Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1990, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 1990. 35 LífsstíU Kartöfiur hafa hækkað um 25% frá því í síðustu viku enda ný uppskera að koma á markaðinn. DV kannar grænmetismarkaðinn: Eins og spáð var á neytendasíð- unni á miðvikudaginn hafa kartöflur hækkað í verði. Meðalverðið í síð- ustu viku var 83,70 krónur kílóið og hélt það verðinu niðri að gömul upp- skera var einnig inni í verðinu. Nú aftur á móti náði könnunin aðeins til nýrrar uppskeru og er meðalverð- ið því 105 krónur eða 25% hærra. . Bónus í Faxafeni er með lægsta verðið en þar er hægt að fá 2 kg af frönskum fyrir 165 krónur, 82,50 krónur kílóið. Fjarðarkaup sélur 2 kg af einstaklega fallegum finnskum á 201 krónu, Hagkaup í Skeifunni er með 2 kg af þýskum á 232 krónur og Mikligarður við Sund er með hol- lenskar á 244 krónur. Eftir að hafa snarhækkað milli vikna hafa nú tómatarnir aftur lækk- að um þriðjung. Meðalverð í þessari viku er 156 krónur kílóið sem er tæp- lega 30% lækkun frá síðustu viku. Ódýrustu tómatarnir fást í Bónus þar sem þeir eru seldir í 1 kg poka á 131 krónu. Dýrastir eru tómatarnir í Plúsmarkaðinum í Grímsbæ þar sem þeir eru seldir á 181 krónu kílóið. Sparigrís vikunnar: Verslunin BÓNUS Verðmunurinn er því 38%, eða mun minni en hann hefur verið að undan- förnu. Tómatakflóið kostar 149 krón- ur í Hagkaupi, 155 krónur í Mikla- garði og 165 í Fjarðarkaupum. Gúrkur hafa hækkað um 10% frá því í síðustu viku. Bónus er með besta verðið á gúrkunum, eða 190 krónur. Plúsmarkaðurinn var aftur á móti tvöfalt dýrari, með kílóið á 381 krónu. Meðalverð á gúrkum er nú 264 krónur. í Hagkaupi kostar kílóið 225 krónur, í Miklagarði 258 krónur og í Fjarðarkaupum 268 krónur. Sveppir lækkuðu um 12% á milli vikna, úr 572 krónum kílóið í 504 krónur kílóið. Aðeins er 14% munur á milli hæsta og lægsta verðs. Bón- us, sem venjulega selur ekki sveppi, er nú með sveppi í 250 g bökkum á 117 krónur eða 468 krónur kílóið. Fjarðarkaup og Hagkaup eru bæði með sveppina á 535 krónur kílóið. Þeir kosta 485 krónur kílóið í Plús- markaðinum og 498 krónur kflóiö í Miklagarði. Græn vínber eru ódýrust í Mikla- garði á 285 krónur kílóið en dýrust í Fjarðarkaupum á 315 krónur kílóið. Hagkaup selur kílóið nú á 299 krón- ur. Grænu vínberin hækkuðu um 9% milli vikna. Paprikan hefur lækkað um 7% milli vikna, úr 417,20 krónum í 385 krónur. Ódýrust er hún í Bónus þar sem hún er seld á 260 krónur kílóið en dýrust í Plúsmarkaðinum þar sem hún kostar 498 krónur kílóið. Mun- urinn því 92% þarna á milli. -GHK Sértilboð og afsláttur: Findus pitstir og RC-Cola í Bónus er nú hægt að fá matar- og mjólkurkex frá Frón á 106 krón- ur. 1 kg af frosnum ýsuflökum kostar þar 390 krónur og 11 af mjólk kostar 60 krónur. Þeir sem ætla að grilla um helgina geta fengið 11 af kveiki- vökva frá Olís á 138 krónur. Meðal vikutilboða í Hagkaupi eru m.a. Findus pitsur. Stærri gerðin, sem vegur 830 g, kostar 399 krónur en 560 g kosta 265 krónur. Þar er einnig hægt að fá 375 g af Ota havre fras á 159 krónur, 300 g af Hob Nobs súkkulaðikexi á 99 krónur, hægt er að velja um tvær tegundir, og 300 g af Wasa bruðum er á 99 krónur. Blómkáhð er líka á sértilboðsverði þar sem 1 kg fæst á 149 krónur og gerist það vart ódýrara. í Miklagarði er 1 'A 1 af RC-Cola á 99 krónur og 21 af Fanta á 128 krón- ur. Maarud snakkhringir eru á 139 krónur pokinn. Mikligarður selur 2 kg af Kornax hveiti á 94 krónur, 2 kg af Juvel hveiti á 89 krónur og 2 kg af DDS sykri á 168 krónur. í Plúsmarkaðinum í Grímsbæ eru Tesco vörur allsráðandi þar sem þær eru seldar á sérstöku kynningar- verði. Þar á meðal eru dósasúpur, matarolía, spaghettí og núðlur svo nokkuð sé nefnt. Á tilboðstorgi Fiarðarkaupa má finna, eins og í síðustu viku, 200 g af Prince kexi á 77 krónur, 150 g af Pims kexi á 89 krónur og 200 g af Candi kexi á 95 krónur. Einnig 3 kg af Dixan þvottaefni á 598 krónur og Shine uppþvottalög á 62 krónur. -GHK Vínber «

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.