Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Side 28
Akureyri „Helenu stokk- - urinn" MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990. Helena meö stokkinn landsfræga sem var skírður í höfuðið á henni. DV-mynd gk Einnig mikið úrval af bikurum og öðrum verðlaunagripum. Pantið tímanlega. GULLSMIÐIR Sigtryggur & Pétur Brekkugötu 5 - Akureyri. Sími: 96-23524. VERÐLAUNAPENINGAR stærð 42 mm. KYNNTU ÞER glæsilegu, mjúku heimilistækjalínuna frá Verð 220 kr. stk með áletrun Öll heimilistækin í samræmdu útliti á hagstæöu veröi Við liðsinnum þér af þekkingu VALSMÍÐI sf., Frostagötu 6c, Akureyri, sími 96-23003 -------------' L^tÍU’--- Einar Farestveit&Co.hf DORGARTUN 28, SÍMAR: (91) 16995 OG 622900 - NÆG BÍLASTÆOI Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Helena Eyjólfsdóttir er söngkona sem ekki þarf aö kynna, svo lengi hefur hún staðið á sviðinu og sungið fyrir landsmenn. Það vita hins vegar e.t.v. færri að hijóðfæri nokkurt hef- ur verið skírt í höfuðið á henni, og heitir það Helenustokkur. t „Já, það er nú það. Við keyptum ^ svona hljóðfæri fyrir mjög mörgum árum í Reykjavík og viö köllum þaö alltaf „djækaló". Þaö fór ekki aö heita Helenustokkur fyrr en Egill Ólafsson Stuðmaöur mætti með svona hljóðfæri í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum og sagði að það héti Helenustokkur. Ég man það bara að ég sótroðnaði fyrir framan sjón- varpið," segir Helena þegar hún er spurð um Helenustokkinn. „Ég hafði aldrei heyrt þetta orð fyrr en það hefur fest viö hljóðfærið og er meira að segja komið inn í slangurorðabók sem var gefin út. Það er bara gaman að eitt hljóðfæri skuli vera kennt við mig.“ Þú notar þetta hljóðfæri mikið? „ Já, ég notaði þetta mjög mikið með hljómsveit Ingimars í gamla daga, í spænskum lögum t.d. og nota það reyndar mikið enn í minni hljóm- sveit í dag sem er hljómsveit manns- ins míns, Finns Eydal.“ Helena segir að hinn eini og sanni Helenustokkur hafi orðið fyrir slysi í Húsafelh einu sinni. „Það datt úr honum botninn í einu laginu og eir- flögur, sem voru inni í honum, hrundu niður á hljómsveitarpallinn og niður um rifur á honum. Friðrik Bjamason, málari hér á Akureyri, tók stokkinn, mattaði hann allan upp og bætti inn í hann eirflögum. Síðan kom hann með stokkinn til mín til að prófa hann en það vantaði fleiri eirflögur í hann til að fá rétta hljóð- ið. Þegar bætt hafði verið í hann eir- flögum var svo allt límt vandlega saman, málað og lakkað svo hann var mjög fallegur eftir þessa viðgerð. Það má eiginlega segja að það hafi verið dekrað heilmikið við þennan stokk og að hann hafi farið í andlits- lyftingu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.