Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Blaðsíða 12
26
Akureyri
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990.
I>V
„í Sjallanum er alltaf góö stemning," segir Sigurður Thorarensen.
DV-myndirgk
Framkvæmdastjóri Sjallans:
Hótaði að
fara ekki til
Akureyrar
á næstunni
- segir Sigurður Thorarensen
dansstaöur, hér eiga að vera ýmsar
uppákomur og við fórum því að huga
að því í vetur að setja hér upp
„show“. Niðurstaðan varð að setja
upp sýningu með Pálma Gunnars-
syni söngvara sem við kölluðum
„Staðan í hálileik“ og það er
skemmst frá því að segja að sú sýn-
ing gekk mjög vel fram á vor.“
- Hvemig hefur þér líkað að búa á
Akureyri?
„Mér hefur líkað það mjög vel,
enda er þægilegt og rólegt að búa á
A'iureyri og mjög afslappað. Það er
stutt í allar áttir og maður tekur ekki
bensín nema einu sinni í mánuði
miðað við fjórum sinnum fyrir sunn-
an. Hér er mjög gott að vera með
börn og ég er ekki frá því að á stað
eins og Akureyri gefi maður sér
meiri tíma með þeim en væri maður
búsettur fyrir sunnan."
- En eru Akureyringar jafn„lokaðir“
og erfiðir að kynnast og stundum er
sagt?
„Þetta hefur verið sagt, en það hlýt-
ur að hafa breyst og ég hef alls ekki
fundið fyrir því. Mig langar hins veg-
ar að koma því að að hér í Sjallanum
vinnur mikið af ungu fólki um tví-
tugt, og mér fmnst eins og ungt fólk
hér á Akureyri hafi til að bera meiri
ábyrgðartilfinningu en jafnaldrar
þess fyrir sunnan."
- Er þessi landsfræga „Sjallastemn-
ing“ sem stundum er talað um, til
staðar?
„Ég veit ekki hvort hægt er að tala
um einhverja sérstaka Sjallastemn-
ingu. Hitt er ljóst að í Sjallanum er
jafnan mjög góð stemning og fólk sem
kemur hingað til bæjarins fer helst
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri:
„Þegar Ólafur Laufdal bauð mér
að fara norður á Akureyri og taka
við rekstri Sjallans kom það mjög
óvænt upp á. Ég hafði verið á ferð-
inni á Akureyri nokkrum mánuðum
áður í skíðaferð og varð veðurteppt-
ur þar í nokkra daga og þegar ég
komst loksins suður hótaði ég því á
flugvellinum fyrir norðan að fara
ekki til Akureyrar á næstunni. En
þegar þetta kom upp ráðfærði ég mig
við fjölskylduna og það varð úr að
við drifum okkur norður," segir Sig-
urður Thorarensen, framkvæmda-
stjóri Sjallans.
Sigurður er 32 ára viðskiptafræð-
ingur. Hann hafði unnið við heild-
verslun í eigin fyrirtæki áður en
hann hóf störf hjá Ólafi Laufdal á
útvarpsstöðinni Stjörnunni nokkr-
um mánuðum áður en sú útvarps-
stöð sameinaðist Bylgjunni.
Sigurður segir að þegar hann kom
norður sl. sumar hafl „ferðamanna-
vertíðin“ verið í hámarki og nóg að
gera í Sjallanum. „Ég byrjaði á að
kynna mér reksturinn sem ég hafði
ekki unnið við áður og í framhaldi
af því að gera samninga við hljóm-
sveitir og skemmtikrafta.
Eitt af fyrstu verkunum var líka
að fara í breytingar á húsinu og færa
það nær hinum „gamla Sjalla“ ef ég
má orða það svo. Mér fannst hönnun
hússins eftir brunann undarleg eins
og það að setja sviðið inn í miðjan
sal. Það var fært á sinn stað aftur,
allt málað og teppalagt og húsið gert
skemmtilegra í alla staði.
Sjallinn á að vera meira en bara
Kaupmaðurinn á hominu:
Vil vera minn
eigin herra
- segir Hermann Traustason
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég hef aldrei unnið við verslun
áður. Hins vegar hlossaði hjá mér
upp áhugi á því að vinna eitthvað
fyrir sjálfan mig, vera minn eigin
herra, og það ætla ég að gera í fram-
tíðinni," segir Hermann Trausta-
son, kaupmaður í versluninni Esju
við Norðurgötu, en Hermann rekur
verslunina ásam' konu sinni, Geröi
Þorvaldsdóttur.
Hermann segist hafa unnið við
eitt og annað um dagana. M.a. vann
hann í Noregi í fjögur ár og á síð-
asta ári vann hann við bílaryðvörn
í Reykjavík eða þar til í desember
að hann tók við rekstri Esju.
„Það er gott að vera kaupmaður-
inn á horninu hér á Eyrinni. Það
voru þó ekki allir bjartsýnir á að
þetta myndi ganga vel og ég var
varaður við. En með mikilli vinnu
gengur þetta upp og ég er ánægður
með starfið.
Verslunin hefur líka aukist mik-
ið. Ég versla með kjöt, mjólk, brauð
og nýlenduvörur og fólk virðist
kunna vel við að geta gengið að
þessum vörum hér langt fram á
kvöld. Ég hef mína föstu viðskipta-
vini og þeir eru á öllum aldri. Þetta
er mjög gott og ég hef ekki áhuga
á að fara aftur að vinna hjá öðr-
um,“ sagði Hermann.