Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 1990. V estmannaeyj ar: Oddvitinn verður ekki - bæjarstjóri Þrátt fyrir að Sigurður Jónsson, oddviti sjálfstæðismanna í Vest- mannaeyjum, hafi sóst ákveðið eftir að verða næsti bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum verður hann það ekki. Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsig- ur í kosningunum og fékk 6 fulltrúa af níu. Félagar Sigurðar í bæjarstjórn hafa hafnað honum í stöðu bæjar- stjóra. „Auðvitað finnst mér þetta hart. Satt að segja veit ég ekki hvers vegna þeir hafa lagst svo gegn þessu. Það er ákveðið að ég verð ekki bæjar- stjóri. Skipting embætta verður rædd á fulltrúaráðsfundi í kvöld. Fyrsti %-bæjarstjómarfundurinn verður á morgun. Það er ekki hægt að leyna því að það hafa veriö talsverðar deil- ur milli okkar sjálfstæðismanna vegna bæjarstjórastöðunnar. Þetta mál verður ömgglega rætt í kvöld,“ sagði Sigurður Jónsson. 14 ára stúlka elti bílþjóf Laugardalshöll: Klifraði upp undir loft LOKI Er ekki rétt að efna til krókódílaeldis í Norðfjarðará? Krokodíll i Norðfjarðará Króki lét sig hverfa í Fannadal „Ég skrapp með Króka inn í Fannadal á laugardag til að leyfa honum að skriða i grasi og svamla í pollum sem em þar. Ég leit af honum í fimm mínútur en þá var hann horfinn og hefur ekki sést síðan," sagðx Ágúst Kárason, sjó- maður á Neskaupstað. Ágúst keypti krókódílinn í Evr- ópu um síðustu áramót og flutti hann hingað til lands í komflex- pakka og hefur krókódilhnn dafiiað vel hér á landi. „Þegar ég fékk Króka var hann 30-40 cm á lengd en hann var orð- inn um hálfur metri þegar hann týndist. Fullvaxinn hefði hann orð- ið um 3 metrar. Ég hafði hann í búri og þetta var rólegheitaskepna, gæf og gerði engum mein. Króki reyndi ekki að bita, það var helst að hann slægi til halanum ef fólk var að hamst í honum. Mér hafði verið sagt að þegar krókódíl- ar eltust yrðu þeir enn rólyndari. Það er alveg eins hægt að hafa krókódíla sem gæludýr eins og hunda. „Króki var duglegur að éta og át helst kjöt og fisk. Ég hafði nokkmm sinnum farið með hann út til að viöra hann og það hafði gengið vel. Honum þótti gott að komast út, hann var mjög sprækur og fljótur að hlaupa.“ Eftir að uppgvötvaðist aö Króki var týndur var haft samband við Guðbjart Hjálmarsson, á Neskaup- stað, en hann á þjálfaðan leitar- hxmd af labradorkyni. „Ég fór með Cujo inn í Fannadal þar sem viö létum hann þefa af dóti sem var í krókódílabúrinu. Hann rakti slóð krókódílsins um stund en endaði svo niður við Norðfjaröará. Við létum hann leita aftur og hann endaði aftur við ána, svo við teljum líklegt að Króki hafi farið í ána,“ sagði Guðbjartur. „Ég tel mjög óliklegt að Króki hafi þolað að fara í ána, og ef hann hefur ekki fariö í ána þá er óvíst að hann hafi lifað af næturkuldann. Við ætlura að gera eina tilraun emx til að leita að honum en mér þykir ólíklegt að við finnum hann,“ sagði Ágúst. -J.Mar Brotlenti í flugtaki Rétt fyrir kl. 7 í gærkvöldi brot- lenti fjögurra sæta einkaflugvél utan flugbrautarinnar í Mosfellsbæ. Að sögn Skúla Sigurðssonar í Flugmála- stjóm var vélin í flugtaki. „í véhnni var flugmaðurinn ásamt tengdarmóður sinni, konu og banú. Þau voru að koma úr Reykjavík og höfðu lent á flugvehinum í Mosfells- bæ. Véhn var síðan í flugtaki í aust- urátt. Hún hóf flug, náði lítilh hæð en nam við jörðu utan brautar, lenti á staur og hafnaði utan í vegarbrún. Til ahrar hamingju urðu engin meiðsl á fólki.“ Bflvelta í Borgarfirði Einn maður slasaðist og tveir meiddust þegar jeppi valt við Hvamm í Norðurárdal í Borgarfirði í gær. Jeppinn valt út af veginum. Bílstjórinn missti stjórn á jeppanum þegar hann fór út af bundnu slitlagi. Bíllinn er mikið skemmdur. -sme •14 ára stúlka elti bfiþjóf sem stal Unimag fjallabíl í Gijótaþorpi í nótt. Eigendur bílsins vöknuðu við að mjög drakkinn maður var að stela bílnum. Meðan móðir stúlkunnar hringdi í lögreglu elti stúlkan þjófinn á stolna bílnum. Hún náði ekki bílnum en hitti lög- regluþjón á hlaupunum. Eftir samtal við stúlkuna elti lögreglan stolna bíl- inn. Þjófurinn var stöðvaður á Há- vallagötu. Við handtöku mannsins brotnaöi framrúðan í bílnum. Mað- urinn reyndist vera mikið ölvaður. -sme Gerðu aðsúg að lögreglustöðinni Hópur unghnga gerði aðsúg að lög- reglustöðinni í Grindavík í nótt. Ekki er vitað með vissu hversu margir unghngarnir voru, en tahð aö þeir hafi verið milh 30 og 50. Unghngarnir losuðu ruslatunnur við lögreglustöðina og dreifðu sorp- inu um nágrennið, þá rifu þeir upp gróður á lóð stöðvarinnar, skemmdu útihurðir og höfðu í frammi mikil ólæti. Talsvert var um ölvun í hópn- um. Lögreglan handtók þá sem verst létu. Það voru fimm unglingar á aldr- inum 16 til 19 ára. Að öðru leyti fóru hátíðahöldin í Grindavík vel fram. -sme Ungur maður gerði sér htið fyrir á tónleikum, sem haldnir voru í Laug- ardalshölhnni á laugardagskvöld, og klifraði upp í net sem var upp við loft hússins. Óttast var um manninn um tíma en betur fór en á horfðist. Hljómsveitin Sykurmolarnir var að koma sér fyrir á sviðinu þegar uppgötvaðist hvar maðurinn var nið- ur kominn. Ohi uppátæki hans mik- Uh geðshræringu meðal áhorfenda. Var fariö að vinna í því að koma manninum niður og tókst það giftu- samlega. Halldór Ásgrímsson um Grænlandsgönguna: Stækka stofninn en ekki auka veiðarnar Þessi mynd var tekin þegar ungi maðurinn var kominn upp í netið við þak Laugardalshallarinnar. DV-mynd Gunnar H. Ársælsson „Þorskstofninn er of lítill og hann þarf aö stækka. Þess vegna hef ég sagt að kæmi þorskganga frá Græn- landi væri nauðsynlegt að stækka stofninn en ekki nota þá göngu til að auka veiðarnar. Raunar minni ég á að enn er margt óljóst í þessu máh,“ sagði Halldór Ásgrímsson við DV í morgun um spá fiskifræðinga um að þorskur frá Grænlandi gangi inn á íslandsmið næsta vetur. Halldór segir ennfremur að þegar sé búið að taka ákvarðanir um kvóta fyrir þetta árið og honum verði alls ekki breytt. Þorskkvótinn á þessu ári er 300 þúsund tonn. -JGH Veðriö á morgun: Hlýttí veðri Á morgun verður austanátt víð- ast hvar á landinu, 3-5 vindstig og skýjað. Þokuloft og dálítU súld við austurströndina. Fremur hlýtt verður í veðri, 10-14 stig. SXUTUIBIIAR 25050 SENDIBILASTOÐIN Hf opið um kvöld og helgar K&ntucky Fried Chicken Faxafeni 2, Reykjavík Hjallahrauni 15, Hafnarfírði Kjúklingar sem bragó er aö Opið alla daga frá 11-22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.