Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 1990. Spumiiigin Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? Bryndís Vilhjálmsdóttir dagmamma: Ég fer yfirleitt seint að sofa, svona um tólfleytið. Guðbjörg Valdimarsdóttir nemi: Það er misjafnt, svona á milli tólf og eitt en seinna um helgar. Ari Guðmundsson nemi: Það er jafn- misjafnt og kvöldin eru mörg. Oftast svona um miðnætti. Gunnar Ingi Hafsteinsson nemi: Á milli hálftólf og tólf. Um helgar vakir maður fram undir morgun. Eirikur Símonarson nemi: Eitt til tvö. Um helgar sofna ég klukkan níu á kvöldin. Lesendur DV Islensk framtíð og ofurtrú á sérstöðu: Ekkert í Evrópu, allt í Ameríku Liggur framtíð íslendinga í kristaisölum Brussel-báknsins - eða í fríverslun- arsamningi við Bandaríkin? Þvi svarar bréfritari fyrir sitt leyti hér að ofan. Ragnar Guðmundsson skrifar: Nú ganga ýmsir forsvarsmenn okkar fram með oddi og egg í að kynna framtíð íslendinga, sem liggi í Evrópusamvinnu og inngöngu í Evrópubandalagið. Það hefur meira að segja veriö stofnaður sérstakur samstarfshópur atvinnulífsins um evrópska samvinnu og hefur fengið heitið „SATES“ samkvæmt hinni landlægu skammstöfunarreglu. Þarna er um að ræða alls kyns hópa og af mjög ólíku sauðahúsi, bæði hvað varðar stjórnmálaskoðan- ir og atvinnuhagsmuni. Nefna má sjálft Alþýðusamband íslands, BSRB, Félag ísl. iðnrekenda, Félag ísl. stórkaupmanna, Landssamband iðnaðarmanna, Stéttarsamband bænda, Verslunaráð íslands, VSÍ og Útflutningsráð íslands. Ekki er annað að heyra og sjá en að flest þessi samtök vilji standa saman um þá framtíð sem okkur er búin í Evrópubandalaginu og virðast einnig vilja stuðla að því að þau geti fariö að gera sig gild í evrópskri sam- keppni sem allra fyrst. - Með eða án „sérstöðunnar" sem þó hefur verið eitt helsta hálmstráið sem gripið hef- ur verið til, þegar áskakanir hafa verið um að fara of geyst og ætla að láta slag standa um séríslensk fyrir- bæri, svo sem fiskveiðilögsögu, þjóð- erni, tungumál, og hvaðeina sem á tyllidögum er hampað sem undir- stöðu aö tilveru þjóðarinnar. En hvaða framtíð erum við að sækjast eftir í gömlu Evrópu, sund- urskotinni í fjöldastríðum aldanna, samankreistri af keisurum, kóngum, lénsherrum og kúgurum allt til þessa dags. Hvaða skyldum erum við að sækjast eftir? Hvar stöndum við í næstu styrjöld sem háð verður í Evr- ópu, eða hve mörgum flóttamönnum verður okkur gert skylt að taka við þegar fólksstraumuririn hefst frá Sovétlýðveldunum til annarra landa Evrópu? - Við skulum ekki gleyma því að Rússland og fleiri ríki innan Sovétlýðveldisins eru hluti af Evr- ópu og eini griðastaður fólks frá þeim ríkjum, ef til kemur, er að flýja í vesturátt. Ég get ekki séð að við íslendingar eigum neitt vantalað um sameiningu við Evrópu nútímans, frekar en við áttum áður við Evrópu fortíðarinnar. Evrópa hefur aldrei getað staðið ein þegar á reynir og mun ekki frekar geta í náinni framtíð, þótt hún sam- eini mynt og afnemi tollskýli um þjóðbraut þvera. Það er í Vesturheimi sem við ís- lendingar getum vænst stuðnings úr því sem komið er. Þar eigum við að leita eftir samningum um fríverslun, sem nægir okkur og myndi vera án kröfu um afnot af fiskveiöilögsögu eða annarra skilyrða um afsal á landi eða lausafé. - Það er ábyrgðarhluti islenskra ráðamanna að æra svo ís- lenskan almenning að hann heyri og sjái þá eina framtíð að eigra kol- timbraður um kristalsali Bríissel- báknsins og biðja um góðan skilning á sérstöðu Islands sem hafi óvart álp- ast til að taka þátt í ævintýrinu. í sól og sumaryl á útimarkaði á Húsavík. Land tvískiptrar veðráttu vænst þess að fá allgott sumar og stundum með afbrigðum gott, með hitastigi allt að að 25-30 gráðum. Við hér erum fóst í hitastigi í kringum 8, mest 12 gráður. Einn vinnufélagi minn, sem var aö koma úr nokkurra daga ferðalagi að noröan, nánar tiltekið frá Húsavík og svæðinu þar í kring, var að segja okkur tíðindi þama úr hlýjunni. Þar stæðu konur við straúbretti í görð- unum, handverksmenn færðu vinnu sína út úr húsi og fólk léki við hvem sinn fingur í sólargeislunum. Já, þetta er oröið land óumbreytanlegrar tvískiptrar veðráttu. - Verst er að geta þá ekki skroppið norður, t.d. helgi og helgi, vegna þess að kostnaö- urinn er orðinn ofviða almenningi, fargjöld dýr og sómasamleg gisting innanlands ásamt fæði á staðnum ekki á færi venjulegra launamanna. Eina ráðið er að flytja norður eða austur. Það er kannski kominn tími til að dæmið um byggöaröskun snú- ist við. Guðjón Ólafsson skrifar: Þaö er ónotaleg tilfinning, fmnst mér, aö uppgötva að í landi okkar hefur nú um nokkurt skeið verið við- varandi eins konar stööluð veðrátta, sem er okkur hér á suðvesturhom- inu allverulega í óhag. Og það er ekki einu sinni svo gott að annað- hvort sé hér vondur vetur og þá sæmilegt sumar eða öfugt heldur þarf veðráttan að vera með þeim ummerkjum að nú orðið er hér sunn- anlands, og alltaf á suðvesturhom- inu, hin andstyggilegasta veðrátta sem hugsast getur allt árið. Auðvitað emm við hér á þéttbýlis- svæðinu ekkert vem sett en aðrir á þessu stóra svæði, en það versta við þetta er að ekki er von á neinum breytingum í bráð og veðráttan fer frekar kólnandi en hitt. Norðanlands og allt til Austfjarða að norðan og svo á Suðurlandi aust- an til er svo allt annað og betra veð- urfar. Þrátt fyrir harðan og kaldan vetur á þeim stöðum getur fólk þó Konur til Þórarinn Björnsson skrifar: Mig langar til að koma á framfæri fyllsta stuðningi mínum við Jafnrétt- isráð og lýsa yfir stuðningi mínum við konur almennt. Það getur ekki gengið lengur þetta karlaveldi, aftur úr forneskju, og að karlar séu eingöngu eða að mestu leyti leiöandi afl í framkvæmdum og á miklu hærri launum í þjóðfélaginu. - Ég spyr okkur karlmenn: Hvar værum við staddir ef við hefðum ekki konur til að flýja til og leita huggunar hjá þegar illa gengur? Þær bjargar ala okkur börn og hugsa um þau að mestu leyti meðan þau eru ósjálf- bjarga. Hér á íslandi væri engin þjóð ef konur fyrr á árum hefðu ekki drýgt hetjudáðir til bjargar íslenskum heimilum frá vergangi og upplausn - og gera enn í dag. Ég læt þessu lokið að sinni, en ég hugsa ávallt til ykkar, konur, með hlýjum hug og opnu hugarfari. - Svo óska ég yfirráða kvenna alla næstu öld til að jafna reikningana við okkur karlana. Svíar lina skattheimtuna Egill Sigurðsson hringdi: Nú berast þær fréttir frá Svíþjóð að þar í landi sé hin harða skatt- heimta á'undanhaldi og nú sé svo komið að yfir 80% launþega greiði engan tekjuskatt lengur. Þetta er nú kannski ekki nema eðlilegt í því vel- ferðarríki sem Svíþjóð hefur lengst af viljað vera. En þar var þó svo kom- ið að fólk með góðar miðlungstekjur og þar yfir, var hætt að vinna ákveð- inn tíma ársins, því megnið af tekj- unum fór í skattheimtuna, á meðan fjölmennir hópar manna unnu alls ekkert og lifðu á því opinbera. Allt er þetta að snúast við, Svíar eru að draga í vírinn með greiðslur til þeirra sem sannanlega nenna ekki að vinna og létta um leið sköttum af hinum vinnandi almenningi sem hef- ur hingað til boriö uppi sænskt kerfi - velferðar eða hvað sem við viljum annars kalla það. Á sama tíma og þetta gerist í Sví- þjóð róa íslendingar lífróður við að borga skatta, ekki síst staðgreiðslu- skatta af tekjum sínum (hét áður tekjuskattur) og embættismenn og ráðherrar hafa enga aðra lausn í sjónmáli en að hækka alla skatta og bæta viö nýjum! - Fyrir nokkrum árum var það eitt helsta markmið flestra stjórnmálaflokkanna ís- lensku að afnema tekjuskattinn að fullu. Var þetta meira að segja sett í stefnuskrá stærsta flokksins hér. Ég held að íslenskir launþegar séu orönir langeygir eftir því að geta lifað eins og aðrir launþegar í nágranna- ríkjum okkar hvað varðar afkomu- möguleika. Það gengur ekki enda- laust hjá kjörnum fulltrúum okkar að svíkja og ganga á bak orða sinna. Það endar ekki nema með ósköpum. Væri nú ekki ráð að byrja endur- hæfmgu efnahagslífsins á því að draga verulega saman eyðslu hins opinbera og létta tekjuskatti af laun- þegum, sem hafa frá 50 til 200 þúsund krónur í laun? Hringið í síma 27022 milli kl. 9 og 16, eða skrifið. ATH. Nafn og sími verður að fylgja bréfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.