Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Side 18
32
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚM 1990:
STEFANÍA
AKUREYRI
RESTAURANT
STAÐUR
MEÐ
STÍL
Stórglæsilegt hlaðborð í hádeginu
á ótrúlega lágu verði, m.a.
salatbar og súpur, fiskréttir,
steikur og smáréttir.
Á kvöldin er okkar stórkostlegi
A la carte seðill
sem við vorum að taka í gagnið.
Allar veitingar
Sjáumst í sumar
STEFANÍA
Hafnarstrætí 83-85, sími 96-26366
Bjarni, Sigursteinn og Benedikt við tvo glæsibíla frá Húsbílum sf. DV-myndir gk
- segja eigendur Húsbíla sf. á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Fyrirtækið Húsbílar sf. er til húsa
við Fjölnisgötu á Akureyri, en það
mun vera eina fyrirtækið hér á landi
sem sérhæfir sig í innflutningi á öllu
Þeir eru ekkert „slor“ að innan húsbílarnir enda fer vel um Harald Olafs-
son lyftingakappa þar.
Þessi var inni á verkstæði en á eftir að verða glæsilegri.
sem viðkemur húsbílum, og einnig
bílum sem auðvelt er að breyta til
þess að þjóna því hlutverki.
Þeir Bjarni Jónsson, Sigursteinn
Þórsson og Benedikt Þórisson eru
eigendur Húsbíla sf. og sögðu í stuttu
spjalli viö DV að áhuginn á húsbílum
væri orðinn mikill hér á landi og
færi sífellt vaxandi.
Fyrirtæki þeirra flytur inn nánast
allt sem mönnum getur dottið í hug
að setja í húsbílana sína og sem dæmi
má nefna sérstakar eldavélar, vaska,
plötur í tréverkið í slíka bíla, gasmið-
stöðvar, salerni, eldhúsviftur og
áfram mætti telja, en allar þessar
vörur eru sérhannaöar fyrir húsbíla
og hjólhýsi.
„Viö tökum einnig aö okkur að
smíða húsbíla fyrir fólk og það má
segja að við séum eina fyrirtækið hér
á landi sem sérhæfir sig í öllu sem
viðkemur húsbílum og smíði þeirra.
Við höfum gert þónokkuð að því
að byggja yfir bíla og laga þá til.
Einnig höfum við flutt inn bíla frá
Þýskalandi en þaðan flytjum viö
einnig alla hluti sem við seljum í
húsbílana.“
Þeir félagar sögðu að verð á hús-
bílum væri mjög mismunandi, en
það fer bæði eftir því hversu gamlir
bílarnir eru, hversu stórir þeir eru,
og hversu mikið er í þá lagt. Bíll í
„toppklassa“ með svefnaðstöðu fyrir
fjóra, snyrtingu, eldhúsi og öllu til-
heyrandi kostar 2,5-3 milljónir
króna. Möguleikar fólks eru marg-
víslegir, bæði að kaupa lítið notaða
bíla erlendis frá, eða kaupa venjulega
sendibíla og þá sjá þeir hjá Húsbílum
um að útbúa þá eftir óskum kaup-
enda.
Áhugi hér á landi fyrir húsbílum
hefur vaxiö mjög á síðustu árum, og
fylgir vaxandi áhuga fólks á að ferð-
ast um landið. Segja má að vel út-
búinn húsbíll sé „lúxushótel á hjól-
um“ og í samtökum sem húsbílaeig-
endur hafa stofnað með sér er fólk
allstaðar af landinu og fjölgar stöð-
ugt.
Húsbílamir verða
sífellt vinsælli"
ÞAÐ STANSA
FLESTIR í
ALLTA FULLUHJA OKKUR
SUMAR SEM VETUR
HRÚTAFIRDI
ATH. Nýtt símanr. 95-11150