Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Page 20
I
20
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1990.
Stjómmál
Valið um hvers konar aðhald
á að veita Davíð Oddssyni
- segir Sigurjón Pétursson, efsti maður á lista Alþýðubandalagsins
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
maöur Alþýðubandalagsins,
treystir sér ekki til aö lýsa yfir
stuðningi viö G-listann. Mun vond
staöa G-listans innan sjálfs Al-
þýðubandalagsins veröa ykkur
fjötur um fót í kosningabaráttunni?
„Þaö er alveg ljóst aö það hefur
kvarnast úr okkar fylgi. Þaö er um
að ræöa 30 til 40 flokksbundna Al-
þýöubandalagsmenn sem hafa snú-
ist gegn sínum gamla flokki. í þann
hóp virðist formaður Alþýöu-
bandalagsins vera að blandast; alla
vega neitar hann aö lýsa yfir stuön-
ingi við lista flokksins í Reykjavík.
Þaö er staða sem mér er ekki kunn-
ugt um aö hafi komið upp áöur.“
- En fyrir hvað stendur þaö fólk
sem eftir er á G-listanum?
„Þaö er merkilegt meö þetta
framboð að það einkennist af nýju
og ungu fólki fyrir utan okkur
Guðrúnu Ágústsdóttir.“
- Þiö eruö einmitt eina fólkið á list-
anum sem hefur raunhæfa von um
sæti í borgarstjóm og eruð því þeir
frambjóöendur sem fólk getur va-
hö. Fyrir hvað standið þiö?
„Viö stöndum fyrir Alþýðu-
bandalagið. Við erum engir sér-
sinnar í flokknum. Viö erum þaö
sem Alþýðubandalagið er og hefur
veriö í gegnum tíðina. Sem er í
stuttu máli flokkur sem berst fyrir
lýðræöi, jafnrétti og valddreif-
ingu.“
- Hvaö er það viö stjórn sjálfstæð-
ismanna í borginni á þessu kjör-
tímabili sem er gagnrýnisverðast?
„Það sem er gagnrýnisverðast á
þessu kjörtímabili eru svokallaðar
minnisvaröabyggingar sem kosta
gríðarlega mikið fé en þjóna ákaf-
lega fáum. Skrifstofubygging undir
borgarstjóra og hans nánustu sam-
starfsmenn kostar þannig nálægt 2
milljarða og mun kosta um 3 millj-
arða þegar upp er staðið. Þetta er
sérstaklega gagnrýnisvert þegar
skortur er á öðrum framkvæmdum
sem kosta lítið en koma mörgum
til góða. Þar vil ég nefna dagvistar-
stofnanir fyrir börnin, aðstöðu fyr-
ir aldraða og unglinga."
- Getur þú nefnt tvær eða þrjár
framkvæmdir sem Alþýðubanda-
lagið vill að ráðist verði í á því kjör-
tímabili sem er að hefjast?
„Ef við horfum til þess að Reykja-
víkurborg mun hafa um 15 millj-
arða úr að spila til framkvæmda,
fyrir utan það sem fer í götur, hol-
ræsi og annað slíkt, þá er ljóst að
borgin getur ráðist í mörg stór
verkefni. Auðvitað er ég ekki svo
grænn að halda að hægt sé að ráð-
stafa öllum þessum fjármunum
fyrirfram því auðvitað koma upp
mál sem verður að leysa. Ef helm-
ingur þessarar upphæðar verður
til ráðstöfunar þá getum við á kjör-
tímabilinu leyst dagvistun barna
þannig að allir sem vilja geti fengið
pláss. Til þess þurfum við um 15
prósent af þessum tekjum. Við get-
um aðskilið gangandi og akandi
umferð sem er mjög brýnt; sett
brýr alls staðar þar sem gangandi
umferð mætir stórri og þungri bí-
laumferð. Ef við notuðum 20 pró-'
sent af þessum fiármunum til aö
Yfirheyrsla
Gunnar Smári Egilsson
auka á þjónustu fyrir aldraða þá
næðum við langt á einu kjörtíma-
bili.“
- Allir flokkar leggja áherslu á
málefni aldraðra. Hvernig sker
stefna Alþýðubandalagsins í þess-
um málum sig frá stefnu annarra
flokka?
„í fyrsta lagi er nú búið að leggja
mikla áherslu á að byggja íbúðir
fyrir þá sem eru nógu efnaðir til
að kaupa íbúöir. Ég tel að þeir séu
best settir sem voru best settir fyr-
ir. Það sem vantar eru leiguíbúðir
fyrir þá sem eru verst settir fiár-
hagslega og síðan hlutdeildaríbúðir
fyrir þá sem eru skár settir en geta
samt ekki ráðið við að kaupa ibúð-
ir sem eru eins dýrar og þær hafa
verið. Borgaryfirvöld eiga að meta
þarfir fólks og þeir sem hafa mesta
þörfina eiga að koma fyrstir, óháð
því hversu efnaðir þeir eru.“
- Fyrir tólf árum tókst þeim flokk-
um sem nú eru í minnihluta að
fella áratugalanga stjórn Sjálfstæð-
isfiokksins í borginni. Þið töpuðu
borginni hins vegar strax aftur í
næstu kosningum. Hvað var það
sem gerðist í þessu stjórnarsam-
starfi?
„Það tókst aldrei að ná í heilan
meirihluta. Hann var aldrei traust-
ur. Hann náði bara saman um fiár-
hagsáætlanir en eins og alkunna
er þá hélt meirihlutinn ekki í mörg-
um stórum málum. Eins var ekki
reynt að fara fram með mörg stór
mál vegna þess að samstaöa var
ekki næg. Þetta lamaði því starfs-
hæfni hans. Hins vegar var margt
sem tókst.“
- Ereitthvaðsemsegiraðsamstarf
minnihlutaflokkanna tækist betur
nú?
„Það veltur á því hvaða einstakl-
ingar ná kjöri því að auðvitað bygg-
ist þetta á einstaklingum. í síðasta
meirihluta var það fyrst og fremst
einn einstaklingur, Sjöfn Sigur-
björnsdóttir, sem brást. Það var
allt í lagi með hina. Ef við lítum til
baka er ljóst aö þaö hefur verið
mjög gott að ná samstöðu meðal
minnihlutaflokkanna á þessu kjör-
tímabili. Það hefur verið sjaldgæft
að það hafi verið ágreiningur um
stefnumarkandi mál. Nú eru
komnir nýir einstaklingar í fram-
boð og ég skal ekki segja til um
hversu samstarfsfúsir þeir eru. Ég
get ekki dæmt það.“
- Ef við færum okkur niöur á jörð-
ina þá eru mjög litlar líkur til að
meirihluti sjálfstæöismanna
falli...
....við skulum segja engar lík-
ur.“
- Þú metur þá að engar líkur séu
á að meirihluti Sjálfstæðisflokks-
ins falh. Um hvað er fólk þá aö
kjósa?
„Það má segja aö valið standi um
hvers konar aðhald þeir vilji hafa
að þessum meirihluta."
- Hvernig aðhald ætlar Alþýðu-
bandalagið aö veita Davíð Odds-
syni og Sjálfstæðisflokknum?
„Svipaö og þaö hefur veitt Davið
Oddssyni hingað til. Við höfum
verið með málefnalegan ágreining.
Við höfum vakið athygli borgarbúa
á þeim mistökum sem hann hefur
gert og ég geri ráð fyrir að Sjálf-
stæðisflokkurinn muni frekar
reyna að forðast þau frekar en hitt.
Ég minni á hvernig við höfum
gagnrýnt hönnunarkostnað viö
ráðhúsið. Það er tvöfalt dýrara að
hanna húsið en öll smiðavinna við
að byggja það kostar. Það hggur
við að ástæða sé til að setja rann-
sóknarnefnd á laggirnar til aö
kanna þetta mál. Ég á líka erfitt
með að trúa því að Sjálfstæðis-
flokkurinn leggi í þá rimmu á nýjan
leik sem verið hefur í kringum
þessar minnisvarðabyggingar sem
reistar hafa verið á þessu kjörtíma-
bili vegna þess að við höfum haldið
upp málefnalegri og fastri gagnrýni
og það held ég að verði okkar hlut-
verk í framtíðinni."
- Ef þú horfir til kosninganna;
hvaða útkomu sættir þú þig við
fyrir þinn flokk?
„Ég tel að það yrði stórsigur ef
við héldum tveimur mönnum inni.
Ég tel það góðan árangur ef viö
héldum tveimur mönnum inni
miðað við aðstæður. En ég myndi
hins vegar líta á það sem tap ef við
fengjum bara einn mann.“
tfsti Alþýðubandalagsins
1. Sigutjón Pétursson
borgarfultoúi.
2. Guðrún Ágústsdóttir,
aöstoðarmaður mennta-
málaráðherra.
3. Guðrún Kr. Óladóttir,
varaformaður Sóknar.
4. Ástráður Haraldsson
lögfræðingur.
5. Stefanía Traustadóttir
félagsfræðingur.
6. Einar Gunnarsson, formaöur
Félags blikksmiöa.
7. Gunnlaugur Júlíusson
hagfræöingur.
8. Guðrún Sigurjónsdóttir, for-
maður Félags sjúkraþjálfa.
9. Páh Valdimarsson hnumaður.
10. ValgerðurEiríksdóttirkennarí.
11. Ehn Snædal félagsráðgjafi.
12. HuldaS.Ólafsdóttirsjúkrahði.
13. Hildigunnur Haraldsdóttir
arkitekt.
14. Kolbrún Vigfúsdóttir fóstra.
15. Einar D. Bragason trésmiður.
16. SoffíaSigurðardóttirhúsmóðir.
17. Nanna Dröfn Sigurdórsdóttir
nemi.
18. SigþrúðurGunnarsdóttirnemi.
19. Guðrún Ása Grímsdóttir
handritafræöingur.
20. Ólafur Jensson læknir.
21. Monika Karlsdóttir, aðstoðar-
maöur í sjúkraþjálfun.
22. Amar Guömundsson nemi.
23. Sigrún Valbergsdóttir
leikstjóri.
24. Sigurbjrög Gísladóttir
efnafræðingur.
25. Þorbjörn Broddason dósent,
26. Stefán Karlsson
handrítafræöingur.
27. Ida Ingólfsdóttir fóstra.
28. Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Iðju.
29. TryggviEmilssonrithöfundur.
30. Adda Bára Sigfúsdóttir
veðurfræðingur.