Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1990.
13
Lesendur
Kvittað fyrir bláa bók
Sigmar Hróbjartsson skrifar:
Víst er það góðra gjalda vert að
upplýsa Reykvíkinga um Félags-
málastofnun borgarinnar og þá
starfsemi sem þar fer fram. Hins
vegar hefur sá tími sem valinn var
sætt nokkurri gagnrýni. Tæpast er
hægt að bera á móti því að rétt fyr-
ir kosningar í borginni beri slík
ráðstöfun alþekktan keim af því
andrúmslofti sem gerir vart við sig
á fjögurra ára frpsti.
Mörgum er í minni sá pési sem
dreift var í hús hér í borg fyrir átta
árum. Þá var líka mikið í húfi.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði misst
meirihlutann ijórum árum áður.
Hinar miklu sprungur í kringum
Rauðavatnið biðu þess albúnar að
gleypa með húð og hári alla þá sem
gerðust svo djarfir að reisa þar
bústaði sína. - Hin „vonda vinstri“
stjórn ætlaði að stefna byggðinni
þangað.
Svo mikil sefiun fylgdi þessum
áróðri að fólk sem ég talaði við
skalf frá hvirfli til ilja af ótta við
þennan yfirvofandi háska. Allt
gekk upp. Völdin voru endurheimt
og byggðinni var stefnt í óskalandið
við Grafarvog. - Þetta rifjaðist upp
á páskadag þegar óhappið varð í
Gufunesi. Hið alsjáandi auga var
þá ekki óskeikult þegar til kas-
tanna kom. Það gat þá gert mistök,
rétt eins og við hin!
En lítum nú aðeins á ofangreint
plagg. Á fyrstu opnu er saman-
þjappað kort af þjónustustöðvum
Félagsmálastofnunar, ásamt mynd
og ávarpi borgarstjóra. Þá kemur
viðtal við félagsmálastjóra með til-
heyrandi myndum, m.a. af fráfar-
andi Félagsmálaráði, og ekki
seinna vænna að koma henni á
framfæri. - Þannig má rekja viðtöl
og myndir af starfsfólkinu allt aftur
á 16. síðu sem er lokasíðan. Allt er
það harla gott. Eða er ekki svo?
Það vakti þó athygli að hvergi var
minnst á biðlista. 011 þessi lesning
varð mér tilefni nokkurra heila-
brota. Og líklega er það engin til-
viljun að ég staldraði helst við hús-
næðismál og málefni aldraðra. Svo
vildi til að ég var þátttakandi í
starfshópi hjá Nýjum vettvangi,
einmitt um þennan málaflokk, og
ennfremur sú staðreynd að ég fylli
nú flokk eldri borgara og get því
af nokkrum kunnugleika talað því
sá er eldurinn heitastur er á sjálf-
um brennur.
Verktakaveldi?
Ingólfur G. Ingólfsson skrifar:
Nú er birtir hafa veriö framboðs-
listar fyrir bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningarnar er það eitt sérstakt mál
sem vakið hefur athygli. Það er sú
staðreynd að oddvitar sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði, Kópavogi og
Álftanesi skuli alhr vera fram-
kvæmdastjórar stórra verktakafyr-
irtækja. Á tveimur síðasttöldu stöð-
unum eru sameigendur Gunnar og
Guðmundur, en í Hafnarfirði er það
forstjóri Hagvirkis, eins stærsta
verktakafyrirtækis landsins.
Nú er það ekki ætlun mín að gera
því skóna að stórir verktakar hér um
slóðir sækist til áhrifa í bæjarstjórn-
arpólitík gagngert til að tryggja hags-
muni sína. Þvert á móti þykist ég
vita að hér sé um algjöra tilviljun að
ræða og persónulegan áhuga þessara
manna fyrir bæjarmálum og ég vil
undirstrika það að ég tel að menntun
og reynsla þessara manna ætti að
vera hagnýt reynsla til starfa að
bæjarmálefnum - hvort sem menn
eru þeim sammála eða ekki.
Hjá því verður þó ekki litið að
æðstu áhrifamenn í bæjarstjórnum,
sem jafnframt gegna störfum eins og
að vera framkvæmdastjórar verk-
takafyrirtækja, munu fyrr eða síðar
komast í þá aðstööu að þurfa að tak-
ast á við mál og taka ákvarðanir sem
varða bæði hagsmuni verktaka og
sveitarfélaga. - Slíkir hagsmunaá-
rekstrar eru að sama skapi óæskileg-
ir sem þeir eru óumflýjanlegir. Er
skemmst að minnast þess er talið var
óæskilegt að fulltrúi Kvennalistans
tæki sæti í bankaráði Landsbankans
vegna stöðu sinnar hjá Kaupþingi.
Verktakar og þá ekki síst þeir sem
stórir eru í byggingariðnaðinum eiga
oft mikið undir pólitískum ákvörð-
unum. Hér má því spyrja: Getur það
ekki á sama tíma talist óeðlilegt að
þeir sem eiga þar hagsmuna að gæta
taki þátt í ákvörðunum - eða séu
jafnvel oddvitar í þeirri ákvarðana-
töku?
Til varnar
Evu
Kristjana hringdi:
Ég hringi vegna lesendabréfs í
DV 7. maí sl. þar sera Sigríður
skrifar kvörtunarbréf <úm versl-
unina Evu. Ég hef sjálf verslað
mikið í Evu gegnum árin og aldr-
ei fengið þar nema fyrirtaks þjón-
ustu. Ekki síst allt sL ár.
Ég vildi bara óska þess að slíka
þjónustu væri hægt að fá í fleiri
verslunum.
áskilur sér rétt til aö
stytta bréf og símtöl
sembirtastáles-
endasíðum blaðsins.
Til sölu
í samráði við veðhafa eru eftirtaldar eignir þrotabús Bjarna A. Einars-
sonar, Arnarstapa, Breiðuvíkurhreppi, Snæfellsnessýslu, auglýstar til
sölu.
Fasteignir: Einbýlishús, Naustabúð 21, Hellissandj. Fiskverkunarhús
Eyri, Arnarstapa, fiskverkunarhús á Arnarstapa. Verslun-
arhús/geymsluhús, Arnarstapa.
Lausafé: Frystiklefi ásamt pressu, frystitæki ásamt pressu og pönnu,
aðgerðarborð, fiskikör, tvær fiskvogir, þvottakar með færi-
bandi, saltfiskbretti, tveir rafmagnslyftarar, skreiðarpressa,
veiðarfæri, Baader 188 flökunarvél, Baader 421 hausunar-
vél, ísvél, umbúðir o.fl.
Eignirnar verða til sýnis laugardaginn 19. þessa mánaðar frá kl. 12-14.
Tilboð sendist undirrituðum, sem veitir allar nánari upplýsingar, fyrir
30. þ.m.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Klemenz Eggertsson hdl.
skiptastjóri
Garðatorgi 5
210 Garðabæ, sími 656688
Laus staða lögfræðings
Staða löglærðs fulltrúa við embætti undirritaðs er laus til
umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir
ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf þurfa að berast
undirrituðum fyrir 1. júní 1990.
Húsavík 10. maí 1990
Halldór Kristinsson,
sýslumaður Þingeyjarsýslu,
bæjarfógeti Húsavíkur
REYKJAVÍK
Svæðisstjórn málefna fatlaðra í Reykjavík leitar eftir kaup-
um á hentugu húsnæði fyrir sambýli í Reykjavík. Um er
að ræða einbýlishús, par- og/eða raðhús á einni hæð með
5-6 rúmgóðum herbergjum. Æskileg staðsetning vestan
Elliðaáa.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og -efn-
i, herbergjafjölda, brunabóta- og fasteignamat, afhending-
artíma og söluverð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytis-
ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 1. júní 1990.
Fjármálaráðuneytið,
15. maí 1990
Stofnun Þróunarfélags
miðbæjar Reykjavíkur
Dagana 17. maí -16. júní nk. liggja frammi undirskriftalist-
ar á Gallerí Borg, Pósthússtræti 9, Byggingaþjónustunni
í Iðnaðarmannahúsinu við Hallveigarstíg og á Borgarskipu-
lagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, fyrir þá sem vilja gerast
stofnfélagar í Þróunarfélagi miðbæjar Reykjavíkur. Starfs-
vettvangur félagsins er miðbærinn. Stofnfélagar geta þeir
orðið sem eiga lögheimili, fyrirtæki og atvinnurekstur í
Reykjavík svo og stofnanir. Áætlað árgjald félagsaðila er
kr. 2.000 fyrir íbúðareigendur, kr. 10.000 fyrir fyrirtæki og
kr. 20.000 fyrir hverja stofnun.
Fjöldi bílasala, bílaumboða og einstaklinga
auglýsa fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum og
í öllum verðflokkum með góðum árangri.
Athugið að auglýsingar í DV-BÍLAR á
laugardögum þurfa að berast í síðasta lagi fyrir
kl. 17:00 áfimmtudögum.
Smáauglýsingadeildin er hins vegar opin alla
daga frá kl. 09:00 til 22:00 nema laugardaga frá
kl. 09:00 til 14:00 og sunnudaga frá kl. 18:00 til
22:00.
's
Smáauglýsing í HELGARBLAÐ verður að berast
fyrirkl. 17:00 á föstudögum.
AUGLÝSINGADEILD
27022