Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1990, Qupperneq 27
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 1990.
41
x>v
Akureyri
„Uppskrift-
in er hem-
aðarleynd-
armál"
- segir Júlíus Fossberg um Brynjuísinn vinsæla
Gylfi Kristiáiisson, DV, Akureyri:
Það er staðreynd að nokkuð er um
að fólk sem kemur til Akureyrar
lætur það verða eitt af fyrstu verkum
sínum þar í bæ að fara í verslunina
Brynju við Aðalstræti og fá sér
Brynjuís. Fólki finnst þessi ís ólíkur
þeim ís sem það fær annars staðar
og mikið hefur verið velt vöngum
yfir því hvers vegna svo sé.
„Ég man eftir Brynjuís þegar ég
var smápolli hér í Innbænum fyrir
mörgum áratugum," sagði Júlíus
Fossberg, eigandi Brynju, er við sett-
umst aðeins niður til að ræða um
Brynjuísinn. „Uppskriftin hefur allt-
af verið eins síðan verslunin byrjaði
hér, en það var Steinþór Jensson sem
stofnaði Brynju og hóf að selja þenn-
an ís.
Það fer tvennum sögum af því hver
á heiðurinn af uppskriftinni, en hvað
sem því líður þá hefur hún varðveist
þótt hér hafi orðið eigendaskipti. Það
þarf ekki að taka það fram að þessi
uppskrift er hernaðarleyndarmál.
Margir hafa reynt að búa til svona
ís en ekki tekist.“
- Hvernig skfigreinir þú muninn á
þessum ís og hinum „venjulega“?
„Brynjuísinn er miklu ferskari og
frískari en annar ís, en annars veit
ég ekki hversu langt við eigum að
hætta okkur út í þessa sálma,“ segir
Júlíus og hlær við.
Hann segir það oft koma fyrir aö
fólk sem kemur til Akureyrar hafi
samband við sig og panti nokkra lítra
af ís. ísinn er síðan frystur og fólkið
tekur hann með sér þegar það fer inn
á flugvöll á leiðinni suður. „Ætli það
passi þá ekki að ísinn sé tilbúinn
þegar suður er komið.
Jú, við seljum mjög mikið af ísnum
og hann er oft hátt hlutfall af sölunni
hér í búðinni. Það er ekki óalgengt
að við seljum 250-300 lítra af ís á ein-
um góðum degi,“ sagði Júlíus.
Sumir bflar
mi
betri en aðrir
Honda Accord EX 2,0 1990
kostar aðeins frá
kr. 1.290.000,00.
Þessi bíll er ríkulega útbúinn
og m.a. með aukabúnað eins
og rafdrifnar rúður, rafstýrða
spegla, hita í sætum,
vök vastýri/veltistýri,
samlæsingar, samlita stuðara,
útvarp/segulband og margt
fleira. Honda Accord er
margfaldur verðlaunabíll og
hlaut Gullna stýrið í
Þýskalandi. í ár var Honda
Accord kosinn bíll ársins í
sínum flokki í Bandaríkjunum
og þar var hann einnig mest
seldi bíllinn á síðasta ári.
Við bjóðum sérlega hagstæð
greiðslukjör þar sem aðeins
þarf að greiða 25% út og
afganginn á allt að 30 mánuð-
um.
i
Komið, sjáið og sannfærist að
hér er á ferðinni frábær bfll.
[gjHONDA
HONDAÁ ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, SÍMI689900
ÞÓRSHAMAR, AKUREYRI, SÍMI 96-22700
UHONDA