Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 16. MAI 1990. 51 f 3 í 1 1 \ I í ; Afmæli Hundrað ára Guörún Sigríður Bergþórsdóttir, Dvalarheimili aldraöra, Borgarnesi, er hundraö ára í dag. Guðrún Sigríð- ur er fædd á Brennistöðum í Borgar- hreppi og ólst upp á Ölvaldsstöðum. Hún var í námi í Alþýðuskólanum á Hvítárbakka 1906-1907 og síðan í húsmæðradeild Kvennaskóla Reykjavíkur. Guðrún var einn stofnanda og í stjórn Kvenfélags Borgarness. Hún var í stjórn nefnd- ar kvenfélagsins sem sá um fram- gang Skallagrímsgarðs í Borgarnesi og tók virkan þátt í stjórn hans. Guörún er ern og við góða heilsu og hefur búið heima í sínu eigin húsi þangað til fyrir einu ári að hún flutti á elliheimih Borgarness. Guð- rún giftist 1911 Þorkatli Guðmunds- syni, f. 26. nóvember 1874, kaup- manni í Borgarnesi. Foreldrar Þor- kels voru Guðmundur Auðunsson, b. í Jafnaskarði í Stafholtstungum, og kona hans, Guðrún Bjarnadóttir. Dætur Guðrúnar og Þorkels eru Guðrún Lilja, f. 26. júlí 1914, hjúk- runarfræðingur í Rvík, gift Gunnari Sigurðssyni, sonur þeirra er Gunn- ar, f. 17. september 1949, sálfræðing- ur, og Þórdís, f. 5. desember 1917, íþróttakennari, gift Kristjáni Fjeldsted, b. í Ferjukoti í Borgar- firði. Synir þeirra eru Sigurður Fjeldsted, f. 9. apríl 1941, Þorkell Fjeldsted, f. 28. ágúst 1947, b. í Ferju- koti, og Guörún Fjeldsted, f. 30. des- ember 1952, reiðkennari. Guðrún giftist 16. nóvember 1928 seinni manni sínum, Jóhanni Magnússyni, f. 5. maí 1874, d. 22. mars 1950, spari- sjóðsstjóra í Borgarnesi. Foreldrar Jóhanns voru Magnús Jónsson, b. í Glerárskógum í Hvammssveit, og kona hans, Guðbjörg Einarsdóttir. Sonur Guðrúnar og Jóhanns var Reiðar, f. 18. júní 1931, d. 1979, starfs- maður Mjólkursamlags Borgarness, kvæntur Hönnu Marinósdóttur. Systkini Guörúnar: Bergþór, f. 13. maí 1893, d. 17. nóvember 1967, b. á Ölvaldsstöðum, kvæntur Ásgerði Þorvarðardóttur; Halldóra, f. 27. fe- brúar 1888, gift Niels Petersen, veiðimanni í Vancouver; Sigurjón, f. 21. febrúar 1886, d. 17. mars 1887, ogGuðmundur, f. 7. júlí 1883, d. 17. júlí 1883. Bróðir Guðrúnar, sam- feðra, var Steinar, f. 1. desember 1896, d. 12. maí 1897. Foreldrar Guðrúnar voru Bergþór Bergþórsson, f. 14. mars 1854, d. 19. desember 1941, b. á Ölvaldsstöðum, og kona hans, Halldís Guðmunds- dóttir, f. 26. febrúar 1855, d. 24. sept- ember 1926. Bergþór var sonur Bergþórs, b. og hafnsögumanns í Straumfirði, Bergþórssonar, b. og sjómanns á Lambastöðum í Álfta- neshreppi, bróður Ármanns, langafa Gauks Jörundssonar, um- boðsmanns Alþingis. Annar bróðir Bergþórs var Eyjólfur, langafl Hall- dórs Reynissonar, prests í Hruna. Bergþór var sonur Bergþórs Þor- valdssonar, b. í Þverholtum, Sig- urðssonar og konu hans, Kristínar Árnadóttur. Móðir Bergþórs á Öl- valdsstöðum var Guðrún Sigurðar- dóttir, b. á Langárfossi, Sigurðsson- ar, og konu hans, Guðrúnar Odds- dóttur, b. á Hvítsstöðum, Magnús- sonar. Móðir Odds var Ragnheiður Oddsdóttir, systir Margrétar, langömmu Sveins Helgasonar á Hvítsstöðum, afa Magnúsar Þor- grímssonar, sálfræðings i Rvík. Móðir Sigurðar var Hallfríður Jóns- dóttir, b. á Hamraendum, Halldórs- sonar, lögréttumanns á Smiðjuhóli, Axelssonar, lögréttumanns á Hömr- um í Grímsnesi, Jónssonar, sýslu- manns á Reynisstað, Sigurðssonar, lögmanns í Einarsnesi, Jónssonar. Móðursystir Guðrúnar var Hali- dóra, amma Axels Blöndal læknis, fóður Hannesar Blöndal prófessors. Halldís var dóttir Guðmundar, b. og hreppstjóra í Hjörsey, Sigurðssonar, bróður Jóns, langafa Guðjóns Frið- rikssonar sagnfræðings. Móðir Halldísar var Jóhanna, systir Höllu. langömmu Jóns Oddssonar hrl. Jó- hanna var dóttir Jóns, dbrm. og hreppstjóra í Álftanesi, Sigurðsson- Guðrún Sigriður Bergþórsdóttir. ar, og konu hans, Ólafar Jónsdótt- ur, útvegsb. í Háteigi á Akranesi, bróður Þorsteins, langafa Bjarna Þorsteinssonar, prests og tónskálds á Siglufirði. Jón var sonur Einars, prests í Vindási í Kjós, Torfasonar, prófasts á Reynivöllum í Kjós, Hall- dórssonar, bróður Jóns, prófasts og fræðimanns í Hítardal, föður Finns, biskups í Skálholti. Móðir Einars var Sigríður Pálsdóttir, prófasts á Gilsbakka, Gunnarssonar, og konu hans, Helgu Eiríksdóttur, b. á Fitj- um, Oddssonar, biskups í Skáiholti, Einarssonar. 85 ára Jón Jónsson, Varmadal I, Kjalarnesi. 80 ára Aðalheiður Loftsdóttir, Völlum við Breiöholtsveg, Reykjav. Anna G. Hallmundsdóttir, Kúrlandi 8, Reykjavík. 75 ára Þórður Bogason, Rauðalæk 18, Reykjavík. Jóna Guðrún Stefánsdóttir, Maríubakka8, Reykjavík. Ragna Stefánsdóttir, Silfurbraut 6, Hofshreppi. EsterLandmark, Hafnargötu 10, Siglufirði. 60 ára Þórarinn Þórarinsson, Þórustíg 32, Njarðvík. Engilbert Halldórsson, Bröttugötu 12, Vestmannaeyjum. 50ára Sigurjón Skúlason, Lyngheiði 25, Hverageröi. Erna Sampsted, Stórholti 25, Reykjavík. Fanney Haraldsdóttir, Stafnesvegi 3, Miöneshreppi. 40 ára Hjálmar Jónsson, Lambastaðareykjum, Fljótahreppi. Guðrún Gerður Sæmundsdóttir, Hraunbæ 22, Reykjavík. Hólmfríður Þóröardóttir, Smáragrund 1, Sauðárkróki. Steinunn Ámundadóttir, yíðimel, Seyluhreppi. Ásta Michaelsdóttir, Fagrabergi 52, Hafnarfirði. Anna Gunnlaug Jónsdóttir, Asparfelli 2, Reykjavík. Eyþór Borgþórsson, Flúðaseli 14, Reykjavík. HörðurÓlafsson, Víðihlíö 12, Sauðárkróki. Ólafía Þórðardóttir Ólafía Þórðardóttir húsmóðir, sem nú dvelur að Sólvangi í Hafnarfirði, er níutíu og fimm ára í dag. Ólafía fæddist í Gerðum í Landeyj- um. Hún ólst upp frá tveggja ára aldri hjá Þorsteini Thorarensen á Móeiðarhvoli, og konu hans, Sól- veigu Guðmundsdóttur. Hún fiutti til Reykjavíkur og giftist þar 22.1. 1916 Böðvari Jónssyni, f. í Dagverð- arnesi9.3.1894, en hann drukknaði 1920. Dóttir Ólafiu og Böðvars er Ingunn Böðvarsdóttir, f. 10.7.1917. Annar maður Ólafíu var Guð- mundur Ólafsson, f. 13.2.1896, frá Skuld í Reykjavík, en þau slitu sam- vistumeftirsexár. Börn Ólafiu og Guðmundar eru Anna Guðmundsdóttir, f. 4.10.1921, Hermann Ingólfur Guðmundsson, f. 17.10.1925, d. 1989, og Helga Bryn- dís Guðmundsdóttir, f. 9.11.1926. Þriðji maður Ólafíu er Stefán Hannesson, en þeirra dóttir var Jó- hanna Rósa, f. 10.2.1931, d. 1965. Auk þess ól Ólafía upp aö miklu leyti elsta barnabarn sitt, Ólaf Böð- var Erlingsson, f. 1.8.1934, en af- komendur Ólafíu eru nú orðnir um áttatíu tcdsins. Auk húsmóðurstarfanna vann Ól- afía i fískvinnu og stundaði hrein- gerningar og þvotta. Hún hefur ætíð verið söngelsk, söng lengi í kórum og spilaði á orgel. Ólafía er tvíburi en tvíburasystir Ólafía Þórðardóttir. hennar, Kristjana, lést 18.4.1964. Þá átti hún alsystur, Soffíu að nafni, f. 24.7.1887. Auk þess átti svo Ólafía þrjúhálfsystkini samfeðra, Kristj- án, f. 2.6.1876, Helga, f. 30.9.1877 og Hjört, f. 25.9.1883, en hálfsystir hennar sammæðra var Ingunn Bárðardóttir, f. 17.5.1880, d. 11.2. 1916. Foreldrar Ólafíu voru Þórður Þórðarson á Melum á Kjalarnesi, f. 28.9.1844, d. 20.3.1897, og Ingunn Eiríksdóttir frá Litlagerði í Hvol- hreppi, f. 30.7.1851, d. 21.9.1940. Ingunn var dóttir Eiríks Berg- steinssonar, b. á Árgilsstöðum í Fljótshlíð, og Margrétar Snorradótt- ur. Meyvant Meyvantsson Meyvant Meyvantsson leigubif- reiðastjóri, Nesvegi50, Reykjavík, er sextugurídag. Meyvant fæddist í Reykjavík og ólst þar upp en hann hefur ætíð átt þar heima. Hann hóf nám í bif- vélavirkj un en hætti námi og fór að aka vörubíl hjá Þrótti fyrir fóður sinn, Meyvant Sigurðsson frá Eiði. Mey vant vann síðan við akstur á eigin bíl, ýmist viö vöru- eða fólks- flutninga. Um tíu ára skeið var Meyvant til sjós og þá sem mat- sveinn eða vélstjóri. Frá 1970 hefur Meyvant ekið eigin bíl hjá BSR. Meyvánt gekk ungur í Sjálfstæð- isflokkinn og hefur gegnt þar ýms- um trúnaðarstörfum. Meyvant kvæntist 26.12.1957 Huldu Harðardóttur, fóstru og hús- móður, f. 15.2.1937, dóttur Harðar Sigurjónssonar bifreiðastjóra, f. 2.8.1913, og Friðbjargar Hannes- dóttur húsmóður, f. 27.1.1911, d. 8.9.1989, en þau Hörður og Frið- björg störfuðu lengst af hjá Reykja- lundi. Börn Meyvants frá því fyrir hjónaband: Anna M. Kervin, f. 18.3. 1950, húsmóðir í Texas í Bandaríkj- unum, gift Butch Kervin, f. 16.1. 1940 en börn Önnu eru Aðalheiður, f. 7.8.1970, og Halldór Jón, f. 15.9. 1968, en sonur hans er Jóel Daði, f. 5.8.1987; Guðmundur, f. 23.10. 1955, í sambýli með Lindu Baldurs- dóttur, f. 12.8.1963, en synir Guð- mundar eru ívar, f. 1.2.1988, og Guömundur, f. 2.8.1979; Stella, f. 10.12.1955, en sonur hennar er Sig- urður Þórarinsson, f. 27.12.1976. Sonur Meyvants og Huldu er Sig- urður Frímann, f. 1.12.1969. Systkini Meyvants: Sigurbjörn Frímann, f. 26.6.1913, d. 31.1.1951; Þórunn Jónína, f. 2.8.1914, d. 11.8. 1981; Valdís, f. 4.1.1916; Sverrir Guðmundur, f. 6.10.1919; Sigriður Rósa, f. 2.6.1918; Ríkarður, f. 20.1. 1922, d. 7.1.1983; Þórólfur, f. 23.8. 1923, ogElísabet, f. 24.5.1927. Foreldrar Meyvants: Meyvant Sigurðsson, f. 5.4.1894, bifreiða- stjóri í Reykjavík, og kona hans, Björg María Elísabet Jónsdóttir, f. 26.12.1891, d. 13.1.1974. Meyvant, faðir afmælisbarnsins, er sonur Sigurðar Frímanns Guð- mundssonar, sjómanns í Guðnabæ í Selvogi, og Sigurbjargar Sigurðar- dóttur. Bróöir Siguröar í Guðnabæ var Ólafur, afi ívars Jónssonar, skrifstofustjóraÞjóðleikhússins. Sigurður í Guðnabæ var sonur Guðmundar, b. í Sogni í Ölfusi, Ólafssonar, b. í Hvammi í Ölfusi, Ásbjarnarsonar, b. á Hvoli, Snorra- sonar, bróður Jóns, afa Valgerðar, seinni konu Jóns Sæmundssonar, ættföður Húsatóftaættarinnar. Móðir Guðmundar var Inghildur, systir Jóns, langafa Halldórs Lax- ness. Annar bróðir Inghildar var Einar, langafi Vals leikara, föður Vals bankastjóra og Garðars, föður Guömundaralþingismanns. Systir Inghildar var Solveig, langamma Arinbjarnar Kolbeinssonar læknis. Inghildur var dóttir Þórðar, b. á Vötnum, Jónssonar og konu hans, Ingveldar, systur Gísla, langafa Vilborgar, ömmu Vigdísar Finn- bogadóttur. Bróðir Ingveldar var ' Guðmundur, langafi ðlafs, afa Ól- afs Ólafssonar landlæknis. Guð- mundur var einnig langafi Lilju, ömmu Karls Kvaran listmálara. Annar bróðir Guömundar var Jón, langafi Konráðs, langafa Júlíusar Hafstein borgarfulltrúa. Ingveldur var dóttir Guðna, b. í Reykjakoti, Jónssonar, ættfööur Reykjakots- ættarinnar. Móðir Siguröar var Þóranna Rósa Ólafsdóttir, smiðs á Vatns- enda í Vesturhópi, Ásmundssonar, b. á Halldórsstöðum í Laxárdal, Sölvasonar. Móðir Þórönnu var Vatnsenda-Rósa skáld, systir Sig- ríðar, langömmu Sigurðar Nordal og Jónasar Kristjánssonar læknis, afa Jónasar Kristjánssonar rit- stjóra. Elísabet, móðir afmælisbarnsins, var dóttir Jóns, frá Dölum í Fá- skrúðsfirði, Bjarnasonar, b. þar, bróður Þorbjargar, móður Jóns Ólafssonar, ritstjóra, skálds og al- þingismanns, föður Sigríðar, móð- ur Hákonar skógræktarstjóra og Jóns Ólafs verkfræðings, föður Halldórs, forstjóra Steypustöðvar- innar. Kona Bjarna í Dölum var Elísabet Þórólfsdóttir. MóðirElísabetarvarÞórunn < Bjarnadóttir. Móðir Þórunnar var Málfríður Jónsdóttir frá Núpstaða- hjáleigu, systir Lísbetar, föð- urömmu Ríkarðs myndhöggvara og Finns listmálara Jónssona. Meyvant tekur á móti gestum á Hótel íslandi í dag, klukkan 16-19:00. Guðrún Guðmundsdottir Guðrún Guðmundsdóttir, fyrrv. húsfreyja í Fagrahvammi við ísa- fjörð, nú til heimilis að Stórholti 9 á ísafirði, er áttræð í dag. Guðrún fæddist að Brekku á Ingj aldssandi og bjó þar sina bernsku- daga. Hún bjó í Hveragerði sem húsfreyja frá 1934-48 og var síðan bóndakona í Fagrahvammi við ísa- íjörö frá 1949-86. Þá flutti hún úr Fagrahvammi í Stórholt 9. Auk þess að stjórna stóru sveita- heimili tók hún að sér börn, bæði til sumardvalar og heilsársdvalar. Eru þau börn ótalin sem þau hjón- in í Fagrahvammi hafa hjálpað til manns á þennan hátt. Guðrún hefur tekið virkan þátt í störfum Kvennfélagsins Óskar og verið í mörg ár í sóknarnefnd ísa- íjarðarprestakalls. Guðrún giftist 1932 fyrri manni sínum, Guðmundi Einari Kristins- syni, f. 18.3.1911, d. i október 1948. Foreldrar hans voru Kristinn Guð- laugsson, hreppstjóri og b. að Þóru- stöðum í Ölfusi, og kona hans, Guðrún Snorradóttir ljósmóðir. Hún giftist 1950 seinni manni sín- um, Hirti Sturlaugssyni bónda, f. 7.4.1905, d. í júlí 1986. Foreldrar hans voru Sturlaugur Einarsson, b. að Snartartungu í Bitrufirði, og kona hans, Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja. Börn Guðrúnar og Einars: Svav- ar Einarsson, f. 23.6.1934, vélstjóri og starfsmaður hjá Rafmagnsveitu ríkisins, kvæntur Margréti Þórar- insdóttur og eiga þau fjögur börn: Kristján Einarsson, f. 14.1.1940, starfar hjá Pósti og síma, kvæntur Matthildi Björnsdóttur húsfreyju og eiga þau fimm börn; Guðmund- ur Einarsson, f. 7.5.1943, vélstjóri og kennari við MÍ, kvæntur Ólöfu B. Veturliðadóttur kaupmanni og eiga þau fjögur börn. Börn Guðrúnar og Hjartar eru Arndís Hjartardóttir, f. 16.11.1950, skrifstofumaður, gift Finnboga Bernódussyni framkvæmdastjóra og eiga þau fimm börn; Einar Hjart- arson, f. 18.5.1953, framkvæmda- stjóri, kvæntur Elínóru Rafnsdótt- ur meinatækni og eiga þau eitt barn, og Guðbjörg Hjartardóttir, f. 29.3.1955, húsfreyja, gift Magnúsi Halldórssyni verktaka og eiga þau þrjú börn. Stjúpbörn Guðrúnar: Sverrir Hjartarson, f. 16.5.1931, starfsmað- ur Braathens-flugfélagsins í Stav- anger, kvæntur Sólveigu Hjartar- dóttur og eiga þau fjögur börn; Bernharö Hjartarson, f. 10.5.1932, búfræðingur, var kvæntur Guð- rúnu Jensdóttur og eiga þau fjögur börn; Anna Hjartardóttir, f. 26.5. 1935, starfsmaður Fjórðungs- sjúkrahússins á ísafiröi, var gift Sigurði Guðmundssyni málara- meistara sem lést í desember 1984 og eignuðust þau þrjú börn; Hjör- dís Hjartardóttir, f. 26.5.1939, skrif- stofumaður, gift Pétri Sigurðssyni, forseta ASV, og eiga þau tvö börn. Fósturbörn Guðrúnar og Hjartar eru Gísli Steindór Guðnason; Jón Magnússon; Gunnlaugur Valtýs- sonogJón Hafijörð. Foreldrar Guðrúnar voru Guð- mundur Einarsson, b. og refaskytta á Brekku á Ingjaldssandi, og Guð- rún Magnúsdóttir húsfreyja. Guðrún tekur á móti gestum í Sigurðarbúð, húsi Slysavarnafé- lags íslands, á afmælisdaginn eftir klukkan 18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.