Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1990. Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVlK.SlMI (91 )27022 - FAX: (91)27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð i lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Dagvistun barna Á undanfórnum árum hafa húsmæður í vaxandi mæli leitað út á vinnumarkaðinn. Fullyrt er að áttatíu prósent kvenna séu útivinnandi. Þessi þróun hefur óhjá- kvæmilega leitt til þess að foreldrar þurfa á félagslegri aðstoð að halda til að vista börn sín á dagheimilum, leikskólum eða öðrum dagvistunarstofnunum. Vanda- málið gerir líka vart við sig þegar skólaganga hefst og námstíminn er slitinn sundur eða börnin hafa ekki við- veru í skólanum nema hluta úr starfsdegi foreldra. Af þessum sökum hafa kröfur um aukið dagvistunar- rými verið háværar. Langir biðlistar hafa myndast og sumt fólk sækir alls ekki um vegna þess hversu vonlít- ið er að fá úrlausn sinna mála. Ný stétt, svokallaðra dagmæðra, hefur orðið til. Námsmenn og einstæðir foreldrar hafa haft forgang í kerfmu og í Reykjavík hefur verið reynt að mæta þörf- um þessara hópa þegar um er að ræða börn á aldrinum þriggja til fimm ára. Mikið átak hefur verið gert í bygg- ingu dagvistunarstofnana og alls munu vera um sjötíu slíkar í höfuðborginni. í gær voru opnuð þrjú ný dagvist- unarheimili svo að ekki hefur meirihlutinn setið aðgerð- arlaus. Ennfremur hefur borgarsjóður komið til móts við dagvistunargjöld forgangshópanna að því er dag- mömmurnar varðar. Engu að síður er ljóst að hér þarf að gera betur. Stjórn- arandstaðan í Reykjavík hefur klifað á þessu máli, enda koma dagvistunarmál barna við kaunin á annarri hverri fjölskyldu og þá einkum ungu fólki. Sú gagnrýni hefur áhrif í kosningabaráttu. Fæðingarorlofið hefur hjálpað fólki fyrstu mánuðina en þegar því lýkur byrja vandræðin. Koma þarf börnum fyrir fram að þriggja ára aldri og sinna þarf þörfum annarra þeirra sem ekki hafa forgang í kerfinu. Leik- skólar koma að takmörkuðu gagni þegar fólk þarf að hlaupa til og frá vinnu um miðjan dag, þegar leikskólun- um er lokað. Það er að mörgu leyti réttmæt gagnrýni þegar bent er á að Reykjavíkurborg ráðstafar hundruðum milljóna til byggingar veitingahúss og ráðhúss á sama tíma og þörfin fyrir dagvistunarstofnanir er jafnbrýn og raun ber vitni. Reykvískar íjölskyldur þurfa frekar á félags- legri þjónustu að halda en veitingahöll sem snýst. Enda þótt hér sé Reykjavík gerð að umtalsefni er langt frá því að umrætt vandamál sé einskorðað við það sveit- arfélag. Það er víða pottur brotinn í öðrum sveitarfélög- um og ástandið kannske enn verra. En Reykjavík er stöndugt bæjarfélag og Reykjavík hefur löngum verið í forystu í félagslegum efnum og því eru gerðar meiri kröfur til forráðamanna borgarinnar. Það er ástæðu- laust að kveinka sér undan því. Það er heilbrigt sjónarmið að börn eigi að alast sem mest upp á sínu eigin heimili og af sínum eigin for- eldrum. En sveitarfélögin ráða litlu í þeim efnum meðan þjóðfélagsaðstæður eru með þeim hætti að báðir for- eldrar neyðast til að vinna utan heimilis og sækjast eft- ir því. Þá verða sveitarfélögin að bregðast við þeim að- stæðum, hvort sem þeim líkar betur eða verr. Nú á dögum verður ekki framhjá því litið að dagvist- un barna er eitt mest aðkallandi verkefni stjórnvalda á hverjum stað og það hlýtur að verða forgangsstefna á allra næstu mánuðum og árum að skapa öllum for- eldrum aðstöðu til dagvistunar fyrir börn sín allan dag- inn. Allt frá því fæðingarorlofi lýkur og fram á grunn- skólaaldur. Reykjavíkurborg er vel treystandi til þess. Ellert B. Schram „Þarf fyrirtæki sem hefur einkasölu á ákveðinni þjónustu að auglýsa sig svona rækilega?" spyr greinar- höfundur. - í nýrri Bifreiðaskoðun íslands. Auglýsingar: Frá hinu opinbera Þeir sem aldir eru upp við „gamla gufuradíóið" fyrir einum 40 árum eða meir, muna eflaust eftir því að einn ílokkur tilkynn- inga var kallaöur: Frá hinu opin- bera. í þeim flokki var ýmislegt sem almenningur þurfti að vita, ýmist allir landsmenn eða íbúar afmarkaðra svæða. Þar var t.d. les- iö hvenær framboðsfrestur til Al- þingis eða sveitarstjórna væri útr- unninn, hvar og hvenær manntals- þing væru haldin, að tekið yrði af rafmagn á ákveðnu tímabili hér eöa þar o.s.frv. Þetta var þjónusta við almenn- ing, ekki neitt annað. Tilkynningar um uppboð og þess háttar voru ekki sölumennska heldur ýmist lagaskylda eða þjónusta eða hvort tveggja. Jafnvel Þjóðleikhúsiö var oftast aðeins að láta menn vita hvað væri á fjölunum en ekki svo mjög að von væri um fleiri áhorf- endur. En hvers konar sölumennska og þar með auglýsingar hafa marg- faldast á síöustu 40 árum. Þörfln fyrir að koma sér og sínu á fram- færi virðist vaxandi og auglýsinga- skrumið er smitandi tískufyrir- bæri. En er verið að eyða stórfé í að auglýsa út í loftið án nokkurrar sýnilegra ástæðu né mælanlegs ár- angurs? Ásóknin í eyri ekkjunnar Einu sinni fyrir nokkrum áratug- um var almenningi gefinn kostur á því að leggja sparifé sitt í verðbréf sem kölluöust Happdrættislán rík- issjóðs. Þetta var gert heyrum kunnugt með tilkynningu frá hinu opinbera og hægt og hljótt nmnu þessi verðbréf út eins og heitar lummur. Þetta reyndist vel til fjáröflunar fyrst í stað en smám saman fór að verða erfiöara að bæta úr hinum sívaxandi eyðslufjárskorti ríkis- sjóðs meö þessu móti. Og þá var gripið til auglýsingaskrumsins. Auglýsingarnar urðu æ íburðar- meiri, dýrari, meira uppáþrengj- andi, lofandi, lokkandi, jafnvel hót- andi, lýsandi ógæfu þeirra sem ekki kaupa ríkisskuldabréf. - Hvergi hefur birst heildarúttekt á kostnaöi né mat á árangri. Svo er önnur spurning: Er sparifé lands- manna vel varið til þess að auglýsa eftir meira sparifé án þess að vita hvort það ber árangur eða ekki? Þegar „Útvarp Reykjavík“ lenti í lífsbaráttu Löngu fyrir daga byggðastefn- unnar hlustuðu landsmenn til sjáv- KjáUarinn Björn Dagbjartsson matvælaverkfræðingur ar og sveita á Útvarp Reykjavík og létu sér þaö 'vel líka. Þar var líka hægt að fá lesnar auglýsingar, ef menn komu með þær vel skrifaðir á skrifstofutíma, ekki mínútu eftir það og borguðu það sem upp var sett út í hönd. Fyrir nokkrum árum vöknuðu útvarpsmenn upp við það að aug- lýsendur höfðu um aðra kosti að velja til að ná eyrum landsmanna. Auglýsingatekjur urðu ekki lengur teknar á þurru landi með lág- marksþjónustu og það virtist ekki sjálfgefið að þær bærust fyrirhafn- arlaust. Nú voru góð ráð dýr og í örvæntingu samkeppninnar varð Útvarpiö sjálft auglýsingaiðnaðin- um heldur betur að bráð. Dag eftir dag, mánuð eftir mánuð var hamast á landslýð með sím- hringingum, skoðanakönnunum og svokölluðum fréttum af „áhorfi" og „hlustun". Og svo dundu á fólki. auglýsingar um yfirburði ríkisfjöl- miðlanna. Og þetta var ekki bara skrum í eigin útsendingum, heldur líka heilar litarsíður í dýrustu blöð- um og tímaritum. Enginn virðist vita hvaö þetta umstang hefur kostað allt saman né heldur hvort það hefur haft nokkur áhrif. Ef nauðsynlegt er aö hafa vit fyrir auglýsendum um það hvar best sé fyrir þá að koma sér á framfæri þurfum við hin 95% hlustenda og áhorfenda þá endilega að sitja undir þeim áróðri líka dag og nótt? Er afnotagjöldunum okkar vel varið í skoðanakannanir og blaða- auglýsingar? Afnotagjöldin virðast ekki lækka. Og ekki segja okkur að það kosti ekki neitt að auglýsa í eigin fjölmiðli ef við skyldum ein- hvern tímann fá að vita hvað mikið af afnotagjöldunum okkar hefur runnið til auglýsingastofa og blaða í þessu skyni. Þarf að auglýsa einokunarverslun? Fyrir skömmu var forseti íslands þess heiðurs aðnjótandi að fá að opna fínasta og dýrasta bílaverk- stæði landsins: Bifreiðaskoðun ís- lands hf. Þetta fyrirtæki hefur einkarétt á því að skoða og dæma ökuhæfni allra bíla á íslandi og verðleggur þessa þjónustu eftir því sem þörf krefur. Skylduskoðun bíla er ekkert nýtt fyrirbæri á íslandi og fyrirkomu- lagið nú mjög lítið frábrugðið því sem tíðkast hefur. Skylduskoðun er þó engan veginn algild alheims- regla og víðast er talið að sáralítið brot umferðaróhappa stafi af ólagi ökutækja, en það er önnur saga. En hvers vegna þarf einokunar- fyrirtæki eins og Bifreiðaskoðun hf. að ráöst í rándýra auglýsinga- herferö með það að aðalmarkmiði aö láta vita að fyrirtækiö sé til orð- ið og hafi þennan eipkarétt? Heföi ekki stuttorð tilkynning með gamla laginu: „Frá hinu opinbera. Komið með bílana í skoðun þennan og þennan mánuð eða þið hafi verra afi‘, haft sömu áhrif eða meiri held- ur en dýrustu skemmtikraftar landsins á skjánum? Er mögulegt að sýna fram á það að skoðunargjaldinu fyrir bílana okkar sé vel varið í sjónvarpsgrín? Þarf fyrirtæki sem hefur einkasölu á ákveðinni þjónustu að auglýsa sig svona rækilega? Björn Dagbjartsson „Er sparifé landsmanna vel variö til þess aö auglýsa eftir meira sparifé, án þess að vita hvort það ber árangur eöa ekki?“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.