Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1990.
Stjómmál
Flugvöllurinn fluttur
og miðbærinn stækkaður
- segir Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar
- Hvaöa breytingar þarf aö gera
á fjármálum borgarinnar?
„Viö Reykvíkingar getum veriö
mjög ánægðir meö þaö að við eig-
úm stönduga borg en við Fram-
sóknarmenn höfum lagt á þaö
áherslu aö þaö sé góð stjóm á íjár-
málum borgarinnar. Viö leggjum
fyrst og fremst á það áherslu í þess-
ari kosningabaráttu að það séu
settar siöareglur fyrir æöstu emb-
ættismenn borgarinnar og borgar-
fulltrúa. Við teljum aö það komi
einmitt inn á fjármálastjóm borg-
arinnar. Ég hef flutt um þaö tillög-
ur aö þaö verði sett skipurit yflr
fjármálastjórn borgarinnar sem ég
tel að sé nauðynlegt til aö hægt sé
að stýra 'svo stóru fyrirtæki sem
Reykjavíkurborg er. Þá fmnst mér
eðUlegt, og nú megum við ekki vera
smámunarsöm, að það sé í gangi
hverju sinni ein ákveöin bygging
eða eitt ákveðið verkefni sem gerir
það að verkum að borgin verði fall-
egri og skemmtilegri að búa í.“
- Hafið þið eitthvert baráttumál í
skipulagsmálum?
„Stærsta mál síðasta kjörtímabils
var aðalskipulag borgarinnar. Við
samþykktum það og var það afar
vandað plagg og gildir til 2004. Nú
fer fram endurskoðun á aðalskipu-
lagi og þess vegna hef ég flutt tvær
tillögur, grænar tillögur, og fengið
þær samþykktar. Fyrsta atriðið var
hestaumferð. Þetta er sívaxandi
tómstundaiðja borgarbúa og þetta
þarf auðvitað að vera í skipulaginu.
Framboðslisti
Framsóknarflokksins:
1. Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi
2. AlfreðÞorsteinssonforstjóri
3. HaUurMagnússonbiaðamaöur
4. ÁslaugBrynjólfsdóttir
fræðslustjóri
5. ÓskAradóttirfulltrúi
6. Sigurðurlngólfsson
tæknimaður
Annað sem ég sendi einnig til borg-
arskipulags við endurskoðunina
var það að hugað yrði að gróðurl-
öndum eða garðlöndum í útjaðri
borgarinnar fyrir borgarbúa."
- Hvað viljið þið gera í umferöar-
málum?
„Við leggjum mikla áherslu á það
að tekin veröi ákvörðun um
breikkun Miklubrautar og gatna-
mót hennar verði mislæg til að
auðvelda umferð. Nú er augljóst
að hætt er við Fossvogsbrautina
þannig að það er ljóst að þetta þarf
að gera.“
- Hvað viljið þið gera í umhverfis-
málum?
„Auðvitað er framfaraspor að
gera það sem nú er gert varðandi
skólpið en það þarf bara að gera
meira. Það þarf að dæla skólpinu
mun lengra út í sjóinn og ég vil fá
sama framkvæmdarviljann og hef-
ur verið í ráðhúsinu í skólpið.
- Hvererafstaðaykkartilflugvall-
arins?
„Við teljum að af flugvellinum
geti hlotist stórslys ef eitthvað fer
úrskeiðis og til styrktar gamla mið-
bænum er nauðsynlegt að þama
sé hægt að skipuleggja byggð og
aðra starfsemi. Því viljum við að
það verði teknar upp viðræður um
hvert sé hægt aö flytja flugvöllinn.
Þá má maður ekki gleyma nútíma
tækni. Alls staðar erlendis eru að
ryðja sér til rúms tækni eins og
einteinungar. Það em kannski fyr-
ir hendi möguleikar á því aö verða
7. MargeirDaníelsson
framkvæmdastjóri
“8. ArnþrúöurKarlsdóttir
fjölmiölafræöingur
9. AnnaKristinsdóttirhúsmóðir
10. ÞorsteinnKáriBjamason
nemi
11. Hafdís Haröardóttir
bankamaður
12. Þór Jakobsson
veðurfræðingur
Yfirheyrsla:
Sigurður M. Jónsson
aðeins 10 mínútur til Keflavíkur
og það myndi breyta miklu.“
- Viljið þið aðrar áherslur í fram-
kvæmdum borgarinnar?
„Ég hef áður sagt það að ég vilji
að borgin sé með eina myndarlega
framkvæmd í gangi hverju sinni.
Hins vegar get ég ekki sætt mig viö
að það séu lúxusframkvæmdir í
gangi um leið og maður fær að sjá
skýrslur og myndir um það hvem-
ig skólahúsnæði borgarinnar er að
grotna niður. Það er ekki langt síð-
an maður sá myndir frá Austur-
bæjarskólanum sem gerðu það að
verkum að fólk rak í rogastans. Við
höfum séð svartar skýrslur um við-
hald skóláhúsnæöis í borginni og á
meðan við getum ekki búið börnum
okkar gott húsnæði þá er okkur
ekki leyfllegt að vera í lúxusbygg-
ingum."
- Hvaða áherslur haflð þið í dag-
vistunarmálum?
„Við viljum að stefnt verði að
sveigjanlegu leikskólarými. Ég vil
að fólk geti valið á milli 2,4, 6 og 8
tíma gæslu og það á ekki að skipta
máli hvort þú ert giftur eða ógift-
ur.“
- En málefnum aldraðra?
„Við viljum að hætt verði að okra
13. EddaKjartansdóttir
verslunarmaður
14. Sveinn Grétar Jónsson
framkvæmdastjóri
15. HÖskuldur B. Erlingsson
lögreglumaður
16. GuðrúnEínarsdóttirkennari
17. Gunnþóra Önundardóttir
deildarstjóri
18. Kristján Andri Stefánsson
lögfræðinemi
á öldruðum í húsnæöismálum.
Reykjavíkurborg á að bjóða út
íbúðarbyggingar aldraðra og selja
þær til samtaka aldraðra. Við setj-
um þetta sem útgangspunkt því það
er ekki stætt á því að aldraðir, sem
vilja minnka við sig, eigi varla fyr-
ir 60 m2 íbúð þó þeir selji stórar
eignir sem þeir eiga fyrir. Við vit-
um að til dæmis Sunnuhlíðarsam-
tökin í Kópavogi gátu gert þetta
ódýrara."
- Hver er afstaða ykkar til afskipta
borgarinnar af atvinnumálum, til
dæmis skemmtistöðum?
„Ég held að það sé ekkert vafa-
mál að við myndum selja Broad-
way ef við hefðum aðstöðu til enda
hefur sá staður ekki þjónað því
hlutverki sem til stóð. Við viljum
hins vegar taka atvinnumálin allt
öðrum tökum eins og til dæmis að
huga að umskipunar- og fríversl-
unarhöfn í Reykjavík. Ég flutti um
þetta tillögu nýlega í borgarstjórn
sem fékk góðar undirtektir og er
til meðferðar í hafnarstjórn. Þetta
er stórmál því þetta er ekki bara
höfn heldur gætum við orðið
heimsborg í norðurhöfum, nokk-
urskonar Hong Kong norðursins.“
- Eríþróttamálumnægilegasinnt?
„Við viljum að núna verði gerður
samningur við íþróttafélögin í
Breiðholti og Grafarvogi um upp-
byggingu íþróttamannvirkja vegna
þess að það er lang mikilvægast að
geta stutt þessi nýju félög í nýju
hverfunum betur. Þar eru ung-
19. Steingerður Gunnarsdóttir
nemi
20. MapiÓlafssonleigubílsstjóri
21. Steinunn Þórhailsdóttir
auglýsingaráðgjafi
22. EinarBogiSigurðsson
bankastarfsmaður
23. Sigríður Jóhannsdóttir
sjúkraliði
24. Anna Huld Óskarsdóttir nemi
25. EyþórBjörgvinssonlæknir
mennin og þurfa að fá þetta sem
fyrst i hverfin. Þá viljum við að
keppnisaðstaðan í Laugardal upp-
fylli alþjóðlegar kröfur."
- Hvað viljið þið gera fyrir mið-
bæinn?
„Ég kenni Sjálfstæðisflokknum
alfarið um það hvernig komiö er
fyrir honum. Þaö þýðir ekki að
samþykkja aðalskipulag og fara
svo ekki eftir því. I aðalskipulagi
segir að eðlilegt sé aö byggja 8.000
m2 verslunarhúsnæði á ári. Bara á
síðasta ári var fullgert verslunar-
húsnæði upp á 64.000 m2. Við
byggðum á þrem til fjórum árum
allt það sem við ætluðum að byggja
á 20 árum. Eru svo menn hissa á
að gamli miðbærinn grotni niöur?
Þá vill ég að ríkið kaupi Útvegs-
bankann og geri hann að dómhýsi.
Það eflir miðbæjarstarfsemi og af
sömu sökum studdi ég ráðhús-
bygginguna."
- Hvern sjáið þið sem borgar-
stjórnarefni ef vinstra samstarf
yrði reyndin?
„Ef eitthvað er að marka skoð-
anakannanir þá er augljóst að
vinstrasamtarf verður ekki reynd-
in. Ef raunin verður önnur þá hef-
ur það sýnt sig í ríkisstjórn að
Framsóknarflokkurinn er bestur
til forystu fallinn og ég tel að það
eigi ekki síður við í borgarmálum."
26. HelgiHjartarsonnemi
27. ÖrnóifurThorlaciusrektor
28. ÞrúðurHelgadóttir
iðnverkakona
29. SteinunnFinnbogadóttir
ljósmóðir
30. HaraldurÓlafssonfyrverandi
alþingismaður