Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Side 25
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 1990.
33
Fréttir
ísafjörður:
Þrjár nýjar kaup-
leigublokkir
Hlynur Þór Magnússon, DV, ísafiröi:
Þessa dagana hefur fólk verið að
flytja í blokk sem Byggingarfélag ísa-
fjarðar hf. hefur látið byggja við
Múlaland í hinu nýja Seljalands-
hverfl við botn Skutulsfjarðar. Alls
eru tíu íbúðir í blokkinni, sem er
fyrsta húsið við hina nýju götu, en
fjórum er enn óraðstafað.
Félagið hefur einnig látið byggja
blokk við Mjallargötu og voru íbúð-
irnar þar afhentar í október. Bygging
tíu íbúða blokkar á vegum félagsins
við Pollgötu er langt komin og er
áætlaö að afhenda kaupendum lykl-
ana þar í ágústmánuði. Þar er þrem-
ur íbúðum óráðstafað enn.
íbúðir í blokkum Byggingarfélags
ísafjarðar eru í kaupleigukerfi Hús-
næðisstofnunar ríkisins. Múlalands-
blokkina byggðu Eiríkur og Einar
Valur, Mjallargötublokkina byggði
ísverk, en Guðmundur Þórðarson
byggir Pollgötublokkina.
Ölvunarakstur
eykst í Eyjum
Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum:
Þrír voru teknir grunaðir um ölvun
við akstur hér í Eyjum um síðustu
helgi og þá hafa afls 32 verið teknir
á þessu ári hér af þeirri ástæðu.
Þetta er mikil aukning frá því á
sama tíma í fyrra, - þá höfðu 20 ver-
ið teknir. Nú um helgina var einn
tekinn aðfaranótt laugardags, annar
á sunnudag og sá þriðji aðfaranótt
mánudags.
Rokkaö fyrir skógrækt:
Það er ómetanlegt að komast í
gott sumarfrí en það er líka notalegt að
koma heim aftur - ef allt er í lagi. Áður
en við förum göngum við tryggilega frá
öllu. Við greiðum rafmagnsreikninginn
svo að heimilistækin geti sinnt skyldum
sínum í fjarveru okkar og þjónað okkur
strax við heimkomuna.
Dreifikerfi Rafmagnsveitu Reykja-
víkur er eitthvert hið öruggasta í heimi.
Viðskiptavinirnir geta treyst á góða og
ódýra orku, ef þeir aðeins greiða fyrir
hana á eðlilegum tíma. Verði misbrestur
þar á bætast við dráttarvextir — og þá er
líka stutt í hvimleiða lokun.
Rafmagnsreikningar eru sendir út á
tveggja mánaða fresti. Gjalddagi þeirra er 5. dagur
næsta mánaðar eftir útgáfudag (15. dagur næsta
mánaðar hjá ellilífeyrisþegum). Ef reikningur hefur ekki
verið greiddur á gjalddaga reiknast á hann dagvextir.
Láttu rafmagnsreikninginn hafa
forgang!
RAFMAGNSVEITA
REYKiAVÍKUR
SUÐURLANDSBRAUT34 SÍMI6862 22
Rokkskóg í
hvern lands-
fjórðung
„Þetta er ekki bara einhver tísku-
bóla. Ætlunin er að halda tónleikun-
um áfram og rækta góðan og fallegan
skóg í hveijum landsfjórðungi,"
sagði Kristinn Sæmundsson, for-
svarsmaður Rokkskóga.
Það eru tónlistarmenn vítt og breitt
um landið sem standa að Rokkskóg-
um íslands 1990 sem er tónleikahald
til styrktar skógrækt á íslandi.
„Hugmyndin kviknaði í byrjun
sem Bubbalundur því að ætlunin var
að gera eitthvað í tilefni af 10 ára
starfsafmæli Bubba Morthens. Síðan
þroskaðist þetta og breyttist í Rokk-
skóga,“ sagði Kristinn.
„Þessa hugmynd er hægt að nota á
margan hátt, bæði til að minna á
skógrækt og einnig til að vekja fólk
almennt til umhugsunar um um-
hverfismál og betri umgengni. Við
erum að reyna að fá krakkana til að
huga að sínu umhverfi.“
Að sögn Kristins á fyrsti rokkskóg-
urinn að rísa á suðvesturhorninu og
er verið að huga að heppilegum stað.
Ætlunin er að finna stað þar sem
hægt er að halda útihátíðir í framtíð-
inni. Tónlistarmenn munu svo sjálfir
sjá um gróðursetningu og rekstur
skóganna.
Fyrstu tónleikamir í Rokkskógum
íslands 1990 byijuðu um helgina og
var nánast allt tónleika- og dans-
leikjahald á landinu til styrktar skóg-
rækt. Aðaltónleikarnir voru í Laug-
ardalshöllinni á laugardagskvöldið.
Þangað mættu 3-4 þúsund manns til
að hlýða á Sykurmolana, Síðan skein
sól, Megas, Sálina hans Jóns míns,
Bubba Morthens, Risaeðluna, Boot-
legs og Todmobil. Ekki flggur enn
Ijóst fyrir hver hagnaður af tónleika-
haldi helgarinnar var.
BÓl
Um helgina var rokkað til styrktar skógrækt um land allt. Aðaltónleikarnir fóru fram í Laugardalshöll.
DV-mynd Hanna
Borgaðu rafmagnsreikninginn
áður en þú ferð í fríið!
Þáverður heimkoman ánægjulegri
■á