Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1990, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990.
5
DV
Ásdís Stefánsdóttir, hjartasjúklingur af Suðumesjum:
Fréttir
Bíður enn eftir hjarta-
og lungnaígræðslu
„Heilsufariö er þokkalegt og ég
þakka fyrir meðan mér versnar ekki
og get verið óháð öndunarvélum. Ég
vona að það verði hringt í mig sem
fyrst og ég er tilbúin að fara um leið
og kallið kemur,“ sagði Ásdís Stef-
ánsdóttir, 35 ára gamall hjartasjúkl-
ingur af Suðurnesjum, í samtah við
DV.
Ásdís hefur beðið í nokkurn tíma
eftir að komast að í hjarta- og
lungnaígræðslu í London. Hún er
með meðfæddan hjartagalla sem hef-
ur með tímanum haft áhrif á starf-
semi lungnanna. DV ræddi við Ás-
dísi 21. júní og þá sagðist hún bíða
við farsímann ef hringt yrði frá Lon-
don. Þangað fór hún í október síðast-
liðnum og sögðu læknarnir þá að
best væri ef hún biði eftir aðgerðinni
heima þar sém ástand hennar væri
ekki orðið það slæmt.
„Ef ekki verður hringt í mig frá
London á næstunni hef ég trú á að
hlutirnir fari að ganga ef frumvarp
til laga um brottnám líffæra og
krufningar gengur í gegn á næsta
þingi. Það er allavega ekki nein
ástæða til að bíða úti í London. Þar
að auki bíða læknarnir aðeins þar
sem þeir vita að breytinga getur ver-
ið að vænta varðandi líffæraflutn-
inga hér á landi. Þó fannst mér mið-
ur að frétta ekkert af þeim málum á
nýafstaðinni prestastefnu."
-hlh
Evrópumót yngri spilara í bridge:
ísland í sjötta sæti
eftir tíu umferðir
Islenska landsliðið í bridge, spilar-
ar 25 ára eða yngri, hefur náð prýðis-
árangri á 12. Evrópumóti yngri spil-
ara sem nú stendur yfir í Neumunst-
er í Þýskalandi. Eftir 10 umferðir var
sveitin. í 6. sæti af 22 þjóðum, hafði
unnið sex leiki, tapað þremur og gert
eitt jafntefli.
í sveit íslands spila Hrannar Erl-
ingsson, Matthías Þorvaldsson,
Steingrímur Pétursson, Sveinn
Rúnar Eiríksson og tveir kornungir
bræður frá Siglufirði, Ólafur og
Steinar Jónssynir Sigurbjörnssonar.
Fyrirliði án spilamennsku er Björn
Eysteinsson bankastjóri.
Eftir 10. umferðir var sveit Noregs
efst með 207,5 stig, þá ísrael 204, Dan-
mörk 175,5, Þýskaland 173, Ungveija-
land 172, ísland 162,5, Svíþjóð 159,5,
Finnland 159, Pólland 159 og nr. 10
Bretland 157. Sveit frá Sovétríkj-
unum spilar á mótinu og var í 15.
sæti en sveit Ítalíu aðeins í 19. sæti.
Einstakir leikir íslands hafa farið
þannig. Sigur á Sviss, 17-13, Austur-
ríki, 25-5, Ungverjalandi, 22-8, Bret-
landi, 16-14, Spáni, 23-7, og Ítalíu,
19-11. Tap gegn Finnlandi, 12-18,
Póllandi, 8-22, og Noregi, 5-25, jafnt
við Portúgal, 15-15. íslenska sveitin
hefur sveiflast frá 2. sæti til þess ell-
efta. Leikir íslands hafa tvívegis ver-
ið sýndir á sýningartöflu - sigurleik-
irnir gegn Ungverjum og Bretum.
Norska sveitin virðist mjög öflug,
sigraði Pólland í 10. umferð, 25-3. Þá
vann Svíþjóð Tyrkland, 25-1, og ís-
land vann Ítalíu. Holland vann Dan-
mörku, 18-12, og Sovétríkin unnu
Sviss, 21-9.-hsím
Ásdís Stefánsdóttir bíður enn eftir nýju hjarta og lungum. Bindur hún von-
ir við lagafrumvarp um brottnám líffæra og krufningar sem lagt hefur verið
fyrir Alþingi. DV-mynd Ægir Már
HvBAwBDkwBBkvnHk.)
LáS
B fiu
AUSTERDAU
ER HUDID
AÐ EVROPU
Raunar má segja að hún sé hliðið að allri heimsbyggðinni. Þaðan er greið leið
með bílaleigubílum (þeim ódýrustu í Evrópu) og/eða lestum suður um alla
álfuna. Þaðan flýgur líka KLM til yfir 130 borga í 80 löndum. Á mörgum
þessara flugleiða getur Arnarflug boðið sérstaklega hagstæð fargjöld.
Hliðið er opið. Gjörið svo vel og gangið inn.
Lágmúla 7, sími 91-84477.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sími 92-50300.