Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Qupperneq 9
Mífíví^ÚÖAGUR1 &-3ÍM Í99d."
23
Akureyri
Smiöjan er einn af fjölmörgum veitingastöðum á Akureyri.
,V\\ íyy'
Nonnahús er mikið sótt af ferðamönnum.
Píh| iBl flil I ■ I rTalBH sr wm j Ies 1mm b i£ ■ B S ES ö!' B ■ ■ IJfryf *j
ili 1 ■ 1 nl 1 H B | ■ i - m | H1 j
is, Hrafnagilsstrætis, Byggðavegar
og Þingvallastrætis, rétt ofan við
sundlaugina.
Söfn
Af söfnum á Akureyri er sennilega
Nonnasafn (Jón Sveinsson) það sem
flestir þekkja, en það er að Aðal-
stræti 54. Þar við hliðina eða í húsi
númer 58 er Minjasafnið og Náttúru-
gripasafnið er í Hafnarstræti 81. Þá
er ógetið um Davíðshús (Davíð Stef-
ánsson) að Bjarkarstíg 6, Sigurhæðir
(hús Matthíasar Jochumssonar) við
Eyrarlandsveg 3, í brekkunni á milh
Akureyrarkirkju og Hótel KEA, og
Friðbjamarhús (hús I.O.G.T.) við
Aðalstræti 46. Amtsbókasafnið er við
Brekkugötu 17.
Bankar og pósthús
Þrír bankar eru starfandi á Akur-
eyri. íslandsbanki er með fjóra af-
greiðslustaði enn sem komið er,
Geislagötu 14 (sama hús og Sjallinn),
Hafnarstræti 107 (við Ráðhústorg),
Skipagötu 14 (húsi verkalýðsfélag-
anna) og í Hrísalundi 1 sem er ofar-
lega í bænum.
Þá er Landsbankinn við Ráðhús-
torg og í Kaupvangi við Mýrarveg
og Búnaðarbankinn er við Geisla-
götu 5 og í verslunarmiðstööinni í
Sunnuhlíð í Glerárhverfi.
Tveir sparisjóðir starfa á Akureyri,
Sparisjóður Glæsibæjarhrepps,
Brekkugötu 9, og Sparisjóður Akur-
eyrar og Arnarneshrepps, Brekku-
götu 1.
Póstur og sími em með sínar höf-
uðstöðvar að Hafnarstræti 102 (í
göngugötunni) og er afgreiðslutími
þar kl. 9-18 virka daga.
Bílaleigur
Þrjár bílaleigur starfa í bænum.
Flestir hafa heyrt talað um stærstu
bílaleigu landsins, Bílaleigu Akur-
eyrar sém hefur höfuðstöövar sínar
að Tryggvabraut 14. Þá er Bílaleigan
Örn við Hvannavelli og Bílaleiga
Flugleiða er staðsett gegnt Akur-
eyrarflugvelli.
íþróttir og útivera
Tvær sundlaugar em á Akureyri,
Sundlaug Akureyrar við Þingvalla-
stræti skammt fyrir ofan Akureyrar-
kirkju og innisundlaug við Glerár-
skóla.
Átján holu golfvöllur, sá nyrsti í
heimi, er á Akureyri, efst í bænum.
Þar geta ferðamenn leikið golf sér til
ánægju og í sumar eru þar mörg mót
sem félagar úr öðrum golfklúbbum
geta tekið þátt í. Stærst þeirra er að
sjálfsögðu landsmótið sem fer fram
dagana 24. júlí til 4. ágúst.
Tennisvöllur er á túninu við sund-
laugina. Þar er einnig hægt að fara
í „mini-golf ‘ og viö Pollinn er jafnan
líf og fjör. Þar er hægt að leigja hjóla-
báta í þjónustumiðstöðinni viö
Leiruveg skammt frá flugvellinum,
þotuskíði eru leigð skammt frá
Torfunefsbryggju og margir em þeir
sem egna fyrir silung eða þorsk í
Pollinum, annaðhvort af báti eða úr
landi. Þá er eftir að minnast á Hesta-
þjónustuna Jórunnisf. í hesthúsa-
hverfinu ofan bæjarins en þar er
hægt að fá leigða reiðskjóta.
Matsölustaðir
Maginn þarf alltaf sitt og á Akur-
eyri er um ýmislegt að velja í þeim
efnum fyrir ferðafólk. Smiðjan,
Kaupangsstræti 3, Fiðlarinn Skipa-
götu 14, veitingasalir Hótel KEA,
Bautinn, Hafnarstræti 92, Lindin við
Leiruveg, Uppinn við Ráðhústorg,
Hlóðir, Geislagötu 7, Hótel Stefanía,
Hafnarstræti 85, og Súlnaberg Hótel
KEA era allt matsölustaðir með al-
hliða matseðla. Kórónakjúklingar,
Skipagötu 14, eru kjúklingastaður
eins og nafnið gefur tÚ kynna, Bleiki
Fíllinn, Hafnarstræti 100, sérhæfir
sig fyrst og fremst í pizzum. Þá eru
ótalin „nestin“ svokölluðu þar sem
hægt er að kaupa létta rétti, s.s. ham-
borgara, pylsur, kjúklingabita o.þ.h.
Skemmtistaðir
Sjallinn er án efa þekktasti
skemmtistaðurinn á Akureyri, enda
landsfrægur. Þar eru dansleikir á
föstudags- og laugardagskvöldum, en
ölkrá Sjallans, Kjallarinn, er opin á
hverju kvöldi.
Á Hótel KEA era einnig dansleikir
um helgar. Þá eru skemmtistaðirnir
Uppinn og Bleiki Fílhnn sem eru
opnir öll kvöld og bjóða upp á ýmsar
uppákomur.
Kjamaskógur og
Lystigarðurinn
Einn er sá staður sem ferðamenn
á Akureyri ættu að heimsækja, en
það er útivistarsvæðið í Kjamaskógi.
Skógurinn er örskammt frá mið-
bænum, ofan flugvallarins, og er
hreinasta útivistarparadís. Göngu-
leiðir um skóginn era ákaflega
skemmtilegar, þar er hægt að dvelja
á góðviðrisdögum og á staðnum eru
bæði Ijaldsvæði og mjög góð leikað-
staða fyrir böm.
Þá er Lystigarðurinn við Eyrar-
landsveg einn þeirra staða sem fjöl-
margir sleppa ekki að heimsækja í
ferðum sínum til Akureyrar. Garð-
urinn er sunnan Menntaskólans,
ákaflega skemmtilegur, og ekki í kot
vísað að dvelja þar á góðviðrisdög-
um.
Upplýsinga-
miðstöð
Fólk á faraldsfæti þarf á ýmsum
upplýsingum að halda og á Akureyri
er staðsett upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn, m.a. um rútuferðir úr
bænum og margt fleira í þeim dúr.
Upplýsingamiðstöðin er til húsa að
Hafnarstræti 82 og síminn þar er
Akureyrarkirkja er sígilt myndefni ferðamanna. DV-mynd gk 24442.
LAXVEIÐI í LEIRUTJÖRTi
MÚ ER Á ALLRA FÆRI AÐ VEIÐA LAX
AÐEINS 5 KM SUNriATi ARUREYRAR
Ódýr veiðileyfi fást í versluninni Eyfjörð og á staðnum.
Allar frekari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu Akureyrar.
Ferðaskrifstofu Akureyrar
Ráðhústorgi 3 - Sími 96-25000