Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1990, Síða 7
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990.
7
dv Sandkorn
: GcorgWr
Kristjánsson,
bæjarfulltrúi
sjálfstæöis-
mannaiEyj-
um, varhand-
tekinnfyrir
sköminu moð
um 1.200 lítra
afsmygluðu ;
vodkaíbilnum
sínum. Þetta
viröistekkií
fyrstaskipti
sem Georg kemur nálægt slikum
varningi ef marka má vísur sem Lýð-
ur Ægisson samdi um Georg á fer-
tugsafmæli hans og sungnar skulu
við lagið Minning um mann, Fyrsta
vísanersvona:
Halda vil ég ræðustubb um rosalegan
mann/ Égreyniaðvandaorðinþegar
talaégumhann/ Vininumtilheiðurs
tekégofanhattoghaus/ þvíhann
er orðinn fertugur - og gengur ennþá
laus!
Stebbi Geir
Síðarisöngn-
um kemur
framaðlíkast
til va-ri best að :
StefánGeir
Gunuarsson. .
yfirtollvöröur í :
Eyjum.yrði
varamaður Ge-
orgsihæjar-
stjórn:
Hansvahdamál
erStebbiGeir
sem stjórnar
tollinum/ ogstöðugtermeðnefiðoní
gáma-döllunum/ Um daginn fann þó
Goggi litli góða lausn á því/ aðgera
manninn óvirkan og létta smyglerí.
Sem bæjarstjórnarfuUtrúi hann
fundisitjaþarf/ þvíforræðiðíbæjar-
málum er hans annað starf/ En full-
trúinn þó vitanlega varamann sér
á/ semverðuraðtakasætihansef
skreppa þarf haim frá.
Goggi litlí er s vakalegur og segja ég
þaðverð/ Hannsagðimérítrúnaði
fránýrriráðagerð:/ „StebbaGeirég
baravelsemvaramanninnminn/ þá
veit ég hvar ég hef ann þegar skipin
komainn.
Reiðir Framarar
Framarar
voruorðnir
langeygireftir
stgriþegarþeir
mættuVals-
mönnumí
deiidinniá
þriðjudags-
kvöld. Þelr
höfðu tapað
þremursiðustu
deildarleikjutn
ogaukþess
bikarleUtnum
við Val stuttu áður. Eftír þann leik
buguðust nokkrir leUímanna undan
mótiætinu, réðust að dómaranum og
spörkuðu sundur hurðir í Valsheim-
ilinu á Hlíðarenda. Þegar Fram tókst
síðan að vinna Val á þriöjudags-
kvöldið voru Valsmennfljótir að
finna afsökun. Það vora skýr fyrir-
mæli frá hússtjórninni á Hlíðarenda
að Valur ætti að tapa leiknum. Vegna
slæmrar fiárhagsstöðu félagsins
hefði það ekki efhi á að standa!
umtalsverðum viðgerðtun ef Framar-
arlétu vonbrigði sín bitna á húsmun-
um eftir feUíinn.
Saga úrsveitinni
Þóleitínniað
léttustulund-
innisélokiöer
héreinsagaúr
sveiíinniscm .
lýsirbemren:
ntargt annaö
landtiúnaðar-
póliiikinniliér
álandi.Þannig
varaðhrútur
varálabbieftir
vegarkmitiixíg-
arhannsáfé-
laga sinn koma á móti sér. Þegar þeir
mættust nikkaöi sá sem kom á móti
kolliogsagði: „meee.“ Hinnsvaraði
aðbragði: „Einmittþaðsemégætlaði
aðsegja."
Umsjón:
Gunnar Smóri Egllsson
Fréttir
Alþingi styrkir sumarbú-
staðakaup starfsmanna
„Það voru starfsmannafélög
þriggja stofnana á Alþingi, það er
Ríkisendurskoðunar, háskóla-
menntaðra starfsmanna Alþingis og
umboðsmanns Alþingis sem ákváðu
að kaupa orlofshús í Húsafelli fyrir
starfsmenn þessara félaga.
Alþingi ákvað að veita félögunum
styrk að upphæð 5 til 6 milljónir
króna svo af sumarbústaðakaupun-
um mætti verða sem fyrst. Þessi upp-
hæð er ekki reidd fram á einu ári
heldur greiðist hún á þremur árum,“
sagöi Karl Kristjánsson, fjármála-
stjóri Alþingis.
„Ekki hefur verið greitt í orlofs-
sjóði vegna margra starfsmanna
þingsins, þeir hafa því ekki notið
sambærilegra orlofskjara og flestir
aðrir launþegar landsins gera. Þetta
er því fremur kjaraleiðrétting til
stórs hóps af starfsmönnum þingsins
en styrkur.
Til að mynda hefur ekki verið
greitt í orlofssjóð vegna félaga í Fé-
lagi háskólamenntaðra starfsmanna
Alþingis en af öllum öðrum opin-
berum starfsmönnum eru 0,25 pró-
sent af launum greidd í sjóðinn. Af
launum starfsmanna Ríkisendur-
skoðunar, sem voru fluttir undir
yílrstjórn þingsins 1. jan. 1987, hefur
heldur ekki veriö greitt í oriofssjóð.
Þaö er því ekki óeðlilegt að þetta fólk
fái leiðréttingu sinna mála,“ sagði
Karl.
Það verður svo orlofssjóður sem í
framtíðinni mun sjá um rekstur
sumarbústaðarins á sama hátt og
gert er hjá félögum annarra opin-
berra starfsmanna. Starfsmenn
þingsins eru um 70 og á hver starfs-
maður rétt á aö dvelja í bústaðnum
eina viku á sjö ára fresti.
-J.Mar
Reynir Traustason, DV, FTateyri:
Mikil þorskveiði hefur verið á
Vestíjarðamiðum undanfarnar tvær
vikur. Vestíjarðatogarar hafa fengið
frá 100 tonnum og upp í 170 tonn eft-
ir viku úthald.
Fá skip hafa verið að veiðum á
Vestfjarðamiðum miöað við árstíma
enda margir langt komnir meö
þorskkvóta sína. Það stafar af þeirri
miklu þorskveiöi sem veriö hefur
bæði sunnan og austan lands á fyrri-
hluta ársins.
Guðbjartur Ásgeirsson, skipstjóri á
Guðbjörgu ÍS, sagði í samtali við DV
að þorskurinn væri kvikur og stygg-
ur en stofninn virtist vera í jafnvægi.
„Það leggst vel í mig sumarið,
veiðisvæðið er ekki eins takmarkað
og ástand lífríkisins er eðlilegra en
það hefur verið undanfarin tvö ár.
Heitari sjór og víða vart viö þorsk,“
sagði Guöbjartur.
Togarar að veiðum á Vestfjarðamiðum síðustu viku.
DV-mynd Reynir
Vigdís
til
Bretlands
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, hélt áleiðis til Bret-
lands í morgun. Mun hún veita
heiðursdoktorsnafnbót við há-
skólann í Nottingham viðtöku á
morgun. 14. og 15. júlí mun forset-
inn heimsækja Grimsby þar sem
hún verður viðstödd hátíðahöld
til heiðurs sjómönnum, skoöar
verskmiðju dótturfyrirtækis SH
og liittir íslendinga búsetta á
Humbersvæðinu. Forseti kemur
heim aö kvöldi 15. júlí.
-hlh
Mokveiði á Vestflarðamiðum:
Ástand lífríkisins eðli-
legra en síðustu 2 árin
- segir Guðbjartur Ásgeirsson, skipstjóri á Guðbjörgu ÍS
Starfsmenn Radióbúðarinnar ætla
að bregða á leik og tela þrjár Apple
tölvur einhvers staðar I borginni í
dag. DV-myndJAK
Macintosh-
tölvur ífelum
í tilefni þess að 10 ár eru liðin síðan
farið var að selja Appletölvurnar hér
á íslandi ætla starfsmenn Radióbúð-
arinnar að fela þrjár Macintosh-
tölvur einhvers staðar í borginni.
Þeir sem verða svo heppnir aö finna
tölvurnar fá þær til eignar.
Það verður svo tilkynnt eftir há-
degið á útvarpsstöðinni Bylgjunni í
hvaða borgarhluta tölvurnar eru og
nákvæm staðsetning verður gefin kl.
18.00. Auk þess verða faldar 50 dósir
af Mackintosh’s Quality Streetsæl-
gæti í nágrenni tölvanna.
Til aö minnast afmælisins enn
frekar mun Radíóbúðin selja taka-
markað magn af Apple Macintosh
Plus-tölvum á sérstöku tilboðsverði.
TMHÚSGÖGN
SÍÐUMÚLA 30 SÍMÍ 686822