Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Síða 16
30
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990.
Akureyri
,, Stór meirihluti er með
þessari baráttu okkar"
- segir Jón Amþórsson, einn baráttumanna fyrir álveri við Eyjafjörð
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
„Það er rétt að ég barðist fyrir því
ásamt öðrum fyrir nokkrum árum
að hér yrði byggt álver við fjörðinn.
Ég var í forsvari fyrir undirskrifta-
söfnun sem þá fór fram, en þetta var
árið 1984, og yfir 4 þúsund manns
skrifuðu undir,“ segir Jón Arnþórs-
son, en hann er einn þeirra Akur-
eyringa sem eru eindregið fylgjandi
því að álveri verði valinn staður við
Eyjafjörð.
„Við vorum einstaklingar sem tók-
um okkur saman til að berjast fyrir
þessu máh og nafnið „Áhugamenn
um framfarir við Eyjafjörð" festist
við þennan hóp. Þá var farið að ræða
um hugsanlega byggingu álvers hér
á vegum kanadíska fyrirtækisins
ALCAN. Það voru mjög skiptar skoö-
anir um málið á þessum tíma og
fundaherferðir og undirskriftir í
gangi á báða bóga. Við vildum næstu
stóriðju, sem reist yrði hér á landi,
til Eyjafjarðar, svo fremi að lífríki
íjarðarsins yrði ekki stefnt í hættu,
og það mál setjum við reyndar enn
á oddinn. Það gerðist hins vegar aö
álverð fór mjög lækkandi í heiminum
og áhugi þessa erlenda aðila fór dvín-
andi.“
I
Ekki sama
baráttan
- Áttir þú von á sömu baráttunni
þegar álversumræðan kom upp aftur
núna?
„Nei. Ástæða þess að við vildum
álver hingað á sínum tíma var ástand
atvinnuveganna hér á svæðinu og
það astand hefur versnað. Samtímis
því ber öllum saman um að mengun-
arvamir hafi batnað ár frá ári. Það
er allt annað andrúmsloft í dag vegna
þessara hluta. Fólk óttast um at-
Jón meö auglýsinguna um álversfundinn i Sjallanum á dögunum. DV-mynd gk
Nestin
Akureyri
Sumarhúsgögn
Garðvörur
Útileguvörur
Leiktæki
Ódýr
gasgrill
4 gerðir
vinnuöryggi sitt og er betur upplýst
um mengunarvarnir."
- En það hefur heyrst í álversand-
stæðingum samt sem áður, þeir
halda fast við það að álveri fylgi mik-
il mengunarhætta.
„Nú er ég leikmaður hvað þetta
snertir. Mér nægir hins vegar að
vitna til fjölmargra íslendinga sem
hafa á síðustu árum skoðað álver
með nýjasta mengunarvarnarbúnaði
vítt og breitt í veröldinni. Það fór
héðan hópur fólks sem var bæði með
og á móti álveri árið 1984. Markaðs-
nefnd iönaðarráðuneytisins hefur
farið vítt og breitt um Evrópu og
Bandaríkin. Allar fréttir, sem við
fáum frá þesum álverum, sem og í
viðtölum viö fólk sem býr í námunda
við þau, rannsóknir á búpeningi,
heyfeng og öðru bendir til þess að
þetta lifi í sátt og samlyndi hvað við
annað. Við verðum að treysta þeim
visindamönnum sem hafa kannað
þessi mál sérstaklega og þeim frétt-
um sem við höfum af hliðstæðum
fyrirtækjum erlendis frá.
Hættaá
byggðarröskun
Ein ástæða þess að við erum að
beijast fyrir því að fá hingað álver
er sú að við trúum því að það sé þjóð-
hagslega mjög verðmætt. Það er mik-
il hætta á verulegri byggðarröskun
hér ef álverið fer á suðvesturhomið.
Ég spái engu um það hvort fólk
muni flytja héðan í stórum stíl komi
álveriö ekki en ég heyri það af við-
tölum við fólk að það fylgist mjög vel
með málinu og er uggandi um hag
sinn og sinna. Þetta fólk bíður eftir
því að ákvörðun verði tekin. Dæmi
um áhuga almennings er þessi risa-
fundur sem haldinn var í Sjallanum
í síðasta mánuði um þá almennu
skoðun að þessi atvinnutækifæri séu
slík að þau megi ekki tapast.
Mikill
stuðningur
Það er líka vert að vekja athygli á
því að voldug fjöldasamtök hafa lýst
yfir stuðningi sínum við málið.
Þeirra á meðal eru félög málmiðnað-
armanna á Akureyri, Félag verslun-
ar- og skrifstofufólks á Akureyri, Iðja
félag verksmiðjufólks, Rafvirkjafélag
Norðurlands, Sjómannafélag Eyja-
íjarðar, Trésmiðafélag Eyjafjarðar,
Verkalýðsfélagið Eining og starfs-
mannafélög bæjarstarfsmanna á Ak-
ureyri, Dalvík og Ólafsfirði. Öll þessi
félög hafa skrifað undir ályktun þar
sem lýst er yfir stuðningi við sveitar-
stjómir á svæðinu um áframhald-
andi viðræður við stjómvöld um
stóriðju og staðsetningu hennar við
Eyjafjörð. Rökin aö baki eru nánast
þau sömu og almenningur er að
hugsa, að ef Eyfirðingar eiga að
halda hlut sínum í mannfjöldaþróun
miðað við landið í heild, verður að
styrkja atvinnulífið við fjörðinn svo
um munar, og það verður ekki gert
nema með stórfelldri atvinnupp-
byggingu á sviði iðnaðar. Stórfelld-
asta tækifærið til þess sem er í sjón-
máli er álver.“
Blekking
- Er það staðreynd aö það þurfi
miklu dýrari mengunarvarnir verði
álverið byggt við Eyjafjörð en á öðr-
um stöðum?
„Það er talið að vegna staðviðris
séu mengunarvamir þýðingarmeiri
hér en annars staðar, en ég held líka
að það sé blekking. Það er á leiðinni
alheimssáttmáli um náttúmvemd og-
mengunarvamir og fyrr en varir
verður það ekki í höndum einstakra
landa að ákveða mengunarvamir hjá
sér. Þetta verða staðlaðar mengunar-
varnir. Súra regnið úti í Þýskalandi
stoppar ekki við landamærin heldur
fer til annarra landa. Ég hef ekki trú
á því að álver verði samþykkt hér á
landi nema með ýtmstu mengunar-
vörnum, sama hvar það verður sett
niður. Sú röksemd gegn álveri í Eyja-
firði fellur því um sjálfa sig.“
Landsbyggðarmál
Jón segir að mikill stuðningur viö
Eyfirðinga í þessu máli hafi komið
fram. „Menn telja þetta vera lands-
byggöarmál og styðja okkur í þessu
mikla hagsmunamáli. Þessi stuðn-
ingur er beggja vegna við okkur hér
á Norðurlandi.
Fyrir nú utan það að skoðanakann-
anir hafa sýnt að almenningur fyrir
sunnan telur að álver eigi að rísa úti
á landi og skoðanakönnun á Eyja-
fjarðarsvæðinu sýnir að mjög mikill
meirihluti, eða um 75%, er hlynntur
álversbyggingu við Eyjafjörð. Það
virðist vera stór meirihluti með þess-
ari baráttu okkar."
- Hvemig metur þú möguleikana á
því að álverið rísi í Eyjafirði?
„Ég get ekki metið þá á meðan það
liggur fyrir að menn festa sig við álit
rannsóknamefndarinnar norsku
sem ekki hefur skilað áliti um meng-
unarþáttinn og samanburð á milli
staða í því sambandi. Ég met mögu-
leikana ekki öðruvísi en svo að ég
vona að álverið komi hingað, þó með
þeim fyrirvara að því fylgi ekki
mengun sem sé lífríkinu hættuleg í
nánasta umhverfi verksmiðjunnar."