddir. Leikritið ijallaði í stuttu máli um leit lögrelgumanna að fanga sem sloppið haföi úr fangelsi á írlandi. Atburöarásin átti sér staö að kvöldi til við höfnina þar sem lögregluforingi nokkur sat fyrir þrjótnum. Sá sem leitað er að kem- ur að höfninni í gervi farandsöngv- ara. Eftir nokkra söngva og sam- ræöur við lögregluforingjann hefur hann á kænlegan hátt fengið yfir- valdiö til að setja skyldur sínar til hliðar, þó svo að eitt hundrað pund væru í veði, og leyfa sér aö komast í bát sem væntanlegur var til að sækja hann. Þannig fór sú saga. Þetta leikrit var ekki yfirmáta merkílegt en nógu vel gert til að standast tímans tönn, Það sem hins vegar vakti mann sérstaklega til umhugsunar var hversu sjaldan maður gefur sér tíma til að hlusta á útvarpsleikrit núorðið. Það er synd. Maður nán- ast gleymir því hve gaman er að þurfa að ímynda sér sögusviðið og persónumar, útlit og þeirra hegð- an. Hugsið ykkur hve gaman það er að nota ímyndunaraflið, láta kvörnina mala. Kannski er einmitt þaö orðið of erfitt fyrir sjóvarps- fíkilinn. Hann er mataður bæði um eyru og augu og litíð verður eftir fýrir ítnyndunaraflið. Leikrit vik- unnar var nánast helgistund á flestum heimilum hér óður, synd að svo skulí ekki vera lengur. Haukur Lórus Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.