Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Side 10
24 MIÐVIKUDAGUR13: JÚNÍ'199D. Akureyri ,/Kemur fyrir aö við hreyfum ekki bíl á næturvaktinni" SIEMENS heimilistæki í sérflokki. Samræmt útlit. Sanngjarnt verð. SÍR HF. Reynishúsinu, Furuvöllum 1, Akureyri, sími 27788. Hyundai framleiðir mikið úrval af tölvum til að henta þörfum hvers og eins. Til dæmis gerð SUPER 286 E: • 1 Mb vinnsluminni • 40 Mb harður diskur • Raðtengi og hliðartengi • VGAIitaskjár og að auki fylgir SAMRAÐS hugbúnaðarpakki með ritvinnslu, gagnagrunni, töflureikni, samskiptahug- búnaði og dagatali. Með öllu þessu kostar SUPER 286 E gerðin aðeins kr. 204.753 eða kr. 184.278 staðgreitt! TÆKNIVAL - segir Garðar Aðalsteinsson, formaöur leigubifreiðastjóra Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri: Það eru ekki mörg ár síðan ferða- menn, sem komu til Akureyrar, höfðu á orði að aldur leigubifreiða- stjóra í bænum væri furðulega hár, og akstursmátinn samkvæmt því. Aðkomumenn höfðu jafnvel á orði að svo hægt væri ekið stundum að ekki væri mikið seinlegra að fara gangandi en með leigubifreið! „Það er rétt að á tímabili var aldur margra leigubifreiðastjóranna hér nokkuð hár, þetta var visst tímabil sem við komumst yfir og það hafa margir hætt störfum á síðustu tveim- ur árum, menn sem höfðu keyrt lengi og voru orðnir gamhr í hettunni," segir Garðar Aöalsteinsson sem er í forustu félags bifreiðastjóra hjá Bif- reiðastöð Oddeyrar eins og leigubif- reiðastöðin heitir á Akureyri. „Það eru 27 bílar á stöðinni hjá okkur,“ segir Garðar. „Þetta er leyfi- legur fjöldi en okkur finnst þetta vera mjög rýmilegt. Vinna virka daga hefur dregist saman með auk- inni bílaeign almennings, en við veit- um þjónustu sem bærinn getur ekki verið án. Við höfum líka aukið þessa þjón- ustu frá því sem áður var. Fyrir um tveimur árum fórum við að hafa hér vaktir á nætumar í miðri viku sem ekki var áður, og það eru alltaf tveir menn á þeirri vakt. Ef þeir þurfa báðir út í einu er símsvari á stöðinni sem tekur við beiðnum um akstur. Við skiptum þessum vöktum á milli okkar, og satt að segja er oft mjög lítið að gera. Það kemur fyrir að við hreyfum ekki bíl á næturvaktinni og launin era því ekki til að hrópa húrra fyrir. Við htum hins vegar á þetta sem þjónustu við bæjarbúa, alveg eins og þá þjónustu okkar að selja bensín og halda hér opinni verslun frá klukkan 7 á morgnana og fram til klukkan 2 á næturnar og ahan sólarhringinn um helgar. Það er dýrt fyrir okkur að veita þessa þjónustu en við geram það samt sem áður.“ Starfsbræður ykkar í Reykjavík hafa í auknum mæli orðið fyrir hkamsá- rásum í starfi sínu á undanfórnum árum, hefur eitthvað borið á shku á Akureyíi? „Nei, við höfum sem betur fer alveg sloppið við það, og okkar viðskipta- vinir eru upp til hópa mjög gott og þægilegt fólk við að eiga. Við keyrum auðvitað drukkna menn, sérstáklega um helgar, og það er eins og gengur og gerist en ekkert til að hafa orð á,“ sagði Garðar. Hvað gera menn þá á nóttunni þeg- ar ekkert er að gera í akstrinum? „Við reynum að halla okkur, einnig gerum við hreint á stöðinni, og svo grípa menn í spil annað slagiö. Við reynum einhvern veginn að láta tím- ann líða,“ sagði Garðar. Garðar Aðalsteinsson við bíi sinn: „Veitum þjónustu sem bærinn getur ekki verið án. DV-mynd gk Búnaðarbanki íslands 60 ára - Traustur banki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.