Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Page 2
2 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 1990. Fréttir íbúar að Engihjalla 25 senda kvörtunarbréf til lögreglunnar í Kópavogi: Innbrot í bíla og skemmdir á eignum „Viö enim einungis aö fara fram á það við lögregluna í Kópavogi að hún fylgist með því sem hér er að gerast. Okkur frnnst að lögreglan hafl ekki sinnt umkvörtunum okkar eða gert mikið til þess að upplýsa innbrot í bíla og skemmdir sem hafa verið unnar á póstkössum hér í blokk- inni,“ sagði Krisján Magnússon, íbúi í Engjahjalla 25. Síöasthðinn fóstudag sendu íbúar í blokkinni við Engjahjaila 25 lög- reglunni í Kópavogi svohljóðandi bréf. „Á umhðnu ári hefur verið brotist inn í sex bfla og skemmdir unnar á öðrum fjórum við Engihjaha 25 í Kópavogi. Einnig hafa póstkassar í anddyri verið skemmdir og inni- hald þeirra eyðflagt. Þá hefur verið kveikt í rush við útidyr. Þessi vand- alismi er óþolandi. Æskjum við und- irrituð íbúar hússins eftir því að lög- reglan í Kópavogi taki máhð fóstum tökum því við teljum að unnt sé að upplýsa málið. Með von um skjót og góö viðbrögð og fyrirfram þakklæti. Virðingar- fyhst, íbúar við Engihjalla 25 í Kópa- vogi. „Við teljum að það sé ákveðinn hópur unglinga sem safnast gjarnan saman fyrir utan sjoppu hér í grenndinni sem stendur fyrir þess- um lögbrotum. Sjálfur hef ég orðið fyrir allverulegum óþægindum af hendi þessar unglinga. Eg er með sendibíl og það var brotist reglulega inn í hann tvisvar til þrisvar í viku í allan síðstliðinn vetur og stohð úr honum vörum og dóti. Ekki alls fyrir löngu var svo stohð hér úr leigubíl verðmætum fyrir um 140 þúsund krónur. Þetta er orðin alger plága sem er- fitt er að búa við og okkur íbúunum hér í blokkinni finnst að lögreglan hafi ekki staðið sig sem skyldi til að upplýsa þessi mál, því gripum við tfl þess ráðs að rita þeim bréf,“ sagði Krisján. Að sögn Ásgeirs Péturssonar, bæj- arfógeta í Kópavogi, verður kahað til fundar með fulltrúum frá Félags- málastofnum Kópavogs og lögregl- unni í dag. „Þetta er alvarlegt mál sem verður tekið upp strax og reynt að meta hvað þarna hafi komið fyrir,“ sagði Ásgeir. -J.Mar Þjóðhátíöin í Reykjavík: Fór fram með mestu ágætum Þijár kærur um líkamsmeiðingar bárust lögreglu á þjóðhátíöardaginn, 17. júní. Ein þeirra var vegna þess að manni var hrint í gegnum rúðu í húsi við Veltusund. Maðurinn skarst nokkuð. Hinar líkamsmeiðingarnar voru minni háttar. Færri gistu fangageymslur lögregl- unnar en næstu tvær nætur á undan. 19 sváfu í Hverfisteini að lokinni þjóðhátíð. Margt manna var í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og í nótt. Ölvun var ekki mjög mikil. -sme Iðnráðgjafi á Vestfjörðum Inga Dan, DV, Vestflörðum; Stefnt er að því að iðnráðgjafi á Vestfjörðum taki til starfa síðla sum- ars eða í haust. Samkomulag hefur tekist mihi Byggðastofnunar og Fjórðungssambands Vestfirðinga um að greiða í sameiningu kostnað af starfi hans. Iðnráðgjafinn mun hafa aðsetur í útibúi Byggðastofnun- ar á ísafirði sem opnað verður í stjómsýsluhúsinu í ágúst. ■ - ■ . .■ • Eftir gróðursetninguna voru veitingar á boðstólum; harðfiskur, flatkökur með hangiketi, hvannarótarbrennivín og íslenskur bjór. DV-mynd Hanna. Þingvellir: Sendiherrar gróðursettu Þrír sækja um yfirlæknis- stöðuna Hlynur Þór Magnúsaon, DV, Isafiröi: Umsóknarfrestur um stöðu yfir- læknis við Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði rann út 1. júní. Þrír sóttu um: Einar Jóhannesson í Svíþjóð, Bjöm Þór Sigurbjömsson í Hafnarfirði og Þorsteinn Jóhannesson í Reykjavík. „Þetta er táknrænn stuðningur við landgræðsluskógaátakiö og land- græðslu hér á landi. Þessi gróður- setning tókst vel og er hvatning til allra sem að þessum málum standa," sagði Sveinn Runólfsson land- græðslustjóri. Um það bil 40 sendiherrar og starfs- menn sendiráða hér á landi hófu á laugardaginn gróðursetningu birki- plantna í landi Kárastaða hjá Þing- völlum í tilefni af landgræðslu- skógaátaki 1990. Sendiherramir höföu hver um sig forgöngu um aö þeirra þjóöir styrktu átakiö með fjár- framlögum til tijákaupa. Um 300 birkiplöntur voru gróður- settar á laugardaginn en siefnt er aö gróðursetningu um 10 þúsund plantna til viðbótar. Landslagsarki- tekt ríkisins hefur skipulagt svæðið og er ætlunin að þarna verði í fram- tíðinni góður útivistarlundur. -BÓl Þorskganga frá Grænlandi á næstu vetrarvertíð: Gæti orðið hundrað þúsund tonn „Menn hafa verið að giska á aö þetta geti orðið um hundrað þúsund tonna stofnstærð af þorski sem hing- að gengur frá Grænlandi á næsta ári en allar slíkar tölur verður að taka með varúð og auðvitaö fer þetta m.a. eftir því hve mikið verður veitt við Grænland á næstunni,“ sagði Ólafur Karvel Pálsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, er DV spurö- ist fyrir um það hvaða áhrif Græn- landsþorskurinn gæti haft á íslenska þorskstofninn á næsta ári. Þorsk- kvótinn er nú um þijú hundmð tutt- ugu og fimm þúsund tonn. Þaö era einkum sjávarstraumar sem valda því að stundum berst tölu- verður fiöldi íslenskra þorskseiða til Grænlands þar sem fiskurinn vex upp. Þessi fiskur snýr aftur á íslands- mið til hryggningar og getur þá haft umtalsverð áhrif á þorkstofninn hér við land. Síöast fór mikið af seiðum til Grænlands 1984 sem var góður árgangur. „Smái fiskurinn, sem hefur verið að veiðast við Suðvesturland að und- anfómu, er hringormalítill og hefur fieiri einkenni sem benda til þess að hann sé frá Grænlandi. Aö vísu hafa ekki ennþá fundist grænlensk merki í fiskinum en reynslan hefur sýnt að seiði, sem berast til Grænlands, snúa aftur hingað sjö til átta ára. Ennþá er þetta ekki mikið magn en við erum aö vonast til að seiðin frá 1984 skili sér á næsta ári og þvi þamæsta," sagöi Ólafur. Olafur gat þess að um þessar mundir væri verið að vinna aö ástandsskýrslu um aflahorfur á næsta ári en þar verða settar fram tillögur Hafrannsóknastofnunar um kvótanæstaárs. -KGK Ríkisábyrgð á launum: Wibii tr m milljonir frá ríkinu á þessu ári „Síðasta ár greiddum við út um 240 milljónir vegna ríkisábyrgðar á launum við gjaldþrot Flest bendir til aö upphæðin í ár verði svipuð en í maílok höfðu um 65 milljónir verið greiddar. Oft er Ijóst að ríkið fær ekkert greitt upp í þetta með eignum þrotabús þar sem engar eignir eru. Mörg ár getur svo tekið að fá endanlega úr því leyst hvort eitthvað fæst upp í kröfu ríkisins," sagði Óskar Hallgrimsson hjá félagsmála- ráðuneytinu. 1. júlí nk. færist úrvinnsla þess- ara mála til Tryggingastofnunar ríkisins samkvæmt nýrri reglu- gerð. Forræðið er þó enn hjá fé- lagsmálaráðuneytinu og greiðsl- ur fara út af reikningi þess. -hnuj Keflavík: Annir hjá lögreglu Bílvelta varð á Sandgerðisvegi á Miðnesheiði aðfaranótt sunnu- dags. Bfll lenti út af veginum og valt. Fimm manns vora í bifreið- inni og var fólkið flutt á sjúkra- ' húsið í Keflavík. Meiðsli þess voru ekki talin alvarleg. Töluverðar annir vor hjá lög- reglunni í Kefiavík um helgina, mikil ölvun var í bænum og voru sex ökumenn teknir granaðir um ölvun við akstur. -J.Mar Nýr olíiigeyniir í Örfirisey Oliufélagið hf. er nú að byggja :nýjan olíugeymi i Örfirisey. Aö sögn Árna Ingimundarsonar tæknifræðings kemur þessi geymir sem viöbót við þá sem fyrir eru og er svipaður að stærö. Gunngeir Pétursson, skrif- stofustjóri byggingarfulltrúa í Reykjavík, segir að leyfi til þess- arar byggingar hljóti að vera orð- iö gamalt og minnist ekki sérs- taklega afgreiðslu þess. í Örfiris- ey sé afmarkað svæði sem leyfi sé veitt til aö byggja á olíugeyma. -hmó Selfoss: Lögreglan með viðlegubúnað Lögreglan á Selfossi hefur hjá sér fiald, svefnpoka, útvarpstæki, gastæki og fleira sem fannst við Ásgarðslæk, austan við Sog í Grímsnesi eftir hvítasunnuhelg- ina. Greinilegt er að einhveijir hafa skilið búnaðinn eftir. Lögreglan biöur þá sem eiga viðlegubúnaðinn að sækja hann á lögreglustöðina á Selfossi. -sme Fjolgun í Eyjum Órnar Garðarason, DV, Vesttrteyj unv íbúum i Vestmannaeyjum hef- ur fiölgað um 68 frá þvi 1. des- ember 1989. Hingað hafa flutt 116 en brottfluttir eru 83 á þessum tíma. Frá 1. desember fram til 24. maí 1990, samkvæmt skrá Upp- lýsingamiðstöðvar Vestmanna- eyjabæjar, fæddust 46 börn en 11 létust, Mismunur er 68 og er fólksfiölgun því 1,4%.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.