Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1990, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1990, Blaðsíða 28
36 FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990. .S - \ > > * Andlát Ófeigur Ófeigsson, Nævurholti, lést á sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudag- inn 10. júlí. Sigurður Stefánsson frá Geirastöð- um lést í sjúkrahúsi Húsavíkur mánudaginn 9. júlí. Páll H. Jónsson frá Laugum er lát- inn. Tarðarfarir Haraldur Þorsteinsson, frv. fram- kvæmdastjóri, Kleppsvegi 76, er lát- inn. Haraldur fæddist í Reykjavík 20. febrúar 1923, sonur hjónanna Guð- mundínu Margrétar Sigurðardóttur og Þorsteins Jónssonar. Haraldur giftist Sigríði Jónsdóttur og tóku þau tvö fósturböm, þau shtu samvistum. Síðari kona Haralds var Bergljót Gunnarsdóttir og eignuðust þau tvær dætur. Haraldur verður jarð- settur frá Áskirkju í dag kl. 15. Vilhjálmur Schröder lést í Landa- kotsspítalanum 4. júlí sl. Vilhjálmur var fæddur í Hainau Schlesien, Þýskalandi, 1. júní 1916. Vilhjálmur hóf nám í framreiðslu á Hótel Borg árið 1930 og starfaði við framreiðslu aha tíö. Hann var kvæntur Sveinjónu Vigfúsdóttur og eignuðust þau sex börn. Vilhjálmur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, fimmtudaginn 12. júlí, kl. 10.30. Útfór Árna Hólm Einarssonar fer fram frá Fossvogskapellu föstudag- inn 13. júlí kl. 13.30. Margrét Bjargsteinsdóttir frá Geita- vík verður jarösungin frá Bakka- gerðiskirkju laugardaginn 14. júlí kl. 11. Sigríður Kristjánsdóttir hjúkrunar- kona, Þórsgötu 20, Reykjavík, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju fóstudaginn 13. júlí kl. 15. Unnur Jónsdóttir, Austurvegi 9, Seyðisfirði, sem lést 4. júh, verður jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju föstudaginn 13. júlí kl. 14. Guðrún S. Þórðardóttir, Bogahlíð 11, verður jarðsungin frá dómkirkjunni föstudaginn 13. júh kl. 15. Gunnar Áki Sigurgíslason bifvéla- virkjameistari, Nesbala 32, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fóstu- daginn 13. júh kl. 13.30. Kristín Gunnlaugsdóttir frá Kolugih andaðist á Droplaugarstöðum þann 30. júní. Jarðarfórin hefur farið fram í kyrrþey. Kjartan Brandsson klæðskeri lést á elliheimihnu Grund þann 26. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr- þey 'að ósk hins látna. Gísli Ásmundsson, rithöfundur og kennari, Droplaugarstöðum, áður Reynimel 39, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum föstudaginn 29. júní. Útforin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. Tilkyimingar Frá Félagi eldri borgara Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag. Kl. 14 frjáls spilamennska, kl. 19.30 félags- vist, kl. 21 dansað. Margrét Thoroddsen verður til viðtals tun tryggingamál í dag, fimmtudag, kl. 14-16 að Nóatúni 17. Göngu-Hrólfai* hittast nk. laugardag kl. 10 að Nóatúni 17. Sjávarfréttir í nýútkomnum Sjávarfréttum (2. tbl. 1990) er þeirri spurningu m.a. velt fyrir sér hvort hugsanlegt sé að mikilvægustu fiskistofnarnir á íslandsmiðum gætu hrunið líkt og gerðist í Barentshafi, vegna rangrar nýtingar stofnanna og versnandi lífsskilyrða í sjónum. í viðtali við Jakob Jakobsson, forstjóra Hafrannsóknar- stofnunar, útilokar hann ekki að slíkt gæti gerst hér við land. Af öðru efni í blaðinu má nefna viðtal við sjávarútvegs- ráðherra undir yfirskriftinni „Kvótinn er orðinn varanlegur"; grein um fjárfest- ingar útlendinga í íslenskum sjávarút- vegi; viðtal við Jón Guðmundsson, for- stjóra Sjólastöðvarinnar, um skjótan uppgang fyrirtækisins; grein um vand- ræðin í norskum sjávarútvegi vegna hruns fiskistofna í Barentshafi, rætt við sjávarútvegsmenn í EB um vistina í bandalaginu; yfirhtsgrein um nýtta og vannýtta skelfiskstofna hér við land o.fl. Tímaritið Sjávarfréttir kemur út Qórum sinnum á ári og er ritsýrt og gefið út af sömu aðilum og Fiskifréttir. Ritsjóri er Guðjón Einarsson en útgefandi Fróöi hf. DÁLEIÐSLA/HYPNOSIS Dáleiðslusnældan „Aukinn vilji“ er komin á markaöinn. Lífsafl gefur snælduna út. Þetta er fyrsta dáleiðslu- snældan sem er gefin út á íslensku á ís- landi. Þessi snælda er tilvalin fyrir alla sem vilja auka ákveðni og vilja til að hætta að reykja, grenna sig, losna við feimni og fleira. Snældan gefur góða slök- un sem nýtist fólki daglega. Snældan er komin í eftirfarandi verslanir: Betra lif, Stjömuspekistöðina, Bókaverslun Sig- fúsar Eymundssonar og Mál og menn- ingu. Einnig er hægt að panta snælduna í póstkröfu í síma 54143. Söluaðilar úti á landi geta einnig haft samband í þetta númer. Nýtt tímarit 1. hefti af tímaritinu Ský er komið út. Ský er tímarit fyrir skáldskap og flytur jafnt frumsamlð og þýtt efni. Ljóð í þessu fyrsta hefti eiga Berglind Gunnarsdóttir, Bárður R. Jónsson, Gunnar Haröarson, Jón Stefánsson, Óskar Ámi Óskarsson og Sigfús Bjartmarsson. Þá er birtur ljóðailokkurinn Hópmynd án ljónanna eftir Richard Brautigan í þýðingu Óskars Áma, Til Önnu Akhmatovu eftir Marínu Tvetaevu í þýðingu Áslaugar Agnars- dóttur og brot úr Tímagopum og orðspor- um eftir Juho Cortázar í þýðingu Jóns Halls Stefánssonar. Loks er í ritinu ein reykvísk tröllasaga. Ritsjórar em Óskar Ami Óskarsson og Jón Hallur Stefáns- son. Ský er 36 síður að stærð, í vasabroti og fer vel í buxum. Það fæst í bókabúðum miðbæjarins og kostar 300 kr. Sýningar Sumarsýning í Nýhöfn Þessa dagana stendur yfir árleg sumar- sýning í Listasalnum Nýhöfn. A sýning- unni, sem er sölusýning, em málverk og skúlptúrar eftir nokkra helstu núlifandi Ustamenn þjóðarinnar. í Nýhöfn em auk þess ávallt til sölu verk eftir látna meist- ara. Opnunartími í Nýhöfn á meðan á sumarsýningu stendur er frá kl. 10 til kl. 18 virka daga. Lokað um helgar. Sýning- unni lýkur 25. júlí. Meiming Áshildur Haraldsdóttir flautulelkari. Álfamær á flautu Að áhti Fom-Grikkja átti ekkert hljóðfæri ástríðu- þrungnari tóna en flautan. Þetta hljóöfæri var upp- finning Pallasar Aþenu. Þegar hún eitt sinn lék á flaut- una viö lind eina veitti hún því athygli að svo virtist sem andlit hennar afskræmdist. Fleygði Aþena þá flautunni frá sér með formælingum. Hefði þessi gríska gyðja séð fyrir tónleika þá, sem Áshildur Haraldsdóttir hélt í Hafnarfirði i gærkvöldi, má víst telja að hún hefði ekki fargað flautu sinni svo gáleysislega. Því ekki aðeins lék Áshildur þannig á hljóðfæri sitt sem goðumbornum verum einum er fært heldur varð hún ef eitthvað er jafnvel enn fy.ll- egri meðan hún lék. Þess er þó að gæta að fegurð Áshildar er norræn og af álfakyni og-kunna að gilda þar önnur lögmál en hjá Aþenu hinni grísku. Jafnt og þétt fjölgar ungu íslensku tónlistarfólki með fuhkomna menntun á alþjóðlegan mælikvarða. Þetta er eitt skýrasta dæmið um vaxandi tónmenntun þjóð- arinnar og gróskuna í íslensku tónhstarlífi. Það kemur samt alltaf á óvart hve ótrúlega langt sumir þessara tónlistarmanna hafa náð og Áshildur Haraldsdóttir er í þeim hópi. Efnisskráin var í meginatriöum skipuð virtúósa- verkum sem reyna til hins ýtrasta á getu flytjandans. Mátti þar heyra allar erfiðustu þrautir öndunar og tungutækni sem flautuleikarar hafa fundið upp í gegn- um tíðina og ekki er fyrir aðra en innvígða að kunna Tónlist Finnur Torfi Stefánsson heiti á hvað þá heldur meir. Lék þetta allt í höndum Áshildar sem ekkert væri. Mikilvægast þó var að túlk- un hennar var full af listrænum tilþrifum sem borin voru uppi af mjög fallegum björtum tóni og nákvæmu skyni fyrir tíma og hljóðfalli. Meðleikari Áshildar á píanó, Love Derwinger, stóð sig einnig mjög vel. í mörgum verkanna var píanóið nokkuð í skugga flautunnar en þar sem á reyndi og í hinu frumlega verki Skrjabíns, Vers la flamme, þar sem píanóið var eitt um hituna, var flutningur Der- wingers mjög góður. Það mátti heyra á samleik skötu- hjúanna að þau hafa leikið saman um hríð því hann var yfirleitt mjög samstilltur. í einu verkanna bættist í hópinn önnur flauta í höndum Kristínar Guðmunds- dóttur. Var forvitnilegt að heyra hve ólíkur blær var yfir leik þeirra tveggja, en Kristín skilaði sínu hlut- verki með prýöi og gæti vel verið upprennandi virtúós. Verkin á efnisskránni voru flest eftir frönsk tón- skáld, enda hafa þarlendir lengi haft mikið dálæti á flautunni. Starfsfólk SPÖ ásamt sparisjóðsstjóra. Frá vinstrl Ægir Hafberg, Guðrún Kristjánsdóttir, Halldóra Jónsdóttir og Sigríður Benjamínsdóttir. DV-mynd Reynir Sparisjóöur Önundarfjarðar: Eigið fé jókst um 40% á síðasta ári Kjarvalstaðir Laugardaginn 14. júlí hefst hin árlega sumarsýing á verkum J.S. Kjarval aö Kjarvalsstöðum. Aö þessu sinni verða sýnd verk úr eigu safnsins undir yfir- skriftinni Land og fólk. í vestursal sýnir Nína Gautadóttir málverk. Kjarvalsstaö- ir eru opnir daglega milli kl. 11 og 18. Veitingabúðin er opin á sama tíma. Tapað fundið Kettlingur týndur Lítill 3ja mánaða kettlingur tapaðist frá Lambastekk 4 sl. mánudagskvöld. Finnandi er vinsamlega beðinn að hringja í síma 74990. Chanel skór tapast Einn svartur, flatbotna Chanel-skór úr rúskinnl og leðri tapaðist upp úr tösku í nágrenni við Laugaveg, finnandi er vin- samlega beðinn að hafa samband í sima 21849 e.kl. 19. Tónleikar Sumartónleikar á Norðausturlandi Undanfarin sumur hafa nokkrir tónhst- armenn á Norðurlandi eystra staðið fyrir tónleikahaldi. í sumar verður þessari starfsemi haldið áfram og helgina 13.-15. júh heldur strengjasveit tónleika sem hér segir: 13. júlí, föstudag, kl. 20.30; Húsavík- urkirkja. 14. júlí, laugardag, kl. 20.30: Reykjahlíðarkirkja. 15. júlí, sunnudagur, kl. 17: Akureyrarkirkja. Reynir Traustason, DV, Flateyri: Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Ön- undarijaröar nam 7,2 milljónum króna á síðasta ári. Eigið fé spari- sjóðsins jókst um 15 milljónir kr. eða 40% á sama tímabili. Nýlega var sparisjóðurinn í endur- bættu húsnæöi þar sem öll aðstaða fyrir starfsfólk og viðskiptavini er mjög til fyrirmyndar. Að sögn Ægis Hafberg sparisjóðsstjóra var einnig tekið í notkun nýtt tölvukerfi þar sem sparisjóðurinn tengist Reikni- stofu bankanna beint. Ægir sagði að heildarkostnaður við endurbæturnar væri á bihnu 5-6 milljónir króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.