Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1990, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990. 3 dv_______________________________________________________________________________________Fréttir Autt veitingahús í Hveragerði 1 niðumíðslu: Slegið Hveragerðisbæ á eina milljón króna „Viö veröum aö byija á því að hreinsa húsið og gera viö það. Húsiö er slysagildra eins og það er og mik- ill lýtir á bænrnn. Ég hélt að bústjóri hefði átt aö halda húsinu í því horfi sem það var í þegar hann tók við því,“ sagði Ingibjörg Sigmundsdóttir, forseti bæjarstjómar Hveragerðis, viðDV. Þriðja og síðasta sala á húsinu við Grænumörk lc í Hverageröi, Tungl- inu, fór fram hjá sýslumanninum á Selfossi á fostudag. Var það slegið Hveragerðisbæ fyrir eina milljón króna en bæjarfélagið átti forgangs- kröfur í húsið. Hús þetta stendur autt og yflrgefiö við Tívolíbygginguna í Hveragerði og hefur veriö umdeilt þar sem það er illa farið af veðri og vindum að innan sem utan þar sem allar rúður hafa verið brotnar. Eftir samtölum við Hvergerðinga og þá sem fara þjóðveginn rétt neðan við að dæma eru menn sammála um að húsið sé mikið lýti á Hveragerði í núverandi ástandi sínu og slæm kynning fyrir bæjarfélagið. Eigandi hússins, sem hýsti veit- ingarekstur og kallað var Tunglið, var þrotabú Skemmtigarðsins hf. Fram að þriðju og síðustu sölu hjá sýslumanni hafði áhugi manna á að kaupa húsið ekki virst ýkja mikill. Ingibjörg sagði að ekki væri farið að ræða nýtingu hússins af neinni alvöru ennþá. Með því að bjóða í það hafi bæjarfélagið fyrst og fremst ver- ið að vernda sína hagsmuni. -hlh Stöð 2 og Verslunarbankinn: Sömu menn beggja vegna borðsins Stjómendur Stöðvar 2 hafa krafið þá sem þeir keyptu fyrirtækiö af, það er bankaráð Verslunarbankans og stjóm eignarhaldsfyrirtækis hans, skýringa á þeim mismun sem var í endanlegu uppgjöri ársins 1989 hjá Stöðinni og þeim upplýsingum sem þeir fengu um síðastliðin áramót þegar kaupin fóru fram. Það vekur hins vegar'athygli að mikið til eru þetta sömu mennimir, það er þeir sem krefjast skýringa og þeir sem krafnir eru þeirra. Þannig situr Orri Vigfússon í stjóm Stöðvar 2 en hann sat einnig í bankaráði Verslunar- bankans og situr í stjórn eignar- haldsfyrirtækisins. Þorvarður Elías- son sjónvarpsstjóri sat í stjórn Versl- unarbankans þegar kaupin fóm fram. Haraldur Haraldsson situr í stjórn Stöðvarinnar en hann situr jafnframt í stjórn eignarhaldsfyrir- tækisins. -gse Nýja lögreglustöðin fyrir Stykkishólm bíður flutnings á Selfossi. DV-mynd Kristján Eitt stykki lögreglu- stöð til Stykkishólms Kristján Einaisson, DV, SeKossi; Starfsmenn SG einingahúsa hér á Selfossi em að leggja síðustu hönd á byggingu nýrrar lögreglustöðvar fyrir laganna verði í Stykkishólmi. Húsið er 110 m2 að stærð og skiptist í varðstofu, skrifstofu, kaffistofu, baðherbergi og sturtuklefa. Einnig eru tvær fangageymslur í húsinu. Til stendur að flytja húsið til Stykk- ishólms einhveija nóttina fyrir helgi. Arnarflug heldur Árneshreppi í byggð Regina Thorarensen, DV, Gjögri: Hér á Ströndum hafa verið miklir þurrkar í margar vikur sem hafa háð sprettu á túnum en bændur búast samt við að sláttur geti hafist um 20. júh. Á mánudag kom rigningar-skúr stuttu eftir að samgöngu- og land- búnaðarráðherrann kom í Árnes- hrepp og sá fólk tún grænka við vætuna. Á fundinum með Steingrími ráð- herra skoruðu fundarmenn á ríkis- stjórnina að styrkja Arnarflug til að halda uppi ferðum á afskekkta staði á landbyggðinni eins og til dæmis hingað á Gjögur. Það kom greiniléga fram hjá öllum sem tóku til máls að það væri Arnarflug sem héldi Árnes- hreppi í byggð. Fjórtán milljónir kr. eru settar í flugvöllinn á Gjögri í sumar og svo verður einnig næstu 3 sumur, sömu upphæð árlega veitt til vallarins. -r— •......... - Húsið að Grænumörk 1c, Tunglið, blasir við vegfarendum, sem leið eiga fram hjá Hveragerði, og þykir allt annað en góð kynning fyrir bæjarfélagið í núverandi ástandi. DV-mynd Brynjar Gauti eigum við allt sem ykkur vantar í furuhúsgögnum Við eigum til alveg fádæma úrval i furu, Ijósri furu og litaðri: Borð - stóla - veggskápa - kaupmannsdiska, sófa - sófasett - hornsófa - svefnsófa. ALLT Á HAGSTÆÐU VERÐI FAX 91-673511 SÍMI91-681199 BÍLDSHÖFÐI20 112 REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.