Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 32
48 MIÐVIKUDAGUR 16. MAI 1990. Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11 Fataskápar frá 9.990. Líttu á okkar verð fyrst. • Nr. 303, h. 197, br. 150, d. 52 cm, kr. 19.408. »Nr. 304, h. 197, br. 100, d. 52 cm, kr. 17.351. Yfir 20 gerðir, ýmsir litir. Nýborg, Skútuvogi 4, sími 91-82470. Kokkajakkar, buxur, svuntur og húfur. Mjög hagstætt verð. Komið og kynnið ykkur nýja bæklinginn. Merkjum kokkajakka. Burstafell, Bíldshöfða 14, sími 38840. Dráttarbeisli, kerrur. Framleiðum allar gerðir af kerrum og vögnum. Original (I.S.Ó.) staðall dráttarbeisli á allar teg. bíla. Áratuga reynsia. Allir hlutir í kerrur og vagna. Hásingar 500 kg 20 tonn, með eða án bremsa. Ódýrar hestakerrur og sturtuvagnar á lager. Veljum íslenskt. Víkurvagnar, Dal- brekku, símar 91-43911, 45270. Hornsófar, sérsmiðaðir eftir máli. Sófa- sett og stakir sófar. Bjóðum upp á marga gæðaflokka í Ieðri. Leðurlux og áklæði. íslensk framleiðsla. GB-húsgögn, Bíldshöfða 8, sími 91- 686675. Nýtt: Skóskápurinn Maxi leysir vandann. Engir skór lengur út um öll gólf. Nauðsynleg nýjung fyrir öll heimili. Nýborg hf., Skútuvogi 4, Ármúla 23, sími 82470. ■ Vagnar 16 feta hjólhýsi, glænýtt, aldrei verið notað, árg. 1989, er mjög vel einangr- að, með tvöföldu gleri. Gas/rafísskáp- ur og allur annar hugsanlegur búnað- ur, fortjald getur fylgt. Hagstætt verð. Uppl. í síma 91-17678 milli kl. 17 og 21. Húsgögn Speglar, speglar! Langir, mjóir, stuttir, breiðir, stórir, litlir, kringlóttir, kant- aðir o.s.frv. í brúnum, gylltum og rósa- máluðum trérömmum. Ca 40 teg. Einnig standspeglar. Nýja Bólstur- gerðin, Garðshorni, sími 91-16541. ■ Bátar Útgeróamenn - skipstjórar - sport- veiðimenn. Nokkrum 4 5 manna vinnu- eða sportbátum frá Sillinger óráðstafað. Bátarnir eru í rauðum endurskinslit. 10 ára ábyrgð framleið- anda á litheldni. Hafið samband og fáið nánari uppl. I'ris hf., sími 91-76050. ■ Varáhlutir Benzfelgur til sölu, 14" original Benz- felgur, verð aðeins 6 þús. stykkið. Uppl. í síma 91-44107. Bflar tfl sölu GMC pallbíll, vinnu- og ferðabill með 6,2 1 dísilvél og 4ra hjóla drifi, árg. ’83, ekinn 77 þús., eins og nýr, með vökvaknúinni snjótönn og Camper- húsi, sem er lágt á keyrslu en hátt í notkun. 4 svefnpokapláss, eidhús m/ís- skáp og hiti. Selst saman eða sitt í hvoru lagi. S. 91-17678m. kl. 17 og 21. BMW 520ÍA ’88 til sölu, ekinn 26 þús. km, demantssvartur, sjálfskiptur, sól- lúga, sumar- og vetrardekk, álfeglur, útvarp/segulband o.fl. Uppl. í símum 91-621122 á daginn, og 91-13569 á kv. Sumarbústaðir Seljum norsk hellsárshús. Stærðir 24 fm, 31 fm, 45 fm, 52 fm, 57 fm, 72 fm, v 102 fm. Verð frá kr. 1.280.000. R.C. & Co hf., sími 670470. Japanskur pallbill, Isuzu ’82, ekinn 80 þús. km, dísil, með mæli, drif á öllum hjólum, góð dekk, burðargeta 1,2 tonn, hentugur fyrir útgerð o.fl. Húsið er hægt að taka af. Verð 390 þús. Uppl. í síma 91-17678 milli kl. 17 og 21. Daihatsu Charade ’88 til sölu. Vel með farinn dekurbíll í topp standi. Aðeins staðgreiðsla kemur til greina. Uppl. í síma 34035. Ford 80 pallbill með tvöföidu húsi, ný dísilvél, 2ja tonna, tvöföld dekk að aftan. Bifreiðasala fslands, Bíldshöfða 8, sími 675200. Til sölu MMC L300 4x4, árg. ’88, ekinn 39.000 km, tvílitur.Uppl. í síma 92-12410. Þessi glæsilega Porsche 911 bifreið er til sölu. Allar nánari uppl. veitir Bíla- miðstöðin í sftna 678008. Toyota Hilux árg. ’85, ekinn 76 þús., bensín 2,2, 36” dekk, loftdæia, rörstuð- ari, stólar, Ranco fjaðrir og demparar, lækkuð drif. V. 1200 þús, skipti koma til greina á mótorhjóli og bíl. Bílasala Ragnars Bjarnasonar, s. 673434. Audi Quattro 100, árg. ’85, 4x4, 5 gíra, sóilúga, centrallæsingar o.fl. Toppbíll, skipti á ódýrari möguleg. Uppl. í sima 15883 eða 77154 e.kl. 18. ▼ ■ Ymislegt Akryl pottar, með og án nudds, verð frá 75.142.-, sýningarpottur á staðnum, allir fylgihiutir fáanlegir. Hönnun, sala, þjónusta. K. Auðunsson hf, Grensásvegi 8, sími 91-686088. Mjög sterk gróðurhús til sölu, stærðir frá 6,8-40 fm, með 4,2 mm gleri. Hafa staðið af sér öll veður í vetur. Tilvalið yfir hitapotta. Fáanleg í litum. Garð- skálar hf., Lindarflöt 43, s. 657737. Menning Sígilt og nýmóðins - ný finnsk tónlist á diskum Þar sem finnsk tónlist hefur verið mjög fyrirferðar- mikil í íslensku tónlistarlífi undanfarin misseri, ekki síst fyrir tilstilli Sinfóníuhljómsveitar íslands og stjórnanda hennar, Petri Sakari, er ekki úr vegi að fara hér nokkrum orðum um nýja geisladiska frá Finl- andia útgáfufyrirtækinu. Þetta fyrirtæki hefur áður verið til umræðu í þessum dálkum, og ekki að ófyrirsynju, því á undanfórnum árum hefur það kappkostað að gefa út helstu perlur finnskrar tónlistar með aöstoð bestu tónlistarmanna, finnskra sem annarra, og nýjustu upptökutækni. Segja má að fyrirtækið hafi beinhnis stuðlað að því að breyta ímynd finnskrar tónhstar í hugum æði margra tónlistarunnenda utan Finnlands, einkum í enskumælandi löndum. Áður settu menn sjálfkrafa samansemmerki milh finnskrar tónlistar og Síbelíus- ar, en nú vita þeir að minnsta kosti af öðrum finnskum tónskáldum, bæði módernistum eins og Merikanto, Englund og Madetoja, og nútímatónskáldum eins og Kokkonen og Sallinen, þökk sé Finlandia útgáfunni. Um leið hefur hún innt af hendi mikilsverða land- kynningu. Verk meistarans Sem þýðir ekki að Finlandia forsómi sjálfan Síbelíus heldur gefur það reglulega út nýjar túlkanir á verkum meistarans. Nýverið kom til dæmis út geisladiskur (FACD 360) með nokkrum vinsælustu tónverkum Sí- belíusar, fiðlukonsertinum fræga, sem nú er til í að minnsta kosti þrettán útgáfum bara á geisladiskum, og Finlandia og Karelía svítunum. í þetta sinn er það tiltölulega lítt þekktur fiðluleik- ari frá ísrael, Miriam Fried, sem fer með aðalhlutverk- ið. Og gerir það stórvel, nær fram miklum syngjandi í leik sínum, teygir auk þess úr hæga kaflanum (adagio di molto) uns hann virkar hæfilega angurvær. Fíl- harmóníuhljómsveitin í Helsinki undir stjórn Okko Kamu gerir svítunum síðan bestu skil. Frönsk áhrif Einn af módernistunum sem nefndur var hér áðan, Leevi Madetoja, á tvær sinfóníur á öðrum geisladiski (FACD 011). Madetoja (1887-1947) var einrænn og þunglyndur persónuleiki sem fór nokkuð aðrar leiðir í tónsmíðum en ílestir samtímamenn hans í Finn- landi. Þeir sóttu sér gjaman menntun og innblástur til Þýskalands, en Madetoja ggkk í smiðju til franskra tónskálda af impressjóníska skólanum, Ravel, Roussel og Saint-Sans. Ahrifa þeirra, svo og Síbelíusar, gætir í sinfóníunum á þeim diski sem hér er til umræðu, nr. 2 & 3, sem eru með ljóðrænu sniði, en þó þrungin óróa og spennu. Hvort tveggja era áhrifamikil verk sem vert væri að kynna hér á tónleikum. Fílharmóníu- hljómsveitin í Tampere leikur fyrri sinfóníuna undir stjóm Paavo Rautio en Helsinki filharmónían þá seinni, stjómandi þar er Jorma Pahula. Finnska tónskáldið Leevi Madetoja. Tórdist Aðalsteinn Ingólfsson Kammerverk Avanti kammersveitin var stofnuð af nokkrum ung- um finnskum hljómsveitarstjórum, þar á meðal Jukka-Pekka Saraste og Esa-Pekka Saíonen, sem báðir era vel þekktir hér á landi. Þessi kammersveit hefur á stefnuskrá sinni að leika og kynna lítt þekkt kam- merverk finnskra tónskálda. Á fyrstageisladiski sveit- arinnar (FACD 365) eru verk eftir Aare Merikanto (1893-1958), lærisvein hans, Paavo Heininen (f. 1938) og Magnus Lindberg (f. 1958), sem nam hjá Heininen. Merikanto var einn af frumkvöðlum nútímatónlistar í Finnlandi og mætti miklum andbyr meðan hann hfði. Þaö var svo upp úr 1970 að farið var að endurmeta tónhst hans, og full ástæða th, ef marka má „10 hljóm- sveitarkafla“ hans á umræddum diski. Hljómsveitarkaflamir eru í anda Debussy, í senn lagrænir og með innbyggðu expressjónísku áreiti, og er hver og einn lítið meistaraverk. Verk Heininens hefur sérkennilega hljóðfæraskipan: klarínett/saxó- fónn, fiauta, harpa, fiðla, selló og slagverk, og þróast í ýmsar áttir, mestmegnis í blæbrigðaleit, er þó þægi- lega ljóðrænt. Yngsta tónskáldið, Lindberg, á síðan það verk sem er erfiðast áheyrnar „Ritratto" (portrett) fyrir 18 hljóö- fáeri. Þetta er tónverk með tilraunasniði, ýmiss konar tóneffektar era prófaðir en ekki leiddir til lykta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.