Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1990, Qupperneq 24
40
MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 1990.
Stjómmál
Sorpböggun ekki á dagskrá
í hinum vestræna heimi
segir Kjartan Jónsson, efsti maður hjá Grænu framboði
- Er eitthvað í íjármálum borg-
arinnar sem þið viljið gera öðru-
vísi?
„Það er auðvelt að reka borgina
miðað við önnur sveitarfélög og
borgin hefur verið vel rekin. Það
sem við viljum hins vegar sjá er
að hverfissjórnir fái ákveðið hlut-
fall af útsvarinu til ráðstöfunar og
til að sjá um ákveðna málaflokka.
Við teljum að um það bil helmingur
útsvarsins mætti renna til hverfis-
stjórna."
- Hafið þið eitthvað sérstakt fram
að færa í skipulagsmálum?
„Okkur hefur fundist það góð
hugmynd að kynna skipulags-
breytingar vel og hafa síðan at-
kvæðagreiðslur um þær. Þá erum
við á móti miðstýringu í skipulagi.
Það eru oft ýmsar tískustefnur í
gangi í arkitektúr sem allir þurfa
að sætta sig við. Við höfum hins
vegar ekkert á móti meiri fjöl-
breytileika, persónulegri stíl og
meira vali til fólks.“
- Hvaða framkvæmdir viljið þiö í
umferðarmálum?
„Þau eru okkar aðalmál. Einka-
bíllinn er helsti mengunarvaldur-
inn í Reykjavík og mengun mæhst
alveg upp undir viðmiðunarmörk
Hollustuverndar. Við sjáum því
ekki framtíð í lausnum tengdum
einkabílum, svo sem breikkun Mi-
klubrautar, göngum undir Foss-
voginn eöa fleiri bílastæðishúsum
sem miðast allt að þvi að koma að
fleiri bílum í borginni. Við teljum
að almenningssamgöngur séu var-
anlegar lausnir. Við viljum hins
vegar ekki einskorða okkur við
gamla strætisvagnakerfiö og hlaða
utan á það. Við viljum hugsa það
upp á nýtt. Við viljum að innan
hvers hverfis sé kjami eða miðstöð
og þangað gangi minni vagnar sem
stoppi fyrir fólki sem víðast. Einnig
viljum við láta kanna möguleika á
rafmagnseinteinungum á lengri
leiðum þannig að fólk geti til dæm-
is farið úr Breiöholtinu niður í bæ
á 5 mínútum í stað 25 mínútna. Þá
viljum við að eitthvað verði gert
fyrir reiðhjól en á síðustu þrem
árum hafa verið flutt til landsins
um 40 þúsund reiðhjól. Nú eru að-
stæður fyrir hjólreiðar algerlega
ófullnægjandi."
- Hvemig viljið þið taka á skólp-
og sorpmálum borgarinnar?
„Það er ákveðin áætlun í gangi
varðandi skólpið sem er í sjálfu sér
allt gott um að segja nema við vilj-
um flýta framkvæmdum eins og
tæknilega er mögulegt. Um sorp-
böggunarstöð er það hins vegar að
segja að það er algerlega úrelt fyrir-
bæri. Það dettur engum slíkt í hug
í hinum vestræna heimi lengur.
Það er lítið dýrara að setja upp
endurvinnslustöð sem gæti nýtt
helstu tilfallandi efni sem myndi
um leið skapa einhver verðmæti.
Það er ekki bara hagkvæmnis-
spursmál heldur einnig siðferðisleg
afstaöa gagnvart heiminum þar
sem mikil sóun er í gangi og við
Yfirheyrsla:
Sigurður M. Jónsson
stöndum frammi fyrir að náttúru-
legar auðlindir endast ekki miklu
lengur. Þá má geta þess að sum-
staðar erlendis er byrjuð sorp-
flokkun á heimilunum þar sem fólk
flokkar sorpið í nokkra flokka.
Okkur finnst að Reykjavíkurborg
geti haft frumkvæði að því að
hrinda svona af stað.“
- Hvað viljið þið gera við Áburðar-
verksmiðjuna?
„Við viljum að sjálfsögðu losna
við verksmiðjuna. Við viljum gera
könnun á því hvort það sé nauð-
synlegt að hafa hana hér á landi.
Það fellur mikið til af náttúruleg-
um áburði sem má nýta betur.
Þessi ólífræni áburður veldur
mengun þó það hafi ekki orðið
vandamál hér eins og sést víða þar
sem hann hefur raskað vistkerfum.
Húnvetningar hafa lýst yfir áhuga
sínum á að fá verksmiðjuna og ef
um það er samstaða hjá þeim þá
er ekkert við því að segja.“
- Viljið þið breyta áherslu í fram-
kvæmdum?
„Um það snýst pólitík og við vilj-
um breyta forgangsröðinni. Við
erum í framboði af því að við vilj-
um setja umhverfismál framar í
forgangsröð."
- Hvað viljið þið gera í dagvisturn-
armálum?
„Dagvistunarmál er einn af þeim
málaflokkum sem við viljum að
fari inn í hverfisstjórnir. Við teljum
að þeim verði mun betur sinnt ef
ákvarðanatakan verður færð nær
fólki.“
- Máefni aldraðra?
„Við viljum einnig sjá þau í
hverfisstjórnum en það er ekki
hlaupið að því. Það er búið að
byggja upp aðstöðu fyrir aldraða á
afmörkuðum svæðum og færa
hana mikið saman. Við viljum
smám saman færa það út í hverfin
og við erum á móti þeirri stefnu
að einangra gamla fólkið. Við vilj-
um halda því sem lengst virku í
mannlífinu."
- Hafið þið einhverja skoðun á af-
skiptum borgarinnar af atvinnu-
málum?
„Borgin á ekki að vera í atvinnu-
rekstri og við viljum sem minnsta
yfirbyggingu. Það á því ekki að
vera að vasast í einhverju sem
einkaaðilar geta séö um.“
- Hafið þið einhverjar sérstakar
áherslur varðandi íþróttamál?
„Mér hefur nú virst sem að
íþróttafélögin hafi verið ágætlega
virk og dugleg við að bjarga sér.“
- Hafið þið sérstakar áherslur
gagnvart vaxandi ofbeldi og fikni-
efnaneyslu?
„Við viljum tengja þetta beint við
hverfisstjórnir. Þetta er það sem
gerist þegar borgir stækka. Þá
koma upp slík vandamál í auknum
mæh. Það verður meiri einangrun,
meiri firring og meira og grimmara
ofbeldi. Þetta er bara þróun sem
við þekkjum úr öðrum borgum. Þó
að Reykjavík sé ekki stór borg þá
er hætt við að menn fari að missa
ábyrgðartilfinningu gagnvart um-
hverfinu og því viljum við efla
hverfisstjórnir.“
- Hvað viljið þið gera fyrir gamla
miðbæinn?
„Við teljum okkur hafa sögulega
ábyrgð gagnvart miðbænum. Það
er að segja að við teljum okkur
ekki hafa rétt til að hrófla mikið
við þessum gömlu húsum og verð-
um því að varðveita þau sem best
fyrir komandi kynslóðir. Við erum
því á móti því að setja niður mikið
af stórum byggingum þar. Þá þarf
að gera eitthvað til að styðja versl-
un á staðnum því það styður um
leið við mannlif. Það eru áform í
gangi hjá einkaaðilum um að setja
glerþak yfir Laugaveginn. Við vilj-
um að borgin taki yfir þær áætlan-
ir og byggi jafnvel yfir Austur-
stræti líka.“
- Horfið þið eitthvert sérstakt
varðandi borgarstjóraefni?
Nei, og okkur finnst það algert
aukaatriði. Hlutverkið er of valda-
mikið og við viljum minnka völd
borgarstjórans."
Framboöslisti fyrir
Græntframboö:
1. KjartanJónsson,
verslunarmaður
2. Óskar G. Ölafsson, verkamaður
3. Gunnar Vilhelmsson,
Ijósmyndari
4. Sigrún María Kristinsdóttir,
nemi
5. SigurðurÞórSveinsson,
sölumaður
6. SigríðurE. Júlíusdóttir.nemi
7. MetúsalemÞórisson,
markaösstjóri
8. GuðmundurÞórarinsson,
kvikmyndagerðarmaður
9. Árnilngólfsson,
myndlistarmaður
10. Sigurður M. Grétarsson,
endurskoðandi
11. AnnaM.Birgisdóttir,
verkstjóri
12. SigurðurB.Sigurösson,
forritari
13. Þór Ö. Víkíngsson,
verslunarmaður
14. Guörún Ólafsdóttir, nemi
15. JónG.Davíðsson,nemi
16. BjamiHákonarson,
markaðsfuhtrúi
17. IngunnAmardóttir,
afgreiðslustúlka
18. Ásgeir Sigurðsson, bifvélavirki
19. BirnaTómasdóttir.verkakona
20. StefánBjargmundsson,
tollvörður
21. Björn Steindórsson,
verkamaður
22. Halldór Carlsson, skáld
23. Sigurður Ó. Gunnarsson,
verkstjóri
24. Máni Svansson,
myndhstarmaður
25. FríðaJónsdóttir.nemi
26. Jóhannes K. Kristjánsson,
tæknimaður
27. Kristvin J. Sveinsson, nemi
28. írisB.Smáradóttir,
starfsstúlka við aöhlynningu
29. Sígurður Bragason, sölumaður
30. ÓlafurR. Dýrmundsson,
landnýtingarráðunautur